Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2002, Blaðsíða 23
35
MÁNUDAGUR 6. MAÍ 2002
DV Tilvera
Myndgátan
Krossgáta
Lárétt: 1 lof,
4 hræðslu, 7 mas,
8 dreitill, 10 grind,
12 umboðssvæði,
13 kjáni, 14 peninga,
15 deila, 16 veiðidýr,
18 áforma, 21 steli,
22 stingur, 23 fengur.
Lóðrétt: 1 dauði,
2 þrá, 3 samveruslit,
4 vögguljóð, 5 óvissa,
6 hrygning, 9 styrkir,
11 hyski, 16 bónda,
17 geislabaug,
19 gangur, 20 flýtir.
Lausn neðst á síðunni.
Hvltur á leik!
Hann getur verið fastur fyrir,
hann Karpov, og erfitt aö sækja að
honum. Hér fórnar Shirov manni
en hefur misst af einhverju í út-
reikningunum og Karpov vinnur.
En hér hefði Shirov liklega getað
unniö með 25. Bxh6!, sem er mun
betri kostur en sá sem hann valdi.
Umsjón: Sævar Bjarnason
En það er vandi að tefla vel. Skákin
er harður skóli og ekki nóg að vera
með unna stöðu - það verður að
vinna líka!
Hvítt: Alexei Shirov (2704)
Svart: Anatoly Karpov (2690)
Rússnesk vörn.
Euro-símamótið
Prag (4.3), 02.05. 2002
1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. Rxe5 d6 4.
Rf3 Rxe4 5. d4 d5 6. Bd3 Be7 7. 0-0
Rc6 8. c4 Rb4 9. Be2 0-0 10. Rc3 Bf5
11. a3 Rxc3 12. bxc3 Rc6 13. Hel
dxc4 14. Bxc4 Bd6 15. Ha2 Dd7 16.
Rg5 Ra5 17. Bd3 b5 18. Df3 Bg6 19.
Hae2 Rc4 20. a4 a6 21. h4 h6 22.
Re4 Hae8 23. h5 Bh7 24. axb5 axb5
(Stöðumyndin) 25. RfB+ gxf6 26.
Bxh6 Hxe2 27. Hxe2 Bxd3 28. Dxd3
He8 29. g3 Hxe2 30. Dxe2 De6 31.
Df3 Kh7 32. Bf4 f5 33. Bxd6 Rxd6
34. Ddl De4 35. Dd2 f4 36. gxf4 Rf5
37. Da2 Kg7 38. Da6 Rh4 39. Kfl
Dd3+ 40. Kgl Df3. 0-1.
Á undanfornum árum hefur ung-
um spilurum hérlendis fækkað og
hafa menn eðlilega af þvl miklar
áhyggjur. Sama þróun hefur átt sér
stað'Víða erlendis og eru menn ekki á
eitt sáttir um ástæður þessa. Ung-
lingastarf í bridge var lengi mjög öfl-
ugt í Danmörku en þeir hafa ekki far-
ið varhluta af þessari þróun. Þó sjá
þeir nokkurt ljós 1 myrkrinu þvi á
4 ÁG6
%>83
♦ 109
* DG8753
NORÐUR AUSTUR SUÐUR VESTUR
1V pass 14 24
2+ 34 3+ 4*
4 4 p/h
Anne Mette og Kristian sátu í NS og
enduðu í fjórum spöðum. Flest pörin
enduðu i fjórum hjörtum (sem fór
a.m.k. einn niður) eöa fimm tíglum sem
tssmsmm
Umsjón: ísak Öm Sigurðsson
dögunum var haldið bridgemót í Dan-
mörku fyrir 18 ára og yngri. Dönum
tókst að skrapa saman í 26 para tvi-
menning og þótti gott. Sigurvegarar
voru Anne Mette Shaltz og Kristian
Bröndum. Anne Metta er dóttir
landsliðshjónanna Dorthe og Peter
Shaltz. Skoðum hér eitt spil þar sem
Anne og Kristian fengu hreinan topp.
Norður gjafari og NS á hættu:
stóðu en þau voru eina parið sem end-
aði í 4 spöðum. Útspil vesturs var
hjarta sem Kristian drap á ás í blind-
um. Kristian réöst strax á trompiö og
spilaði spaðadrottningunni úr blindum.
Vestur fékk slaginn á ásinn og spilaði
áfram hjarta á kóng blinds og laufi
hent heima. Spaðaníuna
drap austur á kónginn og
spilaði hjartadrottningu.
Sagnhafi trompaði á spaða-
fimmuna og fékk að eiga
þann slag. Nú var eitt
tromp eftir á öllum höndum en Kristian
þurfti að trompa eitt lauf i blindum til
þess aö eiga möguleika. Síðan kom tíg-
ull á kóng og spaðatíunni spilað. Vestur
var inni á gosann en fleiri urðu slagir
varnarinnar ekki. Talan fyrir 4 spaða
var 620, sem var betri en fékkst fýrir að
spila fimm tigla (600).
tsb oz ‘ji; 61 ‘ai? l\ ‘enq 91 ‘qjqs n
‘JIIJ3 6 ‘;o3 9 ‘iJ9 S ‘eiæSeujeq ; ‘jnomqiiis g ‘qso z ‘faq I :;;ajooq
'IUe 8Z ‘Jnie ZZ ‘lldnj iz ‘epæ 81 ‘0?Jq 91 ‘2§e si
‘ejne ji ‘uou g; ‘uai zi ‘isu 01 ‘iqai 8 ‘jejqs l ‘g/aq p ‘sojq ; :wajeq
Sigggrónar
hendur og sig-
ur heimsins
Vestfirðingar eiga sóma skil-
inn fyrir þá myndarlegu sýn-
ingu Perlan Vestfirðir sem hald-
in var í skrauthýsinu á Öskju-
hlíð um helgina. Atorkufólk sem
byggir annnes og ystu byggðir
landsins fæst greinilega við
býsna margt og vitnisburð um
það mátti á sýningunni góöu
sjá. Bókaútgáfa, sjávarrétta-
framleiðsla, handverk og ferða-
þjónusta voru meðal þess sem
kynnt var - og er þá fátt eitt
talið. Fyrir svo utan Vestfirð-
inga sem komnir voru í bæinn;
vinnulúnar húsmæður og dugn-
aðarlega karla með stórar
sigggrónar vinnulegar hendur.
Þessu fólki er ekki fisjað saman.
En þótt Perlan Vestfirðir hafi
sýnt okkur að vestra er ekki sú
ördeyða sem við stundum stönd-
um í þeirri meiningunni að sé
er grundvallarspurningum
ósvarað. Ætla stjórnvöld að búa
þessum landsfjórðungi sem og
öðum útkjálkum landsins þau
skilyrði að fýsilegt verði þar að
búa og byggja. Stjórnvaldsað-
gerðir geta ýmsu breytt í þessu
sambandi.
önnur mikilvæg spurning er
svo sú hvort búseta í fámennum
byggðum við ysta haf sé valkost-
ur sem freistar ungs fólks.
Verða möguleikarnir - eðlis
landshátta vegna - ekki alltaf
svo fábreyttir að æskufólk sem
er stútfullt af metnaði, hæfileik-
um og atgervi hljóti að leita
annað. Jafnvel leggja heiminn
að fótum sér; því eins og Vest-
firðingurinn Jón úr Vör sagði í
ljóði sínu: Það sigrar enginn
sinn fæðingarhrepp.
Sandkorn
Umsjón: Höröur Kristjánsson . Netfang: sandkorn@dv.is
Helgi Pétursson, varaborg
arfulltrúi í Reykjavík, er af baki
dottinn. Það gerðist þegar hann varð
fyrir því óláni að detta af baki þegar
hann var í árlegum
reiðtúr borgar-
stjórnar Reykja-
víkur á vegum
Fáks í kringum
Rauðavatn sl.
þriðjudagskvöld.
Farið var með
hann á sjúkrahús
til athugunar og
reyndist hann ómeiddur. Helgi segir
að hann hafi misst hestinn skyndi-
lega á of mikinn hraöa og ekki tekist
að halda í við hann með þessum af-
leiðingum. „Ég er ails ekki vanur
reiðmaður þannig að kannski hefur
vankunnátta átt einhvern þátt í
þessu. Það var einn f viðbót sem datt
og marðist á hendi. En það er allt í
lagi með alla og ég er við góða
heilsu.“ Annar lítt vanur hestamað-
ur spyr Sandkom af þessu tilefni
hvort Helgi hafi ekki bara gleymt að
huga að bremsubúnaði áður en lagt
var af stað...
Bullandi ágreiningur kom upp
á yfirborðið í gær innan Framsókn-
arflokksins vegna frumvarpsins um
ríkisábyrgðina til handa deCODE.
Sameiginlegur
fundur stjórna
Framsóknarfélag-
anna og kjördæm-
issambanda fram-
sóknarmanna í
Reykjavík hafði
þá lýst yfir
megnri andstöðu
við fyrirhugaða
ríkisábyrgð. Velta ýmsir fyrir sér
framhaldi málsins í ljósi stöðu for-
manns flokksins, Halldórs Ás-
grimssonar, sem margsagður er
vera á leiðinni að flytja sig um set í
annað tveggja Reykjavíkurkjör-
dæmanna. Reyndar þykir enn
merkilegra að meirihluti þing-
manna hygðist styðja ríkisábyrgð-
ina þótt meirihluti þingmanna tali
þannig manna á milli að þeir séu í
raun ails ekki fylgjandi málinu.
Virðist því sem vUji Daviðs Odds-
sonar sé vilja flestra þingmanna yf-
irsterkari. Framsóknarþingmenn
sýnast þannig algjörlega hafa týnt
áttum ef marka má viðbrögð Fram-
sóknarfélaganna ...
Þrátt fyrir ævintýralegan sigur
íslendingaliðsins Stoke City á Cardiff
City í undanúrslitum úrslitakeppni
ensku 2. deildarinnar er staða Guð-
jóns Þórðarsonar
I þjáifara síður en
svo örugg. Stoke
City komst að vísu
; í úrslit þar sem það
; mætir öðru íslend-
ingaliði, Brentford,
á Þúsaldarleik-
vanginum í Cardiff
11. maí næstkom-
andi. Þykir þetta því ekki hvað síst
góður sigur fyrir Guðjón. Frá kaupum
íslensku fjárfestanna á félaginu 1999
hefur Stoke City aldrei verið nær því
að tryggja sér sæti í ensku 1. deild-
inni. Hins vegar gengu væntingar um
skjótan frama liðsins undir stjórn
Guðjóns ekki eftir. Sagt er að sumir
íjárfestar séu orðnir svo pirraðir á
málinu að jafnvel þótt Guðjóni takist
hið ómögulega, þá eigi hann mjög
undir högg að sækja varðandi áfram-
haldandi stöðu...
í blaðinu Fréttum í vest
mannaeyjum má sjá að þar í bæ hafa
menn verulegar áhyggjur af komandi
sveitarstjórnarkosningum. Ekki er
það vegna stöðu sveitarfélags eða erf-
iðleika í sam-
skiptum manna
með ólíkar póli-
tískar skoðan-
ir. Það sem
þykir slæmt á
þeim bæ er að
alvarlegur skortur virðist vera á
deilumálum. Virðast menn hafa
reynt að leita með logandi ljósi af
mögulegum deilumálum miili flokk-
anna í bænum en án árangurs. Þá
þykir það einkenna þessa sérkenni-
legu stöðu að enginn hafi séð sig knú-
inn til að skrifa um bæjarpólitíkina í
blaðið Fréttir á þessu ári, nema helst
um samgöngumálin - sem allir virð-
ast hins vegar sammála um ...
Myndasögur
&
t Fyrirgefðu,
héma er bara
hasgt að leggja
inn - þú verður
að rara í út-
tektargluggann.
Framogtilbaka
|til Hrossnoskj
iMongólíu, I
takk. "
betta er svolítlð
óvenjulegt en við
ráðum við þaðU
Gerum við
tennis-
spaða j