Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1982, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1982, Blaðsíða 14
14 DV. ÞRIÐJUDAGUR19. OKTOBER1982. Menning Menning Menning Menning I Skemmtileg fræði Þjóðhagfræði oftir Gylfo Þ. Gisloson. Útgef. Iðunn, 1981,218 bls. Þaö var í menntaskóla fyrir tæpum aldarfjóröungi aö ég fékk áhuga á hagfræöi án þess að vitaj meö vissu um hvaö þessi kynlegaj fræöigrein snerist, enda haföi égí fylgt útilokunarreglunni á hennarj fund. Eg þóttist þó vita að fagið væri nytsamlegt en leiöinlegt, enda þótt hiö gagnstæöa kæmi í ljós er tímar liðu. Á þessum árum var úrval bóka á' íslenskri tungu um hagfræöileg mál-' efni æöilítiö. Fyrsta hagfræðiritiö sem ég eignaöist, og á enn í fórumj mínum, var kennslubók eftir ólaf Björnsson prófessor. Þetta var úrvalsbók, kenningin traust og mál-j fariö vandað. Annaö rit um þjóö- megunarfræði las ég um þetta leyti en þaö var útgefiö á ensku af Pelican forlaginu og á kápusíðu var ljós- mynd af tappa úr kampavínsflösku. Bókin sem hét The affluent society og var eftir J. Kenneth Galbraith hófst á þessum orðum: „Þaö hefur ýmislegt til síns ágætis aö vera ríkur. Oft hafa menn reynt aö sanna hið gagnstæða en fáir látið sann- færast.” Enda þótt kunnátta mín í ensku væri bágborin kunni ég strax aö meta fyndni og gamansemi' höfundar. I bókinni bar Galbraith á borö þá skoöun sina aö einkaneysla í Bandaríkjunum væri óhóflega mikil en samneyslan hins vegar alltof lítil. The affluent society kom út fjórum árum áöur en maður aö nafni Michael Harrington varö bæöi ríkur og frægur af því aö finna fátæktina í Bandaríkjunum og skrifa um hana (The other America, 1962). Harring- ton komst aö þeirri niöurstööu aö einkaneysla milljóna manna í Bandaríkjunum væri síst of mikil.; Og nú hefur Hannes Hólmsteinn Gissurarson tekiö af öll tvímæli og dregiö Galbraith í dilk með falsspá- mönnum og sett hann í skammar- krókinnítímaritinu Frelsiö. Vel heppnað yfirlit Nú er ástandið annað en fyrir aldarfjórðungi. Nokkrar bækur um hagfræöi og efnahagsmál hafa komið út á íslensku enda þótt oft sé þar fjallað um hugmyndafræði. með stjómmálalegu ívafi. Væri ég menntaskólanemandi á vorum timum í leit aö almennri vitneskju um viöfangsefni þjóðhagfræðinnar kæmi ný kennslubók eftir Gylfa Þ. Gíslason prófessor að góðum notum (Þjóöhagfræöi, Iöunn, 1981). Það er mikill vandi að skrifa góöa bók um þjóðhagfræði handa byrj- endum. Kjami slíkra bóka er jafnan einfalt iíkan af samhengi helstu stæröa efnahagslífsins. Líkaniö er notað til aö gefa lesendum nokkra hugmynd um þau öfl, er ákvarða einkaneyslu, samneyslu, fjárfest- ingu, innflutning og útflutning, og jafnframt til aö útskýra, hvemig þessar stærðir mynda eina heild. Vandinn er sá aö nemendur eiga oft erfitt meö-aö átta sig á gangverki hagkerfisins fyrr en þeir hafa fengið góöa lýsingu á einstökum þáttum þess, en lýsing á einstökum þáttum segir litla sögu fyrr en heildar- myndinerljós. Þetta er klemma sem flestir byrj- endur komast úr ef þeir lesa stutt en greinargott ágrip af fræðunum, tvisvar, þrisvar sinnum. Vera má aö samhengið sé ekki ljóst í fyrstu eöa Bókmenntir Þráinn Eggertsson lesendur í hraðferö um gróðursælar lendur þjóðhagfræðinnar og þeir fá í einni svipan yfirsýn yfir einstaka hluta hagkerfisins og sjálfa heildina. Málfarið er skýrt og gott, millifyrir- sagnir tíöar, og mikiö er í bókinni af töflum og línuritum og frágangur hennar er vandaður. I bókarlok flýtur meö ýmislegt góögæti svo sem yfirlit yfir helstu hagkerfi heims. Næstsíðasti kaflinn er útdráttur úr sögu hagfræðikenn- inga frá Adam Smith til vorra daga á| tíu blaösíöum, sem er afrek á sinn hátt, en eigi aö síður fremur þunnar trakteringar. En þetta heyrir til undantekninga. Framar í bókinni tekst Gylfa, prýðilega, stundum á aöeins 6—7 blaösíöum, aö sýna lesendum sínum í nýja heima og má Dr. Gylfi Þ. Gislason. „Dugnaöur hans viö að skrifa liprar og góöar kennslu- bækur á ýmsum sviðum hagvisindanna er dæmalaus”, segir í ritdóminum. annarri atrennu, en þar kemur aö kviknar á perunni. Svo illa vill þó til aö erlendar kennslubækur í hagfræði fyrir byrjendur eru yfirleitt risa- vaxnar og bólgna viö hverja endur- skoöun og endurútgáfu — nánast sagt tröllauknar óvættir sem gleypa lesandann með húö og hári. Þessi ferlíki eru oft bandarísk en mér er tjáö að Bandaríkjamenn, sem fyrir nokkrum mannsöldrum sóttu fram- haldsnám, aö nokkru leyti til Þýskalands, hafi fengiö ógleyman- lega tilsögn hjá þýskum mennta- mönnum í því aö teygja lopann. Hraðferð um gróðursælar lendur þjóðhagfræðinnar Tilgangurinn með bók Gylfa Þ. Gíslasonar er að kynna nemendum á menntaskólastigi og ööru áhugafóiki grundvallaratriði þjóöhagfræðinnar. Eg álít aö höfundi hafi tekist ljóm- andi vel í tiltölulega stuttu máli að gefa gott yfirlit yfir viöfangsefni þessara fræöa. Farið er meö nefna til dæmis IV. kafla, Verömæta- hringrásin í hagkerfinu, og II. kafla, Framleiðsluskilyröi. Gylfi hefur leitaö fanga víöa en mest byggir hann á kennslubók í hagfræöi fyrir nemendur á háskóla- stigi eftir Lipsey og Steiner sem er ekki aðeins mikil utan um sig heldur ein hin besta sinnar tegundar. Gylfi einfaldar mikið og staöfærir víöa þaö sem hann sækir til þeirra félaga, en þeir hafa heimilaö honum aö nota all- mörg línurit og töludæmi úr bók sinni. Eg sé ekki betur en þessi sam- vinna hafi veriö skynsamleg og gefiö góöa raun. Dugnaður dr. Gylfa við aö skrifa liprar og góðar kennslubækur á ýmsum sviöum hagvísindanna er dæmalaus. Vonandi veröur bók hans ,um þjóðhagfræði til þess aö vekja áhuga karla og kvenna sem hana lesa á því aö kynnast betur þessum skemmtilegu fræðum, en þeirra bíöur viðskiptadeild Háskólans með' útbreiddan faöminn. -Þ.E. Kristján Jóhannsson syngur með Sinfóníuhljómsveit Islands. Landsbyggðar- prógramm sinfómuhljóm- sveitarinnar Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands í Há- skólabíói 14. október. Stjórnandi: Páll Pampichler Pálsson. Einsöngvari: Kristján Jóhannsson. Efnisskrá: W.A. Mozart: Sinfónía f g-moll, nr. 40; V. Bellini: Forleikur að Óperunni Norma; G. Puccini: Arra úr Toscu; P. Mascagni: Intermezzo úr L’amico Fritz; G. Verdi: Aría úr Valdi örlag- anna; Árni Björnsson: Nýársnóttin, forleikur; Sigfús Einarsson; Gfgjan; P. Tschaikowsky: úr Svanavatninu; E di Capua: O sole mio; J. Strauss: Þrumur og eldingar. Vonbrigði Loksins uröu höfuöstaöarbúar þeirrar náöar aönjótandi að fá aö hlýöa á landsbyggöarprógramm það sem sinfóníuhljómsveitin hefur leikið víða um landið við geipigóöar undir- tektir. Hér fór sem oft áöur, þegar vinsæl efnisskrá hefur veriö á boðstól- um, aö margir uröu frá aö hverfa, vonsviknir. Sárari en ella held ég aö vonbrigðin reynist mörgum þegar út spyrst aö f jölmörg sæti voru auð í sal Háskólabíós. Sæti sem ætluö voru boös- gestum, væntanlega þingmönnum eöa öörum áhrifamönnum um velgengni hljómsveitarinnar, sem ekki sáu ástæöu til aö skila miöum sínum, úr því aö þeir gátu eða vildu ekki þekkjast boöiö. Svo mikið er aö minnsta kosti víst aö hljómsveitin hefði ekki veriö í vandræðum með að selja téöa miöa og bæta þar með sinn hag. Vel rækt starf — frábær árangur Ekki skal mig furöa hve efnisskrá hljómsveitarinnar féll hlustendum vel í geö. Hún er uppsett meö vinsælum verkum sem hver maður þekkir, jafnvel þó hann hafi aldrei fyrr á sinfóníutónleika komið, þökk sé voru ágæta Ríkisútvarpi. Ekki þarf að spyrja að því meö hvílíkum ágætum Sinfóníuhljómsveit Islands flutti þessa tónleika. Hún er reyndar búin aö leika þá svo oft, aö nær væri aö ætla aö hún hefði fyrir löngu fengið leiða á verk- efninu og léki þaö miður vel af þeim sökum. En hér ræktu hljómsveit og stjórnandi starf sitt af samviskusemi og alúö meö frábærum árangri. Glæsilegt, en án mýktar og hlýju Skrautf jööur tónleikanna var söngur Kristjáns Jóhannssonar. Honum tókst snöggtum betur upp nú en síðast. Meö síðast er átt viö söng hans með sömu hljómsveit á sama staö á síðastliðinni tónleikavertíö, því ekki þótti ástæða til aö hleypa gagnrýnendum aö tónleikum söngvarans í Þjóðleikhúsinu fyrr í haust. Kristján söng Puccini og Verdi aríumar meö einstökum glæsibrag — verkefni sem hæfa rödd hans og karakter prýðisvel. En þaö er líka greinilegt að aukin skólun hefur dregiö úr frumstæöum sjarma náttúru- raddarinnar. Skólun hefur á hinn bóginn ekki náö aö gæöa rödd Kristjáns mýktoghlýju, eníGígjunni eftir Sigfús Einarsson kom áþreifan- lega í ljós hversu mjög þessa þætti skortir hjá honum. Þaö er hins vegar vel þekkt fyrirbrigöi aö stórsöngvarar hafi komist mætavel af án þessara þátta og ef Kristján verður heppinn getur hann sómt sér dável í því alþjóð- lega stórsöngvara „jetsetti” sem flandrar á milii helstu óperuhúsa veraldarinnar og þarf ekki aö syngja nema tug eða tylft klæöskera- saumaöra hlutverka. Kristján er glæsisöngvari í þeim verkefnum sem honum henta, en bágt á ég með aö vera sammála honum um meðferðina á Hamraborginni þar sem hann teygði svo sín „rubati” að hljómsveitarþátt- urinn varð gjörsamlega rúinn þeirri „ryþmisku” spennu sem útsetningin býðuruppá. Þessir og aðrir vel heppnaöir tón- leikar meö svokölluöu léttu efni vekja meö manni spuminguna um, hvort Sinfóníuhljómsveit tslands geröi ekki rétt í því að taka upp sérstaka tónle ika- röö meö léttu efni. Nægur virðist markaðurinn. -EM.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.