Dagur - Tíminn Reykjavík - 17.05.1997, Blaðsíða 1
Nýtt
hjiíkrun-
arheimili
vígt
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri í Reykjavík og
Ingibjörg Pálmadóttir heil-
brigðisráðherra voru viðstadd-
ar vígslu hjúkrunarheimilisins
Skógarbæjar að Árskógum 2 í
Suður-Mjódd í gær. 17. febrúar
1995 var undirrituð viljayfirlýs-
ing Reykjavíkurborgar og
Rauða krossins um þessa bygg-
ingu sem kvað á um stofnun
sjálfseignarstofnunar um rekst-
ur heimilisins. Auk þess hafa
fleiri aðilar komið að verkefn-
inu. 1. áfangi hefur nú verið
tekinn í notkun og eru 33
hjúkrunarrými tilbúin, en 16 til
viðbótar bætast við í júní. Alls
er gert ráð fyrir 79 plássum og
áætlað að verkinu ljúki í árs-
byrjun 1998. Ásamt heilbrigðis-
ráðherra og borgarstjóra er Þór
Halldórsson, öldrunarlæknir, á
myndinni. BÞ
Fréttir og þjóðmál
Mynd: BG
Skógarströnd
Fiýja jarðirnar sínar
vegna nágrannaeija
Haukabrekka og Narf-
eyri auglýstar lausar
til sölu vegna lang-
varandi meints yfir-
gangs nágranna.
Abúendurnir á Hauka-
brekku og Narfeyri, þeir
Kolbeinn Kristinsson og
Hreiðar Vilhjálmsson, telja að
ekki sé lengur hægt að búa í ná-
grenni við Sigurjón Helgason í
Stóra-Langadal, fyrrum útgerð-
armann í Rækjunesi í Stykkis-
hólmi, sem þar er með 300 hesta.
Segja þeir hrossunum ekki aðeins
beitt á landi Stóra-Langadals, Guðmundur Jónsson á
heldur einnig Hjarðarbrekku og Emmubergi, oddviti Skógar-
Narfeyrar, enda séu hrossin mun strandarhrepps, segir þessu
fleiri en jörðin þoli.
Ábúendur Hauka-
brekku og Narf-
eyrar telja sig hafa
orðið fyrir búsifjum
af hendi Sigurjóns
sl. 7 ár, en um 10 ár
eru liðin síðan Sig-
urjón flutti frá
Stykkishólmi að
Stóra-Langadal. Ár-
ið 1995 tóku bænd-
ur sig til og smöluðu
hestum sem voru á landi þeirra máli hafa verið vísað til sýslu-
og héldu þeim þar til þeim var mannsins í Stykkishólmi oftar
fyrirskipað að sleppa þeim að en einu sinni, en án árangurs.
boði sýslumanns. Málinu hefur einnig verið vísað
Sturla Böðvarsson
alþingismaður Sýslumanni í stað sveitarstjórnar verður falið að annast smöl- un þegar ágangur bú- fjárfrá nágrannajörð verður óbœrilegur. '
til dómsmálaráðherra, en það-
an hafi engin svör borist.
Sturla Böðvarsson segir að
þingmenn kjördæmisins hafi átt
viðræður við félagsmála- og
landbúnaðarráðuneyti þar sem
máhð snerti löggjöf um
lausagöngu búíjár. Reynt er að
leysa málið með því að breyta
Iögum um afréttarmál og ijallskil
en málið hefði þurft að setja nið-
ur með milligöngu sveitarstjórn-
ar og því sé það bagalegt að hún
taki ekki á því. Landbúnaðar-
nefnd mun leggja til breytingar á
lögum nr. 6/1986, þar sem sýslu-
manni í stað sveitarstjórnar er
falið að annast smölun þegar
ágangur búfjár frá nágrannajörð
verður með óbærilegum hætti.
Forsetaframboðin
Guðrún P.
skuldaði
258 þúsund
krónur
Fullnaðaruppgjör vegna
framboðs Guðrúnar Pét-
ursdóttur til forseta á síð-
asta vori liggur nú fyrir, endur-
skoðað af Endurskoðunarskrif-
stofunni Stoð hf.
Útgjöld vegna framboðs Guð-
rúnar, sem hætti þátttöku
skömmu fyrir forsetakjörið,
námu 12,7 milljónum króna,
auglýsingakostnaður þar af 8,3
milljónir.
Framlög einstaklinga og fyr-
irtækja nam rétt um 12,5 millj-
ónum króna. Um áramót skuld-
aði framboðið 258.562 krónur,
en skuldin nú að fullu greidd.
Guðrún Pétursdóttir þakkar
öllum þeim sem lögðu framboð-
inu lið og stuðning.
-JBP
Lífid í iandinu
Alfa Laval
Varmqskiptflr
SINDRI ^
-sterkur í verki
BORGARTÚNI 31 • SÍMI 562 7222 • BRÉFASÍMI 562 1024