Þjóðviljinn - 17.08.1983, Blaðsíða 16
MOÐVIUINN
Miðvikudagur 17. ágúst 1983
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag tll föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægl aö ná í afgreiðslu blaösins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Eyþór Einarsson formaður
Náttúruverndarráðs:
_
, ,A móti
ralli um
friðuð svæði“
„Það er algjör grundvallarregla
hjá okkur að við erum mótfallnir
rallkeppni á friðuðum svæðum og
þar koma ýmsar ástæður til“, sagði
Eyþór Einarsson formaður Nátt-
úruverndarráðs í samtali við blað-
ið í gær.
„Við viljum ekki veita þær
undanþágur sem rallarar fara fram
á: þ.e. breytt hraðamörk og við
viljum ekki láta loka fyrir alla aðra
umferð á meðan rallað er. Við höf-
um undanfarin ár reynt að stuðla
að betri slóðum og vegum um frið-
lýst svæði, því ef slóðir og vegir eru
betri og traustari er minna ekið
utan þeirra. Rallumferð, þegar
fjöldi bíla keyrir um svæðið á
skömmum tíma og á meiri hraða en
venjulega, gæti eyðilagt margra ára
vinnu við slóðir og vegi. Allar þær
myndir sem sjónvarpið hefur sýnt
okkur af rallbílum á torfæruleiðum
undanfarin ár gera það líka að
verkum að við eigum bágt með að
trúa því að rallbílar haldi sig á
slóðum ef eitthvað bjátar á.
Þessi hætta á skemmdum gildir
líka að okkar mati utan friðlýstra
svæða. Reyndar má benda á það
líka að við vitum ekki til þess að rall
sé ieyft á friðuðum svæðum í öðr-
um löndum.
Við lítum á friðlýst svæði sem
friðsæla staði þar sem loft er tært og
ómengað og náttúran fögur og
stórbrotin og öll rallkeppni á slíku
svæði - og reyndar utan þeirra líka
- skapar mikið ónæði fyrir aðra
gesti.“
- Nú verður þetta rall mun um-
fangsminna en til stóð upphaflega.
„Já, og þar kemur til andstaða
heimamanna - það er ekki bara
Náttúruverndarráð sem er lítt
hrifið af þessu ralli eins og rallarar
vilja vera láta. Ég tel annars furðu-
lega að þessu máli staðið af rallara
hálfu frá upphafi: fyrst er allt á-
kveðið og auglýst án þess að álits
eða leyfa sé leitað og síðan þegar
einhverjir vilja ekki segja já og am-
en og kyngja þessu öllu athuga-
semdalaust og neita að viðurkenna
svona vinnubrögð - þá eru þeir
kallaðir ósamvinnuþýðir þver-
hausar," sagði Eyþór Einarsson
formaður Náttúruverndarráðs.
-gat
Kjalvegur er ein þeirra „sérleiða“ sem útlendu rallkapparnir hyggjast
þeysa um á næstunni.
Fyrirlestur í Norrœna húsinu í kvöld
Sveppaæði
í Reykjavík
Geysimikill áhugi hefur verið
fyrir sveppanámskeiðum þeim sem
Berit Thors frá Finnlandi hefur
haldið á vegum Norræna hússins
síðustu vikur og er þegar löngu
upppantað á síðasta námskeiðið
sem hefst á morgun.
í kvöld kl. 20.30 mun Berit hins
vegar flytja erindi í Norræna hús-
inu um sveppi. Hún ætlar að fjalla
almennt um sveppi og sveppatínslu
og meðferð. Einkumm ætlar hún
að segja frá tegund sem lengi hefur
verið ræktuð í Kína og Japan og
kallast Shii-take á japönsku. Sú
sveppategund hefur lítið sem ekk-
ert verið ræktuð í Evrópu, en Finn-
ar hafa verið með ræktunartil-
raunir á þessari sveppategund og
hyggjast hefja framleiðslu á honum
í stórum stíl.
Ollum er heimill aðgangur að
fyrirlestrinum og áheyrendum gef-
inn kostur á að bera fram spurning-
ar til fyrirlesarans.
A sunnudaginn 21. ágúst verður
væntanlega sett upp sýning á
sveppum fyrir almenning í Nor-
ræna húsinu þar sem Berit verður
til staðar og aðstoðar fólk við að
greina sveppi og leiðbéinir um
sveppatínslu. Sú sýning og kennsla
stendur yfir frá kl. 16 - 19.
-is-
Olga Guðrún Árnadóttir fær hlýja kveðju frá Sigurði Svavarssyni formanni Samtaka móðurmálskennara
fyrir verðlaunasögu sína. Mynd- Leifur.
Smásagnakeppni móðurmáls'kennara:
„Vertu ekki með
svona blá augu“
eftir Olgu Guðrúnu, hlaut 1. verðlaun
í gær tilkynntu Samtök
móðurmálskennara formlega
úrslit í smásagnakeppni sem sam-
tökin efndu til sl. vetur. Ein verð-
laun voru veitt að upphæð tutt-
ugu þúsund krónur og hlaut Olga
Guðrún Árnadóttir þau, fyrir
söguna „Vertu ekki með svona
blá augu“. Alls bárust 77 sögur í
samkeppnina og kveðast samtök-
in mjög ánægð með árangurinn.
Ákveðið er að gefa út tvö smá-
sagnasöfn með sögum sem bárust
og hefur 21 saga verið valin í safn-
ið auk verðlaunasögunnar. Safn-
ið væntanlega kemur út eftir ára-
mót.
Að sögn Sigurðar Svavars-
sonar, formanns samtakanna, er
tilefni samkeppninnar það að
móðurmálskennurum fannst
vanta góðar smásögur til kennslu
fyrir börn og unglinga.
„Draumur okkar er að geta ráðið
meira sjálf útgáfu fyrir þann
markað sem við þekkjum best,“
sagði Sigurður, „en það hafa
móðurmálskennarar á Norður-
löndum gert undanfarin ár.“
í dómnefnd áttu sæti Sigurborg
Hilmarsdóttir, Silja Aðal-
steinsdó.ttir og Símon Jón Jó-
hannsson.
Heimir Pálsson mun sjá um út-
gáfu bókanna en samtökin gefa
þau út í samvinnu við útgáfufyrir-
tæki. Sagði hann það vekja undr-
un hve sögurnar væru almennt
góðar. Hvergi örlaði fyrir því að
lítið væri gert úr lesendum þe.
börnum heldur væru gerðar til
þeirra miklar kröfur. Smásagna-
söfnin verða ekki með kennslu-
bókarsniði, þau eiga að geta stað-
ið sem alvörubækur fyrir almenn-
ing.
Sögurnar verða flokkaðar í
tvennt þar sem önnur bókin verð-
ur miðuð við börn í 1. - 6. bekk
og hin við unglinga í 7. - 9. bekk.
Höfundar sagnanna sem vald-
ar voru eru: Andrés Indriðason,
Ármann Kr. Einarsson, Ása Sól-
veig, Benóný Ægisson, Elías
Snæland Jónsson, Elísabet Þor-
geirsdóttir, Guðjón Sveinsson
sem mun eiga tvær sögur í safn-
inu, Guðmundur Ólafsson, Her-
dís Egilsdóttir, Jón Dan, Jórunn
Sörensen, Kristín Steinsdóttir,
Njörður P. Njarðvík, Oddný
Guðmundsdóttir sem er elst höf-
unda, 75 ára gömul, Ólafur
Haukur Símonarson, Sigrún
Björgvinsdóttir, Steinunn Arn-
þrúður Björnsdóttir sem er
yngst, 20 ára, Svanhildur
Friðriksdóttir og Þórður Helga-
son.
Auk þess bárust tvær sögur
sem dómnefnd telur mjög góðar
en eiga betur heima í sérstakri
bók. Það eru sögurnar „Músík-
alska músin“ eftir Þórönnu
Gröndal sem er fallega mynds-
kreytt af höfundi og „Sumarið
rrieð Aðalsteini“ eftir Trausta
Ólafsson, sem er of löng til að
birtast í safninu.
Heimir Pálsson kvað sögurnar
all flestar raunsæjar, lýsa veru-
leika barna, sem höfundar virtust
þekkja mjög vel en þó væri ekki á
þeim endurminningastíll.
Aðspurður kvað verðlauna-
hafinn, Olga Guðrún, sína sögu
gerast úti á landsbyggðinni, bæði
í sveit og sjávarþorpi og segja frá
lítilli stúlku.
í Samtökum móðurmálskenn-
ara eru móðurmálskennarar í öll-
um skólum landsins. Samtökin
eru frekar ung uþb. sex ára en
hafa þegar látið þó nokkuð að sér
kveða, gefa ma. út tímaritið
Skímu. „Þetta er bara byrjunin á
útgáfumálum okkar“ sagði Sig-
urður formaður. Er vonandi að
það séu sannmæli. gp
Innflutningur heimilstœkja og bifreiða
Mikill samdráttur
Milli 35-60% samdráttur varð á
innflutningi heimilistækja og fólks-
bifreiða fyrstu fjóra mánuði ársins
miðað við sama tíma í fyrra. Þótt
mikil þensla hafí verið í innflutn-
ingi fyrri hluta ársins 1982, þá er
innflutningur þessara tækja í ár,
mun minni en á sama tíma árin
1980 og 1981.
Mestur hefur samdrátturinn í
innflutningi verið á hljóðvarps- og
litsjónvarpstækjum um 60% miðað
við fast verð samanborið við árið í
fyrra og tæp 54% samdráttur á inn-
flutningi bifreiða. Innflutningur á
kæli- og frystitækjum til heimils-
nota hefur dregist saman um rúm
55% miðað við fast verð og á þvott-
avélum um nærri 35% en innflutn-
ingur á þessum tækjum er samt töl-
uvert meiri nú en á fyrri hluta
áranna 1980 og 1981. Innflutningur
á litsjónvarpstækjum hefur hins
vegar dregist saman um 73% mið-
að við árið 1981.
~lg-