Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1995, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1995, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 25. SEPTEMBER 1995 Menning Leirlist frá Perú hinu foma Það er vissulega umhugsunarefni að leirlistin lifir lengst menningar- verðmæta sumra þjóða. Orðsins list er okkur íslendingum svo nákomin að við teljum sjálfgefið að hún lifi allar þrengingar í tima og rúmi. Há- menning á borð við þá sem var við lýði í Perú hinu forna segir okkur hins vegar aðra sögu. Spánverjar lögðu í rúst merkilegt guðveldi Inkanna á fyrri hluta sextándu aldar og þeir stunduðu það að brenna handrit og bræða gripi úr eðalmálmum. Leirgripirnir þóttu hins vegar ekki hættuleg- ir og auk þess mátti hafa af þeim nytjar. Því hafa þeir margir hverjir haldist nánast óskemmdir í allt að 34 aldir. Nú hefur safn fornra leir- muna frá Perú hinu forna ratað inn á Kjarvalsstaði fyrir milligöngu sendi- ráðs Perú á Norðurlöndum. Leirkerin einkenni hvers tíma Hér er um að ræða 85 gripi frá Þjóðminjasafninu í Lima, en þar eru viðhafðar rannsóknir á sex þúsund ára sögu menningar og lista í Perú. Gripunum hefur veriö skipt upp eftir tímabilum og eru þau helstu kölluð aðfararskeið, milliskeið og háskeið. í sýningarskrá rita þau Inge Schjellerup og Ramira Matos Mendieta sögu hinnar fornu per- úsku menningar í stuttu máh. Þar kemur fram aö elstu þekktu leir- __________________________ munirnir á Mið-Andessvæðinu eru frá Huanuco-héraði og eru taldir vera frá því um 1800 f. Kr., aðfara- skeiði. Leirkerasmíð breiddist ört út og varð upp frá því eitt helsta ein- kenni menningar hvers tíma. Myndlist Ólafur J. Engilbertsson Marglit geómetrisk skreyting Chavinstíllinn varð áberandi á snemmháskeiði og voru leirmunir þá nátengdir átrúnaði. Síðan tók við fyrra milliskeið þar sem Moche-ríkið var hvað merkast, en það hefur verið talið aúðugasta ríki heims á þeim tíma og fylgdi gnótt gulls, silfurs og haglegra leirmuna þjóðhöíðingium þess í gröfina. Nazcaþjóðin málaði marglit leirker á svipuðum tíma. Þá má nefna að leirmunir frá Cajamarca á hálendinu eru merkilegir vegna postulínsleirsins og leirmunir úr kaólíni frá Cajamarca hafa þótt einstak- ir og munu aðrar þjóðir ekki hafa nýtt þetta efni til leirmunagerðar. Á miðháskeiði reis Wari-þjóðin hæst og innleiddi stórborgarmenningu og fjöllita leirmuni þar sem geislandi sól var algeng skreyting. Stórveldi hinna frægu Inka á síðháskeiði stóð hins vegar aðeins í tæpa öld, 1438- 1532. Ríki þeirra var mjög víðfeðmt og náði yfir meginhluta Suður- Ameríku. Megineinkenni leirmuna Inkanna er marght geómetrísk skreyt- ing og niðurmjó ílát. Fróðleg innsýn Þó svo að hér sé um nytjalist að ræða endurspeglast trúarlíf og gildis- mat hinna fornu samfélaga í formum og skreytingum leirgripanna. Flest- ir eru þeir hugsaðir sem ílát og gefa skreytingarnar oft vísbendingar um hlutverk þeirra. T.a.m. er talið að reðurmyndaður vasi frá svonefndu fyrra milliskeiði hafl verið notaður við frjósemisathafnir. Hér er vissu- lega um að ræða fróðlega innsýn í framandi menningarsamfélag, en skipu- leggjendur hefðu mátt fylgja framandleikanum betur eftir með því að mála salinn dekkri, t.d. í þeim anda sem birtist í sýningarskránni. Þann- ig hefði mátt beina Ijósinu og athyglinni að leyndardómi verkanna sjálfra í staö þess að flennilýsa hvítan geiminn umhverfis þau. Gripirnir eru flestir af smærri gerðinni og hverfa nánast í ofbirtu salarins. Annars er einkennilegt að sjá hvernig margir þeirra hafa verið merktir á áberandi hátt. Slíkt þætti vart hæfa á söfnum hér. NYTT TOLUBLAÐ Á NÆSTA BLAÐSÖLUSTAÐ Allt um Kombukha sveppinn Handan lífs og dauða - Slökunartækni Síþreyta - íslensk seiðmenning Rafsegulsviðsóþol Er framhaldslífið staðreynd - Tarot Stjörnuspeki - Draumráðningar o.fl. - tímarit um það sem skiptir máli - Áskriftarsími 581 3595 - ».. . ; I 'X-í h A j r! p* p . WZip I W 'ÚffqfoRtekrtir fp 4 7év)«í?,; v.ð, yáqsfcké’b*. Margröi Sf Jottlr mlÖiil KOMIÐ ecco Vatnsheldir gönguskór m/höggdeyfandi sóla Track Teg. 1153 St. 36-41 Litur mineral/sand bison/bison Verð kr. 10.995 F ^Skóverslun þGrbar GÆÐI & ÞJÓNUSTA Laugavegi 40A (áður Lyfjabúðin Iðunn) S. 551-4181 Gunnar Eyjólfsson og Anna Kristín Arngrímsdóttir í hlutverkum sínum. Söngelsk fjölskylda í blíðu og stríðu Aö öllum líkindum verða aldamótin skemmtilegt tilefni til að skjóta upp margfoldum birgðum af flugeld- um og til þess að halda enn þá mærðarfyllri hátíðar- ræður en ella. En fátt bendir til þess á þessari stundu að einhver sérstök vatnaskil verði í sögu þjóðarinnar við þau tímamót öðrum fremur. Hin eiginlegu aldamót voru hins vegar þegar íslend- ingar upplifðu ekki ein, heldur í raun tvenn aldahvörf á fimmta og sjötta áratugnum. Fyrst kom hlessað stríðið og kippti þjóðinni út úr ævafomri vinnuhefð inn í tæknivætt nútímaþjóðfélag. En það var eins og höfuðið vildi ekki fylgja með. Lífsgildi, siðvenjur og viðhorf breyttust hægar og það er ekki fyrr en í lok sjötta áratugarins og í byijun LeiJdist Auður Eydal þess sjöunda sem hugsunarhátturinn tekur sömu stökkbreytingu og verkmenningin fyrr. Það er þetta seinna breytingaskeið sem myndar bak- svið frásagnarefnis Ólafs Hauks Símonarsonar í Þreki og tárum þar sem hann kemur enn einu sinni á óvart með óvæntri nálgun við söguefniö. Sýnir á sér nýja hliö. Svipmyndir úr sögu flölskyldu í Vesturbænum, ýmist blíðar eða stríðar, era skeyttar saman með flölda söngatriða þar sem gömul (og að því er manni fannst löngu útjöskuð) lög frá þessum tíma öðlast nýtt líf. Þau gegna miklu hlutverki og koma oft sem beint innlegg í framvinduna í flutningi leikara, söngvara og hinnar ágætu Tamlasveitar sem músíserar glaðlega undir öruggri handleiðslu Egils Ólafssonar. Formið kann að virðast nokkuð brotakennt í byijun, á meðan kynning persóna fer fram, og ekki ýkja ný- stárlegt viö allra fyrstu sýn. En fljótlega kemur í ljós að yfirsýnin er glögg og tökin þéttast. Brugðið er upp svipmyndum úr hversdagstilveru og samskiptum þessara einstaklinga, það er mikið sungiö og oftar en ekki er stutt í kómíkina. Gleði og tregi tak- ast á. Lifandi lífsþráður Brátt myndast í verkinu lifandi lífsþráöur þar sem persónusköpun og persónusaga eru í fyrirrúmi. Text- inn er ljóðrænn á köflum og oft fallega skrifaður. í honum leynast áreiðanlega fleiri góð tilsvör en festast í minni eftir eina heimsókn í leikhúsiö. Mannúð og munúð svífa yfir vötnum, þó aö harka heimsins sé líka til staðar, og spumingar um sekt og fyrirgefningu eru áleitnar. Verkið er þroska- og fiölskyldusaga unga piltsins, Davíðs, sem er miöpunktur í þessari söngelsku flöl- skyldu. Saga foreldra hans, afa, móðursystkina og vina endurspeglar daglegt líf og amstur ósköp venjulegs fólks á þessum tíma. Þau eru ekki frændfólk persónanna i Djöflaeyjunni en búa sennilega í næstu götu við svæðið þar sem kampurinn stóð og þau sýna okkur aðra hliö á tilver- unni á þessum tímum. En vel að merkja. Megininntak verksins er óháð ákveðnum tíma eða staðsetningu. Hér er fyrst og fremst veriö að fialla um lifandi manneskjur og sam- skipti þeirra. Tíöarandi er kailaður fram með ýmsu móti, ekki hvað síst með söngvum tímabilsins, og staöa konunnar er skoðuð í gegnum gleraugu tímans. Fjörug og tregablandin í senn Þórhallur Sigurðsson leikstjóri tekst á við það spenn- andi verkefni að færa textann til sviðs og beita galdri leikhússins til þess að gæða efnið lífi. Honum og hans liði tekst það skínandi vel enda er Þórhallur þaulvan- ur að vinna með Ólafi Hauki. Val hans á leikurum er byggt á traustum grunni og það er áberandi hversu vel hver einstök persóna skilar sér í þeirri marglitu mannlífsflóru sem viö kynnumst á sviðinu. Axel H. Jóhannesson, höfundur leikmyndar, leyflr rýminu að njóta sín í uppsetningunni. Sviðið virtist fremur eyðilegVnæstum snautlegt í byijun - utan trés- ins eina sem stendur óhagganlegt í bakgrunninum. En nýtingin á rýminu var góð og það er spilað með lýsinguna í fiölbreytilegum tilbrigðum. Hún er verk Páls Ragnarssonar. Búningar Maríu Ólafsdóttur eru líka vel heppnaðir í fínum litasamsetningum. Þeir eru trúir stíl tímabilsins og án alls fígúragangs sem stund- um bregður fyrir þegar hönnuðir þekkja ekki sín tak- mörk. Hilmir Snær og Edda Heiðrún heilla Leikendur eru hver öörum betri og þyrfti næstum því að telja þá alla upp ef sanngimi væri gætt og rými gæfist í blaðinu. Þeir eru flestir jafnvígir á söng og leik og hópatriði takast mörg hver mjög vel. En það er túlkun einstakra persóna sem stendur eftir og nægir þar að nefna heillandi persónusköpun Hilmis Snæs Guðnasonar í hlutverki Davíðs og stjörnuleik (og -söng) Eddu Heiörúnar Backman sem leikur móður hans. Hilmir Snær hefur einstaka út- geislun á sviði og miðlar túlkuninni fyrirhafnarlaust til áhorfenda. Jóhann Sigurðarson vinnur mjög góða heildarmynd í hlutverki fóðurins og Edda Arnljóts- dóttir kemur eins og framandi gustur að westan inn í tilbreytingarlítið hvundagslíf fiölskyldunnar í hlut- verki móðursystur Davíðs. Svolítið ýkt persóna sem hrærir duglega upp í tilveru fólksins. Gunnar Eyjólfsson er frábær sem erki-afinn. Hann hefur allt fram til þessa haldið utan um mál flölskyld- unnar án þess að láta sér detta í hug að hans skoðun væri kannski ekki hin eina rétta. Áður var minnst á skemmtilega tónlistarstjórn Egils Ólafssonar en hann leikur líka mikilvægt hlutverk rakarans sem mælir fram marga visku. Afinn og rak- arinn eru fulltrúar hverfandi tíma, saman um þaö að vera svolítiö utan og ofan við heiminn, og þó ólíkir séu um margt sameinast þeir í söngkvartett á síðkvöld- um. Vigdís Gunnarsdóttir miðlar nærfæmislega unninni lýsinu á Siggu, sem Davíð verður ástfanginn af. Og svo er þaö hann Öm Árnason sem glansar jafnt í leik sem söng í hlutverki Áma. Aðrir skila sinu vel, þó of langt sé upp að telja. í Þreki og tárum er sögð ljúfsár þroskasaga sem endurspeglar andrúm liðins tíma. Þeir sem unna léttri tónlist ættu alls .ekki að missa af stórskemmtilegum söngatriðum í þessu nýja leikriti Ólafs Hauks Símon- arsonar. Þjóðleikhúsið sýnir á stóra sviöinu: Þrek og tár eftir Ólaf Hauk Simonarson Lýsing: Páll Ragnarsson Dansstjórn: Ástrós Gunnarsdóttir Búningar: Maria Ólafsdóttir Leikmynd: Axel H. Jóhannesson Tónlistarstjórn: Egill Ólafsson Undirleikur: Tamlasveitin Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson Sögusviö: Vesturbærinn um 1960

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.