Morgunblaðið - 22.09.1999, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 22.09.1999, Blaðsíða 4
teómR KNATTSPYRNA Skelfumst ekki og ætlum okkur sigur Morgunblaðið/Golli Hitað upp á síðustu æfingu fyrir landsleikinn gegn Italíu í kvöld, en æfingin fór fram á Kópavogsvelli í gær, f.v.: Margrét Ólafsdóttir, Rakel Ögmundsdóttir, Edda Garðarsdóttir og Erla Hendriksdóttir. „ÉG held að við eigum góða möguleika, við höfum bara spilað við góð lið að undan- förnu og enga auðvelda leiki átt svo að stelpurnar vita hvað þær eiga í vændum og við skelfumst ekki mótherj- ana,“ sagði Þórður Lárusson, landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu, í gær um leik ís- lands við Ítalíu, sem fram fer á Laugardalsvelli í kvöld klukkan 20. Þar gefst íslend- ingum tækifæri til að sjá marga af bestu leikmönnum Evrópu og ekki sakar að frítt er á völlinn svo að erfitt er að afsaka að hafa ekki mætt. „Leikurinn leggst mjög vel í mig því stemmningin í hópn- um er góð. Þetta eru reyndar stelpur sem vita að hverju þær ganga og ætla sér að sýna sínar bestu hliðar við bestu aðstæður á Laugardals- vellinum.“ W Italska liðið lék til úrslita við Þýskaland í síðustu Evrópu- keppni og tapaði þar með einu marki, 0:1, svo að Stefán ljóst er að hér er eitt Stefánsson af betri liðum Evr- skrífar 5pU 5 ferðinni en að auki náðu þær langt í síðustu heimsmeistarakeppni. „Eg hræðist það ekki því okkar stelpur .sýndu í Ukraínu á dögunum hvað þær geta, sjálfstraustið er í góðu lagi og þær eru komnar með þrjú stig,“ sagði Þórður ákveðinn. Is- lenska liðið gerði 1:1 jafntefli við Úkraínu í lok ágúst en þar sem Ukraínumenn tefldu fram ólögleg- um leikmanni voru úrslit úrskurðuð 3:0 fyrir Island. „Það var mjög gott mál að ná jafntefli við Ukraínu á þeirra heimavelli og það sýnir styrk liðsins," sagði Þórður. Fyrirkomulagið er þannig að lið- ið sem sigrar í riðlinum fer sjálf- krafa í úrslitakeppnina en liðin í 2. og 3. sæti spila við liðin í sömu sæt- um í 2. riðli en það eru Noregur, England, Portúgal og Sviss. ' Reikna má með að Noregur sigri í þeim riðli og strembin barátta verði meðal hinna þjóðanna en neðsta liðið í riðlinum þarf að spila um að halda sæti sínu í A-flokki. „Ef við lendum í 2. sæti í riðlinum tel ég að við eigum ágæta mögu- leika á að komast áfram því við ættum að eiga í fullu tré við Eng- land, Portúgal og Sviss,“ sagði þjálfarinn. „Hinsvegar þurfum við, til þess að eiga möguleika, að sigra í heimaleikjum okkar og tapa ekki útileikjum. Svo að ef við vinnum • Úkraínu erum við í góðum málum - annars kemur þetta í Ijós.“ Hefðbundin ítölsk knattspyrna Aðspurður segist Þórður ekki vita mikið um mótherjana. „Ég sá í sjónvarpinu Ítalíu spila í heims- meistarakeppninni en síðan hefur verið skipt um þjálfara auk þess að tveir reyndir leikmenn eru komnir út úr hópnum," sagði þjálfarinn. „Það segir mér að einhverjar breytingar séu í gangi en ég reikna samt með hefðbundinni ítalskri knattspyrnu þar sem stúlkumar eru leiknar og snöggar að sækja þegar færi gefast. Við verðum því að spila mjög agað í vörninni enda ætlum við að sækja - hinar verða þá að verjast.“ Stúlkurnar héldu á Flughótelið í Keflavík í gær og fyrirhugað er að taka létta æfingu að morgni leik- dags en síðan þarf að stilla streng- ina fyrir átökin. Þórður segir ekk- ert vanta uppá stemmninguna. „Það var góð stemmning íyrir leik- inn við Úkraínu en nú er hún enn- þá betri því stelpurnar vita ná- kvæmlega hvað þær eru að fara að takast á við og ætla sér ekkert ann- að en sigur,“ sagði Þórður og var að komast í sama baráttuhug og hann sagði stúlkurnar vera í. Enginn verður svikinn Landsliðsþjálfarinn gerir vænt- ingar til íslenskra áhorfenda og segir að þeir séu ekki bara vel- komnir heldur nauðsynlegir enda er frítt á völlinn. „Ég tel að fólk verði ekki svikið af þessum leik, það er stutt síðan boðið var uppá stórskemmtilegan bikarúrslitaleik og nú eru liðin ennþá sterkari svo að það má búast við miklu fjöri. Nú er um að gera að gefa kvenna- knattspyrnunni tækifæri því það er gott tækifæri til að sjá okkar bestu knattspyrnukonur spreyta sig við eitt af bestu liðum Evrópu. Það munar mikið um stuðning frá áhorfendum, stelpurnar hafa séð og upplifað að undanförnu hvernig það er að leika fyrir framan fjölda áhorfenda og segja að það sé mun skemmtilegra og auki þeim kraft. Þær segja að það stressi sig ekki upp heldur sé það ennþá meira hvetjandi og það sé það sem þær vilja.“ Fjórar fljúga heim FJÓRAR stúlkur, sem spila er- lendis, koma gagngert til landsins í leikinn við Ítalíu og hafa þær aldrei verið fleiri. Ásthildur Helgadóttir og Ra- kel Ögmundsdóttir koma frá Bandaríkjunum, Katrín Jóns- dóttir frá Noregi og Erla Hendriksdóttir frá Danmörku. „Það er af hinu góða því þær eru að spila með góðum liðum og eru vanar mjög erfiðum leikjum," sagði Þórður Lárus- son landsliðsþjálfari. Fleíri leikir um helgar BREYTINGAR verða á hefðbundinni niðurröðun fslandsmótsins í handknatt- leik karla í vetur, en mótið hefst með heilli umferð miðvikudaginn 29. septem- ber nk. Það verður í eitt af fáum skiptum sem heil um- ferð fer fram í miðri viku, því flestir leikirnir fara fram á föstudagskvöldum eða um helgar, að ósk fe- laganna sjálfra, segir Örn Magnússon hjá Handknatt- leikssambandi íslands. „Félögin óskuðu þess að færa leikina á helgarnar vegna leikja í Evrópumót- unum í knattspyrnu. Það er ljóst að hér á landi er mik- ill áhugi á þeim og það gæti komið niður á okkur. Með þessu verðum við jafn- framt við ósk félaganna um að þau fái dreifðari leiki - á föstudagskvöldum, síð- degis á laugardag og á sunnudagskvöldum," segir Örn. Félag, sem er á heimavelli í viðkomandi leik um helgi, fær að ráða tímasetningu hans. fslandsmótið hefst síðar nú en fyrri ár. „Sú ákvörð- un var tekin af tveimur ástæðum. Annars vegar vegna landsleikjanna við Makedóníu og hinsvegar svo mótið hefjist ekki á sama tíma og knattspyrnu- vertíðinni er að ljúka,“ seg- ir Örn. Vegna verkefna karlalandsliðsins verður ekkert leikið í deildar- keppninni á milli leikja Hauka og Stjörnunnar hinn 12. desember og tveggja leikja hinn fjórða febrúar á næsta ári. ■ MICHAEL Laudrup, einn fremsti knattspyrnumaður Dana, verður aðstoðarþjálfari danska landsliðsins í knattspymu þegar Morten Olsen tekur við starfi lands- liðsþjálfara 1. júlí á næsta ári. Þá tekur Olsen við af Bo Johansson sem þjálfað hefur Dani undanfarin ár. ■ LAUDRUP gerði á þriðjudaginn tveggja ára samning við danska knattspyrnusambandið um að starfa með Olsen. Laudrup lék 104 landsleiki fyrir Dani á ferli sínum en hætti eftir heimsmeistaramótið í Frakklandi í fyrra. ■ CHRISTOPHE Dugarry, leik- maður Marseille og franska lands- liðsins, verður frá æfingum og keppni í þrjár vikur eftir því sem Rolland Courbis, þjálfari Marseille, segir. Dugarry þarf að fara í upp- skurð vegna meiðslanna sem eru í vinstra hnéi. ■ DUGARRY verður því ekki með félagi sínu í Meistaradeildinni í kvöld gegn Króatíu Zagreb. Þá er útilokað talið að hann geti leikið með franska landsliðinu gegn því ís- lenska í undankeppni EM í París 9. október nk. ■ NÚ geta aðdáendur Liverpool og fyrrum knattspymustjóra liðsins, Bills Shanklys, keypt knattspyrnu- skó sem Shankly átti og notaði síð- ast 1974 á uppboði hjá Christie’s á næstunni. Reiknað er með að það þurfi að greiða um 350.000 krónur fyrir parið. Sækjum grimmt í gærkvöldi tilkynnti Þórður hvaða leikmenn hefja leikinn og hvemig stillt verður upp en hann reiknar með að stilla upp miðað við svokallað 4-5-1 kerfi, þar sem fjórar em í vöminni, fimm á miðjunni og ein í fremstu víglínu. Tvær breytingar verða frá leikn- um við Úkraínu. I markinu verður Þóra B. Helgadóttir úr Breiðabliki, hægra megin í vörninni er Rósa Steinþórsdóttir úr Val en vinstra megin KR-ingurinn Guðrún Jóna Kristjánsdóttir. Fyrir miðri vöm em Auður Skúladóttir úr Stjömunni og Edda Garðars- dóttir úr KR en Katrínu verður stillt upp rétt fyrir framan þær. A hægri kanti er Guðlaug Jóns- dóttir úr KR og á þeim vinstri Rakel Ogmundsdóttir en á miðj- unni era Asthildur Helgadóttir úr KR og Margrét Ólafsdóttir úr Breiðabliki. Það kemur svo í hlut Ásgerðar Ingibergsdóttur að spreyta sig fremst. „Þó að við spilum með einn leikmann frammi er ætlunin að sækja grimmt,“ sagði Þórður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.