Lesbók Morgunblaðsins - 18.10.1980, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 18.10.1980, Blaðsíða 1
Yfirlitssýning 33 ára að Kjarvalsstöðum Af því tilefni birtir Lesbók nokkrar myndir Braga og sjálfur skrifar hann um þær. Um myndina á forsíðunni, sem heitir GRANADASTÚLKAN, segir hann: Litla, frumstæöa og ósnortna þorpið „Castel de Ferro" liggur við suðurströnd Spánar, miðsvegar milli Malaga og Almeríu, en þar var ég staddur í maímánuði árið 1952.1 útjaðri þorpsins var brunn- ur og þangað sóttu staðarbúar vatn og báru í stórum könnum á mjöðm sér. Ég man ekki eftir því, að ég sæi nokkurn karlmann við þessa iðju, en allan liðlangan daginn var straumur af konum á öllum aldri að vatnsbólinu, fátæklegum til fara og næsta undantekningar- laust svartklæddum. Ég undraðist, hve léttilega konurnar báru hinar stóru könnur og að ekki sá neitt á vaxtarlagi þeirra þrátt fyrir ára- tuga vatnsburð — gangur þeirra með könnurnar var hægur og jafn, næstum silalegur. Mér þótti þetta mjög myndrænt og gerði fjölda frumrissa af þessum konum. Á miðri leið til uppsprettunnar var einangrað hús upp í hlíðar- slakka og umhverfis það traust rimlagirðing, auösjáanlega bústað- ur fyrirfólks. Ég sat iðulega á steini nálægt brunninum, horfði á og teiknaðlkonurnar, sem stungu saman nefjum og brostu við hinum unga, forvitna manni og höfðu lúmskt gaman af athyglinni, eink- um þær yngri. Út um hliðið fyrir framan dularfulla húsið kom stundum unglingsstúlka, er var betur og litríkar til fara en þorps- konurnar og vakti sérstaka athygli mína fyrir fagran limaburð. Hún virtist raunar skipta um klæðnað í hvert skipti, er hún sótti vatn í könnu sína, er ég sat við brunninn og teiknaði, líkast því sem hún vildi vekja á sér athygli. Eitt sinn, er hún hafði fyllt könnu sína og mjakaðist fram hjá mér, tók ég eftir því, að iiún imfÖÍ 2.n.Jrt sérstaklega, m.a. málað á sér varirnar og frá henni barst ferskur rósailmur. Þetta var allt svo und- ursamlega myndrænt, ljósblár • :• , Í!í ' w p kjóllinn, rauðar varirnar, fölroði á kinnum, kolsvart hárið, hin blökku blikandi augu, æskufegurð ungl- ingsstúlkunnar samsamaðist sumardeginum og sólin skein á líkama hennar. Eitt augnablik fannst mér myndast eitthvert furðulegt samband milli mín, siulliuliy oe verundarinnar allt um kring og að ég væri unair áhrifum einhvers upphafins dul- magnaðs seiðs. — Er ég gerði þessa tréristu í Ósló nokkrum mánuðum seinna, reyndi ég að ná fram samanlögðum áhrifum þessa augnabliks sérstak- lega á eitt eintakið, en til þess varð ég að mála á plötuna, áður en ég þrykkti hana. Það hendir enn þann dag í dag að um mig fari undarlegur, fjar- rænn og seiðmagnaður straumur, er hugurmn lenof 0R minnist við þetta atvik.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.