Morgunblaðið - 23.08.1989, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 23.08.1989, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ MIE)VJ.K|UL>AGUR 23. ÁGÚST 1989 Var dagurinn erfiður í bankanum? Við hefðum átt að grafa holu til að leita skjóls í... HÖGNI HREKKVÍSI List eða „ólist“ á Kjarvals- stöðum Til Velvakanda. Ég kom á Kjarvalsstaði, (fimmtud. 3.8. 1989), þar sem sjá mátti hina miklu erlendu lista- verkasýningu frá Epinal í Frakkl- andi, sem mikið orð hefur farið af í fjölmiðlum að undanförnu og lengi mun hafa verið lagt kapp á að fá hingað til lands. Manni hefur skilist að hér væru á ferðinni stór- fengleg listaverk á heimsmæli- kvarða. Undrandi varð ég er ég leit aug- um þessi miklu „listaverk". Það lá við að ég félli í stafi af að sjá þau undur og stórmerki, sem ráða- mönnum hússins hafa tekist að safna hér saman, vafalaust með miklum tilkostnaði, landsins lýð til andlegrar sálubótar skyldi maður ætla. Héðan skyldi enginn fara út aftur án aukins innsæis og skiln- ings á listrænum verðmætum, sem góðviljuðum útlendum snillingum hafði af höfðingsskap sínum þókn- ast að lána okkur, fávísum eyjabú- um, sem ekki hefðu fyrr kynnst slíkum undrum heimslistarinnar. Og hvað var nú það, sem einkum vakti athygli og furðu okkar fá- vísra?^ 1. Á miðju gólfi hafði verið rað- að saman á allstóran, kringlóttan blett, þunnum, óreglulega löguðum steinhellum, líkum þeim, sem nóg er af í íslenskum líparítfjöllum, t.d. í Drápuhlíðarfjalli á Snæfellsnesi. Erfitt gat verið að finna út, hvern- Til Velvakanda. Ég sá í einhveiju blaði um dag- inn bréf frá konu, sem kvartaði yfir því að hún hafði ekki fengið að fara inn í Danshúsið í Glæsibæ í gallabuxnapilsi. Ég verð að segja eins og er, að mér finnst þetta gott. Sjálfur fékk ég nefnilega ekki inngöngu þama í vor, klædd- ur gallabuxum og peysu. Mér fannst það hart en dyraverðirnir hringdu fyrir mig á bíl og ég fór heim í jakkafötin. Þegar ég kom svo aftur var vel ig hér gat verið um að ræða eitt- hvert stórbrotið listaverk á heims- mælikvarða. Víða á íslandi má sjá húsveggi, sem skreyttir em með líparíthellum, gestum og heima- mönnum til augnayndis, en aldrei hefur víst hálærðum listfræðingum komið til hugar að kalla þessar skreytingar stórbrotin listaverk, enda hefur enginn til þess ætlast. 2. Á öðrum stað er hálmhrúga, eða einskonar sáta, sem bundið er utan um með snæri. í hveiju skyldi liggja listgildi þessarar hrúgu? 3. Á öðrum stað fyrir miðjum vegg var á gólfinu samsafn ýmissa muna, sumra heldur óhijálegra. Þarna voru kassar og smáborð, þvottabretti, kökukefli og fleira smálegt óskyldra hluta, m.a. einn hlutur, sem helst líktist heymeis. Þessi uppstilling minnti helst á það fyrirbrigði að koma niður í ein- hveija kjallarageymslu, þar sem sundurleitum hlutum, sem búnir voru að gegna hlutverki sínu, hefði verið fleygt óreglulega út um allt, til þess að losna við þá frá augun- um. Og enn kom upp í hugann sama spurningin: Hvernig átti að vera hægt að hrífast af fegurð eða listrænni túlkun þessa verks hins tekið á móti mér og ég boðinn velkominn. Allir þarna inni voru vel klæddir, Anna Vilhjálms. söng eins og hún ein getur og svei mér þá ef ekki allir dönsuðu undir söng og frábærri hljómsveit. Þetta er eitt besta ball, sem ég hef komið á og hef ég þó víða farið. Hins vegar mættu veitingahús, eins og Danshúsið í Glæsibæ, taka það fram í auglýsingum, hvaða klæðnað þau heimta af gestum. Sveinn Stefánsson útlenda „listamanns"? 4. Fyrir miðjum enda salar hékk stór mynd af niðursuðudósum, sem allar voru nákvæmlega eins að lög- un, og minntu á samskonar mynd- ir í venjulegum auglýsingum eða í verslunum. Hvert skyldi nú vera listrænt gildi þessa verks? í salnum voru mörg verk fleiri, en erfitt var að njóta þeirra sem fagurra listaverka eða hafa yndi af að skoða þau. Hitt var heldur, að þau vektu óhug og leiða í huga manns og ósjálfrátt skaut upp þeirri hugsun, hvort verið væri að gera gys að dómgreind almenn- ings, sem sýningin er ætluð að telja listmat hins almenna borgara á svo lágu stigi að nánast mætti bjóða honum hvað sem vera skal, ef það væri i nafni listar. Nema þá að hún væri í raun ætluð „lista- mönnunum" einum, höfundum ver- kanna og þeim sem ljá henni rými í þessum dýrmætu salarkynnum, en slíkt vil ég ekki ætla. En þó má spyija: hveijum er sýningin ætluð? Ég held, að þegar svona vægast sagt, undarleg „listsýning er opnuð almenningi, þá þyrfti nauðsynlega að vera til staðar einhver list- fræðingur, sem gæti treyst sér til að skýra fyrir gestum í hveiju feg- urð og/eða listgildi þvílíkra verka væri fólgið. Gaman þætti mér og vafalaust mörgum fleirum, ef einhver list- fræðingur tæki sig til og útlistaði í dagblöðum eða í öðrum fjölmiðl- um fyrir almenningi, í hveiju hið mikla listgildi hinna fjögurra fram- angreindu verka á Kjarvalsstöðum er fólgið, að þeirra áliti. Það væri þakklátt verk, sem allir kynnu að meta, ef vel væri á málum haldið og viðfangsefnið væri í raun verð- ugt slíkrar umfjöllunar. Listunnandi Gallabiixiir og veitingahús Víkverji skrifar Einn af viðmælendum Víkveija hafði orð á því, að hvar sem hann kæmi, kvartaði fólk undan álögum núverandi ríkisstjórnar. Hann kvaðst heyra þetta orð: álög- ur...álögur...álögur alls staðar og taldi skv. því, að það ætti ekki að kalla þessa ríkisstjóm vinstri stjórn heldur álagastjórn. Þessu er hér með komið á framfæri við þjóðina. XXX Annar viðmæíandi Víkveija kvaðst hafa verið í hópi ungs fólks fyrir nokkru. Mikill meiri hluti þessa fólks hefði talað um, að það vildi gjarnan flytja af landi brott vegna þess, að afkomumöguleikar væru svo takmarkaðir hér. Hann sagði hins vegar, að sér hefði brugð- ið mjög, þegar í ljós kom, að flest þessara ungmenna töldu sig ekki geta gert þetta þrátt fyrir góðan vilja. Ástæðan var alls staðar sú sama: skuldafjötrar. xxx Umræður um jarðgöng hafa verið töluverðar undanfarna mánuði og nýlega birtist í Morgun- blaðinu viðtal við Steingrím Sigfús- son, samgönguráðherra, þar sem hann fjallaði um jarðgöng. Víkveiji hefur orðið þess var, að þetta viðtal og aðrar umræður um jarðgöng hafa vakið upp áhyggjur hjá fólki. Sagt er sem svo: við erum komin vel á veg með að leggja varanlegt slitlag á hringveginn. Hvaða vit er í því að veija miklum fjármunum í jarðgöng á þessu stigi málsins, sem hlýtur að leiða til þess, að minna fjármagn gengur til varanlegrar vegagerðar. Þetta er sjónarmið út af fyrir sig og sýnir, að fólki er annt um, að lokið verði lagningu slitlags á hring- veginn a.m.k. Um leið og því er iokið má ganga út frá því sem vísu, að sterkar kröfur koma fram um að halda áfram þessari vegagerð utan hringvegar. I því sambandi: hvaða segja menn um vegatolla, sem gerðir voru að umtalsefni á þessum vettvangi fyrir nokkru og tíðkast í fjölmörgum löndum? Þeir mundu flýta mjög varanlegri vega- gerð í landinu - þ.e. ef einhver ríkis- stjórn á borð við þessa, sem nú sit- ur tæki þá ekki upp á því að taka þá peninga í eitthvað annað! xxx Fólk kvartar undan veðrinu hér í sumar. Víkveiji var í nokkrar vikur í 30-37 stiga hita. Það var verra veður! Kannski eru útlending- arnir, sem hingað koma að flýja hitann?!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.