Morgunblaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 9
B 9 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 1994 KORFUKNATTLEIKUR / STJORNULEIKUR KKI Casey var hittnastur Bandaríkjamaðurinn hjá Grindvíkingum, Wayne Casey, sigraði í þriggja stiga skotkeppni sem fram fór á und- an Stjörnuleiknum. Sex kepp- endur reyndu með sér í úrslitum. Keppnin fór þannig fram að keppendur skutu af fimm mis- munandi stöðum, þremur bolt- um af hverri stöð og gilti síð- asti boltinn á hverri stöð tvö stig-en hinir tveir eitt stig hvor. Guðjón Skúlason byijaði og fékk 10 stig, Einar Einarsson, sem hafði fengið flest stig í undankeppninni, tíu alls, fékk 6 stig, Ragnar Þór Jónsson fékk 7 stig, Kristinn Friðriksson 10 og misnotaði öll þrjú skotin á síðustu stöð í hægra horninu. Hjörtur Harðarson var kominn með 11 stig þegar hann átti fjóra bolta eftir en tókst ekki að hala inn fleiri stig. Casey var kominn með 10 stig þegar hann átti síðasta bolt- ann eftir í hægra horninu. Og hann misnotaði ekki tækifærið, heldur hitti og sigraði með 12 stig og hlaut að launum bikar. FOLK ■ TEITUR Örlygsson úr Njarð- vík var fjarri góðu gamni í stjörnu- leiknum. Hann hefur venjulega tekið þátt í leiknum og einnig í troðslu- keppninni og þriggja stiga keppn- inni, en að þessu sinni sat hann á bekknum. Teitur meiddist á kálfa snemma í leik UMFN gegn ÍA í vik- unni og verður varla orðinn góður á fimmtudaginn er UMFN mætir ÍBK. ■ RONDEY Robinson varð að sætta sig við að fylgjast með eins og Teitur félagi hans hjá UMFN. Hann hefur verið meiddur að und- anförnu en leikið engu að síður en í leiknum gegn ÍA versnuðu meiðsli hans svo hann tók sér frí um helg- ina, en verður væntanlega með gegn ÍBK á fimmtudaginn. ■ ÞAÐ var þéttsetinn bekkurinn í Austurbergi á laugardaginn, en yngri flokkum var boðið á leikinn og því má gera ráð fyrir að meðalald- urinn hafi ekki verið mjög hár. Þeir slakari vorubetri STJÖRNULEIKURINN íkörfu- knattleik fór fram um helgina í Austurbergi og lauk honum með sigri liðs A-riðils, 143:134 eftir framlengdan leik. Það var sem sagt lið veikari riðilsins sem sigraði, en menn hafa mikið rætt um að A-riðill úr- valsdeildarinnar sé mun veikari en B-riðill. Vel má það vera rétt en úrvalslið þeirra slakari var samt betra en lið þeirra sterkari. Leikurinn var frekar daufur framan af og leikmenn hittu ekki allt of vel, en það átti eftir að lagast. Mjög skemmtileg tilþrif sáust inn á milli hjá leikmönnum, sér- staklega sýndu bak- verðirnir Franc Booker úr Val og Wayne Casey úr Grindavík, skemmtileg tilþrif. Menn voru órag- ir við að reyna ýmislegt sem þeir Skúli Unnar Sveinsson skrifar gera ekki í leikjum í deildinni og eins og vænta mátti, hjá liðum s‘em ekki hafa æft mikið saman, mis- tókst margt. Leikurinn var 4x12 mínútur og hafði lið A-riðils forystu í fyrri hálf- leiknum, alveg þar til á síðustu sek- úndunni að B-liðið skaust fram fyr- ir, 65:66. í seinni hálfleik jók lið B-riðils forystu sína og hafði um tíma 10 stiga forystu en smátt og smátt minnkuðu A-riðilsmenn mun- inn og komust yfir. Miklar sveiflur urðu á næstu mínútum og undir lokin jafnaði Casey fyrir A-liðið með þriggja stiga körfu. Rhodes fékk síðan bónusskot í lokin en hitti ekki og því varð að framlengja. A-liðið gerði fyrstu sex stigin. lét B-liðið ekki komast að hlið sér á nýjan leik og sigraði. Franc Book- er, bakvörður Vals og A-liðsins, var valinn besti maður leiksins. Stigin / BIO Morgunblaðið/Bjarni Franc Booker úr Val lék vel og var valinn besti maður Stjömuleiksins. SCOTTIE Pippen, sem hefur verið í skugga Michaels Jordans allan feril sinn, naut sín sérstaklega vel í stjörnuleik NBA- deildarinnar í fyrrinótt og kom engum á óvart, þegar hann var útnefndur maður leiksins. Hann skoraði 29 stig og þaraf fimm þriggja stiga körfur fyrir lið Austurdeildar, sem vann 127:118, tók 11 fráköst og „stal“ boltanum fjórum sinnum. Pippen hefur gert stórkostlega hluti í deildinni í vetur og í stjörnuleiknum vildi hann sanna að hann væri einn af bestu mönn- um deildarinnar. Gunnar Hann sagði við Valgeirsson fréttamann fyrir leikinn að hann ætl- aði sér að verða bestur og hann stóð við stóru orð- in. „Mér leið mjög vel í upphitun- inni og ákvað að halda mig við að spila venjulegan leik. Það gekk,“ sagði sá besti. skrífar frá Bandaríkjunum Albert tróð best Albert Oskarsson úr Keflavík sigraði í troðslukeppn- inni. Hann átti í mikilli keppni við ungan strák frá Njarð- vík, Ægi Gunnarsson, og hafði betur. Sex keppendur tóku þátt og fengu allir þrjár tilraunir. Albert og Ægir skáru sig nokkuð úr að mati fimm manna dómnefndar og fengu þijár tilraunir í úrslitum. Albert stökk yfir tvo stráka, sem krupu á gólfinu fyrir framan körfuna, og tróð með tilþrifum í fyrstu tilraun. Ægir reyndi að troða aftur fyrir sig með annari hendi eftir að hafa tekið snúning áður — en mistókst naumlega. Albert fékk 45 stig en Ægir 10. Önnur tilraun beggja tókst vel og fékk Albert 42 stig en Ægir 45 og þá var ein tilraun eftir og sigurvegarinn yrði sá sem fengi fleiri stig úr tveimur af þremur tilraun- um. Albert með 87 stig en Ægir 55. Albert fékk strák úr hópi áhorfenda til að standa fyrir körfunni og stökk yfir hann og tróð glæsilega og fékk 45 stig. Alls 90 stig fyrir tvær troðslur. Ægi mistókst hins vegar að koma boltanum niður um körfuhringinn þrátt fyrir glæsileg til- þrif og Albert var þar með sigurvegari. „Eg ætlaði ekki að vera með í keppninni en sló til á síðustu stundu,“ sagði Albert og brosti þegar hann var spurður hvort hann hefði æft sérstaklega fyrir keppnina. Lið Austurdeildar hafði undir- tökin í annars jöfnum leik. Pippen og félagár höfðu átta stiga forystu í hálfleik, 72:64, og náðu mest 14 stiga forystu í seinni hálfleik, en Vesturdeild minnkaði muninn í eitt stig, 108:107, þegar sjö mínútur voru til leiksloka, og þegar þrjár mínútur voru eftir var staðan 117:115. En eftir að allt hafði ver- ið í járnum var Austurdeildin sterk- ari á endasprettinum og sigraði í 28. sinn, en þetta var 44. stjörnu- leikurinn. Að þessu sinni voru 10 af 24 leikmönnum að spila fýrsta stjörnuleik sinn og kom það niður á samvinnunni — menn voru lengi að „fínna“ hvern annan. Austurlið- ið náði betur saman og það gerði gæfumuninn. Patrick Ewing hjá New York Knicks og Mark Price hjá Cleveland skoruðu sín 20 stig- in hvor, en Shaquille O’Neal, mið- heiji Orlando, var í strangri gæslu og fékk engan tíma til athafna. Hann hitti ekki úr átta skotum sínum í fyrri hálfleik, en gerði síð- an átta stig og tók 10 fráköst. „Ég hélt að stjörnuleikur væri til gam- ans, einn á móti einum, en það var ekki svo,“ sagði O’Neal og brosti. Charles Barkley lék ekki með liði vesturdeildar vegna meiðsla. Sjúkraþjálfari Phoenix ráðlagði honum að hvíla sig, en sennilega leikur hann með liði sínu á morg- un. Hakeem Olajuwon gerði 19 stig og tók 11 fráköst, en David Robinsson, miðheiji San Antonio, var einnig með 19 stig fyrir Vest- urliðið, sem sigraði undanfarin tvö ár. NBA/STJORNULEIKUR Pippen í séiflokki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.