Morgunblaðið - 24.05.1995, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1995 9
Catalina-
flugbátar
á íslandi
FRETTIR
Morgunblaðið/Rúnar B. Ólafsson-
CONSOLIDATED PBY-5A Catalina, sem hafði viðkomu á Kefla-
víkurflugvelli er skráður i Kanada, með einkennisstafina C-
FHHR, í eigu flugfélagsins Cat Air, en var smíðaður í Bretlandi
árið 1941. Hann er með raðnúmerið 300.
Morgunblaðið/PPJ
CATALINA-flugbáturinn sem hafði viðkomu á Reykjavíkurflug-
velli verður væntanlega gerður út sem sýningaratriði á flugsýn-
ingum víðsvegar í Evrópu á komandi mánuðum.
ÞAÐ vekur alltaf athygli, þegar
Catalina flugbátar eiga leið um
Island nú orðið, að ekki sé talað
um tvo með skömmu millibili. Um
helgina hafði Catalina-flugbátur á
leið frá San Francisco á vestur-
strönd Bandaríkjanna til Mílanó á
Ítalíu. viðdvöl á Reykjavíkurflug-
velli og annar á leið frá Kanada
til Hollands millenti á Keflavíkur-
flugvelli.
Catalina-flugbátar voru í notk-
un hérlendis um langt árabil eða
frá því 1944 til ársins 1963. Fyrsti
Catalina-bátur íslendinga var TF-
ISP Flugfélags íslands sem í dag-
legu tali var kallaðir Gamli-Pétur.
Þessi flugvél var keypt árið 1944
vestur í Bandaríkjunum. Hún varð
fyrsta íslenska flugvélin til þess
að fljúga milli landa þegar áhöfn
skipuð þeim Erni Ó. Johnson, flug-
stjóra, Smára Karlssyni, flug-
manni og Sigurði Ingólfssyni,
flugvélstjóra, flaug vélinni heim
frá New York í október árið 1944
ásamt tveimur Bandaríkjamönn-
um, Ioftskeytamanni og vélstjóra.
Með þeirri flugvél var síðan farið
fyrsta millilandaflug Flugfélags
Islands sumarið 1945.
Catalina-flugbátar Flugfélags
íslands, Gamli-Pétur, Sæfaxi og
Skýfaxi, og Loftleiða, þeir Vest-
firðingur og Dypjandi, áttu mik-
inn þátt í uppbyggingu innan-
landsflugs á árunum eftir síðari
heimsstyrjöld þegar flugvellir
voru fáir, samgöngur á landi erf-
iðar og sjóferðir tímafrekar. Síð-
asta Catalina Flugfélags Islands
var tekin úr notkun sumarið 1961
en þá hafði flugvöllum hérlendis
fjölgað svo að hægt var að sinna
innanlandsflugi eingöngu með
landflugvélum á borð við Douglas
DC-3 sem voru mun hagkvæmari
í rekstri.
Síðasti Catalina-flugbáturinn í
notkun hérlendis var landhelgis-
flugvélin TF-Rán. Hún var í notk-
un hérlendis frá því 1954-1963,
fyrsta árið hjá Flugmálastjórn,
sem TF-FSD en síðan hjá Land-
helgisgæslunni frá 1955. Kom hún
mjög við sögu í þorskveiðideilum
okkar við Breta á sjötta áratugn-
um. Eftir að Rán var tekin úr
notkun stóð hún lengi vel á
Reykjavíkurflugvelli og hafði hóp-
ur áhugamanna augastað á því að
gera hana upp og reka, en áður
en af þvi gat orðið fauk vélin í
óveðri og eyðilagðist.
Verkfall bifreiðastjóra
Friðsamleg verkfallsvarsla
VERKFALLSV ARSLA Bifreiða-
stjórafélagsins Sleipnis fór friðsam-
lega fram í gær, en í gærmorgun
höfðu á milli 30-40 manns gefið sig
fram til verkfallsvörslu hjá félaginu
í gær að sögn Óskars Stefánssonar
formanns Sleipnis.
Óskar segir að þau verkfallsbrot
sem hafi verið framin séu flest smá-
vægileg og hafi verið lagfærð með
ró og spekt. „Við vitum lítið um
óheimilan akstur og það bendir allt
til þess að rólegheit riki í stöðunni,"
segir Óskar. Verkfallsstjórn félags-
ins afturkallaði tvær undanþágur til
aksturs í gær, en félagið kýs að sögn
Óskars að gefa ekki opinberlega upp
um hvaða tilvik er að ræða. Engar
viðræður á milli deiluaðila hafa verið
boðaðar.
Allur akstur á vegum Norðurleiða
lá niðri í gær vegna verkfallsins,
ferðir Austurleiða á Höfn og Hvols-
völl féllu niður, röskun várð á ferðum
til Hveragerðis, Selfoss og Biskupst-
ungna og ferðir á Hólmavík féllu
niður. Samkvæmt upplýsingum frá
BSÍ hafa nokkrir erlendir ferðamenn
sem ætluðu til dæmis að sækja heim
þjóðgarðinn í Skaftafelli í gær lent
í erfiðleikum en ferðaskrifstofur
þeirra hafa reynt að greiða úr vand-
ræðum þeirra með ýmsum hætti.
Ferðir Kynnisferða til Keflavíkur-
flugvallar hafa fallið niður en ein-
hveijir ferðalangar hafa notfært sér
ferðir með Sérleyfisbifreiðum Kefla-
víkur til að komast þangað sam-
kvæmt upplýsingum frá BSÍ.
*
Sœvar Karl Olason
/
Bankastræti 9, sími 551-3470.
Spaiiskíiteini ríkissjóðs
mismunandi gjalddaga
með
• Við bjóðum eldri flokka spariskírteina ríkissjóðs með gjalddaga eftir
1 ár, 2 ár, 3 ár, 4 ár og 5 ár.
• Þú getur raðað saman mismunandi flokkum spariskírteina þannig
að þú sért alltaf með laust fé þegar þú þarft á því að halda.
• Spariskírteini eru tæki til að skapa þann hreyfanleika sem þú þarfnast.
Helstu flokkar
spariskúteina:
Hafðu samband við ráðgjafa
Þjónustumiðstöðvar ríkisverðbréfa
og fáðu nánari upplýsingar.
Sími 562 6040.
1991 1D5 Gjalddagi 1/2 1996
1992 1D5 Gjalddagi 1/2 1997
1993 1D5 Gjalddagi 10/4 1998
1994 1D5 Gjalddagi 10/2 1999
1995 1D5 Gjalddagi 10/2 2000
Fjölmargir aðrir flokkar spariskírteina eru einnig til sölu. Hafa skal í huga að spariskírteini ríkissjóðs eru markaðsverðbréf
sem eru skráð á Verðbréfaþingi íslands, og eru því auðseljanleg á lánstímanum. Kynntu þér möguleika spariskírteina ríkissjóðs.
ÞJONUSTUMIÐSTOÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6,2. hæð (neðsta húsið við Hverfisgötu)
sími 562 6040, fax 562 6068.
Hvað sem þú gerir - sparaðu með áskrift að spariskírteinum