Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1932, Blaðsíða 1

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1932, Blaðsíða 1
Bólstaður við Álftafjörð. Skýrsla um rannsókn 1931. Það er almennt viðurkennt, að Eyrbyggja, þ. e. »saga Þórsnes- inga, Eyrbyggja ok Álptfirðinga«, svo sem hún nefnir sig sjálf að sögulokum, er að flestu mjög ábyggileg, og því hafa menn veitt sér- staka athygli, að tilgreiningar hennar um staðháttu og örnefni eru venjulega réttar, koma heim við það, sem sjá má enn í dag. Er þetta álit þeirra, er bezt hafa gefið söguna út, Guðbrands Vigfússonar (1864) og Hugo Gerings (1897), og þeirra, er sérstaklega hafa rann- sakað staðháttu á sögusvæðinu, Jónasar Hallgrímssonar (1840—41; óprentað), Árna Thorlaciusar (í Safni til sögu íslands, II., 277—298), Kr. Kálunds (í Isl. Beskriv., I., 410 o. s. frv.), Sigurðar Vigfússonar (Árb. 1882, bls. 93—105, Árb. 1888—92, bls. 5—29, og Árb. 1893, bls. 18—23), Brynjólfs Jónssonar (Árb. 1897, bls. 12—14, og Árb. 1900, bls. 9—16) og Þorleifs Jóhannessonar (Árb. 1925—26, bls. 43 —48). Að sönnu finnst nú ekki allt með þeim ummerkjum, er sagan lýsir, svo sem dómhringurinn og »Þórs steinn« á þingstað Þórsnes- þings, haugar Bjarnar austræna við Borgarlæk og Þórólfs Mostrar- skeggs »í Haugsnesi, út frá Hofstöðum«, eða merki garðs þess, er Arnkell goði lét leggja um þveran Bægifótshöfða fyrir ofan dys Þór- ólfs föður síns. En allt kann þetta að hafa sézt, þegar sagan var færð í letur, svo að ekki má kasta rýrð á trúverðugleika hennar af þessum sökum. — Flestum munu þykja frásagnirnar um Fróðár- undrin stinga mjög i stúf að þessu leyti við annað í sögunni. Þó eru þær frásagnir engu ótrúlegri en ýmsar aðrar sagnir um svipuð fyrir- brigði á fyrri og síðari öldum, og jafnvel nú á tímum. Og þess ætti að mega vænta, að þeir trúi slíkum fornum kynjasögum, er nú trúa hinum nýju, og það jafnvel þótt þeir hafi aldrei sjálfir séð nein þess konar undur eða fyrirbrigði. Hér verður nú sagt nokkuð frá rannsókn á bæjarrústum Arnkels goða á Bólstað. Hefir áður verið skýrt frá þeim rústum fjórum sinn- 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.