Dagblaðið - 31.03.1976, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 31.03.1976, Blaðsíða 8
8 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1976. Kjördœmin keppa: Elzta eða fyrsta vatnsorkuverið? Hclgi Skúli Kjartansson kom að máli víö Dagblaðsmenn og vildi vekja athygli á því aö spurt hafði verið í þættinum Kjördæmin keppa um ,,hvert sé elzta vatnsorkuver á Vetfjörðum”. Ekki hafi verið spurt hver hafi verið fyrsta vatnsaflsvirkjun á Vestfjörðum heldur hver sé sú elzta. Og breyti þetta hlutunum talsvert sbr. það t.d. að Gunnar Thoroddsen er elzti ráðherra okkar en Hannes Hafstein var sá fyrsti. Því hafi rétt svar verið dæmt . Sunnlendingum sem hafi haft sömu aðstöðu til að taka rétt eftir og Reyknesingar. Pétur Gautur Kristjánsson kennari í Keflavík er þó ásamt fleirum annarrar skoðunar og skilur spurninguna „hvert er elzta vatnsorkuver á Vestfjörðum” svo að þar sé eðlilega átt við þá virkjun sem fyrst var' reist en ekki þá virkjun sem lengst hefur staðið. „Annar skilningur er hártoganir.” Hyggjast þeir sem voru í liði Reykjanesskjördæmis kæra úrskurðinn og það komi skýrt fram að með spurningu þeirri sem þeir eiga rétt á að fá stig fyrir hafi þeir sigrað lið Suðurlandskjördæmis sem tapar þá einu stigi og þar með meirihluta stiga í fyrsta hluta keppninnar. Annað svar við spurningu i þættinum um Eldborg á Mýrum hefur lesanda DB þótt orka tvímælis, þar sem það lið er svaraði til „Eldborg á Mýrum” hlaut rétt svar fyrir þrátt fyrir það að Eldborg sé í Hnappadalssýslu en ekki í Mýrasýslu. En engu að síður „á Mýrum”. —BH Drifnir úr bótnum i sjúkrahús Sjómenn tveir voru í fyrradag fluttir úr bát í Vestmannaeyjahöfn á sjúkra- hús staðarins. Grunur lék á að þeir hefðu neytt einhverrar ólyfjanar. Samkvæmt upplýsingum er blaðið fékk á sjúkrahúsinu reyndist hér ekki alvarlegt mál á ferðinni. Helzt er talið að áfengis hafi verið neytt í óhófi. Sjómenirnir gistu sjúkrahúsið i fyrrinótt. —ASt. Myndin hér sýnir fyrstu vatnsafisstöðina sem reist var á Vestfjörðum og lið Reykjaneskjördæmis svaraði að væri elzta vatnsorkuver á Vestf jörðum. Rafstöð þessi var reist á Geirseyri við Patreksf jörð og er gerð nákvæmlega eftir rafstöð þeirri sem reist var i Hafnarfirði 1904, fyrstu rafstöð á Islandi. Þessi stöð var tekin í notkun í júní 1911 og heitir áin sem knýr vatnshverfiiinn Litladalsá. Starfaði rafstöð þessi aiit til ársins 1918 en var þá yfirtekin af Rafveitu Patrekshrepps, dugði hún til raflýsingar sextán húsa á Geirseyrinni. Hverjum skyldi hafa dottið í hug að þessi fyrsta vatnsafIsvirkj- un á Vestf jörðum ætti eftir að valda deilum sextiu og fimm árum eftir að hún var reist? Laus staða Lektorsstada í sagnfrædi í heimspekideild Háskóla íslands er laus til umsóknar. Laun skv. launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknarfrestur er til 1. maí nk. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um ritsmídar og rannsóknir, svo og námsferil og störf, og skulu þær sendar menntamálaráduneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavík. MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ, 26. MARZ 1976. Stúdentar og bolluflöskurnar: Vinstri menn kœra hœgri stúdenta fyrir vínþjóf nað „Þeir gátu ekki gert viðunandi grein fyrir því hvað varð um 312 flöskur af „Rauðvínsbollu" og þess vegna var farið fram á rannsókn,” sagði Garðar Mýrdal, núver- andi formaður í Stúdentafélagi Háskóla íslands, í samtali við Dagblaðið. Nú liggur fyrir í Sakadómi Reykjavíkur kæra á hendur stjórn Stúdentafélagsins árin 1974—75 vegna meintrar fjármálaóreiðu. Það eru vinstrimenn í Háskólanum sem leggja fram þessa ákæru. Arið 1974 voru keyptar 660 flöskur til að veita á Rússagildi í Háskólanum. Þegar upp var staðið voru 312 flöskur eftir, sem virðast hafa horfið. Stjórnarmenn í féiaginu, sem þetta árið voru hægrimenn, gefa sínar skýringar á hvarfinu og segja að samkvæmt gamalli venju hafi hver og einn stjórnarmeðlimur fengið 2 kassa af víni, en það gera samtals 120 flöskur. í smökkun kvöldið fyrir Rússagildi fóru 48 flöskur og 48 flöskur fóru einnig til þeirra sem sáu um auglýsingar á samkvæminu. Magister bibendi, veizlu- stjórinn, fékk tólf flöskur. Endurskoðendur reikninga fengu 24 flöskur, svo samtals eru þetta 252 flöskur. Afgangurinn, 60 flöskur, telja stjórnarmenn að sé eðlileg rýrnun vegna flutnings og geymslu (sbr. bréf í dagblöðum 25. feb. sl.). Verð á þriggja pela flösku af „Rauðvínsbollu”, sem er sömu tegundar og hér um ræðir, er nú í Afengisverzluninni 950.00 krónur. KP Geirfinnsmálið: Fjórði úr- skurðurinn kœrður til Hœstaréttar Sl. laugardag rann út 45 daga gæzluvarðhaldsúrskurður fjórða mannsins sem settur var í ga'zluvarðhald vegna rannsóknar á hvarfi Geirfinns Einarssonar. Var gæzluvarðhaldið framlengt um 30 daga með nýjum úrskurði samdægurs. Hinn nýi úrskurður hefur nú verið kærður til Hæstaréttar, og verða gögn og greinargerðir lagðar fram i dag. Sem kunnugt er staðfesti Hæsliréttur úrskurð Sakadóms um framlengingu á varðhaldi þriggja manna, sem kveðnir voru upp nú fyrir skemmstu. Ekki var dómsrannsókn í Geirfinnsmálinu hafip i gær, en sennilegt talið að hún hefjist i dag eða á morgun. Verða réttarhöld lokuð. sem svo er kallað. enda þótl rétlargæzlumenn verði að sjálfsögðu viðstaddir þau. —BS. Veglegar afmœlisgjafir til ASÍ Margar og vegiegar gjafir bárust Alþýðusambandi Is- lands á 60 ára afmæli félagsins í fyrri viku. Meðal þeirra var brjóstmynd af Guðgeiri Jóns- syni, en hann var forseti ASl á árunum 1942-44. Brjostmyndin er eftir Sigurjón Ölafsson myndhöggv- ara og var henm valinn staður í fttndarsal sambandsins. V;u' það Bókbindarafélag tslands sem gaf þessa gjöf, en Guðgeir var formaður Bókbindat afelagsins um árabil. Annað nstaverk, sem ASI barst í tilefni dagsins. er málverk er Gunnlaugur Seheving listmálari málaði er 'hann var 10-ára gamall. Myndin er al' Ingólfsfjalli séð frá Eyrarbakka. Gefandi þess var Ragnar Jónsson í Smára en hann lagði sem kunnugt er grundvöllinn að stofnun Listasafns ASÍ fyrir Guðgeir Jónsson flutti árnaðaróskir á afmælinu þegar brjóstmyndin af honum var afhent. rúmum áratug með listaverkagjöf sinni. A.Bj.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.