Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2002, Blaðsíða 4
4
FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 2002
DV
Fréttir
Skipuleggjandi í Faxaflóamálinu lýsir tilburðum manna við að finna hasspakka:
Þeir voru eins og
afvelta selir í sjónum
- bæði „innflytjendur“ og lögreglumenn leituðu á svipuðum slóðum
Þijár sendingar, þar af tvær með skipum
Einum pakka var hent í sjóinn noröur af Engey, annar kom meö öðru skipi og
fór nokkrar feröir til og frá íslandi áöur en hann var sóttur. Þriöja sendingin
kom í flugi.
„Ég sótti um hjá Eimskip og fékk
strax pláss,“ sagði maður sem fór
einn túr hjá félaginu sumarið 2000
gagngert til að smygla pakka með
hassi í til landsins. Þegar sami mað-
ur kvaðst hafa verið búinn að sækja
efnin til Rotterdam og skipið var að
sigla fram hjá norðanverðri Engey
áleiðis aö Sundahöfn hefði allt farið
úr böndunum hjá honum. Hann ætl-
aði að kasta pakkanum í sjóinn -
æfingatösku með langri taug í og
flotholti á endanum - til að hægt
væri að koma á litlum bát siðar og
vitja efnanna á um 35 metra dýpi -
en þá „hafi strákamir á Mánafossi
verið að koma út á dekk“.
Þama er átt við að stýrimaðurinn
hafi laumast út, aftur á skipinu, og
ætlað að kasta töskunni þegar háset-
amir vom að búa sig undir að
ganga frá trossum og línum til að
binda skipið í Sundahöfn.
„Ég þurfti þá að fara upp á hæðina
fyrir ofan,“ sagði maðurinn, Við það
missti hann viðmiðun úr landi. Hann
kveðst síðan hafa hent töskunni fram
með skipinu, ekki aftur með, því „þá
hefðu strákamir tekið eftir því“. Eft-
ir þetta var margreynt, í tugum köf-
unarferða, bæði hjá lögreglu og inn-
flytjendum efnisins, að reyna að
fmna þau. En allt án árangurs.
dómsalnum
Óttar Sveinsson blaöamaöur
Hvar er pakkinn?
Ríkissaksóknari ákærir stýri-
manninn m.a. fyrir að hafa komið
með um tíu kíló af hassi til landsins.
Jón Magnússon, verjandi annars
manns - eins skipuleggjanda inn-
flutningsins - sneri sér að stýri-
manninum fyrrverandi þegar að lög-
manninum kom og beindi nokkuð
hvössum og ákveðnum spumingum
til hans. Lögmaðurinn spurði stýri-
manninn „beint út“ hvort hann
Furðusögur á kreiki:
Flugeldar ekki
sokknir í sjó
Enginn skortur ætti að verða á
flugeldum á íslandi um þessi ára-
mót og eru helstu flugeldasalar
þegar búnir að fá megnið af sín-
um flugeldum í hús. Talsverður
titringur kom þó upp hérlendis er
óljósar fréttir bárust af því er eld-
ur kom upp í flutningaskipi sem
talið var á leið frá Kina til hafna
í Þýskalandi og Hollandi fyrir
skömmu. Var það m.a. hlaðið 56
gámum af flugeldum. Komst eldur
í flugeldafarminn og varð af gríð-
arleg flugeldasýning. Hér á landi
varð líka hálfgerð flugeldasýning
er skeytasendingar flugu á milli
tölva í stórum stíl með mis-
vísandi fregnum um þetta atvik.
í fyrstu var fullyrt að þrír gám-
ar hafi átt að fara til KR-flugelda
ehf. í Reykjavík, en svo mun ekki
vera. Lúðvík Georgsson, fram-
kvæmdastjóri KR-flugelda ehf.,
segir að þeirra áramótaflugeldar
hafi ekki verið i umræddu skipi.
Reyndar séu þeir þegar komnir til
landsins með skipi frá Rotterdam.
Kristbjörn Óli Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Slysavamafé-
lagsins Landsbjargar, sagðist líka
hafa heyrt ýmsar sögur um þetta
flugeldaskip, m.a. að það hafi ver-
ið á leið til Bandaríkjanna. Hann
sagði þeirra flugelda að mestu
þegar komna til landsins en
Slysavamafélagið Landsbjörg er
langstærsti söluaðili flugelda hér-
lendis. -Hkr.
hefði nú örugglega komið með efnin
til landsins - heyrst hefði að hann
hefði einfaldlega ákveðið að taka við
þeim úr hendi erlends afhendingar-
aðila og selja þau svo í Rotterdam.
Fram kom fyrir dóminum í gær
að íslenskur skipuleggjandi í
Hollandi hefði óskað eftir að 5 kíló
yrðu afhent stýrimanninum en sá ís-
lendingur kvaðst aldrei hafa séð
pakkann. Reyndar kvaðst enginn
annar úr hópi ákærðu nokkum tím-
ann hafa séð hasspakkann. Aðeins
stýrimaðurinn bar að hann hefði
tekið við honum ytra, geymt hann
inni í skáp í klefa sínum á leiðinni
til íslands og síðan hent honum í
sjóinn eins og að framan greinir.
Samkvæmt þessu er aðeins einn
maður í málinu sem sá pakkann -
stýrimaðurinn - og enginn pakki
liggur fyrir i málinu. Þetta mál er
því sérstakt að því leyti að líkja má
því viö morðmál þar sem ekkert lík
er - aðeins játning ákærða, studd
Það átti vel við þegar Ármann Jak-
obsson sagöi við sjónvarpsmann á
Nasa í gær, áður en tilnefnt var til ís-
lensku bókmenntaverðlaunanna í
flokki fræðirita og bóka almenns efnis,
að það mætti bóka að ein tilnefhing
kæmi alltaf á óvart. Alþýðlegu vísinda-
ritin tvö komu ekki á óvart, Dulin ver-
öld, fyrsta heildstæða yfirlitið yfir
smádýr í íslenskri náttúru eftir Guð-
mund Halldórsson, Odd Sigurösson og
Erling Ólafsson (Mál og mynd), og
Þingvallavatn eftir Pétur M. Jónasson
og Pál Hersteinsson (Mál og menning).
Klassíska ævisagan í hópnum var
Landneminn mikli, saga Stephans G.
Stephanssonar eftir Viðar Hreinsson
(Bjartur), og sagnfræöiritið var ísland
framburðum meðákærðu um ásetn-
ing til aö brjóta af sér.
Hlátur í dómsalnum
Skipuleggjandi, maður sem fjár-
magnaði hluta af áætlaöri tíu kílóa
sendingu hassins með Mánafossi,
kvaðst sér ekki hafa litist á blikuna
yfir því hvemig stýrimaðurinn og
fleiri sem að leitinni að efnunum
komu hefðu borið sig að. Hann
nefndi annan mann, sem hefði
stórslasað sig, verið í stórhættu.
„Þeir voru eins og afvelta selir -
en ég er ekki að gera lítið úr þeim.
Leitarbáturinn var út og suður og
staðsetningamar einkennilegar.
Meira að segja lögreglumennimir
vom sammála mér í því,“ sagði
maðurinn og hlátur gall við í dóm-
salnum.
Þrír héraðsdómarar spyrja
ákærðu skipulega og ákveðið um
ótal anga þessa máls og tveggja ann-
arra hassmála sem tekin voru fyrir
á 20. öld eftir Helga Skúla Kjartansson
(Sögufélag). Óvænta bókin í þessum
hópi var svo Skrýtnastur er maður
sjálfur, hin bráðskemmtilega og frum-
lega ævisaga Halldórs Laxness handa
bömum, skrifuð af dótturdóttur hans,
Auði Jónsdóttur rithöfundi (Mál og
menning).
Tilnefningar úr flokki fagurbók-
mennta komu ekki mjög á óvart enda
flestir í þeim hópi verið tilnefndir áður
og jafnvel fengið þessi verðlaun: Hvar
sem ég verð, ljóðabók eftir Ingibjörgu
Haraldsdóttur (Mál og menning), Leið-
in til Rómar, annar hluti í sagna-
flokknum Skáldsaga íslands eftir Pétur
Gunnarsson (Mál og menning), Love-
Star eftir Andra Snæ Magnason (Mál
daginn áður. Samtals er um að ræða
innflutning á rúmum 24 kílóum af
hassi í þremur ferðum til íslands,
þar af tveimur með skipum.
Stýrimaðurinn, sem allt sitt líf
hefur verið í góðri vinnu, kvaöst
hafa verið í fjárkröggum þegar hann
lét tilleiðast að flytja pakkann til
landsins frá Rotterdam. Hann
kvaðst innilega iðrast gjörða sinna,
hann hefði verið nýlega hættur í
sambúð en í dag er góð regla á lífi
hans. Maðurinn bar einnig að hon-
um hefði verið hótað - ef hann ekki
kafaði eftir efnunum og fyndi þau þá
hefði hann verra af - gengið yrði í
skrokk á bömum hans.
Annar maður, ætlaður einn af
nokkrum skipuleggjendum í mál-
inu, viðurkenndi fyrir dómnum að
hafa hótað stýrimanninum. Hann
kvaðst sjálfur hafa verið „undir
mikilli pressu" - ef hann fengi ekki
manninn til að fmna efnin þá hefði
hann verra af líka. Maðurinn viður-
kenndi því hótanir en kvaðst ekki
kannast við að hafa nefnt böm stýri-
mannsins þegar slíkt bar á góma.
Kafað og kafaö
„Þaö var kafað og kafað og kafað,“
sagði hinn ólánsami stýrimaöur en
hann var því manna fegnastur þegar
hann var loks handtekinn. Ljóst er
að hann var dreginn inn í atburði
sem hann sjálfur vildi ekki - hann
ætlaði einungis að flytja pakkann til
landsins gegn greiðslu irni einnar
milljónar króna. Honum var síðan
hótað eins og að framan greinir.
Hann hefði því látið tilleiðast en
engu að siður vitað frá fyrsta degi -
eftir að Mánafoss kom til landsins -
að lögreglan fylgdist með.
„Ég talaði eitt sinn við þá, þekkti
þá,“ sagði maðurinn og átti við lög-
regluna sem var að leita að fíkniefn-
unum á sömu slóðum og hann og fé-
lagar hans.
og menning), Samúel eftir Mikael
Torfason (JPV útgáfa) og Sveigur eftir
Thor Vilhjálmsson (Mál og menning).
Alls vora 76 bækur lagðar fram, 36 í
flokki fræðirita og 40 í flokki fagurbók-
mennta. Dómnefnd um fræðirit skip-
uðu Sigríður Th. Erlendsdóttir, Þor-
steinn Vilhjálmsson og Hjalti Hugason
formaður. Hina dómnefndina skipuðu
Gísli Marteinn Baldursson, Þorleifur
Hauksson og María Kristjánsdóttir
formaður.
Þriggja manna lokadómnefhd tekur
nú við og velur eina verðlaunabók úr
hvoram flokki. 1 henni situr með
Hjalta og Maríu Þorsteinn Gunnarsson
sem formaður, skipaður af forseta Is-
lands. -SA
DV-MYND SIGJOKULL
Tll hamingju með tllnefninguna til islensku bókmenntaverðlaunanna
Guömundur Andri Thorsson tók á móti tilnefningu fyrir fööur sinn, Thor Vilhjálmsson, og Margrét Sjöfn Torp fyrir Andra
Snæ Magnason, eiginmann sinn.
Alltaf eitthvað eitt óvænt
Valdníðsla í slökkviliði!
Oktavía Jóhannesdóttir, bæjar-
fulltrúi Samfylkingarinnar á Akur-
eyri, hefur farið fram á skýringar á
því hvers vegna varaslökkviliðs-
stjóri hætti störfum og talar um
valdníðslu og óþolandi vinnubrögð.
Miklir samstaifsörðugleikar hafa
verið innan slökkviliðsins og er lagt
til í nýrri úttekt aö slökkviliðsstjóri
verði færður til í starfi, en vara-
slökkvfiiðsstjóra, verði gefinn kost-
ur á að segja upp.
Oktavía segir að ekki sé rétt að
segja varaslökkvUiðsstjóra upp þar
sem hann hafi ekkert brotið af sér
og það því brot á reglum um rétt-
indi og skyldur opinberra starfs-
manna. „Það átti að gefa honum
möguleika með nýjum slökkvUiðs-
stjóra eða bjóöa honum annað starf
innan Akureyrarbæjar," segir
Oktavía Jóhannesdóttir.
555 tonnum fargað
Mikiö umhverfisátak á sér stað í
Húnaþingi vestra og hefur 555 tonn-
um af brotajámi verið eytt þar í
samvinnu viö Hringrás ehf. Brota-
jáminu hafði verið safnað saman í
malarkrús fyrir ofan Hvammstanga
í aUlangan tíma, en um leið og fjar-
lægt var úr krúsinni og gengið frá
svæðinu var íbúum Hvammstanga
og bændum í héraðinu gefinn kost-
ur á að koma með bílhræ og brota-
jám tU eyðingar.
Að sögn Skúla Þórðarsonar sveit-
arstjóra nýttu margir sér að losna
við óþarfa hluti í þessu hreinsunar-
átaki en víða er brotajám tU vand-
ræða, bæði í bæjum og sveitum.
Stefnt að samruna
Stjómir SR-mjöls og SUdarvinnsl-
unnar i Neskaupstað hafa ákveðið
að taka upp formlegar viðræður um
sameiningu félaganna og verður
fyrsti fundurinn í dag. Sameinuð
mynda fyrirtækin stærsta fyrirtæki
landsins í veiðum og vinnslu á upp-
sjávarfiskum, með um 20% af heUd-
araflaheimildum í sUd, loðnu og
kolmunna. í sjávarútvegi yrði þetta
þriðja stærsta fyrirtækið, næst á eft-
ir Samherja og Brimi. Stefnt er að
þvi að niðurstöður viðræðna liggi
fyrir innan tveggja vikna, eöa
skömmu fyrir jól. Sýnt þykir að
mjölverksmiðjum í landinu mun
fækka, verði af þessum áformum,
en þær eru í dag 21 talsins.
Kona í formennskuna
Samgönguráðherra, Sturla Böðv-
arsson, hefur skipað nýtt hafnaráð.
í fyrsta skipti í sögu hafnaráðs er
kona skipuð sem formaður, Sigríð-
ur Finsen hagfræðingur. Sigríður
lauk BS-gráðu frá háskólanum í
York 1981 og M.Sc.-gráðu frá
London School of Economics 1985.
Aðrir aðalmenn í hafnaráði eru
Einar K. Guðfinnsson alþingismað-
ur, varaformaður, Brynjar Pálsson,
formaður samgöngunefndar Skaga-
fjarðar, Hannes Valdimarsson, hafn-
arstjóri í Reykjavík, Ólafur M. Krist-
insson, hafnarstjóri í Vestmannaeyj-
um, og Friðrik J. Amgrímsson,
framkvæmdastjóri LÍÚ. -GG/ÞÁ