Vísir - 29.08.1966, Blaðsíða 1

Vísir - 29.08.1966, Blaðsíða 1
VISIR 56. árg. - Mánudagur 29. apríl 1966. — 195. tbl. Koparskjöldurínn fundinn — var við Útvarpshúsið d Skdlagötu — Ég sótti skjöldinn í gær- morgun til lögreglunnar og nú spekúlera ég hvemig hann verð ur settur upp svo aö honum verði ekki stoliö eins fijótlega aftur, sagöi Einar Magnússon rektor Menntaskólans i morg un um leið og hann virti fyrir sér koparskjöldinn, sem lá á boröi inni i kennarastofu skól- ans. Á skildinum, sem Reykvík- ingafélagið gaf skólanum árið 1951 er áletrað: Þjóðfundurinn var haldinn i þessu húsi 5. júlí — 9. ágúst — 1851. — Var skildinum komið fyrir á tré- ramma hægra megin viö inn- gang Menntaskólans, þegar gengið er inn í skólann. Á föstu daginn veitti smiður nokkur,, er átti leið þar um því athygli að skjöldurinn var horfinn. Var stuldurinn þegar tilkvnntur lög- reglunni. Aðfaranótt sunnudagsins kl. 3.30 hringdi óþekktur maður í lögregluna og sagði að skjöld- inn væri að finna við Útvarps- húsið við Skúlagötu og reyndist rétt vera. Var reynt að rekja hvaðan maöurinn hafði hringt Framh. á bls. 6 HUMAR VEIÐUM AÐ LJÚKA Pjóðfundarskjöldurinn, sem stoliö var. Myndin var tekin inni á kennarastofu M.R. í morgun, Humarveiðum fer nú brátt að ljúka, en leyfi til veiðanna var veitt til 15. ágúst og síðan fram- lengt til mánaðamóta. Humarveiði menn hafa farið fram á enn frek- ari framlengingu, eða fram i miðj- an september, en ráðuneytið gefur slikt leyfi eftir tillögum fiskifræð- inga Rannsóknarstofnunar sjávar- útvegsins. Veiðamar hafa ýmist staðið I fram í ágústlok eða miðjan sept- | ember og kemur einkum til greina að veita leyfið nú, á vissum svæð- um. I Humarveiðamar hafa gengið misjafnlega í sumar, framan af sumri fékkst lítið á nærmiðum, en aðalveiðisvæðið var á Skeiðar- árdýpi og þar austur með landinu, upp á síðkastið hefur veiðin glæðzt nokkuð hér nær Eldeyjarbanka og hér í Faxaflóa. Ml Samkomulag náðist í vatnsstríðinu í nótt Mdlið lagt ffyrir féSagsmdlardðuneyfið —-JHdtí lokað aftur fyrir vatn fil síldariðndðdrins Samningsviðræður milli bæj- arstjómar Seyðisfjarðar og 5 síldarverkunarstöðva stóðu yfir f alla nótt á Seyðisfirði, eða frá því klukkan 9 í gær- kvöldi til kl. 5 í morgun. — Lauk samningsviðræðunum með samkomulagi og verður bvf ekki lokað aftur fyrir vatn til síldarverkunarstöðva á staðnum, en opnað hafði verið fyrir vatnið á föstudags kvöld eftir bráðabirgðasam- komulag á föstudaginn. Átti að loka aftur fyrir vatnið á hádc'ú í dag, ef samkomulag hefði ekki náðst. Samið var um, að bæjarstjórn Seyðisfjarðar endurskoðaði vatnsveitureglugerðina og þá sérstaklega með tilliti til tengi- gjaldsins og verður reglugerðin lögö fyrir félagsmálaráðuneytið til staðfestingar. Síldarverkunar stöðvarnar sex, sem stóðu aö samkomulaginu í nótt, greiða aftur á móti kr. 2.250.000 upp í fyrirhugað tengigjald fyrir 1. sept. n.k. — Síldarverkunar- stöðvarnar eru: Síldarverksmiðj- Verzlunaríóðum úthlutað lágu fyrir um lóðir þessar, en Verziunarhús við Hörðaiand. þær voru veittar eftirtöldum aðil- um: Á fundi sínum nú nýverið út- hlutaði borgarráð lóðum undir 4 allstór verzlunarhús, sem rísa eiga í hinum nýju hverfum borgarinn- ar. Eitt húsanna er við Efstaland, Verzlunarhús við Amarbakka. annað við Amarbakka, hið þriðja stóra húsið: við Kóngsbakka og það fjórða er Jón Bj. Þórðarson, Langholtsveg við Hörðaland. Þama er um að j 120A, fyrir ca. 360 ferm húsrými ræða kjöt- og nýlenduvöruverzl- undir kjöt- og nýlenduvöruverzl- anir, fiskverzlanir og brauð- og un. mjólkurbúðir. Allmargar umsóknir Mjólkursamsalan fyrir ca. 60 ferm mjólkurbúð. Sveinabakaríið h. f., Hamrahlíð 25 fyrir ca. 120 ferm húsrými und- ir bakarí. Verzlunarhús við Kóngsbakka stóra húsið: Einar G. Bjarnason .Grænuhlíö 9 fyrir ca. 300 ferm húsrými fýrir nýlendu- og kjötverzlun. Mjólkursamsalan fyrir ca. 60 ferm mjólkurbúð. Verslunarhús við Efstaland: Hjörtur Hjartarson, Bræðraborg- arstíg 22 fyrir ca. 300 ferm kjöt- og nýlenduvöruverzlun. Mjólkursamsalan fyrir ca. 60 ferm mjólkurbúð. Steingrímur Bjarnason, Sogavegi 158 fyrir ca. 60 ferm fiskverzlun. Jón Víglundsson, Laugateig 12 fyrir ca. 120 ferm bakarí. Vagn Ottósson, Laugavegi 128. Eyþór S. Halldórsson, Álftamýri 69 fyrir ca. 300 ferm nýlendu- og kjötverzlun. Framh. á bls. 6 ur ríkisins, síldarverksmiðjan Hafsíld og söltunarstöðvarnar Hafsíld, Borgir, Sunnuver óg Söltunarstöð Valtýs Þorsteins- sonar. 1 Vísir hafði samband við Hrólf Ingólfsson bæjarstjóra og Beae- dikt Sveinsson hdl. í morgun, en þeir eru forvígismenn deilu- aðila. Lýstu þeir báðir ánægju sinni með samkomulagið. — Hrólfur sagðist vera þreyttur eftir nóttina, en mjög ánægður með samkomulagið. Ef málið hefði ekki leystst, hefði þaö get- að orðið dýrt á margan hátt. Frá okkar sjónarmiði, sagði Hrólfur, er þetta viðurkenning aö fyrirtækjunum beri að greiða tengigjaldið. í öðru lagi fáum við þegar nokkra greiðslu til vatnsveitunnar, sem við þurfurn mikið á að halda. — Málið verð- ur lagt fyrir nokkurs konar gerðardóm, því félagsmálaráðu- neytið mun fjalla um reglugerð- ina og dæma um það, hversu réttmæt hún er. Við treystum ráðuneytinu fullkomlega til aö komast að réttri niðurstöðu um málið. — Fyrir utan stöövun at- vinnuveganna er aldrei að vita hvað hefði getað gerzt hér á Seyðisfirði vegna þessa máls, sagði Hrólfur að lokum. Benedikt Sveinsson sagði, að það væri mjög ánægjulegt að samkomulag hefði náðst. — Málinu er í raun og veru algjör- lega skotið til félagsmálaráðu- neytisins og munum við sætta okkur við niðurstöður þess. Meö þessu samkomulagi, sem gert var í nótt, þurfa þær verkunar- stöðvar sem ég kem fram fyrir, aðeins að greiða 2.250.000 kr. í stað 4 millj. kr. sem upphaflega var krafizt. Samkomulagið birtist hér á eftir: Samkomulag aðila í deilu um tengigjald til vatnsveitu Seyðis- fjarðar. Frh. á bls. 6. 58 SKIP MEÐ SÍLD Síldveiði er nú aftur orðin góð eystra eftir bræluna, sem lagðist yfir á fimmtudag og föstudag. Síð- asta sólarhring fengu 58 skip sam- tals 10215 tonn. Saltað verður á flestum suðurfjöröunum í dag og vitað var um eiphver skip á Ieið til Raufarhafnar. Þar var á miö- nætti laugardags búiö að salta í 52 þúsund tunnur og er það hæsti söltunarstaðurinn, hæsta söltunar- stöðin er Norðursíld, 11.400 tunn- ur, hjá Síldinni er búiö að salta í 10.200 tunnur. Á Seyöisfiröi hefur verið saltað í um 37 þúsund tunnur og á Nes- kaupstað í 20.500. Veður er nú gott á miðunutn, en veiðin fékkst einkum seinni part- inn í gær, í nótt var síldin stygg og erfiðari viðfangs. Síldin veiðist aðallega austur af Dalatanga, en eitt skip fékk einnig afla 90 mílur A af Langanesi. DALATANGI: Eftirtalin skip tilkynntu um afla: Sóley 174 lestir, Jón Eiríksson 50, Huginn II. 230, Hugrún 110, Seley 320, Ámi Magnússon 150, Þráinn 125, örn 370, Helga Björg 115, Hof fell 12C Sigurvon RE 250, Guð- bjö.^ ÍS 160, Hannes Hafstein 300, Faxi 250, Guðrún GK 230, Björg- vin 240. Ásþór 180, Gullver 250, Dagfari 280, Sigurborg SI 290, Helgi F jventsson 151, Guðbjörg O F 110, Bergur 160, Sólrún 170, Bald ur 75, Hilmir 90, Ófeigur III, 50, Barði 200, Skímir 85, ísleifur IV. 150, Guðrún Þorkelsd. 221, Skála- berg 140, Sig. Bjarnason 260, Arn- ames GK 150, • Jörundur m. 270, Hólmanes 200, Ólafur Bekkur 180, Óskar Halldórsson 230, Freyfaxi 185, Gunnar 230, Margrét 180, Arn- firðingur 300, Halldór Jónsson 160, Framnes 80, Mímir 60, Akurey 210, Viðey 200, Gísli Ámi 250, Reykja- borg 150, Höfrungur III. 150, Fagri klettur 130, Sæúlfur 170, Kópur 110, Andvari 115, Amkell 115, Ak- urey 35, Einir 45. Til Raufarhafnar kom Snæfell með 70 lestir.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.