Alþýðublaðið - 23.09.1976, Blaðsíða 6
6 VETTVANGUR
Fimmtudagur 23.
september 1976
SSBT
Shák
Fetið í fótspor
meistaranna!
Hvítur á leik qg vinnur
1. He8 skák, Hxe8. 2. Dg4 skák,
DxD. 3. Rf6 mát. (Gudju-
Bogdanowsky, Paris 1929)
l.Hxe5 Dxe5.2. Rg6 Gefiö
(Gargulak-Kogan, 1909)
1. Db5 akák, Rd7. (ef DxD þá
Rf6 mát) 2. Hel, Bb4. 3. Rf6 skák
og fráskák, Kf8. 4. Rxd7 skák,
Hcd7. 5. De5 Gefið.(Aljechin-
Kussman, New York 1942 fjöl-
tefli)
WM m>, H ■ IH SpH
H§ mm, ■ mm wm
WÁ WB, m. wm. 'W/M
■ m ■ WM
Éi .. . W/Æ mm
ggp ggg
ɧ W\ ■wm m. :
mk jg ■ mm
1. Bb2! Hf7. 2. Hh4 skák, Kg8. 3.
Hh8 mát.
1. Bb2! Hg6. 2. Hd8 skák, Kh7. 3.
Hh8 mát.
1. Bb2! Hh6. 2. Hg4 skák, Kh7. 3.
Hg7 skák, Kh8. 4. Kbl! Svartur
kemst ekki hjá þvi aö tapa
hróknum i næsta leik. Tafllok
eftir R. Bianchetti 1925.
W/, 'mz, jp m
WÁ m, Í i
i ww. §§§ w W, m, hp
ip i mm 'w, §§§
VÆ, á Wm, WM, il!ll
H W/ m €rrW/ &
& §§§ HP Wrn if gf
mm Hf jf P
1. Hc8, Hxc8. 2. De7 Gefiö.
úr fjöltefli hjá Aljechin.
Frá fundi kjördæmisráðs Alþýðuflokksins í Suðurlandskjördæmi:
„Ekki kemur til greina
að endurnýja samninga
við Breta og Þjóðverja"
A fundi kjördæmisráös
Alþýðuflokksins i Suðurlands-
kjördæmi, sem haldinn var um
siöustu helgi, voru gerðar álykt-
anir um margvisleg mál.
Þessar ályktanir fara hér á
eftir:
Eftirfarandi ályktanir voru
samþykktar á fundi kjördæmis-
ráðs Alþýðuflokksins, sem hald-
inn var i Vestmannaeyjum 18.
og 19. september 1976.
□ Vilja enga
samninga
Kjördæmisráðið lýsir þeirri
skoðun sinni, að ekki komi til
greina að endurnýja samninga
við Breta og Vestur-Þjóðverja
um fiskveiðar innan 200 milna
landhelginnar eftir að þeir falla
úr gildi, né verði gerðir nýir
samningar við aðrar þjóðir.
Einnig að stranglega verði
fylgzt með veiðum Islendinga i
fiskveiðilögsögunni.
D Ástand skatta-
mála fáránlegt!
Kjördæmisráðið telur ástand-
ið i skattamálum þjóðarinnar
fáránlegt, og bendir meðal
annars á þessi atriði til úrbóta:
1. Að skattayfirvöldum verði
heimilað að leggja tekjuskatt á
einstaklinga með sjálfstæöan
atvinnúrekstur, eins og þeir
væru i vinnu hjá öðrum, á
svipaðan hátt og gert er viö
útsvarsálagningu.
2. Að endurskoða fyrningar-
reglur til lækkunar og að
skattur verði lagður á fyrn-
ingar, þegar afskrifuð eign er
seld og þegar hluthafar selja
eign sina i hlutafélögum.
3. Að komið verði á staö-
greiðslukerfi skatta.
4. Að stórauka skatteftirlit og
þyngja viðurlög við brotum til
mikilla muna.
□ Stöðva pólitíska
misbeitingu í
dómskerfi
1 þeirri holskeflu afbrota og
spillingar, sem riðið hefur yfir
þjóðina að undanförnu, hefur
komið i ljós, að yfirvöld réttar-
gæzlu i landinu og dómstólar
eru vanmegnugir að upplýsa
mál og koma fram lögum. —
Yfirvöld dómskerfisins geta þvi
aðeins unnið á ný traust
almennings i landinu, aö fram
fari endurskipulagning réttar-
gæzlu i landinu, þar sem meðal
annars verði lögð áherzla á aö
breyta þannig tilhögun við
veitingu dómaraembætta að
pólitiskrar misbeitingar gæti
ekki, — að úrelt löggjöf i réttar-
fari verði færð I nýtizkulegra
horf og að stórauknar verði
fjárveitingar til dómskerfisins.
□ Hefur laðað
fram örgustu
íhaldsöflin
Kjördæmisf-áð leyfir sér að
fullyrða, að núverandi rikis-
stjórn hafi laðað fram örgustu
ihaldsöfl, sem þróast geta i
islenzku þjóðlifi. Rikisstjórnin
hefur skert svo kjör islenzkrar
alþýðu að velflestar fjölskyldur
eiga i stöðugt meiri erfiðleikum
með að afla lifsnauðsynja. — A
sama tima raka hópar efna-
manna saman milljónum króna,
sumir með aðferðum, sem ekki
yrðu liðnar refsingarlaust i
öðrum siðuðum löndum. Núver-
andi rikisstjórn er stjórn
peningamanna i báðum
flokkum, sem launafólk verður
að taka afstöðu til í næstu
kosningum og tryggja að fari
ekki framar með völd i landinu.
□ Endurskoða
reglur um
bankaleynd
A timum óðaverðbólgu verða
kröfur til banka- og útlánastofn-
ana um heiðarleg og hlutlæg
vinnubrögð i lánveitingum enn
mikilvægari en ella. Við blasir
að bankakerfið ris ekki undir
þessum kröfum. Á þessu þarf
þegar að ráða bót. Meðal annars
þarf að endurskoða reglur um
bankaleynd og reglur um
ráðningu og störf bankastjóra.
□ Efling iðnaðar
þýðingarmesta
leiðin
Einhæfni er mesti veikleiki
hins fslenzka efnahagslifs.
Efling iðnaðar i landinu er
þýðingarmesta leiöin til úrbóta.
Iðnaðurinn vecur að njóta sömu
fjárhagsfyrirgreiðslu og aðrar
atvinnugreinar, og stórefla þarf
rannsóknarstarfsemi i þágu
iðnaðarins. Þá er það megin-
verkefni að dreifa uppbyggingu
iönaðar út um landið, meðal
annars með þvi að veita iðn-
fyrirtækjum i dreifbýli skatta-
ivilnanir. — Einnig þarf aö
tryggja, að islenzkur iðnaöur,
þar með talinn fiskiðnaður, njóti
sömu kjara við rafmagnskaup
og erlend stóriðja i landinu. — í
framhaldi af þessu krefst
kjördæmisráðið þess, að yl-
ræktarver það, sem nú er i ráði
að reisa i samvinnu við erlenda
aðila, verði reist i Hveragerði.
□ Orkubú
Suðurlands
Kjördæmisráð telur, að
stefnt skuli að þvi að koma á fót
orkubúi Suðurlands, sem kaupi
raforku af Landsvirkjun, án
óþarfa milliliða, eins og nú er. —
Þá eru átalin harðlega vinnu-
brögð, sem viðgengizt hafa við
sumar framkvæmdir I orku-
málum.
□ Fráleitt að leggja
söluskatt á
flutninga
Kjördæmisráðið telur brýna
nauðsyn bera til að jafna
aðstöðu landsmanna eftir
búsetu og bendir i þvi sambandi
á misrrunandi upphitunar-
kostnað ibúðarhúsa og mis-
munandi vöruverð eftir lands-
hlutum. — Kjördæmisráöið
telur, að jafna megi þennan
aðstöðumun að verulegu leyti
með breytilegum persónufrá-
drætti til tekjuskatts. —
Ennfremur telur kjördæmis-
ráðið fráleitt að leggja söluskatt
á flutninga innanlands, sem
eykur enn á mismun vöruverðs
eftir landshlutum.
□ Áfengisneyzla
mesta bölið
Ljóst er, að áfengismál
islenzku þjóðarinnar eru nú
komin á það stig, að nefna má
mesta böl, sem við er að striða á
Islandi. Þess vegna telur kjör-
dæmisráðið, að einskis megi
láta ófreistaö til að efla áfengis-
fræðslu i landinu, sérstaklega i
barna- og gagnfræðaskólum,
nýta rikisfjölmiðlana til hins
ýtrasta i þessum tilgangi og
stefna að þvi að áfengi verði
svipt þeim dýrðarljóma, sem
um það hefur leikið.
□ Meiri
rannsóknir á
heyverkun
Eftir tvö rigningarsumur á
Suður- og Vesturlandi verður
alþjóð ljósari nauðsyn þess, að
bændur veröi ekki eins háðir
veðurfari með heyþurrkun og
raun ber vitni. Langvarandi
ótið, eins og verið hefur, getur
haft alvarlegar og ófyrirsjáan-
legar afleiðingar fyrir hina
mikilvægu atvinnugrein, land-
búnaðinn, i heild. — Þvi ber að
leggja mun meiri áherzlu en
verið hefur, á rannsóknir og til-
raunir, sem stuðlað gætu að
nýjum aðferðum til heyverk-
unar. Mun meira fjármagni
þarf að verja til þessara til-
rauna en nú er gert.
□ Brú á Ölfusá
við Óseyrarnes
Kjördæmisráðið skorar á
samgönguráðherra að láta fara
fram athugun og hefja fram-
kvæmdir i samgöngumálum
héraðsins, meðal annars með
þvi að auka viðhald vega frá þvi
sem nú er. Einnig að leggja á ný