Þjóðviljinn - 25.01.1985, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 25.01.1985, Blaðsíða 14
LOSTÆTI Að þreyja þorrann reynist mörgum erfitt - en hægt er aö gera sér dagamun í Blómasalnum á Hótel Loftleiöum. Kalda boröiö býöur ávallt upp á úrvals þorramat í hádeginu. Þar aö auki er fjólbreyttur matseðill og hlýlegur bar. Opiö 12-14.30 og 19-22.30. 14 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 25. janúar 1985 Byijum að súrsa í septemberiok Rœtt við Ómar Hallsson, veitingamann í Nausti Rúmur aldarfjórðungur er nú liðinn síðan veitingahúsið Naustið vakti upp þá ný- breytni, að bjóða gestum sín- um upp á þorramat. Upphafs- maður þessa ágæta og þjóð- lega siðar þar á bæ var sr. Halldór Gröndal, sem þá rak Naustið. Hvatti dr. Kristján Eldjárn sr. Halldór mjög til þessa ef það mætti verða til þess að hefja til vegs þennan forna og þjóðlega mat. Síðan hefur merkið aldrei verið látið falla. Þessu skaut Ómar Hallsson veitingamaður á Nausti að okkur Einari Karlssyni ljósmyndara þegar hann var að leggja síðustu hönd á þorraundirbúninginn. - Frá upphafi hefur þessi matur notið mikilla vinsælda og hefur síður en svo dregið úr því dálæti, sagði Ómar. Er það án efa m.a. að þakka þeim óvenjulega fram- reiðslumáta að bera matinn fram í trogum, óskammtaðan. Allur sá þorramatur, sem nú er fram bor- inn, er tilreiddur hér í eldhúsi Naustsins. Súrmeti allt er súrsað í mysu og hefst súrsunin um mán- aðamótin sept.-okt. og er ekki ráð nema í tíma sé tekið í þeim efnum. Mysan tryggir það, að hið rétta súrbragð komi fram, sterkt og ómengað. Meðal annars lostætis, sem er að finna í trogum Naustsins, eru súrsaðir selshreifar, ættaðir frá Breiðafirði og Vestfjörðum. Og þó að hákarl sé ekki súrsaður þykir mörgum hann engu að síður ómissandi með súrmetinu. Hann er líka Vestfirðingur. Ómar Hallsson sagði að ár eftir ár kæmi sama fólkið í Naustið til þess að gæða sér þar á þorramat, og þá gjarnan hópar fólks af sama vinnustað. Ungu fólki fer sífjölg- andi meðal þorragesta og virðist maturinn falla því vel í geð engu síður en hinum eldri, þegar það hefur á annað borð komist á bragðið. Og það hefur komið okkur skemmtilega á óvart, sagði Ómar, hvað erlendir gestir hafa góðan smekk fyrir þessum mat. Ekki virðist það fara mikið eftir landshlutum hvaða matur fellur fólki best í geð. Þó eru selshreifarnir í einna mesta uppá- haldi hjá Breiðfirðingum og Vestfirðingum. Annars hvaðst Ómar ekki verða þess var að gest- irnir gerðu mikið upp á milli mat- artegundanna en ef eitthvað ætti að nefna, sem nyti áberandi vin- sælda, þá væru það lundabagg- arnir og hrútspungarnir. -mhg Úrvals þorramatur Þorrabakkar Kjötbúð Suðurvers Stigahlíð 45 sími 35645 AIfe- RevJkjayö<uc ^R^^g'go^stemnlning Opið: Sunnud. — fimmtud. 11.30-01 Föstud. og laugard. 11.30-02.30

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.