Óðinn - 01.01.1912, Blaðsíða 7

Óðinn - 01.01.1912, Blaðsíða 7
ÓÐINN 79 ýmsu inótdrægu, svo sem ástvinamissi og fleiru, er hann hefur tekið öllu með hinni alkunnu slill- ingu og jafnaðargeði. Verið líka lengstum heilsu- góður og hraustmenni. Eins og áður er á vikið, voru þeir bræður Einar og merkisbóndinn Jón Sknlason á Söndum, enda svipaði þeim saman um margt, báðir voru mestu dugnaðar og reglumenn, merkir og áreiðan- legir í öllu og fyrirmyndarbændur o. s. frv., nutu því hylli og virðingar hjeraðsbúa og báru alla æfi bróðurlega ást hvor til annars. F. J. % Guðmundur Ingimundarson á Bóndhóli í Borgarfirði er fæddur 21. apríl 1827 í Þingnesi í Bæjarsveit í Borgarfjarðarsýslu. Á öðru ári fluttist liann með foreldrum sínum út á Akranes og misti þar föður sinn í sjóinn, þegar hann var á 8. árinu. Síðan var hann með móður sinni til 14 ára aldurs, að hann fluttist sem vika- drengur að Ölvaldsstöðum í Borgarhreppi. Á bæ þessum dvaldi bann í 61 ár, 17 ár sem vinnu- maður og 44 ár í lijónabandi, með konu sinni (iuðbjörgu Guðmundsdóttur; eignuðust þau 9 börn og eru 4 þeirra á lífi, þar á meðal Eiríkur bóndi i Bóndliól. Son sinn, Ingimund, misti Guðmundur í sjóinn, 26 ára gamlan, fyrir 22 árum, mjög eíni- legan mann. Guðm. Ingimundarson stundaði sjó í 34 vetrar- vertíðir sem formaður í Keflavík; á þeim árum bjargaði hann þrem mönnum úr sjávarháska; var formaðurinn Magnús, móðurbróðir Ólafsens í Keflavík. Forsöngvari var G. I. í full 30 ár í Borgarkirkju. Heyrt hef jeg, að hann hafi verið faslheldinn við gömlu lögin og ekki verið um hinn nýja söng, sem var að ryðja sjer til rúms á forsöngvaraárum Guðmundar. Hafi þá verið fenginn afbragðssöng- maður einn, »mesti hljóðavargur«, til þess að byrja nýja sönginn, þó G. I. vildi lialda hinum gamla; hafi þeir báðir byrjað jafnsnemma við messu-upp- haf, sinn á hvoru lagi (G. I. á hinu gamla en hinn á hinu nýja) og G. I. sjeð sitt óvænna með að halda sínu fyrir hinum; hafi hann þá hlaupið upp á bekkinn, sem þeir sátu á, og þannig haft yfirhöndina og haldið sínum söng all-lengi eftir það. Guðm. er lágur maður vexti og ekki þrekinn, en kviklegur á fæti og eldsnar í snúningum, aug- Guömundur Ingimundarson. un góðleg, dökkbrún á lit og eldfjörug. Pegar mynd sú, er hjer er sýnd af G. I., var tekin, var hann að leggja af stað úr Reykjavík fótgangandi í svo mikilli snjó-ófærð að hann varð að ganga með sjó fram alla leið upp i Borgarfjörð, og var hann þá að byrja 81. árið. Ferðinni lauk hann á hálfum þriðja degi. Síðastl. vor gekk hann suður í Keflavík. G. I. mun vera einn ineð elstu mönnum, sem nú lifa, er tíðkuðu »gömlu lögin« og kann hann ógrynni af þeim. Fyrir nokkrum árum gaf hann mönnum kost á að heyra þau opinberlega lijer í »Bárubúð« og dáðust menn mjög að hinum skæru og fögru hljóðum, sem gamli maðurinn liafði, þó áttræður væri. Varð þetta til þess, að vinur hans einn hier í bæ fjekk hann til að syngja þau inn í grafófón, þar sem þau geta geymst um aldur og æfi til minja uin hann og lögin sjálf. J. P. Sí Steinn Skaftason. Af Englandi hjelt hann með hlaðinn knör, því hildingi þótli’ liann við tign sína keppa. Hann elskaði heitast sitt frelsi og fjör og fjekk ekki unað við gislings-kjör þá Ólafur vildi’ hann á vald sitt kreppa. Frá kóngum og erlendri upphefð og frægð nú alfrjáls hann stefndi á syngjandi hafið; á drekanum flutti hann dýrgripa nægð,

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.