Morgunblaðið - 31.05.2003, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 31.05.2003, Blaðsíða 25
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2003 25 NÚ stendur yfir sýning Myndlist- arfélags Fljótsdalshéraðs á Hótel Héraði á Egilsstöðum. Á sýning- unni eru 42 verk eftir 19 félaga, unnin í olíu, akrýl, vatnsliti, stein- leir og með tölvugrafík. Er því óhætt að segja að á sýningunni kenni margra grasa hvað fjöl- breytni varðar. Myndlistarfélag Fljótsdalshéraðs er rúmlega áratugar gamalt og beitir sér fyrir almennri fræðslu um myndlist, hvatningu til mynd- sköpunar og aðstoðar félagsmenn við að koma verkum sínum á fram- færi. Námskeiða- og sýningahald hefur verið áberandi í félags- starfseminni frá upphafi. Sýningin stendur til 22. júní. Kennir margra grasa í myndlist Egilsstaðir Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Lágmynd Önnu Hjaltadóttur á sýningu Myndlistarfélags Fljótsdalshéraðs. FYRIR stuttu var haldinn aðalfund- ur ferðamálafélagsins Heklu í Rangárvallasýslu. Starfsemi félags- ins hefur legið niðri um nokkurt skeið en nýr atvinnu- og ferðamála- fulltrúi á svæðinu, Eymundur Gunnarsson, átti frumkvæði að því að koma henni aftur af stað. Á fundinn mættu margir og kosin var stjórn og varastjórn. Gestir fundarins voru Pétur Rafnsson, for- maður Ferðamálasamtaka Íslands og verkefnisstjóri Ferðamálaráðs, og Eymundur Gunnarsson, atvinnu- og ferðamálafulltrúi. Pétur hélt fróðlegt erindi m.a. um verkefni Ferðamálasamtaka Íslands og samvinnu í landshlutum við fyr- irtæki og sveitarfélög. Upplýsingamiðstöðvar mikilvægar Lagði hann áherslu á mikilvægi upplýsingamiðstöðva sem staðsettar eru víða um land, ekki aðeins fyrir erlenda ferðalanga heldur einnig þá íslensku. Í erindi Péturs komu einn- ig fram upplýsingar um Ferðatorg 2003 sem haldið var í Smáralind í byrjun maí, námskeið á vegum FSÍ og saga, starfsemi og verkefni Ferðamálaráðs Íslands. Eymundur Gunnarsson, nýráðinn atvinnu- og ferðamálafulltrúi, kynnti starf sitt í Rangárvallasýslu og Mýrdalshreppi og fyrstu verk- efni sín sem slíkur. Sýndi hann einnig nýtt myndband sem Saga Film hefur nýlega gert fyrir Ferða- málasamtök Suðurlands til kynning- ar á Suðurlandi. Gott tækifæri til að móta stefnu félagsins Tilgangur ferðamálafélagsins er að auka og bæta þjónustu við ferða- menn og efla ferðaþjónustu sem at- vinnugrein á félagssvæðinu en fyr- irliggjandi verkefni sem ferðamála- félagið Hekla mun koma að á næstunni eru Töðugjöld á Hellu og Sumardagar á Hvolsvelli nú í sum- ar. Að sögn Eymundar er einmitt nú gott tækifæri að móta stefnu fé- lagsins og marka hana fram í tím- ann. „Það sem af mér er ætlast í þess- ari vinnu er að sameina ferðaþjón- ustuaðila og fá þá til að vinna sam- an. Ég mun á næstu mánuðum hitta þá sem þetta mál skiptir og freista þess að fá fólk til að vinna hvert með öðru.“ Telur hann að svæðið hafi upp á mikið að bjóða handa ferðamönnum og ekki síður vænt- anlegum íbúum. Sagðist Eymundur vilja leggja það til við nýja stjórn ferðamála- félagsins Heklu að hún kalli alla til starfa, hvort sem þeir eru í stjórn félagsins eða ekki. Það fyrirkomu- lag hafi gefist vel í Ferðamálasam- tökum Suðurlands þar sem hann hefur verið í stjórn í nokkur ár. Morgunblaðið/Anna Ólafsdóttir Frá aðalfundi ferðamálafélagsins Heklu í Rangárþingi. Eymundur Gunn- arsson, atvinnu- og ferðamálafulltrúi, Jón Þórðarson fundarstjóri og Pétur Rafnsson, formaður Ferðamálasamtaka Íslands og verkefnisstjóri. Samvinna mikilvæg í ferða- þjónustu Hella
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.