Tölvumál - 01.12.1992, Blaðsíða 17

Tölvumál - 01.12.1992, Blaðsíða 17
Desember 1992 Af margmiðlun og Quicktime Pétur Ásgeirsson, viðskiptafræðingur, deildarstjóri í Apple-umboðinu í erlendum tímaritum um tölvur rekst maður reglulega á orðið "multimedia". Sum blöðin hafa jal'nvel sérstakan þátt um þetta efni sem fjallar um þau margmiðl- unarmál semhæstberaþávikuna. Og það er engin furða. Hug- rnyndin um margmiðlun hefur alla burði til að auðga verulega vissa þætti tölvunotkunar og gjör- breyta öðrum. Það er reyndar svo að þó margmiðlun hafi verið slegið upp með stóru letri nú á síðustu misserum erekki um nýtt fyrirbrigði aðræða. Grunnurinn að margmiðlun var lagður þegar tölvur fóru að ráða við birtingu ogprentunmyndrænsefnis; teikn- inga, grafa og ljósmynda. Þróunin hélt áfrarn með vinnslu hljóðs og nú síðast hreyfimynda. Nafnið lýsir eðli hugmyndarinn- ar, margmiðlun; að miðla upp- lýsingum til notanda með fleiri en einum miðli. í upphafi var aðeins hrá textavinnsla, grunn- miðillinn. Svo kom viðmót sem nálgaðist notandann á annan hátt, gröf og línurit bættu nýrri vídd í framsetningu efnis og ekki síður ljósmyndir og teikningar. Ein nrynd segir meira en 1000 orð. Vinnsla myndbanda og möguleik- inn til að sýna hreyfimyndir á töl vuskjá er stóra stökkið í marg- miðlun enda er það með þessari tækni sem hugtakið fær almenna notkun. Eitt myndband segir nefnilega meira en 1800 myndir - á mínútu. Framtíöarsýn Apple Hugsjónamenn Apple og hönn- uðir hafafrá upphafi hugsað mik- ið um framtíðina. Þeir hafa gert áætlanirlangtfram ítímann, áætl- anir byggðar á lfamtíðarspám um þróun tölvutækninnar. Þannig var hugmyndin um margmiðlun orðin að raunhæfu markmiði hjá Apple þegar um miðjan síðasta áratug. Apple lagði grundvöll- inn strax í upphafi með Quick- Draw. QuickDraw tryggði að myndræn gögn mátti flytja á milli forrita og Macintosh tölva án vandkvæða. Quick- Draw hefur staðist tímans tönn, skipanirnar skera, afrita og líma sem allir Macintosh notendur þekkja eru einnig notaðar í QuickTime. Apple, sem leggur mikla áherslu á margmiðlun, hefur komið á fót fyrirtækinu Kaleida í samvinnu við IBM í þeim tilgangi að vinna að frekari þróun margmiðlunar. Aðrir framleiðendur fylgja í humátt á eftir, Microsoft kom á árinu með "Microsoft Video" semerhliðstæða við QuickTime og flestir eru farnir undirbúa varning sinn fyrir heim margmiðlunar. QuickTime Það var í ágúst 1991 sem Apple kom á markaðinn með Quick- Tinre eða rúmum átta árum seinna en QuickDraw. QuickTime er staðall til grundvallar vinnu með lifandi myndir og hljóð í tölvum. QuickTime er viðbót við Kerfi 7.0, en fylgir með útgáfum frá og með 7.1. Þetta er nauðsynlegt því að QuickTime á að tryggja að hægt sé að flytja hreyfimyndir og hljóð á milli forrita og tölva þ.e. að venjulegur notandi með 68020 örgjörvaeðahraðari muni geta nýtt sér hreyfimyndir sem hann hefur fengið með t.d. rit- vinnslu- eða töflureiknisskjali. Kjarni QuickTime tækninnar ligg- ur í þjöppun gagna. Vegna stærð- ar hreyfimynda er nauðsynlegt 17 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.