Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1984, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1984, Blaðsíða 2
2 DV. LAUGARDAGUR 29. DESEMBER1984. Forsætisráðherra hefur tekið við undirskriftunum. Frá vinstri taiið: Jón Arnþórsson, Steingrimur Her- mannsson forsætisráðherra, Steindór Steindórsson frá Hlöðum og Gunnar Ragnars. DV-mynd Bjarnleifur. Af hentu f orsætisráðherra áskorun 4.032 Eyf irðinga: Vilja athuga stóriðju kostinn til hlítar „Lít fyrst og fremst á mig sem lækni” — segir Páll Gíslason, nýorðinn forseti borgarstjórnar „Þetta leggst ágætlega í mig og ég get ekki sagt aö þetta hafi komiö mér á óvart, þar sem ég var fyrsti vara- forseti borgarstjórnar,” sagði Páli Gíslason læknir, sem tekur viö af Markúsi Erni Antonssyni sem forseti borgarstjómar Reykjavíkur nú um áramótin, í samtali viðDV. „Þaö veröur ekki um neina koll- steypu í störfum að ræöa þó ég hækki þetta í tign innan borgarstjórnarinn- ar. Eini munurinn er sá aö nú sé ég um fundarstjóm á fundum, frágang skjala með starfsmönnum borgar- stjómar, svo og kem ég til með aö koma fram fyrir hönd borgarstjórn- arinnar. Þannig ber ég meiri ábyrgö á aö málum sé skilað og fylgt úr hlaði.” Páll sagöi aö venjan væri sú aö í embætti forseta borgarstjórnar sem og aörar vegtyllur á hennar vegum væri kosiö á fyrsta fundi borgar- stjórnar í júni. Væri kosiö til árs í senn og því myndi hann gegna þessu starfiíhálftár. Páll hefur setið í borgarstjórn síðan 1974, þar áöur sat hann átta ár í bæjarstjórn Akraness. — En hvort líturðu fremur á þig sem lækni eða borgarstjómarmann? „Mitt aöalstarf er að vera læknir og því lít ég fyrst og fremst á mig sem slíkan. Því hefur líka verið vel tekið ef ég hef ekki getaö sinnt borg- arstjórnarmálum vegna sjúklinga minna. Það er einu sinni svo aö þaö að vinna fyrir einstakling, sem þarfnast manns, nær sterkari tökum á manni en vinna fy rir heildina.” Páll Gislason læknir sem tekur við af Markúsi Erni Antonssyni sem forseti borgarstjórnar. — Hefurðu gaman af þessu félags- málastússi? „Ja, maður væri ekki í þessu ef maöur heföi ekki gaman af því. Maöur er auðvitaö oft þreyttur, en þreytan hverfur ef vel veiðist, eins og sagt er og maður kemur einhverj- um af sínum málum áleiöis,” sagöi Páll Gíslason. -KÞ iJLl\ Hjálparsveit skáta Reykjavík manna í gær. I haust andmæltu þúsund færri stóriöju við Eyjaf jörö með sama hætti. Áskorunin sem Steingrímur Hermannsson fékk í gær er þannig: „Viö undirrituö, íbúar á Akureyri og í Eyjafirði, teljum nauösynlegt aö næsta stóriöjufyrirtæki, sem byggt verður á Islandi, veröi valinn staöur viö Eyja- f jörð enda veröi talið tryggt að rekstur 'þess stefni ekki lífríki fjarðarins í hættu. Viö krefjumst þess aö umhverf- isrannsóknum og öörum undirbúningi veröi hraðaö þannig aö niöurstaöa í þessu mikla atvinnuhagsmunamáli fá- isthiöfyrsta.” Þeir Gunnar Ragnars, Steindór Steindórsson frá Hlöðum og Jón Am- þórsson afhentu undirskriftirnar inn- bundnar í skinn og í rammgerum pen- ingakassa. „Þessi umbúnaöur undir- strikar álit okkar á því hvers konar hagsmunamál viö teljum að um sé teflt. Hann táknar einnig þá fullvissu okkar að álver geti átt góöa og örvandi sambúð með landbúnaði í þessu mikla landbúnaöarhéraöi. Ur því á þó að skera meö vönduöum rannsóknum,” sögöu þeir Gunnar og Jón í samtali viö DV. „öllum er ljóst aö álver er ekki skjótfengiö úrræði í atvinnumálum. Engir samningar liggja fyrir. En á því leikur enginn vafi aö veröi slíkt iöjuver reist mun það vega þungt fyrir framtíö Eyjafjaröarsvæðisins. Jafnvel stefnu- mörkunin ein mun hafa mikla þýðingu. Við þurfum aö skapa 2.000 ný atvinnu- tækifæri fram til 1990, aöeins til þess að halda þeirri stööu sem svæðiö hafði til skammstíma.” En ekki er hægt að bíöa eftir álveri einu saman? „Nei, langt í frá,” sagði Gunnar Ragnars. „Fyrir svæðiö allt skiptir sköpum aö auka á ný hlut þess í fiskafla. Hann var kominn úr 25 í 65 þúsund tonn á ári. Nú er hann aftur kominn niður í 35 þúsund tonn. Um- merkin eru alls staöar. Einnig sjáum viö mikla möguleika í stórefldri feröa- mannaþjónustu. Lykillinn þar er mikil aukning hótelrýmis af bestu gerö. Álver myndi treysta myndina alveg stórlega. Ef viö náum árangri aðeins á þessum sviöum fylgir allt annað meö. En menn veröa að þekkja stöðu sína og möguleika. Þess vegna knýjum viö á um aö stóriðjukosturinn veröi fullmet- inn. Þá fyrst geta menn tekið afstööu meö eöa móti tilteknu iðjuvéri. ” HERB Kópavogur: NÝ UMFERDARUÓS Kveikt veröur á nýjum umferöar- Frá klukkan 21.00 til 07.00 verða ljósum á mótum Nýbýlavegar og Þver- ljósin látin blikka gulu. Það gildir biö- brekku í Kópavogi í dag. Ljósin eru skylda á Þverbrekku og Ástúni gagn- tveggja fasa og tímastýrð. vart Nýbýlavegi. -EH Fulltrúar Eyfiröinga, sem vilja aö aöstæöur til stóriöju nyrðra veröi kannaöar til fullnustu, afhentu for- sætisráöherra undirskriftir 4.032 Reykvíkingar Verslið vid vana menn Flugeldamarkaðir: Skátabúðin, Snorrabraut 60 Fordhúsið, Skeifunni 17 Seglagerðin Ægir, Grandagarði Alaska, Breiðholti Við Miklagarð Við Vörumarkaðinn, Eiðistorgi Volvosalurinn v. Suðurlandsbraut Á Lækjartorgi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.