Alþýðublaðið - 16.06.1988, Blaðsíða 1
Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra
ÆTLAR RÍKISSTJÓRNIN
RARA AÐ SLAKA Á?
Jón Baldvin Hannibalsson
fjármálaráðherra segir að á
sama tíma og ríkisstjórnin
kvarti undan þvi að aðrir aðil-
ar séu á þeim buxunum að
brjóta hennar ákvarðanir og
löggjöf, verði að segjast eins
og er, að hún sé að því sjálf.
Hann segir stefna i halla i
rikisbúskapnum upp á tæpan
hálfan milljarð áður en komið
er að auknum útgjaldakröfum
landbúnaðarins auk þess
sem lánsfjáráætlun sé komin
rúmlega 3 milljarða fram úr,
vegna aukinna heimilda fyrir
erlendum lánum. „Þar með
stendur ríkisstjórnin frammi
fyrir því hvort hún ætlar að
standa við stefnu sína og
leita annarra leiða, með niö-
urskurði eða auknum tekjum,
eða hvort hún ætlar bara að
slaka á,“ sagði Jón Baldvin
við Alþýðublaðið í gær.
I yfirlýsingu ríkisstjórnar-
innar í kjölfar gengisfellingar
I maí segir fullum fetum að
til aö auka aöhald að ríkisút-
44. þjóðhátiðardagur islendinga er á morgun og starfsmenn Reykjavikurborgar höfðu í nógu aö snúast
við undirbúning hátiðarhaldanna i Hljómskálagarðinum i gær. Víst er að mikið verður um dýrðir hvernig
sem viðrar. A-mynd/Róbert.
gjöldum í því skyni að tryggja
hallalausan ríkisbúskap á
árinu '88 verði framlög úr rík-
issjóði til ráðuneyta stofnana
og ríkis fyrirtækja einungis
hækkuð að því marki að rekja
megi aukna fjárþörf til meiri
launahækkana en gert var
ráð fyrir í fjárlögum 1988.
Þetta segir Jón Baldvin að
þýði með öðrum orðum, að
ríkisframlög, fjárfestingar við-
hald og tilfærslur sem ekki
eru launatengdar, eins og t.d.
niðurgreiðslur eigi að vera
innan ramma fjárlaganna.
„Að óbreyttu er Ijóst að við
þetta er ekki staðið, sem
leiðir til þess að við stefnum
í að brjóta þetta grundvallar-
atriði, með halla í ríkisrekstri
auk stóraukinna heimilda
fyrir erlendum lánum upp á
rúmlega 3 milljarða nú þegar
umfram lánsfjáráætlun. Hvort
tveggja er að fara úr böndun-
um,“ sagði Jón Baldvin.
Hvað ætlar fjármálaráð-
herra að gera? Hann segist
gera mönnum grein fyrir
hvert stefni og sýna horfurn-
ar til loka þessa árs, um halla
upp á tæpan hálfan milljarð
áður en komið er að útgjalda-
kröfum landbúnaðarins auk
þess að vekja athygli á því
hvernig komið er með láns-
fjáráætlun. Þá segist hann
vilja rifja upp fyrir mönnum
ýmsar stefnumarkandi
ákvarðanir um að halda uppi
ströngu aðhaldi.
„Þar með stendur ríkis-
stjórnin frammi fyrir því hvort
hún ætlar að standa við
stefnu sina og leita annarra
leiða, með niðurskurði eða
tekjuöflun, eða hvort hún
ætlar bara að slaka á,“ sagði
Jón Baldvin.
mánaða fangelsisdóm yfir
Arnór: Valgeirssyni deildar-
stjóra hjá Sambandinu, og
sýknaði hann af öllum kröf-
um.
Þá staðfesti Hæstiréttur
ákvæði Sakadóms yfir Hjalta
Pálssyni um fangelsi í 12
mánuði. Rétturinn staðfesti
einnig 7 mánaða fangelsis-
dóm yfir Sigurði Árna Sig-
urðssyni og þriggja mánaða
fangelsisdóm Gísla Theó-
dórssonar.
í Sakadómi voru þeir Hjalti, •
Sigurður og Gísli dæmdir I
skilorðsbundið fangelsi og
fullnustu þessara fangelsis-
dóma frestað að undanskild-
um þremur mánuðum af refs-
ingu Hjalta. Hæstiréttur mild-
aði dóminn yfir Hjalta og úr-
skurðaði að fresta skuli fulln-
ustu refsingar þeirra allra og
þær falli niður að tveimur ár-
um liðnum ef þeir halda
almennt skilorð.
Tveir Hæstaréttardómarar
skiluðu sératkvæði, Magnús
Thoroddsen og Guðmundur
Jónsson, og vildu sýkna alla
ákærða og láta rikissjóð bera
málskostnað hinna ákærðu i
héraði og fyrir Hæstarétti.
Hæstiréttur felldi i gær
dóm í Kaffibaunamálinu.
Erlendur Einarsson, fyrrver-
andi formaður SÍS var sýkn-
aður af kröfum ákæruvalds-
ins og staðfestir þar með
sýknudóm hans i Sakadómi
Reykjavíkur í febrúar 1987.
Hæstiréttur ógilti tveggja
HEIIHILOARLAUS HÆKKUN
Á NIOURGREIOSLUM?
„Það liggur Ijóst fyrir að Framleiðsluráð landbúnaðarins með
tilstilli landbúnaðarráðherra hefur þegar í mars tekið sér vald til
þess að breyta gjaldskrá niðurgreiðslna, sem þýðir að
niðurgreiðslurnar eru komnar 150 milljónir umfram fjárlög nú
þegar fyrir 1. júní. Það er því algjörlega út í hött að um sé að
rœða einhverjar verðhœkkanir af völdum söluskatts á landbúnað-
arafurðir á nœstunni, “ segir Jón Baldvin Hannibalsson fjármála-
ráðherra í viðtali á bls. 3.
Hæstiréttur
MILDAR DÓMA í
KAFFIBADNAMÁLIND