Morgunblaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 14
14 B | Morgunblaðið | Heimastjórn 100 ára L andshöfðingjaembætt- ið, sem lagðist niður með heimastjórninni 1904, varð til í tilraun- um dönsku stjórnar- innar á árunum upp úr 1870 til þess að styrkja land- stjórnina á Íslandi, án þess að ganga að þeim kröfum Íslendinga sem þóttu stefna að því að kljúfa Ísland út úr danska konungsrík- inu. Landshöfðingjar störfuðu í tæplega 31 ár og settu svo mikinn svip á þann tíma að hann hefur lengi verið kallaður landshöfð- ingjatími. Embættinu gegndu þrír menn, einn danskur af íslenskum ættum og tveir Íslendingar. Sá síð- asti þeirra, Magnús Stephensen, hefur líklega ráðið manna mestu um stjórn Íslands á sinni tíð, en lenti þó í ónáð dönsku stjórnar- innar af því að hann ætlaði sér stærri hlut en þótti viðeigandi í Kaupmannahöfn. Stofnun lands- höfðingjaembættis Fyrirrennari landshöfðingja sem æðsti umboðsmaður konungs- valdsins á Íslandi var stiftamtmað- ur. Síðustu öld embættisins sat stiftamtmaður á Íslandi og hafði með höndum æðstu stjórn lands- ins innanlands. Stiftamtmenn voru næstum allir danskir; Ólafur Stephensen var eini Íslendingur- inn sem var skipaður í embættið varanlega, á árunum 1790–1806. Árið 1865 kom nýr stiftamtmað- ur til Íslands, Hilmar Finsen, danskur maður að fæðingu og uppeldi en sonarsonur Hannesar Finnssonar, síðasta biskupsins í Skálholti. Árið 1872 var ákveðið með konungsúrskurði að leggja stiftamtmannsembættið niður og stofna í staðinn embætti lands- höfðingja. Hilmar Finsen skipti um embættisheiti 1. apríl árið eft- ir. Landshöfðingi hafði nokkru meira sjálfstætt ákvörðunarvald en stiftamtmaður hafði haft. Hér var því verið að flytja völd frá Kaupmannahöfn til Reykjavíkur. Embættisheitið var líka valið þannig að það dró fram sérstöðu Íslands í konungsríkinu; titillinn (landshövding, eins og hann var kallaður á dönsku) var ekki not- aður í Danmörku, en virðist hafa verið sóttur til Svíþjóðar. Sjálfstæðissinnaðir Íslendingar höfðu því nokkra ástæðu til að fagna stofnun landshöfðingjaemb- ættis, en þeir sýndu engin merki þess. Þegar Hilmar Finsen vaknaði sem landshöfðingi í húsinu við Lækjartorg sem nú er kallað Stjórnarráðshús sá hann (eða kannski var það vinnukonan) að svört dula hafði verið dregin að hún á fánastönginni við húsið. Þegar betur var skoðað sást að þar hékk líka dauður hrafn, og á dul- una var skrifað: Niður með lands- höfðingjann. Á samkomu skóla- pilta í Latínuskólanum viku síðar hindruðu piltarnir félaga sinn með ofbeldi í að mæla fyrir minni landshöfðingja. Landshöfðingi svaraði með því að neita að styrkja samkomuna og setti ofan í við rektor fyrir að þola svall og óspektir skólapilta. Jón Ólafsson ritstjóri skrifaði svo hastarlega um landshöfðingja að hann var dæmdur í fangelsi fyrir og greip til þess ráðs að flýja land til Ameríku. Þetta var kallað landshöfðingja- hneykslið og eru einhverjar fyrstu pólitísku mótmælaaðgerðirnar á Íslandi. Skýringar á þessari ólgu er að leita í þeirri stöðu sem sjálfstæð- ismál Íslendinga var í. Nokkrum árum fyrr, árið 1867, hafði litið út fyrir að samkomulag hefði tekist í deilu Dana og Íslendinga: Alþingi yrði að löggjafarþingi um sérmál Íslendinga, en ráðherravald í þeim málum yrði framvegis í Kaup- mannahöfn. Þetta samkomulag fór út um þúfur í bili, en var í meginatriðum lögfest í tveimur áföngum, með stöðulögunum svo- kölluðu, sem konungur staðfesti í byrjun árs 1871, og með stjórn- arskrá um sérmál Íslands, sem konungur gaf Íslendingum, að ósk Alþingis, árið 1874. Stofnun landshöfðingjaembætt- is var liður í þessari endurskipu- lagningu á stöðu Íslands í ríkinu. Danska þingið hafði samþykkt stöðulögin einhliða án atbeina Al- þingis eða nokkurrar íslenskrar stofnunar, og það sárnaði þjóð- ernissinnuðum Íslendingum gríð- arlega. Stofnun landshöfðingja- embættis með konungsúrskurði leit út sem framhald þeirrar stefnu að Danir segðu einir fyrir um stöðu Íslands innan konungsrík- isins. Það vakti óhjákvæmilega reiði, eins þótt breytingarnar stefndu í sjálfstæðisátt. Starfssvið Hlutverki landshöfðingja má skipta í þrennt. Í fyrsta lagi var hann yfirmaður embættismanna og miðstöð embættiskerfisins á Ís- landi. Hann átti að sjá um að embættum væri þjónað sómasam- lega, tók við skýrslum frá embætt- ismönnum og steypti þeim saman í skýrslur til ráðuneytanna í Kaup- mannahöfn. Hann tók við reikn- ingum frá gjaldheimtumönnum ríkisins á landinu og sá um land- sjóðinn. Í öðru lagi hafði landshöfðingi úrskurðarvald í ýmsum minni háttar málum sem heyrðu í eðli sínu undir ráðherra. Hann skar úr ágreiningi milli sveitarfélaga, gaf fólki leyfi til að giftast, ættleiða börn og skilja, og sá um fram- kvæmd íslenskra sérmála, að svo miklu leyti sem fjárlög heimiluðu. Landshöfðingjaskrifstofan varð þannig nokkurs konar undirráðu- neyti og hefur átt að bæta fyrir strjálar samgöngur milli Íslands og höfuðborgar ríkisins. Loks átti landshöfðingi að gera tillögur til ráðherra um sérmál Ís- lands. Þar má nefna veitingu emb- ætta, sem fól í sér lyklavöld að embættisframa á landinu. Einnig átti hann að gera tillögur um hvort ráðherra réði konungi til að stað- festa lagafrumvörp frá Alþingi eða synja þeim, og gátu fylgt því mikil pólitísk völd áður en þingræðis- stjórn komst á. Danski Íslandsráð- herrann í Kaupmannahöfn hafði jafnan lítinn áhuga á íslenskum málum, enda gegndi hann öðru og mikilvægara ráðuneyti jafnframt, dómsmálaráðuneyti Dana. Ef ekki var þeim mun ráðríkari embætt- ismaður í Íslandsráðuneytinu hlaut landshöfðingi að hafa mikil völd í Íslandsmálum. Landshöfð- ingi sat á Alþingi án atkvæðisréttar sem fulltrúi ríkisstjórnarinnar. Landshöfðingi hafði einn fastan starfsmann, landshöfðingjaritara. Þar að auki fékk hann til skrif- stofuhalds í upphafi 1.200 ríkisdali á ári, jafnvirði þokkalegra mennta- mannslauna, auk embættisbú- staðar þar sem hann hafði skrif- stofu sína. Hann hefur því getað ráðið sér að minnsta kosti einn skrifstofumann auk ritara síns. Sjálfur fékk landshöfðingi í upp- hafi 4.000 ríkisdala laun, auk 1.200 ríkisdala í risnu. Þá hafði hann jörðina Arnarhól til ábúðar og gat bæði leigt út slægjur og haft eina eða tvær kýr í fjósi. Landshöfðingjarnir Finsen og Thorberg Fyrsti landshöfðinginn, Hilmar Finsen, fæddist árið 1824 og var því rúmlega fertugur þegar hann fluttist til Íslands. Áður hafði hann verið bæjarfógeti í Sønderborg á eyjunni Als í hertogadæminu Slés- vík, en misst atvinnuna þegar Prússar og Austurríkismenn tóku Slésvík af Dönum í styrjöld árið 1864. Þá fór hann á eftirlaun danska ríkisins uns hann var sendur til Íslands. Landshöfð- ingjaembætti gegndi Hilmar í tíu ár. Þá fékk hann embætti yfirborg- arstjóra í Danmörku, en árið eftir varð hann innanríkisráðherra Dana og gegndi því starfi í eitt ár. Hann lést árið 1886. Framan af taldist Hilmar til þjóðernis-frjálshyggjumanna í stjórnmálum, og heldur í frjáls- lyndari kanti þeirra. En varla hefði hann fengið ráðherraembætti árið 1884 ef hann hefði ekki þótt traustur íhaldsmaður; ríkisstjórnin sem þá var við völd undir forystu gósseigandans Estrups var harð- asta íhaldsstjórn sem réð í Dan- mörku eftir að lýðræðisþróun hófst í landinu. Í íslenskum söguritum hefur Hilmar Finsen fengið fremur gott orð. Þó fer litlum sögum af verk- um hans í landshöfðingjaembætti. Má halda því fram að hann hafi markað þá stefnu sem var haldið að miklu leyti allan landshöfð- ingjatímann, að embættið væri framtakslaust um verklegar fram- kvæmdir. Sú stefna var auðvitað síður en svo nokkur nýjung, en í samanburði við grannlöndin var hún að verða tilfinnanlega úrelt. Eftirmaður Hilmars Finsen á landshöfðingjasessi var Bergur Thorberg. Hann var prestssonur frá Hvanneyri í Siglufirði, fæddur árið 1829, og hafði klifið stiga embættiskerfisins hratt og örugg- lega, lesið lögfræði í Kaupmanna- höfn, fengið vinnu í íslensku stjórnardeildinni þar, komið við stuttlega í ritstjórn Nýrra félagsrita Jóns Sigurðssonar, orðið amtmað- ur, fyrst í Vesturamti en síðar í sameinuðu Suður- og Vesturamti, setið á Alþingi sem konungkjör- inn. Hann var skipaður landshöfð- ingi í maí 1884 en naut þess að- eins í tæp tvö ár, því að hann lést snemma árs 1886. Bergur var vin- sæll maður en líklega fremur at- kvæðalítill. Ekki mun hann hafa látið mikið til sín taka í landshöfð- ingjaembætti. Magnús Stephensen Þriðji og síðasti landshöfðinginn var Magnús Stephensen. Hann var Magnússon sýslumanns í Vestur- Skaftafellssýslu og síðar Rangár- vallasýslu, fæddur árið 1836. Magnús faðir hans var sonur Stef- áns Ólafssonar Stephensen, ís- lenska stiftamtmannsins sem var nefndur hér á undan. Má segja að þeir Ólafur og Magnús sonar-son- ar-sonur hans marki upphaf og endi Stefánungaveldisins á Ís- landi. Framabraut Magnúsar var svipuð þeirri sem fyrirrennari hans hafði fetað: lögfræði við Kaupmannahafnarháskóla, starf í íslensku stjórnardeildinni ásamt setu í ritstjórn Nýrra félagsrita, dómarastarf í Landsyfirrétti í Reykjavík, með setu á Alþingi sem konungkjörinn, amtmannsemb- ætti í Suður- og Vesturamti og landshöfðingjaembætti 1886. Magnús Stephensen sat í tæp 18 ár sem landshöfðingi og setti lang- mestan svip á embættið. Orð fór af því að hann safnaði að sér liði trúrra stuðningsmanna og nýtti ótæpilega áhrif sín á embættaveit- ingar til þess að tryggja sér fylgi embættismanna. Orðin lands- höfðingjaflokkur, landshöfðingjal- ið og landshöfðingjaklíka urðu al- Síðustu embættis Fulltrúi Danakonungs | Magnús Stephensen, síðasti og áhrifamesti landshöfðinginn, í einkennisbúningi embættisins. Landshöfðingjatíminn leið undir lok með tilkomu heimastjórnar 1904 Eftir Gunnar Karlsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.