Lesbók Morgunblaðsins - 18.10.1980, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 18.10.1980, Blaðsíða 10
otoPL - yfirlitssýning „SJÓRINN HVARF OFAN í HAFIГ Fyrsta veturinn minn í Kaupmannahöfn kom Þórbergur Þórðarson eitt sinn í heimsókn til Stein- unnar og Þórðar, ný- kominn frá Rússlandi. Hann gekk um gólf allt kvöldið og sagði ferða- sögu sína. Ein setningin vakti óskipta athygli viðstaddra, og er hún kveikja hugmyndarinnar að baki þessarar myndar MODEL (1958—59) Fyrirsætan á þessari mynd var mjög vel vaxin og fíngerð. Ég tók þá stefnu að draga fram þessi atriði í heild. MODEL (1958) Ég geröi þessa mynd á fyrstu mánuðum tveggja ára dvalar í Múnchen í Suöur-Þýskalandi. Hún er gerö í frjálsum módeltíma á listaháskólanum og er af mjög órólegri og stórgerðri konu, er setti sig í mjög furðulegar stellingar, snúnar og undnar. Ég gerði margar myndir af andliti hennar og líkama öllum, en í þessari mynd sleppti ég andlitssvipnum og lét hreyfingar líkamans ráða ferðinni. Samsetning myndþátta í heild eiga að undirstrika hinn órólega, sálræna frumkraft innra með konunni.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.