Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1997, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1997, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1997 FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1997 27 Iþróttir íþróttir Caniggia til Boca Juniors Claudio Caniggia, hinn kunni argentínski knattspyrnumaður, hefur tekið fram skóna á ný og samið við Boca Juniors í heima- landi sínu til tveggja ára. Caniggia er aðeins 29 ára en hefur ekkert spilað siðustu miss- erin vegna fjölskylduástæðna, auk þess sem hann tók út keppn- isbann vegna kókaínneyslu. Hann mun leika með félaga sín- um og þjáningabróöur, Diego Maradona, hjá Boca. -VS Framdagurinn á sunnudag Sunnudaginn 17. ágúst verður Framdagurinn haldinn hátiðleg- ur. Dagskráin hefst klukkan 13 með kaffiveitingum Fram- kvenna í Framheimilinu. Fjöl- breytt dagskrá verður síðan fram eftir degi sem lýkur síðan með leik Fram og Leifturs í Sjó- vár-Almennra deildinni á Laug- ardalsvellinum klukkan 20 um kvöldið. Golf í Ft. Lauderdale Ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn hefur nú bætt við enn einu stjörnuhótelinu á lista sinn í Ft. Lauderdale á Flórída. Marriott’s Beach Place Towers hótelið var opnað nú í byrjun ágúst en það hentar sérstaklega vel þeim sem vilja spila golf í fríinu ásamt því að hafa allt annað við höndina. Þann 17. október mun Úrval- Útsýn standa fyrir golfiferð til Ft. Lauderdale þar sem gist verður á þessu nýja og glæsilega íbúða- hóteli. SpUað verður á ijórum úrvalsvöllum, sem allir eru skammt frá hótelinu, þar sem vatnshindranir eru einkenn- andi, vellirnir vel hirtir og góðir golfskálar með afbragðs þjón- ustu. Komið verður aftur heim þann 1. nóvember en allar nán- ari upplýsingar um þessa ferð veitir Peter Salmon hjá Úrvali- Útsýn, en hann verður farar- stjóri í ferðinni. 1£:bí þýskaland Bikarinn -1. umferð: Wamemttnde-Dortmund .........0-8 Chemnitzer-Karlsruhe.........1-3 Zwickau-Schalke..............0-1 Oberhausen-Bremen ...........0-2 Mannheim-Wattenscheid .. vsp. 4-3 Leipzig-Gtttersloh ..........2-1 Carl Zeiss Jena-St.Pauli ... vsp. 4-2 Eyjamenn með annan fótinn í 1. umferð Evrópukeppni bikarhafa: Tókst að sigra í 21. tilraun - lögðu Hibernians á Möltu, 1-0, með marki Tryggva Guðmundssonar Eyjamenn eru komnir með annan fótinn í fyrstu umferð Evrópu- keppni bikarhafa í knattspyrnu. Þeir sigruðu Hibemians, 1-0, á Möltu i gær í fyrri leik liðanna í for- keppninni og það þarf stórslys til að koma í veg fyrir að Eyjamenn klári dæmið og verði i hópi þeirra 32 liða sem leika í 1. umferð keppninnar í næsta mánuði. Sigurinn í gær er langþráður fyr- ir ÍBV. Það era 28 ár síðan félagið lék fyrst í Evrópukeppni en Eyja- menn höfiðu ekki unnið einn einasta af þeim 20 Evrópuleikjum sem þeir höfðu spilað þegar flautað var til leiks í gær. Sjö jafntefli og 13 töp var útkoman fram að því. Það var Tryggvi Guðmundsson sem skoraði markið mikilvæga þeg- ar 18 mínútur voru til leiksloka. Sigurvin Ólafsson tók hornspyrnu frá vinstri og Tryggvi skallaði bolt- ann í netið við stöngina fjær. Bjami Jóhanns- son, þjálfari ÍBV, sagði við DV að sín- ir menn hefiðu verið sterkari allan tím- ann. Það hefði að- eins verið í byrjun leiks sem heima- menn hefðu verið frískari. Klaufar aö bæta ekki viö „Þeir sköpuðu sér aldrei hættuleg færi, áttu tvö skot sem voru víðs fjarri markinu og afmæl- isbarnið, Gunnar Sigurðsson, þurfti ekki að reyna mikið á sig í mark- inu. Við héldum hraðanum í leikn- um niðri, enda var um og yfír 30 stiga hiti og ekki okkur í hag að hraðinn væri mikill. Síðan vorum við klaufar að skora ekki fleiri mörk undir lok leiksins," sagði Bjami. Keppnistimabilið á Möltu er ekki hafið og það hefur eflaust hjálpað Eyjamönn- um í gær. „Já, þeir era greinilega ekki komnir í fullt form. Þeir verða eflaust á betri dampi í Eyj- um eftir tvær vikur svo að það er eins gott fyrir okkur að fagna ekki of snemma," sagði þjálfarinn. Það er betra aö brosa ekki of mikið Það eina sem gæti fellt ÍBV i síð- ari leiknum er vanmat. „Það er betra að brosa ekki of mikið og fara ekki í leikinn af einhverri skyldu- rækni. Þetta er aðeins fyrri hálfleik- ur en við stöndum vel aö vígi í leik- hléi. Málið er í okkar höndum og auðvitað ætlum við okkur ekkert annað en að komast áfram í keppn- inni,“ sagði Bjarni Jóhannsson. Liö ÍBV: Gunnar Sigurðsson - ívar Bjarklind, Hlynur Stefánsson, Zoran Miljkovic, Guðni Rúnar Helgason - Sig- urvin Ólafsson, Sverrir Sverrisson, Krist- inn Hafliðason - Leifur Geir Hafsteins- son (Bjarnólfur Lárusson 75.), Steingrim- ur Jóhannesson, Tryggvi Guömundsson. Gul spjöld: ívar, Zoran. Áhorfendur: Um 800. -VS Tryggvi Guðmundsson skoraði markið sem færði ÍBV sinn fyrsta Evrópusigur. Norðurlandamótið í Kópavogi: Blikastúlkur betri - sigruðu finnsku meistarana á sannfærandi hátt, 3-0 Þrátt fyrir að finnska liðið HJK Helsinki hafl leikið hraðan og skemmtilegan fótbolta í Kópavogi í gær og hafl haft undirtökin í upphafi leiks gegn íslandsmeisturunum, þá voru það Blikarnir sem höfiðu betur og sigruðu verðskuldað, 3-0. Það var ekki að sjá að árekstur sem flnnska liðið lenti í á leið sinni á völl- inn hafi haft nokkur áhrif á það, því það byrjaði leikinn betur en Blikarnir. Það vora skynsamlegur vamarleikur og snarpar skyndisóknir sem skiluðu Blikunum marki á 20. mín. Þar var að verki Erla Hendriksdóttir með viðstöðulausu skoti. Margrét Ólafs- dóttir bætti síðan öðra marki við fyr- ir hálfleik með þrumuskoti frá víta- teig efst í markhomið vinstra megin, algjörlega óverjandi fyrir flnnska markvörðinn. Síðari hálfleikur var ekki ósvipaður þeim fyrri, Finnamir sóttu heldur meira en Blikamir beittu skyndisókn- um. Á 50. mín. bætti Ásthildur Helga- dóttir við þriðja marki Breiðabliks með gullfallegu skoti úr vítateig í þverslá og inn. Frábærlega vel að verki staðið. Þegar á leið hálfleikinn tóku Blikarnir völdin smátt og smátt og Finnarnir játuðu sig sigraða. Allt annað var að sjá til Breiða- bliksliðsins í þessum leik heldur en gegn norsku meisturunum í Trond- heim Örn. Blikarnir léku mjög agað og sem ein heild þar sem engin ein var annarri fremri, sjálfsagt einn besti leikur liðsins í sumar. Fortuna miklu sterkara en úrvalsliðið Úrvalslið KSÍ náði ekki að fylgja eft- ir góðum árangri gegn Álvsjö í gær á Norðurlandamóti meistaraliða kvenna í knattspyrnu þegar það lék gegn dönsku meisturunum í Fortuna Hjörr- ing. Fortuna-liðið var einfaldlega of sterkt fyrir íslensku stelpurnar, sem biðu lægri hlut, 0-3. Það var ljóst strax frá upphafi hvert stefndi, Fortuna-liðið var með boltann nær allan fyrri hálfleikinn og á 23. mín. fengu þær vítaspyrnu eftir brot Margrétar Ákadóttur innan vítateigs. Karina Christensen skoraði af öryggi úr vítinu. í síðari hálfleik gerði Vanda Sigurgeirsdóttir nokkrar breytingar á liði sínu en allt kom fyrir ekki. Þær Helle Eskesen og Birgit Christiansen bættu við sínu markinu hvor fyrir leikslok. Leikið í dag og á morgun Riðlakeppninni lýkur í dag. Fortuna Hjörring og Álfsjö mætast kl. 14 og HJK mætir Trondheims Örn kl. 16.30. Úrslit um sæti verða síðan á morgun. Blikastúlkumar leika væntanlega um þriðja sætið kl. 13. -BL Körfubolti: Ladine til Stjörnunnar Bandaríkjamaðurinn Matt Ladine frá Bethany- háskóla í Kaliforníu mun leika með 1. deildarliði Stjörnunnar í körfubolt- anum í vetur. Ladine, sem er 25 ára gamall og 1,95 m hár framherji, leysir Chris Lentz af hólmi, en mikil eftirsjá er að honum í Garðabænum. Ladine mun einnig þjálfa yngri flokka Stjömunnar. Þorvaldur Hennings- son, sem leikið hefúr með Stjörnunni undanfarin ár, er farinn til Danmerk- ur í nám. Hann mun að öllum líkindum leika með Odense i úrvals- deildinni í vetur, en þjálf- ari liðsins er sem kunn- ugt er Valur Ingimundar- son og með því leika fleiri íslendingar. -VS Bow til Bayeruth - skrifaði undir tveggja ára samning Jónatan Bow er á leiö í eina af bestu deildum í Evrópu. Jónatan Bow, landsliðsmaður í körfuknattleik, skrifaði í gær undir tveggja ára samning við þýska 1. deild- arliðið Bayeruth. Þar mun hann leika við hliðina á Bandaríkjamanninum Rony Eford en þeir spOuðu saman með KR síðasta vetur. Jónatan, sem er 31 árs, hefur leikið á íslandi undanfarin átta ár og er íslenskur ríkisborgari. Bayerath varð næstneöst í 1. deild- inni í fyrra en hélt sæti sínu í hópi þeirra bestu eftir aukakeppni gegn efstu liðum 2. deildar. „Það era geysilega miklar breyting- ar á liöi Bayeruth frá því í fyrra því að- eins tveir leikmenn era þar áfram. Ég lék þrjá æfingaleiki með liðinu á dög- unum og var sjötti maður, fór fyrstur inn af bekknum. Mér gekk ágætlega, var með um það bil 10 stig og 6 fráköst í leik,“ sagði Jónatan við DV í gær- kvöld. Þýska deildin er ein af þeim sterk- ustu í Evrópu og Bayeruth hefur löng- um verið þar í fremstu röð þó illa hafl gengið í fyrra. Deildakeppnin byrjar um næstu mánaðamót en helgina á undan fer iiðiö á sterkt æfingamót í París. „Markmiðið er aö komast í átta liða úrslitin um meistaratitilinn, sem yrði mjög gott miðað við þessar miklu breytingar. Það er geysilega spennandi að fá tækifæri til að spila í þessari deild og mér líst mjög vel á aÚar að- stæður í Bayeruth," sagði Jónatan Bow. -VS Shearer bíöur brosmildur Alan Shearer, fyrirliði enska landsliösins, veröur aö láta sér nægja aö horfa á fé- laga sína í Newcastle leika knattspyrnu þar til á næsta ári. Hann viröist þó taka mót- lætinu meö bros á vör, enda orðinn ýmsu vanur. Hér styðst hann viö hækjurnar og horfir á Newcastle sigra Croatia Zagreb, 2-1, í forkeppni meistaradeildar Evrópu. Símamynd Reuter Bikarkeppni FRÍ: Sigra FH-ingar fjórða árið í röð? Bikarkeppni FRÍ, sú 32. í röðinni, verður haldin á Laugardalsvelli um helgina. FH-ingar þykja sigur- stranglegir, en þeir hafa sigrað und- anfarin þrjú ár og alls fimm sinnum á síðustu sex áram. Átta lið taka þátt í 1. deild á Laug- ardalsvelli, FH, HSK, ÍR, Ármann, UMSK og UMSS, en þessi lið urðu í sex’efstu sætum 1. deildar í fyrra. Nýju liðin tvö, sem komu upp úr 2. deild í fyrra, eru sameiginlegt liö Eyfirðinga (UMSE-UFA) og Hún- vetninga (USAH-USVH). Keppni hefst í kvöld kl. 20 og verður fram haldið á morgun kl. 15. Gert er ráð fyrir að keppni ljúki um kl. 18. Frjálsíþróttasambandið á hálfrar aldar afmæli á morgun og verður þess minnst í tengslum við bikarkeppnina. Keppni í 2. deild fer fram á nýja frjálsíþróttavellinum i Borgarnesi. Þar keppa UMSB, HSÞ, UÍA, HSH og UDN/HSS. -BL Cardaklija til Raufóss Leiftur á ÓMsfirði hefur lánað markvörðinn Hajrudin Cardaklija til norska 2. deildarliðsins Raufoss út þetta tímabil. Raufoss vantaði markvörð en Páll Guðmundsson, fyrrum Leiftursmaður sem leikur með norska liðinu, vissi af útlendingavandamáli Ólafsfnðinga og kom því á framfæri. Carda- klija er ekki hættur hjá Leiftri en þetta er aðeins tímabundið ástand sem Leiftursmenn vonast til að verði búið að leysa fyrir næsta tímabil. Þeir hafa alltaf þurft að hvíla einn útlendinganna hverju sinni, Cardaklija, Slobodan Milisic eða Rastislav Lazorik. Raufoss er með örugga forystu í sínum riðli 2. deildar en með félaginu leika auk Páls þeir Einar Páll Tómasson og Tómas Ingi Tómasson. -HJ/VS Handbolti: Góð staða HK-manna Sigur blasir nú við HK-mönn- um á hinu árlega Ragnarsmóti í handknattleik sem fram fer á Selfossi. I gær vann HK 31-26 sigur á Haukum en í fyrradag vann HK Aftureldingu, 23-22. Selfyssingar biðu afhroð, 13-33, gegn Aftureldingu í gær. Öllu betur gekk hjá 2. deildarlið- inu í fyrradag, en þá gerði Sel- foss jaöitefli við Hauka, 22-22. -BL EM* . DEILD KARLA KVA-Völsungur 0-1 Selfoss 13 9 3 1 34-23 30 KVA 14 9 2 3 38-25 29 Vlðir 13 9 1 3 36-20 28 HK 13 9 1 3 32-22 28 Leiknir R. 13 5 3 5 27-16 18 Völsungur 14 5 2 7 24-32 17 Ægir 13 3 4 6 30-30 13 Fjölnir 13 3 2 8 21-37 11 Þróttur N. 13 3 0 10 26-37 9 Sindri 13 2 0 11 19-45 6 fcó) ENGLAND Salan á danska leikmanninum Marc Rieper frá West Ham til Celt- ic gæti eitthvað dregist á langinn þar sem Harry Redknapp, fram- kvæmdastjóri Hammers, telur lið sitt ekki mega við því að missa hann sem stendur. Blackburn Rovers hefur lýst yfir 1 áhuga sínum á aö krækja í írann jj Mark Kennedy hjá Liverpool sem ;§!! vill komast í burtu frá Anfield. Frank Sinclair, leikmaður Chel- sea, hefur fengið tveggja vikna frest til að halda uppi málsbótum fyrir sjálfan sig áður en kveðinn verður upp dómur yfir honum hjá enska knattspyrnusambandinu eftir að hann girti niöur um sig i leik Chel- sea og Coventry. Steffen Iversen, Norðmaðurinn hjá Tottenham, gæti líka verið i vond- um málum. Á myndbandsupptöku af leik Tottenham við West Ham í fyrrakvöld sést að hann sendi dóm- 8* aranum dónalega kveðju á fmgra- ; |> máli. „Ég var á leiöinni til West Ham þegar ég frétti af áhuga Newcastle. : Ég gat ekki annað en þegið boð | þeirra. Þetta geröist allt svo hratt / og því bað ég Harry Redknapp hjá j West Ham afsökunar. Hann er auð- I vitað svekktur en við erum enn : góöir vinir,“ sagði John Barnes eft- ; ; ir undirskriftina við Dalglish og fé- i / laga hjá Newcastle. , : „Newcastle er frábært lið sem á :: bjarta framtið fyrir sér. Ég vona að- ! eins að Dalglish geri sér grein fyrir : 1 því að ég er ekki einhver unglingur ! lengur en hann veit fullkomlega I hvað hann er að gera og er að j I byggja upp sterkt lið,“ bætti Barnes við. Sol Campbell, varnarmaður Tott- j í enham og enska landsliðsins, : meiddist ekki eins illa á hné í leik Tottenham og West Ham i fyrra- : ( kvöld og óttast var. Hann verður ; ■ leikfær eftir viku. Barnsley mun ekki kaupa Ian | Dowie frá West Ham þar sem félag- i ið segir buddu sína tóma. Leikmönnum Manchester City hef- j ur verið gerð grein fyrir því að I minnki þeir ekki áfengisdrykkju ; sína geti þeir gleymt úrvalsdeildar- i sæti að ári. . Arnar Gunnlaugsson lék með | varaliði Bolton sem gerði 0-0 jafn- : ( tefli við Coventry í fyrrakvöld. Colin Todd, stjóri Bolton, er ekki i I sáttur við sóknarmenn sína og leit- j B ar að sterkari mönnum. Michele Pad- j ovano hjá Juventus og Marc Libra : fl hjá Marseille eru efstir á blaði. ■ (E Forráöamenn Derby eru óhressir | með framkomu Wimbledon í fyrra- j ) kvöld þegar leik liðanna var hætt ! ;:!! vegna bilunar í flóðljósum. Staðan ! !::! var 2-1 fyrir Derby þegar dómarinn ! |j frestaði leiknum, eftir mikinn ! ,1 þrýsting forráðamanna Wimbledon. ! J) Tveimur mínútum síðar voru ljósin I |i komin í lag en of seint. ! I Piotr Nowak, pólskur landsliðs- j ;S maður hjá 1860 Mttnchen í Þýska- ! 5 landi, er líklega á leið til Totten- i :! , ham. -ÖB/VS | L.ACafé mótió í knattspyrnu Veröur haldið á grasvellinum á Tungubökkum í Mosfellsbæ dagana 28. - 30. ágúst. Allir velkomnir aö vera með í þessari hópa - og firma- keppni, nema leikmenn í Sjóvá-Almennra og fyrstu deild. Fimm menn í liði, þar af einn í marki. Reglur KSÍ. Átta fyrstu liðin fá matarboð fyrir tíu manns á L.A.-Café í loka- hófi þann 30. ágúst, auk annarra verðlauna. Þátttökugjald kr. 15.000. Skráning í síma 568 0343. Afturelding Um helgina Úrvalsdeildin í knattspymu: ÍA-Stjarnan................S. 18.00 Keflavík-SkaUagrimur.......S. 18.00 KR-Valur ..................S. 18.00 IBV-Grindavik .............S. 19.00 Fram-Leiftur...............S. 20.00 1. deild karla: Dalvík-Víkingur R..........F. 18.30 KA-FH .....................F. 19.00 Fylkir-Reynir S............F. 19.00 Þróttur R.-Breiðablik ....F. 19.00 ÍR-Þór.....................L. 14.00 2. deild karla: Fjölnir-Þróttur N..........L. 14.00 Sindri-Ægir ...............L. 16.00 3. deild - helstu leikir: Hvöt-Tindastóll............F. 19.00 Afturelding-Njarðvík......L. 14.00 Ármann-Framherjar.........L. 14.00 Smástund-Léttir ...........L. 14.00 Höttur-Neisti D............L. 14.00 Norðurlandamót kvenna: Leikur um 5. sæti..........L. 10.30 Leikur um 3. sæti..........L. 13.00 Úrslitaleikur..............L. 15.30 Helgi átti sigurmarkið Helgi Sig- urösson átti góðan leik með Stabæk í fyrra- kvöld þegar lið- ið vann Kongs- vinger, 2-1, á útivelli í norsku úrvals- deildinni í knattspyrnu. Stabæk jafnaði leikinn þegar 10 mínútur voru eftir og fjórum mínút- um síðar var Helgi feUdur í vítateig heimaliðsins. Dæmd var vítaspyma og úr henni kom sigurmarkið. Helgi fékk góða dóma í norskum blöðum fyrir frammistöðu sína en liðinu hefur gengið mjög vel síöustu vikurnar og stefnir hraðbyri á Evrópusæti. Stabæk komst með sigrinum í þriðja sæti deildarinnar. Rosenborg er með 44 stig, Molde 37 og Stabæk 36 stig. -VS EVRÓPUKEPPNI BIKARHAFA Forkeppni - fyrri leikir: Hibernians (Möltu) - ÍBV..............0-1 Glenavon (N.-írlandi) - Legia (Pól.) ..1-1 Cwmbran (Wales) - National Búk. (Rúm.) . 2-5 Din.Batumi (Geo.) - Ararat (Armeníu) frestað Dinaburg (Lett.) - Kapaz Ganja (Azerb.) .. 1-0 HJK (Finnl.) - Rauða stjaman (Júg.)....1-0 Kilmamock (Skot.) - Shelboume (frl.) .... 2-1 Levski (Búl.) - Slovan Brat. (Slóvak.) .... 1-1 Primorje (Slóven.) - Union (Lúx.)......2-0 Tallina Sadam (Eist.) - Bobruisk (Hv.-R.) . 1-1 Sloga Jugomagnat (Mak.) - Zagreb (Kró.) . 1-2 Zalgiris (Lit.) - Beer Sheva (Israel)..0-0 Zimbm (Mold.) - Shakhtar (Úkr.)........1-1 HJK Helsinki vann óvæntan sigur á Rauðu stjömunni. Sigurmark Finnanna skoraði Petri Helin. Meistaradeildin: MTK (Ungv.) - Rosenborg (Nor.) ....0-1 (Leikið að nýju i gær en leik liðanna í fyrradag var hætt vegna bilunar í flóðljósum. Þá var MTK yfir, 3-2.) Barcelona stendur í stórræðum Spænska knattspyrnustórveldið Barcelona slær mjög um sig þessa dagana. í gær bárast fréttir um að félagið hefði keypt brasilíska sókn- armanninn Rivaldo frá Deportivo Coruna fyrir 1.800 milljónir króna og að enski landsliðsmaðurinn Steve McManaman frá Liverpool væri mættur til Spánar til viðræðna um samning. Bobby Robson, framkvæmda- stjóri Barcelona, horfði á leik Liver- pool og Leicester í fyrrakvöld. Ensk- ir fjölmiðlar sögðu í gær að Barcelona væri tilbúið að greiða 1.400 milljónir króna fyrir McMana- man. Líklegt væri að Liverpool tæki því boði þar sem McManaman væri laus allra mála hjá félaginu næsta vor og þá fengi það ekkert fyrir hann. Barcelona hefur þegar keypt Sonny Anderson, Christophe Dug- arry og Michael Reiziger. -VS KÖTTARAR! Þróttur - Breiðablik KL. 19.00 í kvöld í dalnum Það þarf ekki að ræða það nánar LIFI ÞRÓTTUR Handboltanámskeið Handbolti fyrir 6-10 ára í Digranesi, í tvær vikur, hefst 18. ágúst frá kl. 13- 16. Fjölbreytt dagskrá: Handbolti, leikir, sund og Fjölskyldu- og hús- dýragarður, Siggi Sveins kemur í heimsókn og kennir krökkunum að dúndra. Umsjónarmaður: Gunnar Guðmundsson íþróttafulltr. Upplýs- ingar og skráning á staðnum eða í Digranesi. Sími 33 42230

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.