Morgunblaðið - 04.09.2002, Blaðsíða 14
AKUREYRI
14 MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
STEFNT er að því að skrifa undir
samning um byggingu menningar-
húss á Akureyri á þessu ári. Þetta
kom fram í ræðu Tómasar Inga Ol-
rich menntamálaráðherra á aðal-
fundi Eyþings sem haldinn var í Mý-
vatnssveit. Einnig eru uppi áætlanir
um að byggja menningarhús á Ísa-
firði að sögn ráðherra.
Um 70 manns sátu þingið og bar
það nokkur merki þeirrar samein-
ingar kjördæma sem verða á næsta
ári, en nokkrir sveitarstjórnarmenn
af Austurlandi sátu þingið að þessu
sinni sem og þingmenn.
Gunnar Vignisson, forstöðumaður
Þróunarstofu Austurlands, flutti er-
indi sem hann nefndi „Áhrifasvæði
stórframkvæmda á Austurlandi,“ og
benti á að áhrif stórframkvæmda
fyrir austan munu ná til Norður-
lands.
Auk menntamálaráðherra fluttu
einnig ávörp þær Valgerður Sverr-
isdóttir iðnaðarráðherra og Arn-
björg Sverrisdóttir þingmaður. Jón
Kristjánsson heilbrigðisráðherra
undirritaði samkomulag við fulltrúa
Eyþings um samstarf sjúkrastofn-
ana.
Sveitarfélögum í Eyþingi hefur á
kjörtímabilinu fækkað, þau voru 26 í
upphafi tímabilsins en eru nú 20.
Sveitarfélagið Þingeyjarsveit varð
til með sameiningu fjögurra hreppa,
Háls-, Bárðdæla-, Ljósavatns- og
Reykdælahrepps og Reykjahreppur
sameinaðist Húsavík. Stjórn Eyþing
hefur haft þá afstöðu, segir í skýrslu
hennar, að beita sér ekki sérstak-
lega fyrir sameiningu sveitarfélaga
en telur eðlilegt að leggja málinu lið
ef eftir er leitað og aðstæður leyfa.
Eyþing og SSA ekki í
eina sæng að svo komnu
Nokkur umræða hefur verið um
hvort stefna beri að sameiningu Ey-
þings og Samtaka sveitarfélaga á
Austurlandi, en fyrir liggur að Aust-
firðingar vilja flýta sér hægt í þeim
efnum, m.a. vegna þess að Hornfirð-
ingar óskuðu eftir því að starfa
áfram innan SSA þrátt fyrir að
sveitarfélagið flytjist yfir í Suður-
kjördæmi. Við kjördæmabreytingu
kemur Siglufjörður inn í Norð-
austurkjördæmi. Stjórn Eyþings er
ekki kunnugt um hvort hugur Sigl-
firðinga stendur til nánara sam-
starfs innan Eyþings, en þeir eru í
Samtökum sveitarfélaga á Norður-
landi vestra. Stjórn Eyþings er
tilbúin til viðræðna um það verði
þess óskað.
Í nýrri stjórn Eyþings eru nú þau
Reinhard Reynissson, Húsavík, for-
maður, Jakob Björnsson, Akureyri,
Ásgeir Logi Ásgeirsson, Ólafsfirði,
Guðný Sverrisdóttir, Grýtubakka-
hreppi, og Björn Ingimarsson, Þórs-
höfn.
Næsti aðalfundur Eyþing verður
haldinn í Ólafsfirði.
Menntamálaráðherra á fundi Eyþings
Stefnt að samningi
um menningarhús
Mývatnssveit. Morgunblaðið.
REKSTRARAFKOMA Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri á fyrri
helmingi þessa árs er óviðunandi, en
kostnaður umfram fjárheimildir
nemur alls 87,4 milljónum króna.
Forsvarsmenn FSA kynntu heil-
brigðisráðherra, Jóni Kristjánssyni,
bága stöðu sjúkrahússins nú nýlega.
Vignir Sveinsson, framkvæmda-
stjóri fjármála og reksturs, sagði að
ráðherra hefði sýnt málinu skilning
og fundurinn verið jákvæður þannig
að menn væntu þess að leiðréttingar
fengjust.
Á fundinum var gerð grein fyrir
helstu ástæðum þess að rekstar-
kostnaður hefði farið fram úr áætl-
un, en að sögn Vignir eru skýringar
þar á nokkrar. Nefndi hann m.a. að
nokkrir þættir er varða launakostn-
að hefðu hækkað, m.a veikindalaun,
launatengd gjöld og þá þyrfti nú að
greiða fleiri tíma í yfirvinnu vegna
útkalla en áður.
Stórir útgjaldaliðir, eins og lyf,
lækningavörur og matvörur hefðu
hækkað umfram almennar verðlags-
breytingar.
Vignir sagði að árangur hefði
náðst á ýmsum sviðum rekstrarins í
ár, m.a. vegna kaupa á ýmsum al-
mennum vörum og ferðakostnaði og
eins hefði náðst raunlækkun á að-
keyptri þjónustu.
Órói meðal starfsmanna
vegna betri kjara syðra
Stofnanasamningar á FSA eru
ófrágengnir og hefur nú við saman-
burð komið í ljós að kjör flestra
starfsmannahópa sjúkrahússins eru
lakari en bjóðast á Landspítala – há-
skólasjúkrahúsi. Bæði starfsmenn
og stjórnendur FSA krefjast þess að
kjör þeirri verði sambærileg við þau
kjör sem bjóðast syðra. Gert er ráð
fyrir að kostnaður við að leiðrétta
þennan mismun nemi um 60 millj-
ónum króna á ári en þessi staða var
kynnt fulltrúum í bæði fjármála- og
heilbrigðisráðuneyti í upphafi árs og
þá leitað eftir leiðréttingu. Nú hefur
framkvæmdastjórn FSA tekið þá
ákvörðun að ganga ekki frá stofn-
anasamningum sem leiða til kostn-
aðarauka nema fjárveiting til að
mæta hækkuninni verði tryggð.
Gæti af þessum sökum vaxandi óróa
meðal starfsmanna og gæti hann í
versta falli leitt til fjöldauppsagna.
Áfram sumarstarfsemi
á lyflækningadeildum
Framkvæmdastjórnin hefur einn-
ig tekið ákvörðun um að grípa til að-
gerða vegna þeirrar stöðu sem uppi
er varðandi rekstur sjúkrahússins
en þær muni leiða til aukins sam-
dráttar í starfseminni næstu mánuði.
Meðal aðgerða má nefna að sameig-
inlegur rekstur bæklunardeildar og
handlækningadeildar sem staðið
hefur yfir í sumar verður framlengd-
ur næstu tvær vikur. Sumarstarf-
semi á lyflækningadeildum I og II
verður svo framlengd til áramóta.
Sparnaður vegna þessara aðgerða
nemur um þremur milljónum króna.
Þá verður að sögn Vignis áfram gætt
ítrasta aðhalds til að ná fram hag-
ræðingu og sparnaði í rekstri.
Fáist ekki leiðréttingar stefnir í að
rúmlega 200 milljónir vanti inn í
rekstur FSA. Vignir sagði að til
væru lauslegar hugmyndir um að-
gerðir sem gripið yrði til kæmu þær
aðstæður upp, en ekki væri tíma-
bært nú að gera grein fyrir þeim.
Slíkar aðgerðir myndu leiða af sér
verulega fækkun starfsmanna og
skerðingu á þjónustu. „Fáist engar
leiðréttingar á fjárhagsgrunninum
eigum við ekki annan kost en að loka
deildum eða hætta við ákveðna þætti
í okkar rekstri. Valkostirnir eru
vissulega margir, en við munum í
lengstu lög reyna að koma í veg fyrir
að grípa þurfi til svo harkalegra að-
gerða, sem í raun eru pólitískar,“
sagði Vignir.
Afkoma FSA á fyrri helmingi árs óviðunandi og veldur vonbrigðum
Aukinn samdráttur í starf-
seminni næstu mánuði
TVEIR voru fluttir á slysadeild
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
eftir að tveir bílar skullu saman á
mótum Glerárgötu og Strandgötu á
Akureyri í gærmorgun. Árekst-
urinn varð kl. 10.50 í gærmorgun
og voru tildrög hans þau að bifreið
var ekið suður Glerárgötu og beygt
til austurs niður á Strandgötu í veg
fyrir aðra bifreið sem ekið var
norður Glerárgötu. Í öðrum bílnum
var ökumaður einn á ferð, en í hin-
um ökumaður og farþegi. Þeir sem
fluttir voru á slysadeild hlutu ekki
alvarleg meiðsl, að sögn lögreglu,
og fóru heim að lokinni skoðun. Bíl-
arnir eru báðir mjög mikið
skemmdir.
Morgunblaðið/Kristján
Harður
árekstur
FORSVARSMENN Flugsafnsins á
Akureyri hafa mikinn áhuga á því að
fá flugvélina sem fannst á botni
Skerjafjarðar á dögunum á flugsafn-
ið. Svanbjörn Sigurðsson, stjórnar-
formaður safnsins, sagði að málið
hefði verið rætt við Tómas Inga Ol-
rich menntamálaráðherra og hefði
hann tekið vel í hugmyndina og lýst
yfir vilja til að leggja safninu lið.
Svanbjörn sagði að vafalaust
kæmu fram fleiri óskir um að fá vél-
ina og jafnvel erlendis frá „en mér
finnst að vélin eigi heima hér á Ak-
ureyri“. Svanbjörn sagði að hug-
myndin væri að sýna vélina sem flak
á safninu, þar sem safnið hefði ekki
bolmagn til þess að láta gera hana
upp. Hann taldi vel mögulegt að ná
vélinni af hafsbotni en að trúlega
yrði ekki farið í að reyna það fyrr en
næsta vor.
Hér er um að ræða sjóflugvél af
gerðinni Northrop N-3PB, sem var í
eigu norska flughersins. Flugvélar
af þeirri gerð voru notaðar hér við
land í seinni heimsstyrjöldinni, við
kafbátaleit og verndun skipalesta og
voru staðsettar í Reykjavík, á Reyð-
arfirði og á Akureyri. Flugsveitin
heyrði undir breska flugherinn en
Norðmenn sáu um rekstur hennar.
Sveitinni var skipt í þrjá hluta, sex
vélar voru í Nauthólsvík en þrjár vél-
ar bæði á Akureyri og Reyðarfirði.
Framtíðarsafn fyrir Fairy
Battle-sprengjuflugvélina
Flugsafnið á Akureyri var stofnað
1. maí 1999, með það að markmiði að
halda á lofti sögu flugs á Íslandi, á
þann veg að varðveita gamlar flug-
vélar, muni, myndir og texta sem
tengist þessari sögu á allan hátt.
Flugsafnið er til húsa á Akureyrar-
flugvelli en það var formlega opnað
24. júní árið 2000.
Flugsafnið á Akureyri verður
framtíðarsafn fyrir bresku Fairy
Battle-sprengjuflugvélina sem fórst
í jökli á hálendindu milli Öxnadals og
Eyjafjarðar árið 1941, með fjórum
mönnum innanborðs. Hörður Geirs-
son, safnvörður á Minjasafninu, fann
vélina árið 1999, eftir að hafa leitað
hennar í 20 ár. Fjölmargir munir úr
vélinni eru til sýnis á safninu en enn
á eftir að sækja ýmsa hluti, m.a.
skrokkinn. Að sögn Svanbjörns er
skrokkurinn enn í jöklinum en stefnt
er að því að koma honum til byggða
og sýna sem flak á safninu.
Gert ráð fyrir risaþotu á flug-
vallarsvæðinu í aðalskipulagi
Eins og fram hefur komið í Morg-
unblaðinu eru forsvarsmenn Flug-
safnsins á Akureyri að vinna í því að
fá Boeing 747 breiðþotu á safnið
næsta vor. Slík júmbóþota er engin
smásmíði, um 70 metra löng og á
þremur hæðum. Hugmyndin er að
búkur hennar verði notaður undir
starfsemi safnins, enda verulega far-
ið að þrengja að starfseminni í nú-
verandi húsnæði.
Svanbjörn sagði að Flugmála-
stjórn hefði gert samning við Arki-
tektastofuna Grófargili um að vinna
aðalskipulag flugvallarsvæðisins og
að í þeirri vinnu væri gert ráð fyrir
slíkri risaþotu á svæðinu.
Arngrímur Jóhannsson, eigandi
Atlanta, er í stjórn Flugsafnsins á
Akureyri og hefur hann tekið að sér
að fljúga risaþotunni til bæjarins ef
af verður.
Northrop-sjóflugvél, sömu gerðar og fannst í Skerjafirði, sjósett við Strandgötu á stríðsárunum.
Finnst að vélin eigi
heima á Akureyri
Flugsafnið vill vélina sem fannst á botni Skerjafjarðar
Stretchbuxur kr. 2.900
Konubuxur frá kr. 1.690
Dragtir, kjólar,
blússur og pils.
Ódýr náttfatnaður.
Brandtex fatnaður
Nýbýlavegi 12, sími 5544433
Stretchbuxur kr. 2.90
Konubux r frá kr. 1.790
ragtir, kjólar,
blús ur og pils.
Ódýr nát fatna