Vísir - 20.06.1964, Blaðsíða 1

Vísir - 20.06.1964, Blaðsíða 1
"w-y-rr.r VISIR •inTxTTy-iiJTTrii Lítum alvarlegum augum á leiguflug erlendra aBila jr Það mun vera von á a. m. k. 8—10 erlendum leiguflugvélum hingað til lands í sumar til að flytja ferðamannahópa til og frá landinu. Frá þessu skýrði Birgir Þor- gilsson fulltrúi hjá Flugfélagi ls landi i stuttu viðtaíi sem Vísir átti við hann í gær. — Skapa þessi leiguflug ekki óheppilega 'samkeppni við ís- lenzku flugfélögin? — Óneitanlega. Við lítum mjög alvarlegum augum á það þegar erlendir aðilar koma hing að til þess eins að fleyta rjóm- ann ofan af viðskiptunum við Islendinga. Þetta er áþekkt því og ef erlendur veiðifloti kæmi á miðin og sópaði burt fiskin- um úr okkar eigin greipum. Þessir erlendu aðilar koma eingöngu um hásumarið, eða á þeim árstíma þegar þeir eru öruggir með 100% sætanýtingu. — Og bjóða þá verðið niður? — Undir þeim kringumstæð- um er það hægt. Það gæti Flug félagið líka gert undir sömu kringumstæðum. En það hefur skipulagt áætlunarflug allt árið og verður að miða fargjaldaverð sitt við meðal sætanýtingu yfir allt ápið. Margar ferðir, einkum að vetrinum, eru beinlínis rekn- ar með tapi. Þær verður það að vinna upp með sumarferðunum. En það horfir illa, ef erlendir Frs. á bls. 5 til ISLANDS Viðtal við Birgi Þorgilsson fulltrúa LOKAHÓF LISTAHÁ TÍDAR í GÆR I gærkvöldi fór fram lokahóf listahátíðarinnar. Fór það fram f Hótel Sögu og var fjölmennt. Myndin var tekin við upphaf veizlunnar uppi við háborðið og ■ er Páll ísóifsson, sem var veizlu stjóri, að setja hófið. Á mynd- inni má meðal annars sjá for- sætisráðherra, Bjarna Benedikts son, forsetahjónin, frú Dóru og Ásgeir Ásgeirsson og yzt til hægri menntamálaráðhcrra Gylfa Þ. Gíslason. Framan við háborðið sitja m.a. Jón Þórar- insson tónskáld formaður Banda lags íslenzkra listamanna og Ragnar Jónsson framkvæmda- stjóri listahátíðarinnar og fr.ir þeirra. I i Fyrstu gestimir gista hótel VÍKING eftir 10 duga — lolcið er við að reisa herbergin og unnið er við setustofuna og byrðinginn Qera má ráð fyrir, að fyrstu gestirnir gisti Hótel Víking, hið fljótandi hótel á Hliðarvatni á Snæfellsnesi, eftir 10 daga. Þessa dagana er unnið af fullum krafti við byggingu hótelsins og Iokið er við að reisa herbergin, en eftir er að reisa setustofuna og sjálfan byrðinginn. Gengið hefur verið frá raflögnum að mestu Ieyti, og unnið er að þvi að koma aflvélunum fyrir. var tunnum skotið undir flotholt ið og síðan á fjöru var stórum dráttarbíl ekið undir það, en dráttarbíllinn flutti flotholtið upp að Hlíðarvatni. Daginn eftir var flotholtið svo sett á vatnið og hafizt handa við að byggja ofan á það. I vor var nokkuð stór skáli byggður við vatnið er verður notaður sem þvottahús, geymsla og miðstöð í landi fyr- ir hótelið. Inni í þessum skála hafa flekarnir og annað það, sem nota á við yfirbyggingu, verið geymt. 8 menn hafa unnið að því að undanförnu að skrúfa flekana saman og ganga frá herbergjun- um og er nú lokið við að reisa öll herbergin en þessa dagana er unnið að því að reisa setustofu og ganga frá byrðingnum. Búið er að leggja rafmagnið að mestu Framh. á 5. sfðu. BANASL YS / KEFLAVÍK Sá sorglegi atburður gerðist í Keflavík skömmu eftir hádegið í gær, að 4ra ára drengur varð fyrir miklu höfuðhöggi og beið bana. Drengurinn var að Ieika sér í bflskúr, sem stendur við hús númer 63 við Hringbraut. Með honum var kunningi hans, 3 ára. Talið er að skrúfstykki, sem stóð uppi á borði, hafi fallið á höfuð drengsins. Kunningi hans gerði aðvart og var lögreglan í Keflavik kölluð á staðinn kl. 13,42. Drengurinn var þegar í stað fluttur á sjúkrahúsið i Keflavík, en þegar þangað kont, var hann látinn og töldu læknar að hann hefði látizt samstundis Skrúfstykkið, sem féll á höfuð drengsins, vóg 67 kiló. Ekki er hægt að birta nafnið á barninu vegna fjarstaddra ætt ingja. Flotholtið var flutt úr Reykja vík 9. júní s. 1. Var það dregið af mótorbáti upp í mynni Borg arfjarðar, en þar tók við trillu- bátur, sem sá um að koma því alla leið inn í Langárósa. Þar BLADID I DAG 2 Verðlaunakross- gáta. — 3 Myndsjá frá 17 júní á Akureyri. — 4 Hugleiðingar um listdóma — 5 Iþróttir — 6 Ávarp fjallkonunnar — 8 Samningamaður- inn Stikker — 9 Heimsókn í Leið- beiningastöð hús- mæðra. GLEYMDUAD BIÐJA BÓNDA UM LEYFI TIL ELDFLAUGARSKOTS Miklar mælingar og útreikn- ingar hafa verið gerðir í sam- bandi við þá fyrirætlun franskra vísindamanna, að skjóta upp eldflaug frá Mýrdalssandi í sumar. Þóttust sumir jafnvel gctað reiknað út að hér væri eitthvað gruggugt á seyði, því að allur þorri almennings virð- ist líta eldflaugar nokkru horn- auga. Eins og gefur að skilja var mikið „spekulerað“ og spjallað hjá Frönsurum, en eitt láðúit þeim alveg. Þeir gleymdu að blðja bóndann um leyfi. Samkvæmt áætlunum þeirra átti að skjóta eldflauginni eina 7 km. frá bænum HöfðabreKku, og hafði bóndinn þar, Ragnar Þorsteinsson heyrt það á sicot- spónum, en ekkert nánar. Eios og vænta mátti var hann frem- ur óhress yfir þeim gangi mál- anna, enda mundu fáir vera þuð sem fréttu að útlendingar væru að flækjast um land þeirra skjót andi upp eldflaugum. Áður en til aðgerða kæmi rankaði þó einhver við sér og var þá 1 skyndi samið við Ragnar um Ieyfi. Þegar Vísir hafði samband við Ragnar í gærkvöldi, sagði hann, að svo hefði virzt, sern þetta hefði alveg dottið þeim úr minni þar til hafizt var handa um framkvæmdir á landi hans. Aðspurður um hugarfar fólks í sambandi við þessar aðgerðir, sagði hann að ekki bæri á nein- um óhug, en hins vegar væru margir forvitnir. Þess ber að geta að ekki höfðu Fransmennirnir hugsað sér að gera þetta að Isiend- ingum algerlega forspurðum og höfðu haft samband við dóins málaráðuneytið í því skyni að fá leyfi. Ráðuneytið veitti það leyfi, eftir að athugun hafði far- ið fram, með því skilyrði að allar nauðsynlegar varúðarráð- stafanir yrðu gerðar. Var þein Ágústi Valfells, forstöðumanni almannavarna, Einari Oddssyni sýslumanni Skaftafellssýslu og Pétri Sigurðssyni forstjóra Land helgisgæzlunnar falið að hafa eftirlit með fullnægjandi láð- stöfunum til gæzlu almannaór- yggis f sambandi við þessar að- gerðir. \* /- »' » v' y * ' ,

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.