Dagblaðið - 24.11.1980, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 24.11.1980, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1980. I Iþróttir Iþróttir 15 Iþróttir Iþróttir I —kemur hingað gagngert frá Argentínu til að leika með KR á írlandi. Andy Fleming fenginnað lánifráÍR Pélur Guðmundsson, körfuknatt- leiksmaðurínn frábæri, sem nú leikur ÍBV vann Eyjamenn sigruðu með talsverðum yfirburðum i 2. deild íslandsmótsins f sundi, sem fram fór f Eyjum um helg- ina. Alls kepptu 5 félög i deildinni og var keppni jöfn i flestum greinum. ÍBV hlaut 190,5 stig, KR 124, Ármann 104, Sundfélag Hafnarfjarðar 103,5 og ÍBK 62. Eitt Vestmannaeyjamet var sett. Með sigrinum hefur ÍBV tryggt sér sæti' i 1. delldinni að árí. -FÓV. með iiði River Plate I Argentinu við, góðan orðstír kemur gagngert hingað tíl lands á vegum KR-inga og mun fara til írlans með þeim um næstu helgi þar sem KR-ingar taka þátt i alþjóðlegu móti í Dubiin. KR-ingar hafa oft áður keppt á þessu móti og halda nú utan i sjöunda sinn. Pétur verður ekki eini auka- maðurinn hjá KR því ÍR-ingurinn Andy Fleming hefur þekkst boð þeirra um að fara með þeim til írlands. Verður því að telja sigurmöguleika KR-. ingana betri en oftast áður. Munu þeir Jón Sig., Pétur, Keith Yow, Andy Fleming svo og Garðar Jóhannsson eða Ágúst Líndal mynda það lið, sem byrjarímótinu. KR-ingar borga báðar ferðir Péturs til og frá Argentinu en Fleming mun fara á eigin vegum sem og aðrir KR- ingar í hópnum. Verður að telja fram- komu Fleming einstæða því fæstir myndu fara í slíka ferð, sem lánsmenn og þurfa aö borga fyrir sig farið. Hins vegar mun verða ágóðaleikur Ármeraiingar réðu ekki við Jörunda r-bræðuma —Jón og Kristinn skoruðu 49 stig í94-90 sigri ÍR gegn Ármanniígær Það er óhætt að segja að þeir bræður Jón og Kristinn Jörundssynir hafi öðrum fremur verið þeir menn er færðu liði sinu sigur gegn Ár- menningum i úrvalsdeildinni i gær- dag. Jón skoraði 27 stig og mistókst varla skot í leiknum, Kristinn var með 22 í 94—90 sigri ÍR-inganna. Sigurinn var mun öruggari en tölurnar gefa til kynna því er 45 sek. voru til leiksloka var staðan 94—84 ÍR í vil, Kæruleysi í lokin færði Ármenningunum, sem aldrei gáfust upp, 6 stig á silfurfati. Greinilegar framfarir má nú merkja hjá Ármenningum og þeir ættu ekki að hafa áhyggjur af fallinu leiki þeir á- fram eins og i gær. Ármann hóf leikinn af miklum krafti og komst strax yfir. Eftir 8 mín. leik var staðan orðin 22—12 Ármanni í vii en meira varð forskot þeirra ekki. ÍR náði að komast yfir rétt fyrir hlé og i hálfleik var staðan 45—40, liðinu úr Mjóddinni í vil. Svo virtist sem ÍR-ingar hefðu gert út um leikinn í upphafi siðari hálfleiks því þá tóku þeir mikinn kipp og komust í 63—50. Hinir ungu Ármenningar með tröilið Breeler í fylkingarbrjósti gáfust þó aldrei upp og náðu að minnka muninn í 66—67 en jafna náðu þeir aldrei. Aftur tók ÍR kipp en aftur náðu Ármenningar að komast fast að þeim, 77—79, en ekki lengra. Jóni mistókst ekki skot í s.h. og hann skoraði hverja körfuna á fætur annari og þeir Kristinn og Kolbeinn skoruðu einnig mikið. Sigurinn var i raun aldrei í verulegri hættu því Breeler fataðist illa bogaiistin er á leikinn leið og virtist ekki ná sér á strik. Jón Jörundsson átti sannkallaðaðn stjörnuleik hjá ÍR. Undirritaður minnist aðeins eins skots, sem ekki rataði rétta leið hjá honum. Þá var hann fastur fyrir í vörninni. Kristinn, bróðir Jóns, var einnig sterkur og er nú kominn á fulla ferð eftir að hafa byrjað seint að æfa vinnu sinnar vegna. Kolbeinn skoraði mikið en var á köflum fullákaftur í vörninni. Andy Fleming lét ekki mikið á sér kræla en stendur fyrir sínu þótt ekki fari mikið fyrir honum. Þau orð eiga hins vegar ekki við um James Breeler í Ármannsliðinu. Það fer mikið fyrir honum á velli — hvernig sem á það er litið. Hann byrjaði með látum en hitti siðan ekki eins vel og hann er vanur. Davíð Ó. Arnar hóf leikinn af fítonskrafti en fékk snemma á sig 4 villur og var kældur eftir það. Undarlegt að nota hann ekki í lokin. Atli Arason skoraði talsvert en átti slæmar villur inn á milli. Valdimar Guðlaugsson kom ekki inn á fyrr en í s.h. og stóð sig vel þó svo að nokkrum sinnum hafi hann skotið óyfirvegað. Hins vegar er undarlegt að hann skuli ekki vera i byrjunarliðinu. Gamlir jaxlar eins og- t.d. Guðmundur Sigurðsson stóðu sig mjög vel í leiknum. Hallgrímur Gunnarsson lék nú með eftir rúmlega tveggja ára hlé en var lítt áberandi. Annars má segja Ár- mannsliðinu það til hróss að þar er aldrei gefizt upp og það virkar sterkt fyrir þá að allir leikmenn komust á blað. Stigin. ÍR: Jón Jörundsson 27, Kristinn Jörundsson 22, Kolbeinn Kristinsson 20, Andy Fleming 18, Sigmar Karlsson 6, Stefán Kristjánsson 1. Ármann: James Breeler 34, Atli Arason 16, Davíð Ó. Arnar 10, Valdi- mar Guðlaugsson 8, Guðmundur Sig- urðsson 8, Kristján Rafnsson 4, Björn Christiansen 4,-Hallgrímur Gunnars- Margrét skoraði 12 mörk Skagadömurnar fengu heldur skell er þær mættu ofjörlum sfnum úr FH meö Margréti Theódórsdóttur, fyrrum Haukaleikmanni i fylkingarbrjósti. FH sigraði 26-13 eftir að hafa leitt 15-5 i hálfleik. Akranesliðið hreinlega sat eftir í startholunum og FH náði fljótt yfir- burðastöðu. Virtust heimastúlkurnar hreinlega hræddar við andstæðinginn. Margrét Theódórsdóttir skoraði 12 mörk fyrir FH — þar af 6 úr vítum, Katrín Danivalsdóttir var með 8, Kristjana Aradóttir 2, Sólveig Birgis- dóttir, Kristín Pétursdóttir, Hildur Harðardóttir og Sigurborg Eyjólfsdótt- ir 1 hver. Fyrir ÍA: Laufey Sigurðar- dóttir 5/1, Ragnheiður Jónasdóttir 3/1, Hallbera Jóhannesdóttir 3, Sigur- veig Runólfsdóttir og Lára Gunnars- dóttir 1 hvor. -vb/-SSv. AZ ’67 er óstöðvandi AZ '61 frá Alkmaar er gersamlega óstöðvandi i hollenzku úrvalsdeildinni i knattspymu og sigraði að vanda um helgina. Hefur nú aðeins tapað einu stigi f 13 leikjum. Úrslitin i Hollandi urðu þessi: Pétur Pétursson er byrjaður að æfa á ný eftir meiðslin sem hapn hlaut og sfð- ar varð að skera við. Hann fór á sina fyrstu æfingu i byrjun siðustu viku og skokkaði þá i 20 min. eða svo. Eðlilega er hann úr allrí æfingu en ekki er taliö óvarlegt að ætla að hann verði kominn á fulla ferö á ný um mánaðamótin janúar/febrúar. -SSv., NAC Breda—Sparta Wagenlngen—PSV Eindhoven Deventer—Groningen Roda—Excelsior Utrecht—Den Haag Feyenoord—PEC Zwolle Twente—NEC Nijmegen Maastricht—Ajax Willem II—AZ '61 Efstu liðin eru nú þessi: AZ '61 13 12 1 Feyenoord 13 9 2 Utrecht 12 7 2 Twente 12 7 2 Maastricht 12 6 3 S—0 0—3 2-0 1—1 5— 0 3—1 6— 1 1—1 0—2 -12 25 -12 20 -14 16 -15 16 -19 15 son 2, Bernharð Laxdal 2, Hörður Arnarson 2. Ðómarar voru Hörður Tulinius og Kristbjörn Albertsson og dæmdu ágæt- lega. Nokkrir dóma Harðar fannst undirrituðum þó orka tvímælis. -SSv. vegna þessarar ferðar í Keflavík 19. desember þar sem úrval af Suður- nesjum og Irlandsfarar KR leika saman. Fái KR-ingar eitthvað í kassann er ætlunin að endurgreiða Fleming út- gjöld hans. Vikan framundan verður því ekki beint létt yfirferðar fyrir KR-inga. Leikur á morgun við Njarðvík, á fimmtudag við ÍS og síðan þrír leikir á laugardag í mótinu i Dublin og hugsanlega sá fjórði á sunnudag ef liðið kemst í úrslit. -SSv. Staðan í úrvalsdeildinni Staðan í úrvalsdeildinni er nú þannig eftir leikina að undanförnu: Ármann-ÍS Njarðvík-ÍR Valur-ÍS ÍR-Ármann Njarðvík KR Valur ÍR ÍS Ármann 67—57 85—76 80—76 94—90 0 586—482 12 1 452—401 8 3 612—606 4 679—688 6 558—604 6 545—651 Næsti leikur i deildinni er á morgun og þá eigast KR og Njarðvik við í Höllinni. Ekki þarf að efa að þar verður hrökuleikur á fjölunum. Pétur Guðmundsson leikur meö KR á írlandi. NÝKOMU) V JVBO K venskuldaskór í úrvali Teg.204 Loðfóðmö og moð hrágúmmisóla. Litír: Nougat, rúskinn eða kaffi- brúnt rúskinn eða kaffibrúnt rúskinn. Stærðir 3—8, i 1/2 nr. Verð kr. 45.770 Jg* Teg. 220 Loðfóðruð og með hrógúmmisóia. Lrtír: Nougat rúskinn eða kaffi- brúnt rúsklnn. Stærðlr 3—8, i 1/2 nr. Verö kr. 45.770 Teg.227 Loðfóðruð og með hrógúmmisóla. Utír. Svart rúskinn eða kaffibrúnt rúskinn. Stærðir 3—8, i 1/2 nr. Verö kr. 45.770 457,70 Teg.206 Lóð fóðruð og með hrógúmmísóla. Litur: Svart rúskinn Stærðir 3—8, i 1/2 nr. Verð kr. 45.770 %% Skóverz/un Teg.221 Loðfóðruð og með hrágúmmísóla. Litur: Svart rúskinn. Stærðir 3—8, i 1/2 nr. Nýkr. 457,70 Verð kr. 45.770 Teg.209 Loðfóðruð og með hrógúmmisóla. Utur: Brúnt rúskinn Stærðir 3—8, í 1/2 nr. Nýkr. 457,70 Verð kr. 45.770 Póstsendum Þórðar Péturssonar Kirkjustræti 8 v/Austurvölj sími 14181 Laugavegi95, simi 13570. Pétur með KR til írlands *

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.