Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1986, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1986, Blaðsíða 20
Af hverju ekki heima? Sjöfn Hafliðadóttir sýnir heima eftir 37 ára útivist „Þetta er í fyrsta sinn sem ég kem heim til að sýna verk mín. Hins vegar hef ég heimsótt landið eins oft og hægt hefur verið. I fyrra kom ég heim og sá sýningu á Kjarvals- stöðum og hugsaði strax með mér að reynandi væri fyrir mig að sýna hér og nú hefur orðið af því.“ Það er Sjöfn Hafliðadóttir sem er að segja frá. Hún er komin heim eftir 37 ára útivist með verk sín. Það er í dag sem sýning hennar á Kjarvalsstöðum verður opnuð. Er- lendis hefur hún þó sýnt töluvert eftir að hún helgaði sig málaralist- inni í byrjun sjöunda áratugarins. Upphaflega var það þó ekki mál- verkið sem olli útþránni heldur var það ballettinn. Ballett í Enqlandi „Við fórum þrjár saman, Guðný Pétursdóttir, Irmgard Toft og ég, til Englands í ballettskóla. Við höfðum verið hér við dansnám í Þjóðleikhússkólanum og langaði til að læra meira. Ég var líka hér í Myndlistaskólanum og þessar tvær greinar toguðust alltaf á um athygli mína. Ég hef eiginlega aldrei hætt að dansa þótt hann hafi orðið að víkja fyrir málaralistinni. Starfsævi dansara er stutt og ég er ánægð með að hafa söðlað um í tæka tíð. Hitt þykist ég viss um að verkin min sýna að ég lærði dans. Ég trúi því að mér hafi tekist að sameina þetta og nú dansa ég á strigan- um,“ segir Sjöfn. Á listamannsferli sínum hefur Sjöfn farið víða um heim. Síðustu árin hefur hún haft fast aðsetur í Florida en er þó mikið á ferðalög- um. „Ég kem oft til Kanada og ferðast raunar mikið um alla Am- eríku,“ segir Sjöfn. „Núna hef ég verið hér á íslandi í rúma tvo mán- uði og verð hér þangað til sýning- unni lýkur í byrjun desember. Þá fer ég aftur í hitann á Florida. Ég er búin að næla mér í íslenskt kvef en þar losna ég við það. Nauðsynleg ferðalög Hvað sem slíkum vanköntum lið- ur þá er það mjög mikilvægt fyrir listamenn að ferðast og ég mála alltaf mikið á ferðalögum mínum. Ég held að umhverfið hafi mjög mikil áhrif á listamenn því þeir eru eins og svampar og soga til sín áhrif frá öllu sem þeir sjá. Verk mín hafa örugglega breyst þennan tíma sem ég hef verið hér þótt ég geri mér ekki enn nákvæmlega grein fyrir hvernig þau hafa breyst. Ég er þannig gerð að ég hugsa aldrei Iangt fram í tímann og gerði á sínum tíma ekkert frekar ráð fyr- ir að setjast að erlendis þótt atvikin höguðu málum þannig. Ég giftist Englendingi og saman fórum við um alla Evrópu. Hann var vel stæður iðjuhöldur og fór víða, m.a. um Austulönd nær. Ég var mest að leika mér á þessum tíma og lifði listamannalífi þótt ég ynni ekki mikið. Árið 1960 tók ég síðan til við list- námið að nýju og frá árinu 1962 hef ég helgað mig listinni. í fyrstu vann ég einnig nokkuð við tísku- teiknun bæði vestanhafs og austan en er alveg hætt því. Þetta er ég Viðtökunum hér heima segist Sjöín ekki kvíða þótt hún „hafi ekki hugmynd um hvernig þær verða“, eins og hún orðar það. „Smekkur manna er svo marg- breytilegur. Ég finn t.d. mikinn mun á að sýna í Kanada og í Bandaríkjunum. Sjálfsagt er smekkur manna allur annar hér en þetta er ég - það er eina viðmiðun- in sem ég hef. Ég reyni að vera eins sönn og mér er mögulegt en hugsa ekki um hvað fólki finnst. Það kemur allt í ljós hvort eð er,“ segir Sjöfn Hafliðadóttir. GK DV-mynd GVA Heimsborgarinn Sjöfn Hafliðadóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.