Morgunblaðið - 24.06.1990, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 24.06.1990, Blaðsíða 8
8 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ HEILSAÐU KÓNGINUM GÆSKA Einu sinni á dögnnum þeg- ar drottningin í Englandi var að borða litla skatt- inn - því hún borðar ævinlega litla skatt - þá kom maðurinn hennar út í skemmu að bjóða góðan dag. „Guð gefi þér góðan dag, heillin!“ sagði drottningin; „hvurnig er veðrið?“ Maðurinn drottningarinnar hneigði sig og sagði: „Hann var regnlegur í morgun, en nú birtir upp; ég lét taka saman og svo má binda þó þú farir - ætlarð’ ufrum í dag, gæska!“ „Já,“ sagði drottningin. Hann hneigði sig þá aftur og sagði: „Ég verð þá að flýta mér og láta fara að sækja hestana.“ „Gerðu það,“ segir hún. Nú fór drottningin að búa sig, því hún ætl- aði í orðlof sitt ufrá Frakkland að fmna kóng og drottningu og fleiri kunningja. Hún var með gullskó, í silfursokkum og silfurbryddu gullpilsi, með gullsvuntu og að ofan í gull- lagðri silfurtreyju, með silfurhúfu og gullskúf í - en þetta gull og silfur er allt eins og orma- vefur og léttara en fis og þó hlýtt. Þjónustum- ar vora líka vel búnar, því þær fóra með eins og vant er þegar drottningar ferðast. Þegar drottningin var komin út á hlað var allt tilbúið, hestamir og fýlgdarmennirnir og ráðgjafamir og orðlofsgjafimar - á 6 hestum í silfurkoffortum - ogteymdi sinn kammer- herra hvum hest; þar vora líka í ferðinni bar- únar og kaupmenn og margt kvenfólk fyrir utan þjónusturnar, og nógir meðreiðarmenn og lestamenn, og allt var vel búið. Drottningin reið „Gulltoppu“, það er gullfextur færleikur og silkibleikur á lit og hefír verið sóttur suður í heim, en maðurinn hennar reið rauðum gæð- ingi sem hann á sjálfur. „Fáðu mér keyrið mitt, gæska!“ sagði drottningin, og maðurinn hennar hneigði sig og fékk henni keyrið, það var gullkeyri með silfurhólkum og lýsigullssnúð á endanum, og svo var farið á stað. Drottningin var alltaf á undan, því enginn hestur jafnaðist við Gulltoppu, og þegar kom- ið var ofan að sjónum var sett fram drottning- arskipið; það er með silkisegli og fílabeins- mastri sem allt er skrúfað saman og gullneglt, allt úr homi og skelplötu og besta gangskip. Þegar komið var út úr landsteinunum og búið að snúa við kallaði drottningin þrisvar á land og bað að gá vel að heyjunum og öllu meðan hún væri fyrir hand- an; svo settist hún undir stýri að gamni sínu, en það er silfurstýri og leikur í hendi manns. Kóngurinn í Frakkl. bjó á bestu jörðinni norður við sjó. Túnið er eins stórt og Hólmurinn í Skagafírði, rennslétt og fagurt eins og spegill - svo kvenfólkið sem rakar verður að ganga með stuttbuxur innan undir - o g silfurtúngarður allt um kring. Fólkið var allt úti við heyið nema drottning og kóngur sem eru gömul; hún sat inni í baðstofuhorni og var að spinna á gullsnældu, en hann sat hjá með kórónu sína og voru þau að tala um ríkisreikningana og allan búskapinn. Þá kom inn einn af fólkinu (en það eru allt kóngssynir og kóngsdætur eða jarlar og kammerherrar og biskupsdætur), „séra Filipp- us!“ segir hann, því kóngurinn heitir séra Filippus, „það er skip á sundinu og við höldum það sé drottningarskipið að handan; segið er blátt og rautt.“ „Heyrirðu það, kona!“ sagði kóngurinn, „þú átt von á gestum; ég geng sjálfur ofan að sjó, en sjáðu um á meðan að verði sópað og heitt kaffe, og svo verðurðu eitthvað að hugsa fyrir miðdeginu.“ „Ég er öldungis hlessa,“ sagði drottningin; „Marmier minn!“ (því það var Marmier sem inn kom, hann er nú orðinn jarl) „farðu,“ segir hún, „út og láttu hann Guðmund litla hlaupa á næsta bæ eftir ijóma.“ „Hvar er hann Guizot?“ sagði kóngurinn þegar hann kom út, „ég ætlaði að láta hann verða mér samferða - Guizot! Guizot! hvur þremillinn er orðinn af manninum?" En Guizot heyrði ekkert orðið; hann lá sunn- an undir vegg og var að lesa 7 ára gamlan Skírnir sem félagsdeildin á Islandi var nýbúin að senda honum. Þegar skipið kom að landi renndi það upp að bryggjunni - því þar er bryggja eins og í kaupstað - og drottningin úr Englandi sté í land; kóngurinn gekk á móti henni og tók ofan kórónuna og hneigði sig, en hún kyssti á hönd sína og brosti, og svo föðmuðust þau, og maðurinn drottningarinnar og allt fólkið stóð hjá og horfði á hvumig þau fóru að heils- ast. „Heilsaðu kónginum, gæska!“ sagði drottn- ingin; „ég tók manninn minn með mér, séra Filippus! það er skemmtilegra að hafa hann með.“ „Gaman og óvænt æra!“ sagði séra Filipp- us, „en komið þið nú heim að fá ukkur ein- hvuija hressingu“; svo var gengið heim og kóngurinn leiddi drt. og maðurinn drottningar- innar og allt fólkið gekk með og horfði á hvurn- ig þau fóra að leiðast og ganga. Þegar kom heim á völlinn hafði enginn munað eftir að hann var fagur eins og spegill, en fötin drottningarinnar vora svo síð að ekkert bar á, en hitt kvenfólkið gekk allt hokið og beygði sig í hnjánum og sumar sett- ust niður og létust vera að gera við skóinn sinn. Kóngurinn tók fyrst eftir þessu og skip- aði að bera ösku á völlinn, svo kvenfólkið gæti gengið heim; svo var borin aska á völl- inn, og svo gengu allir heim. Blaðið er nú á enda eins og hvur maður getur séð; ég veit ekki hvurt einhvur vill halda þessari sögu áfram og tala um viðtökurnar heima. - úr sendibréfi, eftir Jónas Hallgrfmsson Af Frakklandsferð drottningarinnar í Englandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.