Dagblaðið - 10.09.1975, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 10.09.1975, Blaðsíða 1
/lýáfef, álmð dmghh§ 1. árg. — Miðvikudagur 10. september 1975 — 3. tbl. ÞJÓÐVERJAR Á FLÓTTA Svo brá við I gær, þegar Landhelgisgæzlan kannaði, hve margir þýzkir togarar væru að ólöglegum veiðum, að þeir reyndust aðeins vera tveir. Menn spurðu sjálfa sig i morgun, hvort Þjóðverjarnir væru lagðir á flótta, svo að um munaði vegna aukinnar hörku gæziunnar siðustu vikur. Enginn togari var fyrir innan 50 milurnar undan Suðvestur- landi, einn var á Halanum og einn i Víkurál. Vitað er um 19 vesturþýzka togara i grennd við landið, en nær allir voru fyrir utan mörkin r gær. —HH Karðir Islendingar — segir Reuter I morgun — baksiða Niðursuðan sprungin: STJÓRNIN YFIRTEKUR DAG- LEGAN REKSTUR í LAGMETINU — baksíða Svona sumarmyndir var hægt að taka úti á landi, h|á þeim Norðlendingum eða Austf irðingum. 1 Reykjavík rigndi stærst- an hluta sumars, eða þá að dumbungurinn hvolfdi sér yfir þéttbýlissvæðið. Það sakar ekki að sýna fólki hvernig reglulegt sumar litur út á mýihd. (Ljósmynd af sýningunni LJÓS 75 á Kjarvalsstöð- um, eltir Mats^JflUbé REYNDU AÐ SPRENGJA SÍMAKLEFA I LOFT UPP Tveir strákar i Hafnarfirði tóku sig til og fóru að myndast við að búa til heimagerðar sprengjur úr neyðarblysum, Simakiefinn á Þórsplani, þar sem reynt var að granda þessu lifsnauðsyniega mannvirki (ljósm. Björgvin) og innsetta myndin sýnir heimatilbúnu sprengjurnar (ljósm. Bjarnleif- ur). sem þeir stálu. Aðra þeirra bundu þeir upp i simaklefanum i Hafnarfirði og létu svo arka að auðnu, hvernig færi. Að sögn rannsóknarlögregl- unnar i Hafnarfirði sprakk þessi sprengja ekki, enda ekki kunn- áttusamlega gerð. Hins vegar fuðraði hún upp og frussaði mikið, svo sótið spýttist út um allt. I annarri kveiktu þeir á Strandgötunni sjálfri. Hún þeyttist viða um og tókst að brjóta glugga, en var ekki svo vel gerð, að hún spryngi. Lög- reglan hafði svo upp á drengj- unum i gær, og kom þá i ljós, að annar hafði stolið neyðarblys- unum á vinnustað sinum. Hafnfirðingar eru orðnir gátt- aðir á umgengninni um sima- klefann, sem stendur við hliðina á Sparisjóðnum. Þar er varla fyrr búið að laga eftir siðustu skemmdarverk, þegar þau næstu eru unnin. Þó hefur ekki áður verið reynt að sprengja hann iloftupp. —SHH SUMARIÐ SEM BARA SUMIR FENGU Á ENDA Reykvikingar hafa sjálfsagt tekið eftir þvi er þeir héldu til vinnu i morgun, að Esjan var orðin grá niður i miðjar hliðar. Höfðum við þvi samband við Veðurstofuna til að spyrjast fyrir um, hvort haustið væri komið. Guðmundur Hafsteins- son veðurfræðingur varð fyrir svörum og sagðist verða að telja svo væri, veðrið og veðurþróun- in gæfi ekki tilefni til annars. Sagðist hann vilja telja sumarið hafi komið, þvi að veðrið sé við- ar en i Reykjavik, en Reykvik- ingar hafi farið varhluta af nokkru sumri. Fyrir norðan og austan leiki enginn vafi á að sumarið hafi komið við. Ágústmánuður var i Reykja- vik 0,6 stigum undir meðallagi með meðalhita 10,2 stig. Sunn- anlands hefur ekki enn orðið vart næturfrosts, en norðan- lands, i Aðaldal, eru kartöflu- grös fallin. Ekki vildi Guð- mundur segja neitt frekar um, hvenær von væri á vetrinum, nógu erfitt væri að spá aðeins einn eða tvo daga fram i' tim- ann. Um hafis i vetur er ekki hægt að segja að svo komnu máli. Næstu daga verður norðanátt áfram og kalt, ásamt úrkomu- votti viðast hvar á landinu. —BH

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.