Morgunblaðið - 03.10.2003, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2003 61
ÁLFABAKKI
kl. 4, 6, 8 og 10.
KEFLAVÍK
Kl. 6.
AKUREYRI
Kl. 6.
KRINGLAN
Kl. 6.
Stórkostleg
gamanmynd sem
er búin að gera allt
sjóðvitlaust í USA
með Jamie Lee
Curtis og
Lindsay Lohan í
aðalhlutverki.
Yfir 100 M$
í USA!
Þetta er sko
stuðmynd í
lagi!
KRINGLAN
Sýnd kl. 8 og 10. . B.i. 12.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8, og 10.15. B.i. 16.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 12.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 12.
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.30, 8 OG 10.30. B.I. 16 ÁRA
Frá leikstjóranum Ridley Scott sem
færði okkur myndirnar Gladiator,
Hannibal, Blade Runner og Alien
"Skotheldur leikur
og frábært handrit."
HP KVIKMYNDIR.COM
KRINGLAN
Sýnd kl. 10.20. B.i. 10.
KVIKMYNDIR.IS
ÁLFABAKKI
kl. 8 og 10.10. B.i. 16.
DV
ÓHT RÁS 2
SG DV
MBL KVIKMYNDIR.IS KVIKMYNDIR.COM
Skonrokk FM 90.9
Yfir
43.000
gestir!
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 10 ára.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16.
Topphasarmyndin
í USA
í dag.
Topphasarmyndin
í USA
í dag.
FRUMSÝNING
Fór beint ítoppstætið
í USA
TÓNLISTARMAÐURINN
Johnny Cash lést á dög-
unum. Með brotthvarfi hans
er óhætt að segja að einn af ris-
um bandarískrar tónlistarsögu sé
fallinn frá. Cash hafði áhrif víða
um veröld og náði að snerta við
tónlistarmönnum úr fjölmörgum
geirum. Nokkrir íslenskir tónlist-
armenn ætla því að heiðra minn-
ingu meistarans í kvöld og sýnir
listinn glögglega hversu djúpt
áhrif Cash liggja.
Þeir sem ætla að leika eru eft-
irfarandi: Megas og Súkkat, Kim-
ono, Santiago, Varði og Eiríkur
Norðdahl, Trabant, Mínus, Valur,
Pétur, Fræbbblarnir, Heiða og
Heiðingjarnir og Rúnar Júl-
íusson.
Kristján Sævarsson, eigandi
Leikhúskjallarans, segir að tón-
elskur bróðir sinn hafi stungið
upp á þessu við hann.
„Það var mjög auðvelt að fá
fólk til að taka þátt í þessu,“ seg-
ir hann. „Það vildi enginn missa
af þessu, virtist vera. Þetta kom
mér eiginlega á óvart. Stefnan
var svo að reyna að fá eins breið-
an hóp og hægt væri“
Kristján segir að allur að-
gangseyrir renni til Umhyggju,
félags til stuðnings langveikum
börnum. Þess má geta að Cash
sjálfur var duglegur við að
styrkja slíka sjóði á meðan hann
lifði.
Rúnar Júlíusson hefur lengi
fylgst með Cash, og ætlar hann
að troða upp í kvöld og syngja
hið sígilda „Ring of Fire“.
„Cash
hafði mjög
einstakan og
auðþekkj-
anlegan stíl,
röddina
þekkja allir
strax þó að
tónarnir hafi
ekki alltaf
verið hrein-
ir.“ segir Rún-
ar.
„Það er nú það sem þarf í þess-
um bransa, að standa dálítið út
úr.“
Rúnar segist eðlilega hafa
fylgst með Cash í gegnum tíðina
þó seint myndi hann teljast for-
fallinn aðdáandi. Sérstaklega hafi
honum þótt lífsstíll Cash merki-
legur.
„Ímynd Cash höfðar líka til
mín, þessi sterki stíll sem hann
hafði. Það var líka gaman að sjá
hann ná flugi á ný undir það síð-
asta. Sjarminn virðist algerlega
tímalaus sem skýrir t.d. veru
harðkjarnastrákanna í Mínus í
kvöld.“
Johnny Cash heiðraður með tónleikum
Johnny Cash er einn af risum banda-
rískrar tónlistarsögu.
Rúnar Júlíusson
Tónleikarnir hefjast kl. 23.00 en
dyr verða opnaðar kl. 22.00. Að-
gangseyrir er 1.000 kr. og renn-
ur óskiptur til Umhyggju, félags
til stuðnings langveikum börn-
um. Miðar verða í forsölu
hjá Japis á Laugavegi.
Risa
minnst