Dagur - 07.03.1991, Blaðsíða 2

Dagur - 07.03.1991, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 7. mars 1991 Guðmundur Bjarnason, heilbrigðisráðherra: Rettargeðdeild á Akureyri? - rætt um stofnun og staðsetningu deildar fyrir geðsjúka aíbrotamenn Guðmundur Bjarnason, heii- brigðisráðherra, var á fundi á Akureyri si. þriðjudagskvöld ásamt sjávarútvegsráðherra. Guðmundur ræddi m.a. um uppbyggingu heilbrigðiskerfis- ins á landsbyggðinni og kom inn á þann möguleika að réttargeðdeild, sem mjög hef- ur verið þrýst á að koma á fót, verði fundinn staður á Akur- eyri. „Sérfræðideild ein á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri, geðdeildin, hefur verið mikið í umræðunni í sambandi við hugs- anlega stofnun svokallaðrar réttargeðdeildar. Ég hef sýnt því mikinn áhuga að okkur takist að opna slíka deild á næstunni og ég vil skoða alla möguleika á því að hún geti verið starfrækt í tengsl- um við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri," sagði Guðmundur, en mikið hefur verið rætt um réttargeðdeild að undanförnu þar sem ekki er til nein deild eða stofnun hér á landi sem er sniðin fyrir geðsjúka afbrotamenn. Guðmundur sagði að mikil áhersla hefði verið lögð á upp- byggingu heilsugæslustöðva og mönnun H-1 stöðva, sem nú væri að takast. Einnig væri verið að vinna að því hvernig auka mætti sérfræðiþjónustu utan höfuð- borgarsvæðisins. Par væri eink- um horft til heilsugæslustöðv- anna. Þá hefur starfsemi héraðs- læknisembætta í kjördæmunum verið efld. Heilbrigðisráðherra ræddi nokkuð um aðhald og sparnað, forgangsröðun verkefna og jafn- framt uppbyggingu, sérstaklega á landsbyggðinni. Hann sagði t.d. að hægt væri að spara í sölu og dreifingu á lyfjum en í þessari grein bæri meira á hagsmunabar- áttu en vilja til að draga úr kostn- aði. SS Pústþjónusta Pústkerfi undir flestar tegundir bifreiða. Pakkningar, klemmur, upphengjur. Fast verð fyrir pústkerfaskipti. Höfum fullkomna beygjuvél. Ryðvarnarstöðin sf. Fjölnisgötu 6e • Sími: 96-26339 • 603 Akureyri. Við undirskrift kaupsamnings. Gísli Bergsson, formaður húsnefndar, Kristín Þórisdóttir, fráfarandi forseti JC-Akur- eyri, Sveinbjörn Sveinbjörnsson, forseti JC-Akureyri og Sigurður Jóhannesson, aðalfulltrúi hjá KEA á Akureyri. JC-Akureyri kaupir neðri hæð hússins að Eiðsvallagötu 6: „Stórt skref að settu marki“ - segir Kristín Pórisdóttir, fráfarandi forseti JC, Akureyri hefur fest kaup á neöri hæð húseignarinnar að Eiðsvailagötu 6 á Akureyri. Húseign þessi hefur verið í eigu KEA síðastliðin 35 ár og lengst af rak Kaupfélagið verslun á staðnum, verslun sem var lögð af fyrir nokkrum árum vegna breyttra verslunar- hátta. Að sögn Kristínar Þórisdóttur fráfarandi forseta JC-Akureyri, þá var JC-Akureyri stofnað 23. mars 1970. I gær miðvikudag var félagsmönnum afhent afsal vegna kaupanna er undirskriftir kaup- samnings höföu farið fram. „JC-Akureyri er eitt af 20 aðildarfélögum JC á íslandi sem er aðili að alþjóðlegu JC hreyf- ingunni er starfar í um 90 þjóð- löndum. Tilgangur JC er að auka félagslegan þroska einstaklings- ins og þjálfa hann í skipulögðum vinnubrögðum, stjórnun og mannlegum samskiptum. Nú þegar JC-Akureyri er orðið eig- andi að neðri hæð hússins að Eiðsvallagötu 6 getur félagið enn frekar kappkostað að ná settum markmiðum. JC-Akureyri hefur í gegnum árin sinnt ýmsum störf- um í þágu byggðarlagsins. Þar má t.d. nefna borgarafund sem JC- Akureyri stóð fyrir 18. október s.l. og fjallaði um atvinnuástand- ið á Akureyri. JC-Akureyri mun halda kynn- ingarkvöld í kvöld kl. 20.30 í félagsheimilinu að Eiðsvallagötu 6 (Bólu). Allir þeir sem áhuga hafa á að kynnast JC-starfi eru velkomnir," sagði Kristín Þóris- dóttir. ój Samningarnir um sölu eigna veitustofnana Sigluijarðar: Kynning frá Fimmtudag frá kl. 15 til 18 Kynnmgarverð ...aó sjálfsögðu! Föstudag frá kl. 15 til 19 Eidorado niðursoðnir tómatar 49 kr. áður 59 kr. TILBOÐ Nemli tómatsósa 133 kr. áður 162 kr. Grillaðir kjúklingar 499 kr. stk. áður 597 kr. stk. Opið tii kl. 19.00, föstudaga. Búið að handsala samn- ingsdrög við RARIK Veitusölunefnd á vegum bæjarstjórnar Siglufjarðar er búin að komast að niðurstöðu í samningaviðræðum við Raf- magnsveitur ríkisins varðandi sölu á Skeiðsfossvirkjun og eignum Rafveitu og Hitaveitu Siglufjarðar, og hafa samn- ingsdrög verið handsöluð. Eft- ir er að komast að samkomu- lagi við ríkisvaldið um niður- fellingu skulda veitnanna í samræmi við lánsfjárlög, en þá fyrst verður hægt að undirrita formlegan kaupsamning milli Siglufjarðarbæjar og RARIK. Á þessu stigi málsins hafa eng- ar tölur um kaupverð þessara eigna verið gerðar opinberar. Björn Jónasson, bæjarfulltrúi, sem situr í samninganefndinni, segir að Rafveita Siglufjarðar verði að fá sömu fyrirgreiðslu og önnur orkuveitufyrirtæki hafa fengið, t.d. Orkubú Vestfjarða, en það er niðurfelling skulda sem flestar eru við opinbera sjóði, og ríkið er í ábyrgð fyrir. „Það er ekki nema formsatriði að ganga frá samningum við rfkið, og þá verður hægt að skrifa undir með RARIK. Miklum skuldum verður létt af bænum, fyrir utan það að við virðumst ekki geta rekið rafveituna öðru- vísu en með tapi. Spurningin er því til hvers á bærinn að eiga hana ef með sölu er hægt að lækka skuldirnar?“ segir Björn. Siglufjarðarbær hefur undan- farin ár tekið ýmis lán til að fjár- magna framkvæmdir, og skuldir hafa vaxið. Samkvæmt efnahags- reikningi bæjarins nema lang- tíma- og skammtímaskuldir hans hundruðum milljóna króna, og veltufjárhlutfallið er það lægsta af öllum kaupstöðum landsins, að Selfossi einum undanskildum. Þriðjungur af tekjum bæjarins hefur farið til að greiða vexti og fjármagnskostnað af lánum. „Núverandi meirihluti þarf ekki að framkvæma svo mikið því fyrrverandi meirihluti var búinn að því að gera Siglufjörð samkeppnisfæran í umhverfis- legu tilliti og á fleiri sviðum. Að sjálfsögðu gerðum við okkur grein fyrir að þetta kostaði pen- inga og að bærinn yrði skuldsett- ur vegna þess.a. Við gerðum okk- ur einnig grein fyrir að bærinn ætti áfsetjanlegar eignir umfram önnur sveitarfélög, sem hægt væri að selja fyrir kostnaðinum. Við vorum að stuðla að því að gera bæinn samkeppnisfæran í byggðalegu tilliti, og sú stöðinun sem átt hafði sér stað gat ekki gengið lengur. Fyrrverandi meiri- hluti, sem tók forystuna í bæjar- stjórn snemma árs 1987, gerði sér góða grein fyrir þessu. En við erum líka einstaklega vel á vegi staddir í íþróttamálum, og stór- átak var gert í umhverfismálum og gatnagerð,“ segir Björn. EHB

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.