Morgunblaðið - 20.11.1997, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Nýjar bækur
Straumurinn ligg-
ur til Reykjavíkur
FÓTSPOR á himnum
er skáldsaga eftir Ein-
ar Má Guðmundsson.
„Á Spáni er maður
sem heitir Franco. Ég
hef hugsað mér að
skjóta hann. Síðan
kem ég aftur og elska
þig jafn heitt og
áður.“ Þannig kveður
Olli Spánarfari Unni
fögru áður en hann
heldur af stað í borga-
rastyijölsina á Spáni
ásamt vini sínum,
risanum Ragnari.“
í kynningu segir:
„Fjölskylda Ragnars
er í forgrunni þessarar
sögu sem fjallar um líf og örlög
íslendinga sem vaxa úr grasi á
fyrstu áratugum aldarinnar. Þetta
er í senn saga stoltra einstaklinga
og þjóðarsaga, þar sem lýst er
mörgum litn'kum persónum og les-
andinn sogast inn í andrúmsloft
horfinna tíma í sögu okkar.
Þetta eru tímar kreppu og fá-
tæktar, upplausnar og
söknuðar eftir horfnu
sveitalífi þegar
straumurinn liggur til
Reykjavíkur, en sumir
finna haldreipi sitt í
trú eða kommún-
isma.“
Fótspor á himnum
er sjötta skáldsaga
Einars Más Guð-
mundssonar og sú
fyrsta sem hann send-
ir frá sér eftir met-
sölubókina Engla al-
heimsins.
Einar Már Guð-
mundsson hefur feng-
ið fjölmargar viður-
kenningar fyrir ritstörf sín. Hann
fékk Bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs fyrir Engla alheimsins
árið 1995.
Útgefandi er Mál og menning.
Fótspor á himnum er 216 bls.,
unnin í prentsmiðjunni Odda hf.
Kápuna gerði Margrét E. Lax-
ness. Verð: 3.680 kr.
Einar Már
Guðmundsson
Barnabókarhandrit
eftir Mary Shelly
HANDRIT að barnabók eftir Mary
Shelley, höfund Frankensteins,
fannst fyrir skömmu í skjalasafni
ítalskrar fjölskyldu í Toscana, þar
sem það hefur legið óhreyft í hálfa
aðra öld. Sagan nefnist „Maurice,
eða kofi sjómannsins" og er á 39
þéttskrifuðum síðum. Gerist hún á
ströndinni í Devon árið 1820, að
því er segir í The Times.
Tveir sérfræðingar í verkum
Shelleys hafa skoðað handritið og
staðfest að ekki sé um fölsun að
ræða. Shelley nefnir í dagbók sinni
að hún hafi samið barnasögu en
handritið var talið glatað. Segir
Claire Tomalin, sem m.a. hefur
sett upp sýningu um Shelley, að
fundur sögunnar sé ákaflega
spennandi og að hún auki skilning
manna á hugarheimi Shelleys, sem
er þekktust fyrir að vera höfundur
Frankensteins.
Sagan var skrifuð handa
Lauru, ellefu ára gamalli dóttur
lafði Mountcashell. Var lafðin
náin vinkona Mary og eiginmanns
hennar, skáldsins Percys Bysshes
Shelleys, en þau kynntust á Ítalíu
er hjónin dvöldust þar. Lafði
Mountcashell var í sjálfskipaðri
útlegð en hún hafði yfirgefið eig-
inmann sinn og haldið til Ítalíu
með elskhuga sínum. Það voru
afkomendur hennar sem reyndust
eiga handritið.
Shelley var aðeins 22 ára er hún
skrifaði söguna handa Lauru sem
fjallar um dreng sem hleypst á
brott frá foreldrum sínum og er
ættleiddur af gömlum sjómanni. í
dagbók Shelleys 20. ágúst 1820
segir: „Skrifa sögu handa
Laurette. Ganga í fjöllunum. Veðr-
ið er gott og hlýtt.“
Mary Shelley sýndi föður sínum
söguna en hann taldi hana of
stutta til að gefa ætti hana út.
Morgunblaðið/Þórarinn
ÁTTA ára nemendur í öðrum bekk barnaskóla í Hamborg ásamt kennara sínum og Sigrúnu Val-
bergsdóttur og Áslaugu Jónsdóttur barnabókahöfundi. Myndirnar bak við þau unnu þau undir
handleiðslu Áslaugar og Sigrúnar.
Nonna-bókunum fylgt eftir
Hannover. Morgunblaðið.
FYRIR um ári var gerð könnun
á íslandi á því hversu margar
bækur börn og unglingar fengju
í jólagjöf og hversu margar af
þeim bókum væru lesnar. Niður-
staðan var sú að íslensk ung-
menni lásu að meðaltali rúmlega
tvær bækur yfir jólin. Stúlka ein,
sem tók þátt í könnuninni, var
hins vegar talsvert yfir meðallag
því hún sagðist hafa fengið fjórt-
án bækur í jólagjöf og lesið þær
allar spjaldanna á milli og haft
gaman af - nema með einni und-
antekningu viðurkenndi hún, og
það var íslensk-dönsk orðabók.
Gestum á fyrirlestrum og um-
ræðufundum um íslenskar
barnabækur og myndskreyting-
ar í tengslum við sýningu á sama
efni sem nú stendur yfir í Ham-
borg fannst mikið til um þessa
sögu og almennt um útgáfu og
Iestur íslenskra barnabóka.
„Meira er tröll, ís og eldur“ er
yfirskrift sýningarinnar í Ka-
þólsku akademíunni en þar eru
til sýnis um þrjú hundruð íslensk-
ar barnabækur og myndskreyt-
ingar allt frá fyrstu útgáfu
Nonna-bókanna til dagsins i dag.
Áhugi Hamborgara á íslenskri
barnamenningu er greinilega
mikill því dagskrárliðir voru allir
vel sóttir og spurningum ringdi
yfir íslensku gestina.
Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra opnaði sýninguna við
hátíðlega athöfn en á eftir fylgdu
fjölmörg ávörp auk þess sem
Kristín Steinsdóttir og Guðrún
Helgadóttir lásu úr verkum sín-
um. Silja Aðalsteinsdóttir flutti
erindi um íslenskar barnabækur
og Björg Vilhjálmsdóttir talaði
um barnastarf í Gerðubergi. Þá
söng Olga Guðrún Árnadóttir
nokkur lög svo eitthvað sé nefnt.
Þó að íslensk börn hefðu
hvorki sótt sýninguna né um-
ræðurnar í Hamborg var menn-
ingu þeirra gerð góð skil, ekki
síst meðal jafnaldranna. Is-
lensku barnabókahöfundarnir
sem áður voru nefndir auk Olgu
Guðrúnar, Áslaugar Jónsdóttur
og Sigrúnar Valbergsdóttur
heimsóttu skóla vítt og breitt
um Hamborg og sögðu frá Is-
landi og lásu fyrir og unnu með
börnum allt frá fyrstu bekkjum
til framhaldsskóía.
Sigrún Valbergsdóttir leik-
stjóri sá um skipulag sýningar-
innar fyrir hönd menntamála-
ráðuneytisins sem jafnframt var
styrktaraðili en framkvæmd var
í höndum Hans-Gerds
Schwandts á vegum Kaþólsku
akademíunnar. Schwandt sagði
að áhugi kennara og nemenda
skólanna sem heimsóttir voru
væri mikill og að margir bekkir
hefðu þegar skoðað sýninguna
og enn fleiri boðað komu sína.
Tildrögin að íslandi var boðin
þátttaka að þessu sinni má rekja
til ársins 1988 þegar Vigdís
Finnbogadóttir þáverandi for-
seti Islands var í opinberri heim-
sókn í Hamborg. Hún heimsótti
þá ásamt Arthúr Björgvin Bolla-
syni Kaþóisku akademiuna og
kynntist starfsemi hennar.
Tengsl hafa síðan haldist við
Arthúr Björgvin sem leiddu til
þess að sýningin gat átt sér stað.
Frá árinu 1989 hefur árlega einu
landi verið boðið að kynna
barnamenningu sína á vegum
Kaþólsku akademíunnar.
Schwandt sagði einnig að heil
kynslóð hafi alist upp í Þýska-
landi með Nonna-bókunum og
margir hafi spurt sjálfan sig
hvað hefði gerst í barnabókum
á íslandi eftir þar. Svarið er að
finna á sýningunni sem stendur
til tuttugasta janúar.
Ekki sitja heima og ferðast í sófanum. Farðu alla leið
og fáðu þér Vildarkort Visa og Flugleiða.
Með rétta kortið upp á vasann áttu margt gott í vændum!
Þú safnar punktum sem um munar.
Ftábær ferðatilboð og margvísleg fríðindi.