Vísir - 25.04.1969, Blaðsíða 1

Vísir - 25.04.1969, Blaðsíða 1
Þjófarnir lásu ekki stjörnuspána! • Innbrotsþjófar hefðu betur hugað í stjörnuspá VÍSIS í fyrra- dag, áður en þeir fóru á kreik til sinnar skuggalegu iðju í nótt og fyrrinótt. Þeir höfðu vart byrjað verk sitt fyrr en íögreglan var komin aö þeim og hirti þá upp. Þeir voru allir staðnir að verki. Hefðu þeir litið í stjörnuspána, hefðu þeir getað lesið undir Hrúts merkinu: „Þetta er dálítiö varhuga verður dagur. „Tvíburamerkið: — „Fremur dagur til hugleiðinga en framkvæmda“. Krabbamerkið: — „Hafðu þig ekki mjög í frammi í dag“. Bogmannsmerkið: „Vara- samur dagur hætta á að einhver mistök gerist, er haft geti óþægi- legar afleiöingar fyrir þig á næst- unni.“ Nálega 1 hverju stjörnumerki Lögreglan stendur nú vörð við alla næturklúbbana, sem ætlunin er að halda lokuðum a. m. k. þar til dómsniðurstaðan fæst. Við Playboy-klúbbinn kom til töluverðra átaka í fyrrinótt og aftur í nótt. Næturklúbbunum endunlegu lokuð? Sex forráðamenn þeirra handteknir og settir i viku gæzluvarðhald. At’ók við Playboy-klúbbinn ■ Þetta er stórfenglegasta sprúttsala, sem ís- landssagan kann frá að greina, sagði einn af mörg- um lögregluþjónum, sem ruddust inn í næturklúbb- ana fimm skömmu eftir miðnætti í fyrrinótt. — Þessu hafa þeir aldrei búizt við, — að verða lokaðir inni í heila viku, sagði annar, sem var settur til að vakta að enginn kæmist inn í klúbbana í gærkvöldi, og það var ekki laust við að það hlakkaði eilítið í honum. Öllum næturklúbbunum fimm hefur nú verið lokaö og forráöa menn þeirra úrskurðaðir í allt að viku gæzluvarðhald. Klúbbam- ir verða ekki opnaðir fyrr en dómsniðurstaða fæst í máli þeirra. sagði Bjarki Elíasson, yf- irlögregluþjónn, en að sjálf- sögðu • Tða þeir ekki opnaðir þá, ef dómsniðurstaðan veröur þeim i óhag. Alls voru sex forráðamenn klúbbanna handteknir og úr- skurðaðir i gæzluvarðhald, þó að klúbbamir séu aðeins fimm. í Club de Paris reyndust vera tveir menn, sem ekki gátu gert það upp við sig, hvor væri for- ráðamaður klúbbsins með þeim afleiðingum að þeir voru báðir settir inn Fréttamaöur Vísis fylgdist með því. sem gerðist við Apollo klúbbinn við Grensásveg. Allar dyr voru lokaðar þegar hann kom á staðinn og lögregluvörður settur við útganga. Við gesta- dyr hafði safnazt saman álitleg- ur hópur manna, sem dreif aö úr veitingahúsum borgarinnar, sem höföu þá lokað nýlega. Lögreglan neitaði öllum um að fara út úr klúbbnum, svo og að nokkur færi inn. Fréttamaður reyndi inngöngu í því skyni, að geta skrifaö haldgóða lýsingu á því, sem fram fór. Skyndilega opnuðust dyr á suðurgafli húss- ins. — innandyra var þögn og spenna í loftinu, — andrúmsloft ið sprengihætt og titrandi. Ragnar Vignir, rannsóknarlög reglumaður stóð þar ásamt 2 — 3 félögum sínum, en með þeim var Ásgeir Magnússon, forstjóri klúbbsins. Inngönguleyfj fékkst ekki og dyrnar lukust aftur. Nokkru síðar yfirgáfu lög- reglumennirnir klúbbinn ásamt vínbirgðum, bókhaldi og fleiru, sem sakadómur ætlar að nota sem sönnunargögn fyrir vínsölu í klúbbnum. Forstjórinn fór með og var tekinn til yfirheyrslu hjá rannsóknarlögreglunni ásamt ,,kollegum“ sínum fimm, en síð an voru þeir fluttir í Fangahúsiö við Skólavörðustíg og geymdir þar um nóttina. Að sögn Bjarka Elíassonar, yf irlögregluþjóns fór þetta allt frekar friðsamlega fram. Aðeins kom til átaka viö einn klúbb. — Playboy-klúbbinn, þar sem dyraverðir reyndu að koma for- stjóra sínum til hjálpar, þegar lögreglan leiddi hann út. Til nokkurra átaka kom þar á milli lögreglu og dyravarða og mega þeir eiga von á kæru vegna at- ferlis síns. í gær og í nótt var allt meö friði og spekt við næturklúbb- ana, nema við Playboy-klúbb- inn, þar sem aftur kom til átaka lögreglu og starfsmanna klúbbs ins. Gjaldkerinn kom að staðn- um og vildi komast inn. Þegar lögreglan neitaði honum um það stökk hann að hurðinni, en um leiö köstuðu dyraverðir henni upp og tókst þannig að koma lögregluþjóni frá og slapp gjald- kerinn inn. Skömmu seinna var hann tekinn í vörzlu lögregl- unnar. Þórður Bjömsson, yfirsaka- dómari sagði í viðtali við Vísi í morgun, að rannsókn í þessu máli beindist að því, hvort selt hafi verið í klúbbunum áfengi án tilskilinna leyfa. Hann vildi ekkert frekar um málið segja og vildi t. d. ekki svara því, hvort meðlimir klúbbanna væra samsekir. Bjarki Elíasson, yfirlögreglu- þjónn sagöi hinsvegar, að heim- ild til húsrannsóknar, sem saka- dómaraembættið veitti, væri eins konar viöurkenning á því, að starfsemi klúbbanna væri ó- lögleg og því myndi lögreglan sjá svo um, að þeir yrðu ekki opnaðir aftur. Stopp á mjólk og olíu á mánudag 9 Mjólkurverkfallið byrjar á mánudaginn. Síðustu forvöð að kaupa inn mjólk handa börn- unum er á morgun. Svo kemur sunnudagur, verkfall frá mánu- degi til miðvikudags að báðum meðtöldum og loks 1. maí, frí- dagur verkafólks. Jafnvel í kæli- ' skáp er erfitt að geyma mjólk- ina óskemmda í langan tíma. — Olíudreifingin stöðvast í Reykja- vík og Hafnarfirði sömu daga. Það er öruggara að fá bensín á tankinn, en bannað er að geyma bensinið í skúrum sínum og kiöHurum, eins og stundum hafa verið nokkur brögð að, vegna eldhættunnar. í morgun mynd- aðist mikil ös við mjólkurbúðir víðast hvar i Reykjavík. Verkfallið skapar mestu vinnslulotu vertíðarinnar Starfsfólks fiskvinnslustöðvanna I til vinnu á þriðjudaginn eftir bíður mesta vinnulota þessarar verkfallið. vertíðar, þegar það kemur aftur' Flestallir vertíðarbátar hér suð- Fræðimenn ekki á einu máli um síðasta einvigið • Fréttin um einvígisáskorun Skúla Thoroddsens á hendur Bretlandsdrottningu hefur flog- ið um heim eins og hvalsaga. — Hefur upphringingum og eftir- grennslunum fréttamanna utan úr heimi heldur ekki linnt og áskorandinn haft töluverðan er- il af. Þykir mönnum erlendis, eins og hér heima sagan skemmtileg og hafa af henni nokkurt gaman, enda ekki á hverju strái menn, sem halda þannig uppi merki riddara- ! aldanna, og einvígisáskoranir því orðnar næsta fátíðir viðburðir — minnsta kosti meöal hinna svo- nefndu siðmenntuðu þjóða. Hér heima hefur þetta atvik orð- ið eitt aðalumræöuefnið við kaffi- bollann og orðiö til þess að menn hafa rifjaö upp sögu einvíga hér. Síðasta einvígiö telja menn, að j hafi verið hólmganga þeirra Gunn- laugs ormstungu og Hrafns, þegar þeir börðust f Öxarárhólma um ást- ir Helgu fögru, en svo var fullvrt 10. síða. vestanlands eru nú á útilegu og koma ekki að landi fyrr en á þriðju dag. Bátarnir tóku ís um borð í gær og munu sjómenn slægja afl- ann um borð og ísa þessa fjóra daga. Is var víðast hvar upp urinn í ver- stöðvunum í gær og fengu margir bátanna ekki eins og þeir þurftu. — Búast má við að smærri bát- arnir að minnsta kosti verði komn- ir með sneisafullar lestar eftir þessa fjóra daga, ef veiðin verður eins og hún hefur verið aö undan- förnu. — Þurfa sumir raunar ekki að fá nema einn góðan afladag til þess að fylla lestarnar. Fáir eða engir vertíðarbátanna eru í landi þessa verkfallsdaga, en búizt var við að margir minni bát- anna myndu taka upp net sín og jafnvel hætta veiðum í gær. Ver- tiðin heldur því áfram sinn vana gang eftir verkfallið. mátti finna aðvörun um. að þeir væru í öldudal óheppninnar. Þjófar hafa líka veriö með af- brigðum seinheppnir að undan-, förnu og sjaldan jafnmargir verið staðnir að verki á jafnstuttum tíma. í gærkvöldi brauzt einn inn í söluturninn í Þverholti 5, en íbúi úr nágrenninu varð hans var og gerði lögreglunni viðvart. Brá hún við skjótt og náði líka þjófnum, meðan hann var enn inni í verzlun- inni. I nótt sást til tveggja ungra manna gera tilraun til þess að brjótast inn um sölulúgu á húsi nr. 34 við Laugaveg, en lögreglan kom og stóð þá að verki. Krókloppnir iúðrnþeyfsirar — sjá bls. 16 Faidi 80 þús. í kirkjugarðinum — sjá bls. 16 Losa Frakkar sig við de Gaulle? — eftir Þorstein Thorarensen á bls. 8

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.