Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1998, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1998, Blaðsíða 22
30 MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 1998 Enn og aftur unrlf hollustu rauðvíns Þeir sem fengu sér dálítið af rauðvíni yfir hátíðamar hafa fulla ástæðu til að vera ánægðir með sig, hafi þeir gætt alls hófs I í drykkjunni. Bandarískir vís- indamenn hafa fundið enn frek- ari vísbendingar um hollustu rauðvínsins. Vísindamennirnir, sem starfa j við Northwestemháskólann í Chicago, segja að efnið resver- atrol, sem finnst í miklu magni í hýði vínbeija, verki eins og hormónið estrógen. Vitað er að estrógen vemdar gegn hjarta- sjúkdómum. Margar rannsóknir benda til þess að sé áfengi drukkið í hófi, svona einn til tveir sjússsar á dag, geti það verið heilsubæt- andi. Sumar rannsóknanna benda til að rauðvínið sé sér- staklega heilsusamlegt. Efni úr hákarli gegn krabbameini Það em fleiri en við íslend- ingar sem hafa tröllatrú á há- karlaafurðum. Vestur i Banda- ríkjunum er nú verið að prófa efni sem unnið er úr hákarla- vefjum gegn ristilkrabbameini. Efni þetta, squalamine, sem vís- indamenn telja að sé hluti af ónæmiskerfi hákarlsins, hefur reynst vel þegar það hefur verið gefið músum á tilraunastofum. Efnið uppgötvaðist af tilviljun árið 1992 þegar verið var aö leita að fúkalyfjum í hákarlslif- ur. Þess í stað fundust 18 nýjar sameindasamsetningar, þar á meðai squalamine. Annað efni sem fannst í vefjum hákarlsins gæti komið að liði í baráttunni gegn alnæmi. Marp þótt ur er knár íann sé smár Halastjarnan Hyakutake, sem þaut yfir himininn í fyrra, var ekki nema pínulítill isbolti. Engu að síður gaf hún frá sér mjög skært ljós, miklu skærara en hefði mátt ætla af stærð hennar. Þá líktist hún mjög smástimi. Það þykir benda til að þessi tvö fyrirbæri séu stund- um eitt og hið sama. Það voru vísindamenn tækni- háskólans í Pasadena í Kaliforn- íu sem komust að þessu með því að skoða ratsjárgögn um Hyakutake. Halastjarnan var um tíu sinnum minni en Hale- Bopp halastjaman sem gladdi margan stjömuglópinn nokkram mánuðum síðar, þar á meðal á íslandi. „Kjami þessarar björtu hala- stjörnu var aðeins tveir til þrír kilómetrar í þvermál," segja vís- indamennimir í grein í tímarit- inu Science. Og það sem gerði hana svona bjarta voru lítil ís- korn sem fuku af yfírborði hennar. : VSj ÚSU-lfjJJ Nýjar rannsóknir á heilum frænda okkar leiða eitt og annað í Ijós: Simpansamir líkari okkur en við höldum Það er ekki að ástæðulausu sem simpansamir em kallaðir nánustu frændur okkar mannanna. Þeir haga sér eins og við, eru pínulítið líkir okkur og fyrir kemur að þeir beiti tungumáli, rétt eins og við. Núna segja vísindamenn að í heila þeirra séu sömu stöðvar til tjáskipta og í heila mannsins. Heilinn í simpönsum er minni en heilinn í okkur en sá hluti hans sem talinn er stjóma tungrnnálinu er svipaður, að því er fram kemur í grein Patricks Gannons, taugalækn- is við Mount Sinai læknaskólann í New York, og samstarfsmanna hans í tímaritinu Science. Vísindamennimir komust sem sé að því að svokallaður planum temp- orale heilans, sem er undir hvirfd- geiranum nærri miðju heilans, er svipaður í mönnum og simpönsum. í mannfólkinu er planum temporale alla jafna stærri vinstra megin í hei- lanum en hægra megin. Sömu sögu var að segja í öllum nema einum af þeim átján simpansaheilum sem Gannon og félagar hans skoðuðu í segulómsjá. Gannon segir að uppgötvanir hópsins renni stoðum undir þær kenningar að simpansar noti tungu- mál, bara ekki á sama hátt og mann- fólkið. „Kenningarnar hafa gengið út frá því að þetta svæði tengist geðklofa, tónlistarhæfileikum, torlæsi sem öll eru mannlegir eðlisþættir. Nú er hins vegar greinilegt að þetta er ekki bundið við manninn," segir Gannon. Margir vísindamenn hafa kennt simpönsum og górillum táknmál og kennt þeim að tjá sig með aðstoð tölva og tákna. Þeir benda á að simpansar deila 98 prósentum gena Tilraunir sem stefnt er gegn tóbaksfíkninni: Lofa góðu um lækningu Tóbaksfjandinn er ekkert lamb að leika sér við, eins og þeir vita sem reynt hafa sig við hann. Glíman verð- ur þó sífellt auð- veldari með alls kyns hjálparmeðöl- um og nú hafa vís- indamenn gert upp- götvun sem kynni að leiða til þróunar nýrra lyfja fyrir þá sem vilja hætta að reykja. Vísindamenn við Pasteur-stofnunina í París, Karolinsku stofnunina í Stokk- hólmi og rannsókn- ardeild Glaxo- Wellcome lyQafyrirtækisins í Genf hafa fundið fýrstu af ellefu undirein- ingum eða sameindum nikótínviðtak- ans í heila músa. Mannfólkið hefur sömu svokölluðu b2 undireiningu. „Þetta er fyrsta skrefið í að finna hina hluta þessa viðtaka og það sem veldur fikninni," segir Marina Picciotto sem stjórnaði rannsókn- inni. Uppgötvanir vísindamannanna gætu einnig komið að liði í barátt- unni við önnur og hættulegri fikni- efni, svo sem kókaín og heróín, þar sem ávanamyndandi eiginleikar ni- kótínsins og þeirra efna eru sYipað- ir. Eins og í öðrum fikniefnum tengj- ast ávanamyndandi þættir nikótins losun taugaboðefnisins dópamíns í heilanum. Fólk verður fikninni að bráð vegna hinnar hröðu virkni sem leiðir til losunar dópamínsins. Vísindamennirnir lýsa því í grein í vísindarit- inu Nature hvernig þeir uppgötvuðu að nikótín örvar losun dópamíns í heila heil- brigðra músa en ekki í stökkbreytt- um músum sem hafa ekki b2 undirein- inguna. Þeir komust að því með tilraun- um sínrnn að stökkbreyttu mýslurnar sýndu engin viðbrögð við nikótíni. Rannsóknin leiddi einnig i ljós að nikótín varð til þess að mýsnar stóðu sig betur á ákveðnum skilyrð- ingarprófum. Það kann svo að skýra hvers vegna sumir reykingamenn segja að reykingarnar auki einbeit- inguna og skerpi minnið. „Nikótín gerir einnig góða hluti,“ segir Picciotto og bætir við að rann- sóknir hafi sýnt að það skerpi minni alsheimersjúklinga. sinna með mannfólkinu. „Ég held að simpansar eigi sitt eigið flókna tungumálaform sem við skiljum ekki enn. Þeir skilja heil- mikið af því sem við kennum þeim og ég held að næsta skref sé að reyna að skilja tungumál þeirra," segir Gannon. „Sá sem hefur hitt simpansa veit að þetta eru ótrúlega kænar og vel gefnar skepnur." Næsta skref yrði að rannsaka lif- andi simpansa og fylgjas með heila- starfsemi þeirra með aðstoð blóð- flæðismælinga eða PET skanna þeg- ar þeir beita tungumáli sínu. Ralph Holloway, mannfræðipróf- essor við Columbiaháskólann í New York, sem vann að gerð greinarinn- ar í Science, telur ekki að simpans- ar búi yfir tungumáli. „Ég er hins vegar sammála því að þeir hafi ein- hvers konar tjáskiptakerfi sem er kannski flóknara en við höfum haldið hingað til,“ segir hann. Gannon og félagar hans skoðuðu einnig heila úr górillum og órangú- tönum og komust að því að þar voru svipaðar stöðvar. Gannon telur næsta vist að þessar heilastöðvar séu upprunnar í sameiginlegum for- fóður mannapa og okkar mann- anna. Lím úr múslingum til að loka sárum Vísindamenn við háskólann í Auckland á Nýja-Sjálandi gera sér vonir um að geta gert saumaskap á sárum úreltan. Þeir eru nú að vinna efni úr pró- tini sem kirtill í fæti múslinga gefur frá sér. Prótínið myndar hið náttúrulega og firnasterka lím sem gerir múslingunum kleift að festa sig við steina í sjónum. Carol Taylor, lektor í lífrænni efnafræði við háskólann, sagði í viðtali við nýsjálenskt dagblað að ef mannslíkaminn hafnaði prótíni þessu ekki kynni að verða óþarfi að sauma sár sam- an í framtiðinni. Þess í stað væri bara hægt að lima þau saman. „Ekki þyrfti að fjarlægja lím- bandið, eins og saumana, þar sem prótínið mundi brotna nið- ur og hverfa," sagði Taylor i við- talinu. Taylor og stúdent við háskól- ann hafa varið heilu ári í að setja saman hina löngu keðju tíu amínósýra sem mynda bygging- areiningu prótínsins. Vonir eru bundnar við að hægt verði að búa til prótínið allt einhvem tíma á næsta ári. Þegar þeirri smíði er lokið verður kannað hvort prótínið sé nothæft til að líma saman sár á mönnum. „Ég veit ekki um neinn sem er að reyna að búa það til annars staðar," sagði Taylor. Hún kynnti rannsóknir sínar á ráð- stefnu í Texas síðastliöið sumar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.