Morgunblaðið - 22.01.1997, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 22.01.1997, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 1997 21 LISTIR Rýmisverk MYNPLIST Kjarvalsstaðir INNSETNING Jónína Guðnadóttir. Opið frá kl. 10-18 alla daga. Til 16. febrúar. Aðgangur 300 krónur. INNSETNING í rými, er það sem mest er áber- andi á í núlistum tímanna og á allra síðustu árum eru hvers konar sviðs- myndir, leikrænir tilburð- ir, hljóð sem óhljóð inni í myndinni. Listaskólar eru einnig undirlagðir þessum faraldri og þar þykir víst enginn maður með mönn- um nema að vera á þenn- an afmarkaða hátt virkur í núinu. Frumleikinn orð- inn að hópefli, jafnt iðkað- ur í Sydney og Seattle, Melbourne sem Manhatt- an og á öllum áfangastöðum heimslistarinnar þar á milli. Að sjálfsögðu eru þessi vísindi fullgild, hafa verið það í árþúsund- ir og af sjálfri náttúrunni frá upp- hafi vega, þetta sjáum við allt um kring og í víðara samhengi á nátt- úrusögusöfnum. Maðurinn hefur svo lagað sig að þessum lögmálum náttúrunnar og átti ekki aðra úr- kosti vildi hann lifa af. Þaulhugsuð og hnitmiðuð inn- setning í rými í myndlistum nútím- ans telst ósköp eðlilegt ferli og hefur lengi verið, þótt hugtakið væri lengi ekki til sem afmarkað stílheiti. Á einn veg svipað og að bakhluti myndverka hefur alltaf verið til, þótt stutt sé síðan menn fóru að gera þá að aðalatriðum sköpunarferlisins í fullri alvöru, einnig sýna okkur innhverfuna í höggmyndum, eða hluta þær niður. í ranghverfunum eru fortakslaust falin ákveðin fegurðargildi, sem styrkja má með ýmsum tegundum hugmyndafræði. Undanfari innsetninga, hugtaks- ins „Installation" , má vera sú ár- átta, sem var mjög áberandi á tím- um strangflatarlistarinnar, að telja upphengingu myndverkanna jafnvel mikilvægari því sem til sýnis var, sem seinna náði hámarki í hug- myndafræði áttunda áratugarins er listamenn voru farnir að bjóða fólki i auða sýningarsalina. Mótunarlega hliðin vill oftar en ekki gleymast HLEÐSLA, leir og gler, 1997. er svo er komið, einkum hjá þeim sem hafa hvorki tileinkað sér hana né kæra sig um það. Innsæi á sköp- unarsöguna er svo harla óburðugt hjá þeim sem aldrei hafa þreifað á henni né upplifað, þekkja ekki önn- ur söfn og listhús en að rétttrúnaði þeirra snýr. Jónína Guðnadóttir hefur lengi verið í fremstu röð framsækinna leirlistamanna hér á landi og jafn- framt telst hún brautryðjandi ný- sköpunar í faginu. Það kom í henn- ar hlut að byggja upp og þróa leir- listadeild MHI í lok sjöunda áratug- arins og þótt aðrir hafi verið löngu á undan henni á vettvanginum var þetta í fyrsta skipti sem hafist var handa um markaða kennslu í fag- inu, sem hafði mun meira menntun- arlegt gildi og víðtækari áhrif á þróunina en afmörkuð vinna á verkstæðum áður. Mótunarlega undirstaðan var í besta lagi hjá Jónínu, sem lagði út af ýmsum stílfærðum hlutum notagildis, á stundum þannig að þeir voru jafn mikið og engu síður sjálfstæð listaverk. Hér skapaði hún sér markverðan stíl, eðlilega undir áhrifum meistara sinna og núviðhorfa ytra, jafnframt voru náttúrutengslin auðsæ. Jónína hefur svo í áranna rás í vaxandi mæli fjarlægst notagildið til hags fyrir beinar vísanir til nátt- úrunnar og telst þetta alveg í sam- ræmi við viðhorfín sem hún lagði út af í upphafi. Á þeim árum var allt svo nýtt og ferskt, sviðið mun þrengra en í dag, þótt stutt væri í umbyltingarnar sem gerðu ögrandi rótækni að al- menningi að segja má. Er nýviðhorfin flæddu yfir hefur listakonunni að sjálf- sögðu verið í mun að halda sínu striki vera á miðjum orrustuvellinum. Nú mis- reiknuðu menn sig, um- byltingarnar voru of hrað- ar, og í dag er komið aftur- hvarf til fyrri gilda, því nýungarnar felast ekki endilega í breytingunum einum, heldur sjálfri lifun- inni, að endurnýja sig í hvetju verki. Hin mesta list er falin í því að höndla ferskleikann. Nú er stílað á sjálft mót- unargildi hlutarins hvort sem hann hafi notagildi eða. ekki og sé það ekki til stað- ar verður allt svo gamalt og lúið hversu nýtískulegt sem það kann nú annars að vera. Á sama hátt verður góð hugmyndalist, endur- tekin í síbylju, útjöskuð fyrr en varir. Tengirými Kjarvalsstaða er í sinni núverandi mynd afar erfitt og býður ekki upp á mikla valkosti nema með mikilli nýsmíði og tilfæringum svip- að og fram kom á sýningu Kristínar Gunnlaugsdóttur. Hins vegar nýtur það sín með ljóðatextum og eru mér þá efst í hug ljóð Hannesar Péturssonar, sem afar áhrifaríkt var að lifa sig inn í á staðnum. Að þessu sinni hefur trauðia tek- ist að gera rýmið að þátttakanda í innsetningunni, þannig njóta flest verkanna sín best í beinni nálægð við hvert og eitt. Að minni hyggju hefðu þau notið sín mun betur ef áhersla hefði verið lögð á að draga fram formrænt eðli hvers og eins. Hin formræna og mótunarlega hugsun er í þannig góðu gengi en víðátta tengirýmisins og sjálft um- hverfið vilja hversdagsgera verkin, kæfa þau, að ekki sé talað um sól- arljósið og hið hættulega mótljós í dagsbirtu. Þá þarfnast verkin skýringar, sem liggur ekki í augum uppi fyrir hinn almenna sýningargest, en hér er skilvirkur og hlutlægur formáli Eiríks Þorlákssonar mikilsverð við- bót. Bragi Ásgeirsson ATRIÐI Leikfélags Menntaskólans í Kópavogi úr leikritinu „Á svið!“. Leikendur eru; Jónína Björk Vilhjálmsdóttir, Hreiðar Odds- son, Vignir Rafn Valþórsson, Lárus Axel Sigurjónsson og Kristín María Birgisdóttir. Grín gert að leikhúsínu LEIKLIST Félagshcimili Kópavogs LEIKFÉLAG MENNTA- SKÓLANSf KÓPAVOGI „Á svið!“ eftir Rick Abbot. Þýð. Guð- jón Ólafsson. Leikstj. Stefán Sturla Sigurgrjónsson. Leikarar: Birgir Páll Auðunsson, Hulda Guðnadóttir, Hreiðar Oddson, Kristin Jórunn Magnúsdóttir, Kristin María Birgis- dóttir, Lárus Axel Siguijónsson, Vign- ir Rafn Valþórsson, Jónína Björk Vil- hjálmsdóttir, Kjartan Július Einars- son og Sigríður Vilhjálmsdóttir. LEIKÁR framhaldsskólanna á höfuðborgarsvæðinu er hafið. Það hófst á föstudaginn þegar nýnefnt Leikfélag Menntaskólans í Kópa- vogi, Sauðkindin, setti á svið Á svið eftir Rick Abbot. Verkið er um áhugaleikfélag, mið- ur hæfileikaríkt, og því síður sam- hent, sem setur á svið sakamálaleik- ritið „Hið fúla fólskumorð". Ekki beint frumlegur söguþráður en svo vel er farið með hann að útkoman er virkilega góður farsi. Gert er stólpagrín að hinum svo- kölluðu klassísku sakamálaleikrit- um, bæði að uppbyggingu þeirra og innihaldi, en það er spurning hvort grínið endi þar. Kannski var leikhús- starf allt skotmark þess. Leikarar stóðu sig allir nokkuð vel en það var Stefán Sturla Sigur- jónsson sem stýrði þeim af öryggi. Samt hefði aðeins mátt fara betur í raddbeitingu, einkum kvenfólksins. Vignir Rafn Valþórsson fór vel með hlutverk Villa Karlssonar, sérstak- lega þegar sá síðarnefndi mætti blindfullur á frumsýningu. Samleik- ur Villa og Fjólu Ingimarsdóttur (Jónína Björk Vilhjálmsdóttir) í ást- aratriðinu, en slík atriði eru einmitt feykilega mikilvæg í leikritum eins- og Hinu fúla fólskumorði, burtséð frá því hvort þau þjóni söguþræðin- um eitthvað, var eitt allsheijar klúð- ur í „innra“ leikritinu (ef svo má að orði komast), en mjög góður annars. Hvorugt þeirra fór út í einhveija oftúlkun svo útkoman varð einsog hún átti að vera, hálffáránlegir til- burðir tveggja leikara sem áttu ekk- ert í hlutverk sín. Þegar leikfélag ákveður að taka leikrit sem þetta, sem gerir grín að öðrum leikritum og því fólki sem við þau vinna, verð- ur það að minnast gijótsins og gler- hússins. Það eru aðeins færustu leik- félög, með mikið sjálfstraust, sem geta það án þess að verða hláleg í tilraun sinni að vera hlægileg. Þó Sauðkindin sé tiltölulega ný- vöknuð af löngum dúr skortir hana hvorki sjálfstraust né metnað. Metn- aður er mikilvægur í öllu sem fólk tekur sér fyrir hendur, því hvar værum við án hans? Á sama stað og í gær. Vaxtarbroddur íslenzks leikhúss- lífs felzt ekki einungis í ungum leik- stjórum. Hann er ekki síður í ungu fólkþ með nýjar hugmyndir og áherzlur, metnaðarfullu fólki sem ekki tekur sjálft sig alltof hátíðlega. Heimir Viðarsson Nýjar bækur • UPPLÝSINGALÖGIN kennslu- rit eftir Pál Hreinsson lögfræðing og Upplýsingalögin ásamt grein- argerð í tilefni af gildistöku laganna hinn 1. janúar síðastliðinn eru komin út. í kennsluritinu er farið yfir gildis- svið upplýsingalaga samkvæmt efni sínu og gagnvart öðrum lögum, gerð grein fyrir meginreglu laganna um rétt almennings til aðgangs að gögn- um hjá stjórnvöldum og þeim tak- mörkunum og undanþágum sem hún sætir. Farið er yfir sérstakar reglur um málsmeðferð samkvæmt upplýs- ingalögum og málskot til úrskurðar- nefndar um upplýsingamál, sem er nýtt kærustig í stjórnkerfinu og er sérstaklega ætlað að leysa úr ágrein- ingsmálum vegna synjana um að- gang að upplýsingum. Höfundur kennsluritsins er sér- stakur aðstoðarmaður umboðs- manns Alþingis og átti jafnframt sæti í nefnd þeirri er forsætisráð- herra skipaði til þess m.a. að semja frumvarp til upplýsinga- laga. I hinu ritinu hefur frumvarp það er varð að upplýsingalögum verið fært í búning handbókar þann- ig að fremst birtast almennar athuga- semdir við frumvarpið, þaðan í frá athugasemdir við einstaka kafla í upphafi hvers þeirra um sig og innan þeirra lagaákvæðin ásamt viðeigandi athugasemdum á víxl. Við athuga- semdirnar er aukið skýringum alls- heijarnefndar Aþingis þar sem við á svo og þeim hluta frumvarpsins. Utgefandi er forsætisráðuneytið. Ríkiskaup, Borgartúni 7 íReykjavík, annast dreifmgu bókanna. Páll Hreinsson HAFNFIRÐINGAR OG NÁGRANNAR! ÚTSALAN HELDUR ÁFRAM! 20-50% AFSLÁTTUR adidas Fjörður, Hafnarfirði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.