Alþýðublaðið - 09.02.1990, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 09.02.1990, Blaðsíða 6
6 Föstudagur 9. febr. 1990 Fréttir í stutta máíi Fréttir í stuttu máli Skólastjórar settustá skólabekk Fyrir nokkru voru 14 stjórnendur í grunn- og framhaldsskólum út- skrifaðir að loknu framhaldsnámi við Kennaraháskólann. Slíkt fram- haldsnám hófst haustið 1988. Mark- miðið með því að setja vana menn, skólastjóra, yfirkennara, námsstjóra og fleiri, á skólabekk, er að stuðla að bættum stjórnunarháttum í skól- unum og þar með árangursríkara starfi. Dreifist námið yfir hálft ann- að ár. Núna í byrjun febrúar hóf nám tuttugu manna hópur skólastjórn- enda, en námskeiðin þykja hafa sannað gildi sitt nú þegar. Þau sem brautskráðust eru þessi: Baldvin Kristján Kristjánsson, að- stoðarskólameistari, Einar Magnús- son, yfirkennari, Eiríkur Hermanns- son, skólastjóri, Garðar Karlsson, skólastjóri, Guðmundur Þór As- mundsson, skrifstofustjóri fræðslu- skrifstofu, Halldóra Magnúsdóttir, skólastjóri, Ingi Steinar Gunnlaugs- son, skólastjóri, Kristjana Margrét Kristjánsdóttir, skólastjóri, Maria Ester Kjeld, skólastjóri, Marteinn M. Jóhannsson, yfirkennari, Páll Dag- bjartsson, skólameistari, Sigurður Hólm Þorsteinsson, skólastjóri, Trausti Þorsteinsson, fræðslustjóri og Þrúður Kristjánsdóttir, skóla- stjóri. Styrkir til lýðræðis- rannsókna Atlantshafsbandalagið býður nokkra nýja styrki til rannsókna í aðildarríkjunum á háskólaárinu 1990—91. Styrkirnir eru ætlaðir rík- isborgurum í ríkjum NATO og Var- sjárbandalagsins og eiga þeir að stuðla að rannsóknum og aukinni þekkingu á lýðræðislegu stjórnar- fari og stofnunum í ríkjum Atlants- hafsbandalagsins. Stefnt er að út- gáfu á niðurstöðum rannsóknanna. Utanríkisráðuneytið veitir allar upp- lýsingar um styrkina. SÍF gefur Háskólanum á Akureyri eina milljón Nýstofnuð sjávarútvegsdeild við Háskólann á Akureyri fékk að gjöf eina milljón króna frá Sölusamtök- um ísl. fiskframleiðenda. Fénu skal verja til rannsókna tengdum salt- fiskvinnslu í samráði við SÍF. „Við erum afskaplega ánægðir með þessa höfðinglegu gjöf og við getum nú horft til þess að ráðast í einhverj- ar rannsóknir sem við höfum verið að gæla við", sagði Jón Þórðarson, forstöðumaður deildarinnar. Leiörétting: Ágúst Þór tók viðtalið við Ullmann Nafn greinarhöfundar á viðtali við Austur-þýska ráðherrann Wolf- gang Ullmann sem birtist sl. mið- vikudag, féll niður. Það var Ágúst Þór Árnason sem tók viðtalið við Ullmann í Austur-Berlín fyrir Al- þýðublaðið. Greinarhöfundur og lesendur eru beðnir velvirðingar á þessum mistökum. * Krossgátan n 1 2 3 UQ 5 □ jS 7 9 10 □ 11 □ 12 13 J —— □ Lárétt: 1 skvampa, 5 gremja, 6 tón- verk, 7 þyngd, 8 hristir, 10 hreyfing, 11 fiskur, 12 hugarburður, 13 vænar. Lóðrétt: 1 prestakall, 2 hræðslu, 3 umdæmisstafir, 4 hrellir, 5 leiftur, 7 hrúgar, 9 Ijós, 12 kvæði. Lausn á siðustu krossgátu. Lárétt: 1 svona, 5 klof, 6 ræð, 7 ör, 8 ágalli, 10 KA, 11 ein, 12 vinn, 13 reiðu. Lóðrétt: 1 slæga, 2 voða, 3 of, 4 aur- inn, 5 krákur, 7 ölinu, 9 leið, 12 vi. RAÐAUGLÝSINGAR fFÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Síðumúla 39 — 108 Reykjavík — Sími 678500 Breytt aðsetur— Breytt símanúmer Þann 13. febrúar nk. opnar Félagsmálastofnun nýjar skrifstofur í Síöumúla 39. Nýtt símanúmer er 678500. í Síðumúla 39 flytur eftirtalin starfsemi: Aðalskrifstofa Félagsmálastofnunar úr Vonarstræti 4. Hverfi fjölskyldudeildar fyrir Austurbæ, Árbæ og Grafarvog úr Síðumúla 34. Húsnæðisdeild úr Síðumúla 34. Heimilishjálpin úr Tjarnargötu 20. Öldrunarþjónusta úr Tjarnargötu 20. í Vonarstræti 4 verður fyrst um sinn hverfi fjöl- skyldudeildarfyrir mið- og vesturbæ. Sími 625500. Viðtalsbeinir virka daga kl. 9—10. í Þingholtsstræti 25 verðuráfengisráðgjafadeild Fé- lagsmálastofnunar. Sími 11596. Viðtalstími áfengis- fulltrúa verður mánudaga-miðvikudaga og föstu- daga kl. 11—12. Símatími sömu daga kl. 9—10 í síma 678500. Vegna ofangreindra flutninga verður skrifstofa Fé- lagsmálastofnunar lokuð föstudginn 9. febrúar og mánudaginn 12. febrúar en opnuð að nýju þriðju- daginn 13. febrúar á fyrrgreindum stöðum. ^ftKStí^ FÉLAGSFUNDUR Félagsfundur í löju, félagi verk- smiðjufólks verður haldinn í Hótel Holiday Inn, iaugardaginn 10. febrúar 1990, kl.13:30. Dagskrá: f I örvnur asammngarnir Iðjufélagar fjölmennið! Stjórn Iðju Verkamannafélagið Dagsbrún Félagsfundur verður haldinn í Bíóborg (áður Aust- urbæjarbíó) mánudag 12. febrúar kl. 16.00. Fundarefni: Afgreiðsla á kjarasamningum. Skorað er á félagsmenn að fjölmenna og koma beint úr vinnu. Félagsmenn eru beðnir að sýna félagsskírteini við innganginn. Stjórn Dagsbrúnar. Landverðir Náttúruverndarráð auglýsir örfáar stöður landvarða á friðlýstum svæðum, sumarið 1990, lausar til um- sóknar. Námskeið í náttúruvernd-landvarðanámskeið, veitir að öðru jöfnu forgang til landvörslustarfa á vegum Náttúruverndarráðs. Skriflegar umsóknir skulu berast Náttúruverndar- ráði, Hverfisgötu 26, 101 Reykjavík fyrir 20. febrúar 1990. Hvammstangi Húnavatnssýslur Kjarasamningar og kvótamál verða til umræðu á almenn- um stjórnmálafundi á hótel- inu, sunnudaginn 11. febrúar kl. 15.00. Alþingismennirnir Karl Steinar Guðnason, varafor- maður Verkamannasam- bandsins og Jón Sæmundur Sigurjónsson mæta á fund- inn. Alþýðuflokkurinn. Alþýðuflokkurinn ' hlustar Málstofa um flokksmál verð- ur haldinn á Akranesi mánu- daginn 12. febrúar kl. 20.30 í Röst. Hópstjóri: Guðríður Þor- steinsdóttir. 1. Á að opna flokksþing? 2. Á að sameina kvenfélög hinum almennu Al- þýðuflokksfélögum? 3. Á að breyta starfsemi skrifstofunnar? Tækifærið til að hafa bein áhrif á stefnu og starf- semi Alþýðuflokksins. Bæjarmálaráð Alþýðuflokksins í Hafnarfirði heldur fund mánudaginn 12. febrúar nk. kl. 20.30. Fundarefni Fjárhagsáætlun Framsaga: Guðmundur Árni Stefánsson bæjarstjóri. Fundarstjóri: Valgerður Guð- mundsdóttir Alþýðuflokks- félagar mætið vel og stund- víslega. Bæjarmálaráð. Alþýðuflokksfélag Garðabæjar og Bessastaðasóknar Hið margrómaða og landsfræga þorrablót félagsins verður í Goðatúni 2, föstudaginn 9. febrúar kl. 20.00 Upplýsingar í síma 641606 og 657187. Nefndin. Auglýsing um prófkjör Alþýðuflokkurinn í Hafnarfirði efnirtil prófkjörs um skipan 10 efstu sæta á framboðslista flokksins við bæjarstjórnarkosningarnar næsta vor. Prófkjörið fer fram dagana 24. og 25. febrúar nk. Framboðum til prófkjörsins skal skila til oddvita prófkjörs.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.