Morgunblaðið - 18.09.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isEvrópumeistararnir hófu titilvörn-
ina með glæsibrag/B2
Pétur Guðmundsson hættur að
þjálfa lið Þórsara/B1
4 SÍÐUR
Sérblöð í dag
SÓLVEIG Pétursdóttir dómsmála-
ráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi
í gær nýtt frumvarp til barnalaga. Í
því er að finna mörg nýmæli, s.s.
ákvæði um að móðir verði skylduð til
að feðra barn sitt. Í gildandi lögum
er ekki að finna ákvæði sem leggur
slíka afdráttarlausa skyldu á móður.
Í frumvarpinu er þó ekki gert ráð
fyrir að heimild verði veitt til þess að
móðir sem lætur hjá líða að feðra
barn sitt verði beitt viðurlögum.
„Í frumvarpinu eru m.a. ákvæði
um móðerni og faðerni barna, forsjá
og deilur um forsjá, foreldraskyldur,
umgengnisrétt, framfærslu barna,
meðlagsgreiðslur og fleira og með-
ferð ágreiningsmála á þessu sviði,“
segir Sólveig Pétursdóttir. Hún seg-
ir að frumvarpið sé ávöxtur endur-
skoðunar þessara mála, sem hófst
árið 1999, en það er samið af sifja-
laganefnd. „Við samningu frum-
varpsins var leitað umsagnar fjöl-
margra aðila sem lýstu flestir yfir
mikilli ánægju með frumvarpsdrög-
in,“ útskýrir ráðherra. Hún segir að
ýmsar ábendingar og athugasemdir
hafi komið fram, sem tekið hafi verið
tillit til við samningu frumvarpsins.
„Frumvarpið felur í sér mikla rétt-
arbót fyrir alla aðila,“ ítrekar hún.
„Ég vonast til þess að hægt verði að
leggja það fyrir Alþingi, á komandi
þingi, eftir að stjórnarflokkar þing-
flokkanna hafa farið yfir málið.
Frumvarpið er viðamikið og þarfn-
ast væntanlega góðrar skoðunar í
þingnefnd. Ég vonast svo sannarlega
til þess að hægt verði að ljúka af-
greiðslu þess á næsta vetri.“
Skýrari reglur um forsjá barna
Í frumvarpinu er m.a. lagt til að
lögfest verði ákvæði um að kona,
sem elur barn eftir tæknifrjóvgun,
teljist móðir þess. Með því verði
komið í veg fyrir hugsanlegar deilur
um móðerni barns í þeim tilvikum
þegar notaðar eru gjafaeggfrumur
við tæknifrjóvgun. Ennfremur má í
frumvarpinu finna ákvæði um rétt-
arstöðu sæðisgjafa, en samkvæmt
því telst maður ekki faðir barns ef
hann hefur gefið sæði í þeim tilgangi
að það verði notað við tæknifrjóvgun
á annarri konu en eiginkonu hans
eða sambúðarkonu, svo framarlega
sem tæknifrjóvgunin fer fram í sam-
ræmi við ákvæði laga um tækni-
frjóvgun.
Í frumvarpinu er einnig leitast við
að setja fram hverjar forsjárskyldur
eru með fyllri og skýrari hætti en
gert er í gildandi lögum. Til dæmis
er lagt til að reglum varðandi forsjá
stjúpforeldris og sambúðarmaka
verði breytt. „Samkvæmt gildandi
barnalögum öðlast stjúpforeldri eða
sambúðarmaki sjálfkrafa forsjá fyrir
barni maka eða sambúðarmaka síns
sem hinir síðastnefndu fara með
forsjá fyrir, strax við stofnun hjú-
skapar þeirra eða sambúðar. Gildir
þetta jafnvel þótt foreldri barnsins
fari með forsjá þess ásamt hinu kyn-
foreldrinu, þ.e. forsjáin sé sameig-
inleg. Með þessu móti geta forsjár-
menn barns orðið fjórir. Engin rök
þykja vera til þess að forsjármenn
barns geti orðið svo margir og er því
lagt til að stjúpforeldri eða sambúð-
armaki öðlist aðeins forsjá barns
með foreldri þess þegar foreldrið fer
eitt með forsjá,“ segir m.a. í sam-
antekt dómsmálaráðuneytisins um
frumvarpið.
Dómstólar úrskurði
um forsjá
Í frumvarpinu er aukinheldur lagt
til að heimild dómsmálaráðuneytis-
ins til að skera úr ágreiningi um
forsjá verði afnumin og aðeins dóm-
stólar leysi úr slíkum málum. Nú er
hægt að velja á milli þess að vísa
slíku máli til ráðuneytisins eða dóm-
stóla. Í skýringum með frumvarpinu
segir að ekki verði séð að álag muni
aukast á dómstóla við þetta, þar sem
forsjármál séu nú orðin mjög fá.
Jafnframt er lögð til sú breyting í
frumvarpinu, að dómstólum verði
veitt heimild til að skera í vissum til-
vikum úr um meðlag og umgengni en
nú er slíkt vald eingöngu á hendi
stjórnvalda. Úrskurðarvaldið er þó,
skv. frumvarpinu, bundið við þau
mál sem dómstólar hafa þegar til
meðferðar og varða ágreining for-
eldra um forsjá barns eða faðerni.
Dómsmálaráðherra kynnir frumvarp um ný barnalög
Móðir verði skylduð
til að feðra barn sitt
SAMÞYKKT var í borgarráði í gær
að veita Frumkvöðlaaðstöðunni ehf.
leyfi til að selja eignina Esjuberg við
Þingholtsstræti 29a sem íbúðarhús.
Félagið, sem er í eigu Guðjóns Más
Guðjónssonar, keypti húsið af borg-
inni árið 2000 með uppbyggingu
frumkvöðlaseturs fyrir ungt fólk í
huga. Í Morgunblaðinu í gær kom
fram að norski listmálarinn Odd
Nerdrum hefði fest kaup á húsinu
og ætlaði að búa þar ásamt fjöl-
skyldu sinni meirihluta ársins. Guð-
jón Már sagðist í gær ekki vilja tjá
sig um málið að svo stöddu.
Er Frumkvöðlaaðstaðan, sem áð-
ur hét Esjuberg ehf., keypti húsið
var kveðið á um það í kaupsamningi
að félagið yrði að fá samþykki borg-
arráðs vildi það selja húsið eða
breyta notkun þess. Borgarráð hef-
ur nú samþykkt það fyrir sitt leyti,
en vísaði í gær erindinu til frekari
meðferðar skipulags- og bygginga-
sviðs.
Nerdrum vill selja í Noregi
Norsk dagblöð greindu frá því í
gær að Odd Nerdrum ætlaði að selja
einbýlishús sitt í Osló og væri sölu-
verðið um 130 milljónir króna. Í ís-
lenskum fjölmiðlum kom á sama
tíma fram að hann hygðist setjast að
á Íslandi. Netútgáfur norskra blaða
greindu einnig frá þeim fréttum í
gær og vitnuðu í frétt Morgunblaðs-
ins þess efnis.
Einkahlutafélagið Esjuberg ehf.
keypti Þingholtsstræti 29a árið 2000
af Reykjavíkurborg fyrir 70 millj-
ónir. Á síðasta ári var nafni félagsins
breytt í Frumkvöðlaaðstaðan ehf.
Morgunblaðið/Sverrir
Húsið Esjuberg við Þingholtsstræti.
Sala Esjubergs heimiluð
Kvöðum í kaup-
samningi aflétt
GÖNGUBRÚ var opnuð yfir
Miklubraut við Kringluna í gær
en hún er þriðja göngubrúin sem
opnuð er yfir Miklubraut og
byggist á verðlaunatillögu úr
samkeppni um göngubrú við
Rauðagerði frá árinu 1996. Það
voru Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri og Sturla Böðv-
arsson samgönguráðherra sem
opnuðu brúna.
Undirbúningur vegna hönnunar
hófst í júlí 2001 og er heild-
arkostnaður við smíði hennar 86
milljónir króna, þar af er hlutur
Vegagerðarinnar 48 m.kr. og
Reykjavíkurborgar 38 m.kr.
Brúin er stálbitabrú í tveimur
27 metra höfum. Endastólpar og
neðsti hluti millistöpuls eru
steyptir en millistöpull er gerður
úr stáli.
Alls fara um 45 þúsund bílar
um Miklubraut undir brúna á sól-
arhring.
Ný göngu-
brú opnuð
yfir Miklu-
braut
Morgunblaðið/Kristinn
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri gengu yfir brúna í gær með börnum úr leikskólanum Álftaborg en
viðstödd voru einnig ungmenni úr félagsmiðstöðinni Tónabæ. Í broddi fylkingar eru Hadda Margrét og Unnar Ari úr leikskólanum Álftaborg.