Morgunblaðið - 13.05.1993, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.05.1993, Blaðsíða 1
IÐNAÐUR: Plastprent hyggur á útflutning / 4-5 HAGFRÆÐISTOFNUN: Áfellisdómur á bankakerfiö / 6-7 VIÐSKIFn AIVINNULtF PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1993 BLAÐ Ahættufjármögnun Þróunarfélagið hefur selt meirihluta íKögun ÞRÓUNARFÉLAGIÐ hefur selt hlut sinn í Kögun hf., en stjórn Kögun- ar leysti til sín hlutabréfin með áform um að finna nýja meðeigendur að félaginu. Starfsemi Kögunar hefur að mestu farið fram í Banda- ríkjunum, þar sem 16 starfsmenn eru. Fyrirtækið vinnur m.a. að hönn- un hugbúnaðar fyrir íslenska loftvarnarkerfið, IADS, en velta fyrir- tækisins var 94 milljónir í fyrra og hagnaður 7,6 milljónir. Þróunarfé- lagið var stærsti hluthafinn í Kögun með 51% hlutafjár. Auk þessa hefur Þróunarfélagið ákveðið að selja hlutabréf sín í Marel hf., en félagið er þar annar stærsti hluthafinn með 12,4% hlutafjár. Nafn- virði bréfanna er um 13,6 milljónir, en miðað við síðasta viðskipta- gengi á bréfum í Marel má gera ráð fyrir að söluvirðið verði á bilinu 30-40 milljónir króna. í viðtali við Morgunblaðið sagði Þorgeir Eyjólfsson, stjómarformað- ur Þróunarfélagsins, að með tilliti til markmiða félagsins um að ein- beita sér fyrst og fremst að upp- byggingu fyrirtækja, sé ekki talin ástæða til að þess að félagið eigi lengur hlut í Marel og Kögun. „Nú er Marel orðið öflugt almennings- hlutafélag, skráð á Verðbréfaþingi íslands, sem Þróunarfélagið hefur hlotið góðan arð af. Verkefni okkar er þar með lokið og því teljum við tímabært að selja hlutabréfin. Að sama skapi var Þróunarfélagið búið að ná sínu markmiði með fjárfest- ingunni í Kögun.“ Um aðdragandann að sameigin- legri fjárfestingu 12 lífeyrissjóða í Þróunarfélaginu sagði Þorgeir að á liðnum ámm hefðu sambönd iíf- eyrissjóðanna verið að velta fyrir sér með hvaða hætti þeir gætu kom- ið að ijárfestingu í hlutabréfum. Áhuginn hafi ekki ekki einungis beinst að skráðum hlutabréfum heldur einnig að fjárfestingu í óskráðum fyrirtækjum þannig að hægt væri að koma einhveijum hluta af sparnaði lífeyrissjóðanna í raunverulega uppbyggingu at- vinnulífsins. Lífeyrissjóðir sáu möguleika á að nota Þróunarfélagið sem milligönguaðila til að nálgast áhættusamari hluta markaðarins og keyptu 29% hlut ríkisins í félaginu. „Verðmæti hlutabréfanna er 0,2% af heildareign þátttökusjóðanna þannig að ljóst er að hver einstakur lífeyrissjóður er ekki að taka mikla áhættu með kaupunum." Að loknum aðaifundi félagsins í marsmánuði sl. markaði ný stjórn félagins hugmyndir að áherslu- breytingum í fjárfestingarstefnu Þróunarfélagsins. „Auk nýsköpunar höfum við ákveðið að taka hugsan- lega þátt í endurskipulagningu fyr- irtækja sem eiga í erfiðleikum en gefa þó fýrirheit um arðsaman rekstur að endurskipulagningu lok- inni. Jafnframt mun félagið vilja leggja sitt lóð á vogarskálar til að stuðla að samruna fyrirtækja með það fyrir augum að ná fram auknu hagræði í rekstri og veltuaukningu að uppfylltum arðsemiskröfum.“ Ný stefna Þróunarfélagsins í hinni nýju stefnu Þróunarfélags- ins felst einnig að félagið hyggst vera opið fyrir samstarfi bæði við innlenda og erlenda áhættufjár- festa. Einnig er ætlunin að fylgjast með fjárfestingarmöguleikum varð- a-ndi einkavæðingu ríkisrekstrar. „Þrátt fyrir áhættu í ákveðnum verkefnum verður arðsemissjónar- miðið í fyrirrúmi. Við ákvörðun um fjárfestingu er ætíð haft í huga að góðar líkur séu fyrir hendi að losna aftur út úr fjárfestingu með sölu á viðkomandi hlutabréfum. Yfirleitt samþykkir félagið ekki að hindranir séu lagðar á meðferð eða sölu hluta- bréfa í þeim félögum sem fjárfest er í,“ sagði Þorgeir Eyjólfsson. Hreinn Jakobsson viðskiptafræð- ingur sem starfað hefur hjá Þró- unarfélaginu sl. fjögur ár hefur tek- ið að sér tímabundna framkvæmda- stjórn í fyrirtækinu, en líkt og áður hefur komið fram lét Gunnlaugur M. Sigmundsson nýlega af starfi framkvæmdastjóra Þróunarfélags- ins. Eftipspurn eftip gulli á heims- mapkaði Skipling eftirspurnar: M Annað [@| Rafeindabúnaður Fjárfesting || Skartgripir [|§ Gullstangaforði Eftirspurn (tonn) 3000 * V" 3182 2853 2898 Verð (US$/oz) 600 2500 2000 1983 84 SAMKVÆMT nýrri könnun á gullverði og eftirspurn eftir gulli i heiminum var framleiðsla á skartgripum úr gulli í hámarki vegna mikillar eftispurnar frá Asíu og Kína á síðasta ári. Verðið hefur hins vegar ekki verið lægra um sjö ára skeið vegna sölu Seðlabanka á gulli. Könnunin sýnir að nettó sala Seðlabanka á gulli nam um 599 tonnum og hafa þeir ekki selt meira á einu ári síðan 1968. Kínverjar eru nú stærstu kaupendur gulls en einkageirinn þar í landi keypti um 350 tonn og Seðlabanki Kína keypti líklega stærstan hluta af þeim 400 tonnum sem Hollendingar settu á markaðinn í fyrra. Gull- verð hækkaði strax eftir að þessar upplýsingar birtust í byrjun vikunnar en í niðurstöðum könnunarinnar kom fram að búist væri við aukinni eftirspurn eftir gulli til skartgripagerðar á þessu ári. Framleiðsla á gullskartgripum jókst um 15% á árinu 1992 í 2.461 tonn og vöxturinn var verulegur á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Heimild: Gold Fielós Mineral Services Lld REUTER Öndvegisbréf - eignarskattsfrjáls og án bindingar Á síðasta ári gáfu Öndvegisbréf 8,6% raunávöxtun. Öndvegisbréf eru eignarskattsfrjáls og innleysanleg að jafnaði samdægurs. Kynntu þér kosti Öndvegisbréfa. Ráðgjafar Landsbréfa og umboðsmenn í Landsbanka íslands um allt land. LANPSBREF HF. Landsbankinn stendurmeð okkur Sudurlandsbrout 24, 108 Reykjavík, sími 91-679200, fax 91-678598 Löggilt verðbréfafyrirtæki. Aðili ad Verðbréfaþingi íslands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.