Tíminn - 03.03.1968, Blaðsíða 7

Tíminn - 03.03.1968, Blaðsíða 7
SUNNUDAGUR 3. marz 1968. TIMINN 7 Útgefandi: FRAMSÖKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb) Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indrið) G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Aug- lýsingastjóri: Steingrimur Gíslason Ritstj.skrlfstofur I Eddu- húsinu, símar 18300—18305 Skrifsofur: Bankastræti 7. Af- greiðsiusimi: 12323 Auglýsingastml: 19523 Aðrar skrtfstofur, sfmi 18300. Áskriftargjald kr 120.00 á mán. Innanlands — í lausasölu kr 7.00 eint. - Prentsmlðjan EDDA h. f. Verður verkfall ? Þegar þetta er ritað, er ekki kunnugt um, hvort til verkfalls kemur eftir helgina eða ekki. Sá aðihnn, sem hefur það í hendi sinni, er rikisstjórnin. Sú deila, sem nu stendur yfir, er eingöngu sprottin af því, að ríkis- stjórnin rauf á síðastl. hausti samkomulagið, sem hún gerði við verkalýðshreyfinguna vorið 1964 um kaup- tryggingu launa. Bf ríkisstjórnin hefði ekki afnumið verðtryggingarlögin, myndi nú ríkja fullkominn vinnu- friður. Ríkisstjórnin þarf ekki að gera annað til þess að tryggja vinnuifriðinn en að láta júnísamkomulagið frá 1964 taka gildi að nýju, hvað snertir verðtryggingu kaupgjaldsins. Það hefur komið ljóst fram í þessari deilu, að sam- hugur innan verkalýðshreyfingarinnar hefur aldrei veri'ð meiri. Ástæðan er sú, að félagsmenn verkalýðsfélaganna finna, að þeir eru hér að verja eðlilegan og nauðsyn- legan rétt sinn. Þeir eru ekki að gera neinar nýjar kröfur, aðeins að halda rétti, sem þeir hafa haft um nær þriggja áratuga skeið og reynslan hefur sýnt, að bæði er launafólkinu og raunar þjóðfélaginu í heild hinn mikilsverðasti til tryggingar vinnufriði og mannsæmandi lífskjörum. Þótt verkalýðshreyfingin sé oftast margklofin af pólitískum sundrungaröflum, hefur hún frá upphafi staðið einhuga í þessari baráttu. Margir liðsmenn stjórnar flo'kkanna hafa staðið mjög framarlega, eins og formaður Sjómannafélags Reykjavíkur og formaður Iðju, félags iðnverkafólks í Reykjavík. Sameiginlegt réttindamál hef- ur þokað pólitísku úlfúðinni til hliðar. Þetta þarf að gerast oftar í vérkalýðshreyfingunni. Ýmislegt bendir til þess, að ríkisstjórnin sé farin að sjá sitt óvænna. Skrif Mbl. og Vísis hafa ekki verið alveg eins ofsafengin seinustu dagana og þau voru í upphafi. Þó virðist enn eins og ríkisstjórnin geri sér vonir um, að eining verkalýðshreyfingarinnar bresti á seinustu stundu. Miklu skiptir. því, að forustumenn verkalýðs- hreyfingarinnar sýni ljóst, að þetta eru falsvonir. Þá á ríkisstjórnin engan annan heiðarlegan kost en að láta undan. Hún getur ekki látið koma til verkfalls þegar krafa verkalýðssamtakanna er ekki önnur en sú, að samkomulag, sem ríkisstjórnin stóð sjálf að 1964, verði haldið. Fari hins vegar svo, að rikisstjórnin þrjóskist samt við óg láti koma til verkfalls, er sökin hennar og hennar einnar. Og það verður þyngri sök en hún er fær um að bera. Reiði Morgunblaðsins Morgunblaðið er bérsýnilega reitt hinum nýja for- manni Framsóknarflokksins. Reiði þess er auðskilin. Ákveðin afstaða Framsóknarflokksins í þeirri kaupdeilu, sem nú stendur yfir, hefur sýnt, að þingmeirihluti er fynr hendi til að lögfesta verðtryggingu kaupgjaldsins, ef Alþýðuflokkurinn stendur við orð sín og yfirlýsingar. Þessi vitneskja hefur haft holi áhrif á þróun málanna. Ef bessi ákveðna afstaða Framsóknarflokksins hefði veikt traust flokksins, myndi Mbl. ekki svona reitt hinum nýja formanni háns. ERLENT YFIRLIT Alfredo Stroessner - þýzki einræðisherrann í Paraguay Hann hefur lengstan valdaferil núv. stjórnenda í Suður-Ameríku. í SÍÐASTLIÐNUM mán. fóru fram forsetakosningar í Para- guay og beindist nokkur at- hygli erlendra blaðamanna að þeim. Annars er það fátítt. að minnzt sé á Paraguay í heims- fréttunum. Landið er ekki í alfaraleið og hefur ekki vakið athygli á sér um skeið með tíðum stjórnarskiptum og bylt ingum, eins og gilt hefux um flest önmur lönd Suður-Ame- ríku. Helzt eru það sMkir at- burðir, sem vekja athygli á Suður-Ameríku í heimsfréttun um. Sdðan 1954 hefur sami maður farið með völd í Paraguay. Hann hefur í reynd haft algert einræðisvaldjþótt hann að nafni til hafi verið kosinn með lýð ræðisilegum hætti. Fyrir valda tíð hans höfðu stjómarskipti ver ið tíð, eins og sést á því, að á árunum 1920—54 höfðu ekki færri en tuttugu forsetar farið með völd í Paraguay. Öllum þeirra hafði verið steypt úx stóli. Seinasta byltingin var gerð 1954. Fyrir henni stóðu nokkrir herforingjar, en fremstur þeirra var yfirhers- höfðinginn. Alfredo Stroessner. Strax eftir byltinguna var efnt til forsetakosningar og var Stroessner eini frambjóðand- inn. Hið sama gerist við for- setakjör 1958. Árið 1963 þótti hins vegar ekki heppilegt að láta Stroessner verða sjálfkjör inn, þvá að stjórn hans fékk slœmt orð í Bandaríkjunum sem einræðisstjórn, en Para- guay hefur verið háð efnalhags legri aðstoð Bandaríkjanna. Himir leyfðu andstöðuflokkara ir neituðu hins vegar að bjóða fram, þar sem skilyrðum þeirra um frjálsar kosningar var ekki fullnægt Að lokum tókst þó að fá nokkur flokksbrot tii að sameinast um mótframbjóð- anda. Stroessner sigraði að sjálfsögðu glæsilega f kosning- unum og lét ekiki keppinautinn gjalda andstöðunnar, beldur gerði hann að sendiherra í London. f forsetakosningunum sem fóru fram í seinasta mán- uði. voru mótframbjóðendúr Stroessners þrír og nutu þeir taisverðs frjálsræðis í áróðri sínum. ÚrsUtin urðu þau, að Stroessner hlaut 70% atkvæða. Ýmsir enlendir blaðamenn sem heimsóttu Paraguay f sam- bandi við kosningamar, telja þær fyrst og fremst hafa verið settar á svið til að sýna Banda ríkjamönnum að Stroessner væri ekki 'einræðisherra. í reynd beiti Stroessner full- komnu einræði og fái andstæð ingar hans óspart að kenna á því. Margir þeirra hafi talið ráðlegast að flýja land og skipti nú pólitískir flóttamenn frá Paraguay mörgum þúsund- um, en þeir hafa einkum leit- að til Brazilíu og Argentínu. M er talið að um a.m.k. 100 menn sitji í fangelsi af póli- tískum ástæðum. Alfredo Stroessner. ALFREDO STROESSNER er þýzkur að uppruna. Foreldrar hans voru fæddir og uppaldir í Bæjaraiandi, en fluttu þaðan til Paraguay. Stroessner er fæddur 1912 og gekk ungur í herinn, Hann gat sér frægðar orð í styrjöldinni við Brazilíu, sem síðar verður sagt fiá, og komst þvi fyrr en ella til mann virðinga í hernum. Árið 1951 varð hann yfirmaður hersins og hafði því góða aðstöðu til að beita sér fyrir byltingunni 1954. Hann hefur haldið áfram að vera yfirmaður hersins, jafn hliða þvi að vera forseti. Hann hefur tryggt sér völdin með því að hafa traust tök á her og lögreglu, enda beitt þeim óspart gegn andstæðingum sín um. Því neitar enginn að Stroessner er mikill starfsmað ur og skipuleggjari og að ýms ar meiriháttar framfarir hafa orðið í landinu síðan hann kom til valda. Sjálfur er hann ekki talinn hafa notað aðstöðu sína til að auðga sig að ráði, en ýmsir nánustu samherjar hans hafa hins vegar notað sér valda aðstöðuna óspart á þann hátt. PARAGUAY er talið þriðja fátækasta landið í Suðúr-Ame ríku, næst á eftir Boliviu og Haiti. Þjóðartekjumar eru taldar 200 dollarar á mann. Landið er stórt, nær fjórum sinnum stærra en fsland, en íbúarnir eru ekki nema tæpar tvær milljónir. Landbúnaður er aðalatvinnuvegur lands- manna. Ýmis mikilsverð nátt- úruauðæfi hafa enn ekki verið nýtt ,eins og verðmætir skóg- ar. Það háir mjög samgöngum við umheiminn, að landið ligg- ur hvergi að sjó. Það bætir þó nokkuð úr. að tvö skipgeng stórfljót falla um landið og dregur það nafn af öðru þeirra. fbúarnir eru langflestir bland aðir af Indíánum og Evrópu- mönnum, en auk Spánverja, sem upphaflega settust þar að, flutti þangað talsvert af Rúss um og Þjóðverjum á síðari hluta 19. aldar, Hreinir Indí- ánar eru ekki taldir nema um 1% af íbúunum. Þrátt fyrir það tala flestir landsmenn enn hið foraa tungumál þeirra, guarani, enda þótt spánska sé aðal málið. Paraguay er því eifct af fáum löndum, þar sem íbúarnir venjast á að tala tvö tungumál frá blautu barnsbeini. Furðulegt þykir hve vel guar- ani heldur velli, þar sem það er ekkert notað sem ritmál. Mjög hlýtt loftslag er í Para guay. Meðalhitinn í desember, sem er sumarmánuður þar, er 27 stig. en í júní, sem er vetr- armánuður þar, 16 stig. PARAGUAY á sér einna lengsita nútímasögu af löndum Suður-Ameríku. Þegar Spán- verjar komu þangað snemma á 16. öld bjó þar allfjölmennur þjóðflokkur Indíána, Guarani- Indíánar. Spánverjar lögðu landið undir varakonung sinn í Perú, en um miðja 16. öld- ina settust jesúitar þar að og réðu þar lögum og lofum til 1786. Þeir stofnuðu þar þjóð- félag, sem var á margar, hátt merkilegt og sérstakt, byggt á kenningum frumkristninnar um guðsríki á jörðu. Þannig urðu bændur að vinna fyrir kirkjuna og leggja framleiðsl- una í sameiginlegar kornblöð- ur og birgðaskemmur, en kirkj an lét síðan hvern hafa það, sem hann var talin hafa þörf fyrir. Þetta sérkennilega þjóð- félag leið að mestu undir lok, þegar Spánverjar lögðu landið undir varakonung sinn í Argen tínu 1786. Spánverjar náðu þó aldrei að festa sig í sessi og 1811 varð Paraguay sjálf- stætt lýðveldi og hefur verið það síðan. Öll landamæri í Suður-Ame- ríku voru mjög óljós á þessum tíma. Þess vegna kom tU styrj- aldar árið 1865 ,þar sem Para- guay stóð eitt uppi gegn Brasi- líu, Argentínu og Uraguay. Sá leikur var ójafn. en Paraguay menn börðust af frábærri hreysti. Styrjöldin stóð í fimm ár og lauk með algerum ósigri Paraguay. Paraguay varð að láta mikið land af hendi. Fyrir stríðið höfðu íbúar Paraguay verið taldir 1.5 milljón, en eftir stríðið voru þeir aðeins orðnir 230 þús., þar af aðeins 1/10 hluti karlmenn. Næstum allir vopnfærir karlmenn höfðu fallið í stríðinu. Það tók Paraguay að sjálfsögðu líuigan tíma að rétta sig við eftir þetta áfall. En ekki voru Paraguay menn orðnir afhuga styrpöld- um, þrátt fyrir áðurnefnt áfall. Árið 1932 hófst styrjöld milli Paraguay og Bólivíu, sem stóð Framhald á bls. 11. /

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.