Þjóðviljinn - 26.01.1989, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 26.01.1989, Blaðsíða 12
SPURNINGIN Hverniglístþéránýju lánskjaravísitöluna? (1/3framfærsluvt., 1/3 byggingavt. og 1/3 kaupgjaldsvt. í staö % framfærsluvt. og 1/3 byggingavt.): Sigurður Sigurðsson: Mér líst illa á hana. Það er verið að leggja sprengjur undir verka- lýðshreyfinguna. Guðjón Scheving: Hún er ekki gæfuleg. Ég fæ ekki séð að hún valdi meiri stöðug- leika en gamla vísitalan. Ólafur Guðmundsson: Mér líst út af fyrir sig ekki illa á hana. Það hefur sýnt sig að krón- utöluhækkanir einar og sér færa verkafólki enga ávinninga. Verkalýðshreyfingin verður að fara að semja örðuvísi, temja sér ný vinnubrögð. Ágústa Sveinsdóttir: Hef ekki kynnt mér það enn. Ágústa Hrund Emilsdóttir: Hef ekki fylgst með þessu máli. þjómnuiNN Fimmtudaour 26. janúar 1989 18. tölublað 54. úrgangur SÍMI 681333 Á KVÖLDIN £04 <140 ÁLAUGARDÖGUM 681663 Teikningar og tákn- myndir Kristján Guðmundsson og HalldórÁsgeirsson opna einkasýningar að Kjarvalsstöðum um helg- ina Það má teljast fullvíst að mynd- listarsýningar þær sem opnaðar verða að Kjarvalsstöðum nú um helgina bjóði upp á eitthvað óvænt og nýtt fyrir augað. Þeir Kristján Guðmundsson og Hall- dór Asgeirsson eru að sönnu ólík- ir listamenn, en þeir eru hvorug- ur þekktir af því -að fara troðnar slóðir. Á þessari sýningu mun Krist- ján Guðmundsson sýna yfírlit yfír veigamikinn þátt í starfí sínu, sem eru „teikningar“ hans frá tímabil- inu 1972-‘88. Teikningar Krist- jáns eru þó ekki teikningar í hefð- bundnum skilningi, heldur verð- ur meðhöndlun hans á efninu að eins konar heimspekilegum vangaveltum um teikninguna og listina sem miðil, þar sem efnið sem slíkt verður um leið viðfangs- efni myndarinnar eða burðarafl. Segja má að í myndum sínum hafi Kristján Guðmundsson dregið myndlistina niður á núllpunktinn um leið og hann leggur með áleitnum hætti fyrir okkur spurn- inguna um inntak listarinnar. Á meðan Kristján Guðmunds- Dans á son nálgast núllpunkt myndlistar- innar af vísindalegri nákvæmni fer Halldór Ásgeirsson með okk- ur á ferðalög í tíma og rúmi í myndum sínum og er í þeim efn- um algjör andstæða Kristjáns. Hann sýnir okkur málverk og þrí- víðar myndir sem hafa að geyma goðsöguleg minni og frummyndir úr undirvitund mannsins og vitn- ar þar jafnt í fornar goðsögur og nýjar. Myndir hans eru unnar upp úr skissubókum sem hann vinnur á ferðalögum sínum og í „tómstundum", en skissurnar færir hann síðan út á meðvitaðan og úthugsaðan hátt eins og til dæmis í verkinu „Ýmir“ sem er stórt verk er blasir við þegar gengið er inn í austursalinn, þar sem hin forna sköpunarsaga um Ými fær á sig nýja og áþreifan- lega mynd. Sýningarnar á Kjarvalsstöðum gefa okkur frjóa innsýn í það nýj- asta sem er að gerast í myndlist hér á landi og ættu því að vera forvitnilegar fyrir alla þá sem láta sig myndlist varða. -ólg Kristján Guðmundsson ög Hall- dór Asgeirsson við uppsetningu sýninga sinna að Kjarvalsstöð- um í gær. Ljósm. J.Smart. rosum í Köben Ópera við leikverk eftir Odd Björnsson frumflutt í Kaupmannahöfn Sænska tónskáldið Arne Mell hefur samið óperu við texta eftir Odd Björnsson leikskáld og verð- ur óperan frumflutt ■ Musik- dramatisk Teater í Kaupmanna- höfn 28. janúar. Óperan nefnist Dans á rósum og er byggð á leikritinu Tíu tilbrigði, eftir Odd, sem sýnt var í Lindarbæ á vegum Þjóðleikhússins árið 1968 í leik- stjórn Brypju Benediktsdóttur. Óperan tekur 80 mínútur í flutningi. Hún var samin fyrir ís- lenska söngskólann samkvæmt pöntun og átti að setja hana upp í Islensku óperunni. Þar sem það dróst var ákveðið að frumsýna hana í Kaupmannahöfn nú í upp- færslu Niels Pihl, fímm árum eftir að hún var samin. Vetur í Portúgal 1 upp í 10 vikur Lissabon Algarve Madeira Ferðaskrifstofurnar EVRÓPUFERÐIR, RATVÍS OG FERÐAVAL bjóða ykkur upp á 4,6,8 og 10 vikna ferðir til Portúgal í vetur. Hægt er að velja um gistingu á Madeira, í Algarve eða á Lissabon- ströndinni. Verð frá kr. 53.200.- Einnig standa ykkurtil boða styttri ferðir (3-30 dagar) meðgist- ingu í íbúðum eða3til östjörnu hótelum víðsvegarum Portúgal. Þið getið heimsótt heimsborgirnar Lissabon og London í einni ferð, spókað ykkur á strönd ALGARVE eða leikið golf á einhverjum bestu golfvöllum Evrópu. Þeim sem vilja hvílast og slappa af í fögru umhverfi býðst úrval af gististöðum á hinni margrómuðu eyju Madeira. Golfferðir Golfhótel við 7 úrvals golfvelli í Algarve. Vallargjöld á sérstaklega lágu verði. SUMARBÆKLINGURINN ER KOMINN evrópuferðir ^jwvis KLAPPARSTlG 25-27 __ 101 REVKJAVÍK, SÍMI 628181. Tfavel HAMRABORG1-3,200 KÓPAV0GUR SÍMI641522 FERÐAmVALHF TRAVEL AGENCYXJlt/ HAFNAR§TRÆTI 18, / X'\ 101 REYKJAVÍK, SÍMI 14480.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.