Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1997, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1997, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 1997 Stjörnuskoðunarfálag Seltjarnarness heimsótt: Himinhvolfin könnuð I Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi eru höfuðstöðvar áhugamannafé- laga í stjörnufræði sem ber nafnið Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnar- ness. Félagið er stofnað í mars 1964 og fagnaði nýlega 33 ára afmæli sínu. DV-menn brugðu sér í heimsókn á Seltjamamesið eitt stjömubjart kvöld í síðustu viku. Stjórnarmenn félagsins tóku á móti blaðamanni og ljósmyndara DV sem þurftu að klifra upp þrjá stiga upp í stjömutuminn en þar er aðalbækistöð félagsins. Þar er lítið tumherbergi þar sem félagsmenn hafa aðstöðu. Uppi á þakinu er síð- an veglegur 10 tommu spegilkíkir sem snýr í átt að himinhvolfunum. Þar geta félagsmenn og aðrir áhuga- menn fengið að skoða himininn og leitað að stjörnum að vild. „Við erum um 70 í félaginu og það er töluverð fjölgun meðlima og þá sér- staklega nú með tilkomu Hale- Bopp-halastjörnunnar. Þetta er aðal- lega fólk af höfuðborgarsvæðinu en einnig nokkrir úti á landi. Við erum að reyna að efla félagið og erum nú búnir að setja upp heimasíðu á ver- aldarvefnum. Þetta er mjög skemmtilegt áhugamál/ segir Guðni Sig- urðsson, Þorir Mar Jonsson, mikill áhugamaður um stjörnufræöi og stjórnarmaður í Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness, sést hér kíkja í átt til himinhvolfanna í stóra spegilkíkinum. DV-mynd S stjórnar- maður félags- ins. Hann, ásamt Snævari Guð- mundssyni for- manni og Þóri Má Jónssyni ritara, bera hitann og þungann af félaginu. Allir eru þeir miklir á h u g a - menn um stjörnufræði og hittast mjög reglulega í stjörnuturninum til að kíkja upp i himinhvolfin. „Félagið okkar er eina áhuga- mannafélagið um stjömufræði sem ég veit um hér á landi. Það eru hins vegar margir sem hafa eigin að- stöðu og það þarf auðvitað ekki endilega svona stóran kíki þó það sé auðvitað betra. Fólk getur notað venjulegan kíki líka. Við erum með ágætis aðstöðu hérna en höfum auðvitað hug á að fá tæknilegri græjur í framtíð- inni,“ segir Snævarr formað- ur. Glæsilegar myndir Þetta kvöld eru tveir gestir í stjörnuturninum. Það eru þeir Ólafur H. Óskarsson, skólastjóri Valhúsaskóla og einn af stofnendum félagsins fyrir 33 árum, og Daniel Niddan frá Frakklandi. Ólafur er heiðursgestur í félaginu þó hann segi sjálfur að hann hafi dregið sig töluvert út úr starfseminni undan- farin ár. Snævarr hefur tekið ljósmyndir í gegnum stóra kíkinn með góðum ár- angri. Hann tekur fram myndaalb- úm og sýnir glæsilegar myndir af tunglinu, ýmsum stjörnum og ekki síst af halastjörnunni Hale-Bopp sem birtist hér á síðunni. -RR Halastjarnan Hale-Bopp: 200 milljón kílómetra frá jörðu - mjög stór og björt halastjarna, segir Guðni Sigurðsson „Ég sá halastjörnuna Haie-Bopp fyr- rískir áhugamenn um stjömufræði, ir hálfu ári. Þeir sem sáu hana fyrst þeir Hale og Bopp og hún er nefnd eft- fyrir einu og hálfu ári eru tveir banda- ir þeim. Halastjörnur eru alltaf nefnd- Hagstœð kjör & Æ%< m m Ef sama smáauglýsingin er birt undir 2 dálkum sama dag er afsláttur af annarri auglýsingunni. aiit mill/ hirn/, ,r*t % Smáauglýsingar WST^ 550 5000 ar í höfuðið á þeim sem fyrstir sjá þær og tilkynna fundinn til alþjóðlegra samtaka stjörnufræðinga," segir Guðni Sigurðsson. „Hale-Bopp er eins og flestar hala- sfjömur á ferð í kringum sól. Þetta er mjög stór og björt halastjarna og mjög langt í burtu frá jörðu eða um 200 milljón kílómetra í burtu. Til viðmið- unar er ijarlægðin til sólar 150 milljón kílómetrar. Halastjarnan, sem var hér í fyrravor, var mjög nálægt eða í um 10-15 milljón kílómetra fjarlægð. Hale- Bopp er mjög stór halastjarna og hal- inn er t.d. tugir milljón kílómetra að lengd,“ segir Guðni. Snævarr segir að halastjarnan nái hámarki og verði næst jörðu 27. mars nk. en síðan muni hún dofna hægt og rólega. Snævarr segir að hún verði þó sýnileg langt fram á vor. „Hale-Bopp sést nú frá íslandi öll- um stundum. Hún er í norðvestri þeg- ar dimmt er orðið að kvöldi en í norð- austri snemma að morgni," segir Snævarr. -RR Þeir voru í stjörnuturninum að ræða um stjörnurnar þegar DV kom í heimsókn. Frá vinstri Þórir Már Jónsson, Guðni Sigurðsson, Daniel Niddan, Ólafur H. Óskarsson og Snævarr Guömundsson. DV- mynd S | Stjörnufræði til forna k Margar fornaldarþjóðir stund- uðu stjömufræði. Til forna var einmitt stjömufræð- in notuð tii að gefa mönnum til kynna hvenær best væri að sá. E g y p t a r stunduðu mjög stjömu- fræði til að komast að því hvenær flóð yrðu í ánni Níl. Þeg- ar þeir sáu hundastjömuna svo- !! nefndu var það fyrirboði um flóð íNfl. Fyrsta sólkerfis- kenningin Atistarkos frá Samos var grískur stjörnufræðingur 320 fyrir Krist. Hann setti fyrstur fram sólkerfiskenninguna, þ.e. að reikistjörnurnar allar og jörð- in með snémst um sólina. Hann fann upp homfræðilega aðferð til að reikna út hlutfallið milli þvermála tungls og sólar og einnig hlutfallið milli fjarlægða þeirra frá jörðu. Sesar innleiddi hlaupár Júlíus Sesar, keisari Róma- veldis, innleiddi 365 daga í árinu og hlaupár fjórða hvert ár í tíma- talið í veldi sínu. Þetta fyrirkomulag reyndist mun nákvæmara en áður hafði tíðkast og breiddist hratt út um hinn vestræna heim. Tímatal þetta er enn notað í dag og er nefnt Júlíanska tímatalið eftir keisaranum. Galíleó Galilei Nútíma stjömufræði er jafhan talin hefjast með rannsóknum Galileó Galflei, sem fæddist í ítölsku borginni Pisa 1564. Galí- leó var stjörnufræðingur og eðl- isfræðingur. Hann fann upp stjörnusjónaukann og uppgötv- aði m.a. fjöllin á tunglinu, bletti á sólinni og tungl Júpíters. Skoð- anir Galíleós þóttu vera í and- stöðu við kenningar kirkjunnar og hann var dreginn fyrir rann- sóknarréttinn í Róm. Þorsteinn surtur og Stjörnu- Oddi Samkvæmt Úlf- ljótslögum, sem sett voru á Alþingi 930, var ári skipt í tvær árstíðir, sumar og vetur, og árið var þá talið 364 dagar. Þor- steinn surtur gerði end- urbót á íslenska tímatal- inu um 960 og kom með sumarauka. Stjörnu- Oddi, sem uppi var á 12. öld og bjó í Húnavatns- sýslu, er tal- inn einn merkasti fræðimaður á þessum sviðum. Hann er af mörgum talinn einn gleggsti stjörnuspekingur þeirra tíma á norðurhveli jarðar. Gat reiknað menn til dauða Björn Guðmundsson, stærð- fræðingur og mikill áhugamaður um stjömufræði, var uppi á 19. öld. Björn skrifaði bækur um stjömumerkin og hvaða stjörnur mætti sjá frá íslandi. Hann end- urbætti líka íslandskortin frá því sem danska rikið lét gera i upphafi 19. aldar. Sögur segja að Björn hafl verið svo klár i stærð- fræði að hann hafi getað reiknaö menn til dauða en verið of góður f sér tfl að gera það. -RR mmmm . mmám wmrnm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.