Vísir - 14.03.1981, Blaðsíða 22

Vísir - 14.03.1981, Blaðsíða 22
22 Laugardagur 14. mars 1981 NYTT1 SHAMPOO SHAMPOO Fonsharnpoo detbeskytterhöiBt modtxltcming ndrdubtugef (KSttoffer ' TlMOfiMWl HMtDTOGHNtHAB Reyndu Shampóið, sem varnar því að hárið þorni of mikið, sérstaklega við notkun hárþurrku. Blow inniheldur Vita Plus, sem umlykur hvert hár og veitir því vernd. Hárið heldur sínum eðlilega gljáa án þess að ofþorna. Kaupse/ s/f Molnlycke Hygiejne Laugavegi 25, sími 27770. Hinir geysivinsælu alíslensku / BÚSTAÐIR : ' til afgreiðslu í vor Leitið upplýsinga og tilboða. Greiðslukjör við flestra hæfi ÞAK hi. Simi 53473 á skrifstofutíma kvöld- og helgarsimar: Heiðar — 72019 og Gunnar — 53931 Þarna er Danny kominn i sina uppáhalds skotstöOu, og andstæðingur- inn stendur varnarlaus. Eins og sjá má er stökkkrafturinn gffurlegur. Visismynd Friðþjófur. Ekki veit ég hversu oft ég hef séð og hitt Danny Shouse, en aldrei hef ég séð hann öðruvisi en i góðu skapi. Hann er lítilljineö lágvÖxnustu mönnum, en snaggaralegur i hreyfingum og alitaf brosandi. Lifsgleðin skin úr hverjum andlitsdrætti, og oft virkar þessi gleði reyndar þannig að hann sé eigin- lega einum of kátur. Hann hlær í miðri setn- ingu og slær þá gjarnan á lærið. Hann er hvers manns hugijúfi,um það geta þeir borið vitni sem hafa orðið svo iánsamir að kynnast honum eitthvað þau tvö ár sem hann hefur dvalið hér á landi. Danny er körfuknattleikssnillingur, á þvi ieikur enginn vafi. Hann lék hér fyrra árið með Ármanni í 1. deild og kom liðinu upp i úrvalsdeild — á eigin spýtur sögðu margir. Hann skoraði varla undir 70 stigum i leik og hann á íslandsmetið i stigaskorun I einum ieik — 100 stig. í vetur lék hann með Njarð- vik i úrvalsdeildinniog það var ekki að sök- um að spyrja. íslandsmeistaratitillinn fór i fyrsta skipti suöur til Njarðvikur, Danny var langstigahæsti maður mótsins og hann var einróma kjörinn besti leikmaðurinn i móts- lok af liðsstjórum allra liðanna. — Hann er tvimælalaust besti erlendi ieikmaðurinn sem hér hefur leikið, en hver er hann? 14 systkini „Ég er fæddur 21. febrúar 1951 i Terre Haute i Indiana og er ein- hversstaðar i miðjum hópi 14 systkina” — nú hlær hann ógur- lega: „Pabbi vissi alveg hvað hann var að gera, en ég ætla ekki að eignast svona mörg börn”. „Pabbi rak sitt eigið fyrirtæki, annars hefði hann ekki getað komið öllum þessum hóp upp og séð um aðfæða alla þessa munna. Við höfðum alltaf nóg að borða og nóg til alls, hann vissi þetta allt saman gamli maðurinn — „the good old man"... Alltaf laminn! „Það var oft erfitt samt sem áður, enda var mikið slegist. Það hugsaði hver um það að ná i ein- hvern til að lemja á og margir vildu ná til min þvi ég var svo lit- ill. Ég var þvi oft barinn óþyrmi- lega. En ég reyndi að berja frá mér á móti eins og hægt var eða þá ég rauk á flótta. Annars stóðum við systkinin vel saraan og höfum alltaf gert”. Bolti frá ömmu „Ég var alltaf vitlaus i „base- ball” og ætlaði að leggja þá iþrótt fyrir mig. Hún amma min hefur þó sennilega verið á öðru máli þvi þegar ég var 14 ára gaf hún mér körfubolta i jólagjöf og þá byrjaði þetta allt saman. Ég byrjaði að leika mér með boltann^var i þvi langtimum saman að „dribbla” honum um allt og æfa mig að skjóta”. „Það voru aldrei nein vandræði vegna þess að ég var svartur. 1 Terre Haute var um helmingur ibúanna hvitur og hinn svartur og það voru aldrei nein teljandi vandræði. Annars hef ég átt heima mestan hluta ævi minnar þar sem hvitt fólk hefur verið i miklum meirihluta”. — Ég hef heyrt að þú hafir verið óknyttapiltur hinn mesti á þinum yngri árum og ekki verið talinn þesslegur að það ætti fyrir þér að liggja að verða iþróttamaður. Nú hlær Danny mikið. ,,Já þetta er vist rétt, ég var mikill gleðimaður, drakk talsvert og svallaði mikið. Ég þótti vist vera dálitið svakalegur hvað þetta snerti þvi allt mitt lif snerist um skemmtanir, drykkju og partý, en það breyttist. Færði fórnir „Ég sá að þetta gat ekki gengið svona ef ég ætlaði mér að ná tök- um á körfuboltanum, það var ekki hægt að fá sér drykk eða drykki rétt fyrir leik og fara svo að keppa eins og finn maður. Ég ákvað þvi að þetta skyldi breyt- ast. Ég fór að taka körfuboltann miklu fastari tökum, lagði mig allan fram og þá fyrst fór ég að sýna framfarir. Ég færði fórnir til þess að ná árangri. Ég fór að þróa minn eigin „stil”, breytti skotun- um og lá yfir þvi að verða betri og betri. „Við vorum með unglingalið, strákarnir i hverfinu og það hafði oftast komið i minn hlut að sitja á varamannabekknum, ég þótti ekki betri en það en það breyttist sem betur fór. Svo var ég svo lit- ill, fólk var að tala um að þessi strákur myndi aldrei geta neitt i körfubolta og ég vildi afsanna það”. í háskólann „Ég var orðinn miklu betri þeg- ar ég fór i Peru State Collega i Indiana en þar spilaði ég i þrjú ár. Mér gekk m jög vel og siðasta árið var ég kosinn besti bakvörðurinn i miðvesturrikjunum. Svo út- skrifaðist ég 1978 og kom til Is- lands árið eftir”. Engir isbirnir! „Bob Starr sem margir is- lendingar þekkja, bauð mér að koma með sér til Islands^ hann sagðist skyldu útvega mér vinnu hér við körfubolta. Ég vissi ekk- ert um Island, og mátti byrja á þvi að setjast niður og lesa mér til um landið. Ég hafði jú heyrt landsins getið, en vissi ekki meira um það en að ég hélt til dæmis að hér væru isbirnir á flakki á milli húsa. Kunningjar minir höfðu mjög gaman af þessu og spurðu mikið hvort það væri spilaður

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.