Morgunblaðið - 24.03.1991, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 24.03.1991, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MARZ 1991 TTT7TTTT Stórkostlegt að fá að byrja í San Francisco — segir Magnús Baldvinsson bassasöngvari sem gert hefur árssamning við óperuna í San Francisco UNDANFARIN ár hefur orðið æ algengara að íslenskir óperu- söngvarar leiti fyrir sér á erlendri grund. Nokkrir eru fastráðn- ir við óperuhús í Evrópu, aðallega í Þýskalandi, en aðrir hafa kosið að stunda lausamennsku við óperuhús í öðrum löndum og heimsálfum. Við upptalningu af þessu tagi vekur athygli að enginn íslendingur starfar um þessar mundir við bandarískt óperuhús. í sumar verður á þessu breyting en þá hefur ungur* íslenskur bassasöngvari, Magnús Baldvinsson, störf við óperu- húsið í San Francisco. Magnús lærði söng hjá Guðmundi Jóns- syni og Dóru Reyndal í Söngskólanum 1984 til 1987 en þá hélt hann til Bandaríkjanna þar sem hann stundaði framhalds- nám við Tónlistarháskólann í Bloomington í Indiana. Á morg- un heldur Magnús tónleika í Hafnarborg í Hafnarfirði. Framhaldsnám Magnúsar í Bandaríkjunum má rekja til kynna þeirra Roy Samuelsen, norsks ættaðs söngkennara í Bloomington, árið 1985. Áhersla á bókleg fög og óperuflutning „Hann heyrði í mér á nám- skeiði, sem hann hélt í Reykjavík, og hvatti mig til að koma til Bandaríkjanna. Það varð úr og tveimur árum seinna hóf ég nám í Tónlistarháskólanum í Bloom- ington í Indiana sem talinn er einn af þrem bestu tónlistarhá- skólum í Bandaríkjunum," sagði Magnús í samtali við Morgun- blaðið. „í náminu, sem er gifurlega erfitt, er mun meiri áhersla lögð á bókleg fög heldur en hér heima þar sem áhersla á þennan þátt mætti að mínu mati vera mun meiri en nú tíðkast. Mikið var einnig lagt upp úr óperuflutningi og meðan ég var í námi tók ég þátt í fimm óperuuppfærslum. Ég söng til dæmis hlutverk Osm- ins í Brottnáminu í kvennabúrinu eftir Mozart, Don Basilios í Rak- aranum í Sevilla eftir Rossini og Bláskeggs í Kastala Bláskeggs eftir Barók en til gamans má geta þess að óperusviðið í Bloom- ington er jafn breitt og óperu- sviðið í Metropolitan-óperuhús- inu í New York. Eftir tveggja ára mastersnám við skólann fór ég til Þýskalands og söng fyrir 5 umboðsmenn sem allir vildu vinna fyrir mig en ekkert varð þó úr því að ég gerði fastan samning við óperuhús í það skiptið. Seinna fluttum við til Bloomington þar sem við hjón- in sóttum einkatíma hjá Roy, en Kathryn kona mín er sópran- söngkona." í prufusöng með magakveisu „í nóvember dró svo til tíðinda þegar ég var kallaður í prufu- söng til Chicago. Eg hafði verið í borginni en var á heimleið, með magakveisu og illa fyrir kallaður. Okkur hafði verið innrætt að syngja ekki í slæmu líkamlegu ástandi en Kathryn hvatti mig til að fara og ég sá sjálfur að mikið lá við. Sem betur fer virtust veikindin ekki hafa mikil áhrif á sönginn og eftir prufuna var mér boðinn árssamningur við óperuhúsið í San Francisco. Samningurinn tekur gildi í júní og þegar hafa tvö_ fyrstu verkefnin verið ákveðin. Ég mun syngja hlutverk Kezal hjóna- bandsmiðlara í Seldu brúðinni eftir Smetana, og er það gaman- hlutverk, og hlutverk læknisins í La Traviata Verdis en það hlut- verk er fremur lítið. Hvað tekur við eftir þessi hlutverk veit ég ekki en sennilega bíður eftir mér bréf frá óperunni þegar ég kem heim til Bloomington eftir nokkra daga.“ „Miklar áætlanir" „Samningurinn breytir öllu fyrir mig. Óperan í San Francis- co er ein af þrem stærstu og bestu óperum í Bandaríkjunum og stórkostlegt að fá að byijað þarí Þess má geta að ef fólk hefur áhuga á að kynnast húsinu þá er ópera mánaðarins á Stöð Magnús Baldvinsson 2, La Bohéme, tekin upp í San Francisco-húsinu.“ Hljómsveitarstjóri frá óperu- húsinu í San Francisco hafði samband við kennara Magnúsar fyrir stuttu. „Hann ætlar að koma til Bloomington og æfa með mér á næstunni," sagði Magnús. „Og hann sagði við kennara minn að óperuhúsið hefði „miklar áætlanir" fyrir mig í framtíðinni. Þannig að framt- íðin er afar spennandi,“ bætti Magnús við. Magnús söng einsöng með Sinfóníuhljómsveit íslands á tón- leikum í Langholtskirkju á fimmtudaginn en annaðkvöld heldur hann einsöngstónleika í Hafnarborg í Hafnarfirði. Á tón- leikunum leggur Magnús áherslu á íslensk lög en syngur einnig aríur úr nokkrum óperum. Má þar nefna aríur úr La Juive eftir Halévy og Nabucco eftir Verdi. Af íslenskum lögum má nefna Mánaskin, Bikarinn og Lindina, lög eftir Eyþór Stefánsson en ljóð eftir Helga Konráðsson, Jó- hann Siguijónsson og Huldu. Undirleikari á tónleikunum verður Ólafur Vignir Albertsson. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Erla Sigurðardóttir og Lára Helgad^tir með veggspajldið sem Erla hannaði. Kvennadeildir SVFÍ: Veggspjaldi um ör- yggismál dreift í skip KVENNADEILDIR Slysavarnafélags íslands hafa gefið út vegg- spjald, sem dreift verður í öll skip. Á spjaldinu eru myndir og texti til að minna sjómenn á að huga að öryggismálum um borð. Lára Helgadóttir, 2. varaforseti SVFÍ, afhenti fulltrúum JSiglinga- málastofnunar, LÍÚ, FFSÍ og fleiri aðila fyrstu veggspjöldin á blaða- mannafundi um borð í skólaskipinu Sæbjörguá föstudagr. Hún sagði, að frá því að Slysavarnaskóli sjó- manna var stofnaður, fyrir tæpum sex árum, hefðu 5508 sjómenn sótt námskeið hans. Á þessum tíma hefði orðið mikil hugarfarsbreyting og í dag væri fræðsla um öryggis- mál nauðsynlegur og sjálfsagður þáttur í námi sjómannsefna. Kvennadeildir SVFÍ vildu leggja sitt af mörkum með því að dreifa veggspjaldinu, sem vonandi yrði sett upp í sérhveiju íslensku skipi. Á veggspjaldinu eru nokkur at- riði til umhugsunar fyrir sjómenn. Sem dæmi má nefna eftirfarandi spurningar: Veistu hvert þitt hlut- verk er samkvæmt neyðaráætlun? Manstu hvað neyðarmerkin þýða? Kanntu á neyðarsendinn í Gúmmí- bátnum? Éru neyðarútgangar greiðir? Veistu að það er jafn hættu- legt að reykja í koju og að spila rússneska rúllettu? Erla Sigurðardóttir hannaði veggspjaldið, en Þórir Gunnarsson og fleiri aðstoðuðu við gerð texta. Afmæli í dag, 24. mars, er 80 ára Rósa Jóhannsdóttir frá Bakka í Bjarn- arfirði, Garðvangi í Garði. Hún tekur á móti gestum í dag afmælis- daginn á heimili bróðursonar síns, á Sæbólsbraut 44, Kópavogi, ki. 15-18. Misritun varð í þessari afmælis- tilkynningu í blaðinu í gær. Morgunverðarfundur Verslunarráðsins: Virðisaukaskattinn úr 24,5115 prósent VERSLUNARRÁÐ íslands efnir til morgunverðarfundar í Súlna- salnum á Hótel Sögu kl. 7.50 á þriðjudaginn. Þar verður kynnt sjónarmið skattnefndar VÍ varðandi niðurfærslu virðisaukaskatts- ins úr 24,5 í 15%. Fulltrúar nokkurra stjórnmálaflokka greina frá afstöðu flokka sinna til málsins. Frummælendur verða Steingrím- ur Ari Arason hagfræðingur VÍ og Örn Johnson framkvæmdastjóri Skorra hf. Þeir Geir H. Haarde þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðuflokks, Ólafur Ragnar Grímsson formaður Alþýðubanda- lags og Steingrímur Hermannsson formaður Framsóknarflokks svara spurningum um hvort niðurfærsla VSK-ins sé rétt stefna og raunhæft markmið. Frá upphafi hafa verið veittar veigamiklar undanþágur frá greiðslu VSK hér á landi og við þær hefur síðan verið bætt stig af stigi. Þetta stríðir gegn tilgangi breyting- arinnar úr söluskatts- í virðisauka- skattskerfi, sem átti meðal annars PASKATILB0D 15-25% AFSIATTUR af skíóum, skíðaskóm og LUTHA skíðafatnaði. Tilboðid stendur adeins fram að páskum. Sendum í póstkröfu. »hUMM9^? SPORTBÚÐI N ÁRMÚLA 40, SÍMI83555 Dæmi um verð: Áður Nú Rossignol keppnisskíói 23.000,- 16.995,- Rossignol Open skíói 19.900,- 14.995,- Rossignol skíói V-271 8.990,- 6.750,- Lutha samfestingar 24.900,- 18.675,- Lutha samfestingar 22.900,- 17.175,- Sértilboó á unglingaúlpum 10.990,- 5.990,- Sértilboó á barnaúlpum 7.690,- 3.990,- E að útrýma undanþágum og gera innheimtu- og skilaeftirlit viðráðan- legra. Skattanefnd VÍ, sem starfaði all- an fyrri hluta þessa vetrar að undir- búningi Viðskiptaþings 91, en það var í febrúar, benti á að innan Evr- ópubandalagsins hefði undanfarið stefnt í tveggja þrepa virðisauka- skatt 4-9% og 14-20%. Þar séu tvö þrep talin rauhæf pólitísk markmið, en ekki endilega æskilegasta leiðin. Nefndin áleit nauðsynlegt að þess- ari' þróun verði fylgt hér á landi og benti á þann kost sem æskilegan og raunhæfan, að lækka VSK-inn úr 24,5% í 15%. Meginúrræðin eru, að mati nefndarinnar, afnám undanþága og þar með um leið aukin innlend við- skipti og bætt skattskil, svo og markviss samdráttur ríkisumsvifa, meðal annars með einkavæðingu á ýmsum sviðum. Fundurinn er opinn, en þátttöku þarf að tilkynna Skrifstofui við- skiptalífsins milli klukkan 8 og 16 á mánudag. (Fréttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.