Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1982, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1982, Blaðsíða 33
DV. — HELG ARBLAD. LAUGARDAGUR 13. MARZ 1982. 33 Menning Menning Menning Menning Amf tnynd vmr tmkin á mHngu og löngu áöur an Ijóst varö hvanu nUkll valgangnl Slgaunabarónsins œttí aftíraö varöa. Framst á myndinni ar Ásrún Davíösdóttir, sam syngur i ainu af aðalhlutverkum óperunnar. UNNULAUS ÓPERA Madonufar nr. 4. Ljósm. GBK. í„Bókahomi" útvarpsins kl. 1620 varður fluttur stuttur þittur aftk tóffira pitt, Kristín . Pótursson. Nefnist þótturinn „Shakaspaara" og ar fíuttur af nokkrum jafnöldrum höfundar. Enn fremur verður i þættínum talað viö nokkra aöstandendur skólablaös Hagaskólans og fíutt efniúrþvi. Bjarnlerfur okkar tók þessa mynd, þagar hinir ungu laikarar og rithöfund- ar voru aö undirbúa þáttínn i húsakynnum hljóövarps viö Skúlagötu. Leiðbeinandi þeirra, Sigriður Eyjtórsdóttir, sóst í aftari röö til vinstri. Ekkert lát er á aðsókninni á Sígauna- baróninn eftir Strauss, fyrsta verkefni, íslenzku óperunnar. Einhvern tímann fyrr í vetur heyrðist því fleygt að 25 uppseldar sýningar nægðu til að í land sæist með stofnkostnað óperunnar og þar eð sú 25. var um síðustu helgi. sló DV á þráðinn til Árna Reynissonar, framkvæmdastjóra Islenzku óperunn- ar, og spurði hvort ekki hefði verið haldið upp á daginn. Ekki kvað Árni svo hafa verið stofnkostnaður hefði hækkað nokkuð dagana fyrir frumsýninguna og þyrfti því fleiri en þessar 25 sýningar til að út- séð yrði um stofnkostnað. ,,En það er útlit fyrir að svo verði; aðsóknin hefur verið mjög mikil og síður en svo að úr hennisé aðdraga.” Páll P. Pálsson hefur nú tekið við hljómsveitarstjórn. Um aðra helgi, þ.e. á sýningum þ. 25., 26. og 27. ntarz verður ennfremur sú breyting að þýzk söngkona — frá Ríkisóperunni í Milnchen — mun syngja hlutverk Zaffi því um þá helgi heldur Ólöf Kolbrún Harðardóttir tónleika í New York. en hún fer annars með rullu Zaffí. En sem sagt, aðsóknin að óperunni er góð og ekki ráð nema í tíma sé tekið að fá miða. íslenzka óperan eða a.m.k. Sigaunabarón Strauss virðist hafa slegið algjörlega í gegn. Ms Fúð óstæöa artílaö vakja athygli ó að þramur sýningum lýkur á Kjarvals- stöðum annað kvöld, þeirra Einars Hókonarsonar, Karis Júlíussonar og Steinunnar Þórarinsdóttur. Allar þessar sýningar hafa vakið athygli og eru meira en valjtess virði að lita inn á Kjarvalsstaði um helgina. Og svo veröur opnuð þar sýning á „patch-work" teppum — gömlum bandariskum búta- teppum. Sú sýning stendur aöeins í eina viku. QakkaleBchúsið, Tónabæ: Karlinn I kassanum í kvöld og annað kvöld kl. 20.30, s. 35935 íTónabæ. Kópavogsleikhúsið: Leynimelur 13 í kvöld kl. 20.30. Aldrei er friður á morgun kl. 15. — Fáarsýningar eftir. S. 41985. Leikfólag Reykjavíkur Jói sýndur í kvöld. Uppselt. Rommí annað kvöld. Næstsíðasta sinn. Salka Valka, næsta sýning þriðjudag. Uppselt. Skomir skammtar í kvöld í Austur- bæjarbíói kl. 23.30. Ofvitinn verður sýndur í siðasta sinn á fimmtudaginn. Nemendaleikhúsið í Lindarbæ: Svalirnar eftir Genet. Sýning annað kvöld kl. 20.30. Næstu sýningar mánu- dag og þriðjudag. Miðasalan er opin milli 5 og 7 alla daga nema laugardaga og sýningardaga frá kl. 5. Síminn er 21971. Þjóðleikhúsiö: Gosi — i dag og á morgun kl. 14. Amadeus í kvöld kl. 20. Uppselt. Sögur úr Vínarskógi, næsta sýning miðvikudag. Kisuleikur, næsta sýning á morgun kl. 16. Ballettinn Giselle — næsta sýning sunnudag og svo þriðjudag. Uppselt. 4. sýning er á fimmtudaginn og eru enn til miðar á þá sýningu. Áskriftarkortin gilda líka á þessar sýn- ingar. ísienzka óperan Sígaunabaróninn sýndur i kvöld og annað kvöld en það er bara alltaf upp- selt! Sími óperunnar er 11475. Tónlist Tónlist um helgina og í næstu viku. í dag, laugardag, leikur Rudolf Kerer á vegum Tónlistarfélagsins í Austurbæjarbíói kl. 14.30. Hann vann hug og hjörtu áheyrenda með leik sinum í Háskólabíói á fimmtudags- kvöld og er ekki að efa að marga fýsir að hlýða á einleikstónleika hans. Annars gerist lítið á músíkvettvangi í höfuðborginni um helgina utan að Áskell Másson leikur verk eftir sig á málverkasýningu á Kjarvalsstöðum á sunnudag kl. 16. En Húnvetningar og Skagfirðingar njóta tónleika Jónasar Ingimundarson- ar á Blönduósi, í Varmahlíð og á Hofs- ósi um helgina og svo leikur hann fyrir Suðurnesjamenn í Ytri-Njarðvíkur- kirkju á miðvikudagskvöld. íslenska óperan heldur sínu striki með sýningum á Sígaunabaróninum og enn er alltaf uppselt. Og fái höfuðstaðarbúar ekki nóg af músik í vikunni er ráð að bregða sér á sýningar Fjalakattarins á kvikmynd- inni, óperunni.Don Giovanni i Tjarnar- bæ á laugardág kl. 19.30; þriðjudag kl. 19.00; fimmtudag kl. 19.00 og laugar- dag þann 20. mars kl. 19.30.Það kostar það að ganga í klúbbinn, fyrir þá sem ekki eru meðlimir, en ætti að vera fylli- lega þess virði. Eyjólfur Melsted HANDMENNT Karl Júlíusson hefur opnað sýningu að Kjarvalsstöðum þar sem hann sýnir 16 verk. Flest eru þau byggð á sama grunnforminu (sleðaformi) sem fær í höndum listamannsins mismunandi úr- vinnslu. Attterfíst Það hefúr gjarnan verið sagt að skap- andi listamenn „sjái list” út úr öllum hlutum. Þessi hugmynd hefur verið sér- lega þanin á þessari öld, og allt sem komið hefur á ská við „opinbera” list eða ákveðna skólastefnu, hefur verið tekið sem enn eitt sjónarhornið á hið stóra og göfuga listhugtak. f umræðum um þessa hluti hefur þó stundum komið fram sá misskilningui að rugla saman list og fagurfræði. Því ljóst er að þegar Duchamp stillir pissu- skálinni upp í sýningarsal í byrjun ald- arinnar þá var hann ekki að velta fyrir sér fagurfræðilegum hugleiðingum, hvorki formrænum né sálfræðilegum, heldur vildi hann fyrst og fremst setja spurningarmerki við orðið List. En stóra byltingin, sem varðar nýja myndsýn, á sér stað á 7. áratugnum þegar „Ný-realistarnir” taka verk- smiðjuframleidda hluti og setja þá senr „ívitnun”, beint inn í listaverkið án nokkurra milliliða, svo sem teikningar, ljósmyndir, videó etc. Þeir brutu upp listhugtakið og buðu listamönnum að vinna beint í hið næsta umhverfi, allt gat orðið möguleiki og tækifæri til list- sköpunar. En gætum að því að þetta þýðir ekki að listin sé dauð eða allt sé orðið list. Þvi bak við þessa nýju raun- Myndlist Gunnar B. Kvaran sæislist er vel grundvölluð hug- myndaleg forsenda, einskonar skil- greining á þeirra list sem sýnir vel að listin er í senn hugmyndaleg og plastísk. Handmennt En þótt listaverk Karls séu úrtíningur úr okkar næsta umhverfi, er spurning- in ekki i raun um sjálft listhugtakið. Hér er um að ræða listaverk sem ein- kennast af mikilli nostursemi og sérlega góðu handbragði. Og þó grunnhug- myndin sé eflaust bæði sniðug og vel íhugað ná verkin ekki að losa sig und- an því að vera aðeins ágæt handmennt. Sleðaformið er endurtekið, með ótal variationum, án þess þó að ná því að vera annað en sleði með mismunandi fáguðu skrauti, — skrauti sem hefur fyrst og fremst sjónrænt gildi þar sem allt miðast við að ná samræmi og há- marks-jafnvægi. Þessi sýning minnir okkur á að allri listsköpun fylgir hugmyndalegur ásetn- ingur sem síðan er unnin í ákveðið efni og form. Hér aftur á móti virðist áherzlan lögð á sjálft efnið eða þá hug- mynd sem því miður kemur hálfri öld of seint. -GKB Leiklist Alþýðuleikhúsið: Súrmjólk með sultu, sýning sunnudag kl. 15. Miðasalan er opin frá 14en 13 á sunnudögum, s. 16444.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.