Tíminn Sunnudagsblað - 27.08.1967, Blaðsíða 4

Tíminn Sunnudagsblað - 27.08.1967, Blaðsíða 4
' Bær f Borgarfirði. Þar var nú í sumar vígð ný kirkja, sem kennd er vlð Hróðólf biskup. 1- lÍ¥ ~ jl ýf~ . Hróðólfur er nefndur farand- biskup, sem tfar hér á landi á árunum 1030-1049. Hann var eng- ilsaxneskur að ætt, skyldur Eng- landskonungum, merkur maður og gegn. Hróðólfur, öðru nafni Rudolf, kom með Ólafi helga Noregskonungi frá Englandi til Noregs og dvaldi með honum þar. Um 1029 fór Hróðólfur biskup til Brima á fund Liavizos erkibiskups > og er talið, að erkibiskup hafi tal- ið hann á að fara til íslands að skyrkja þar kristnihald. En Norð- urlönd lutu þá erkistólum i Brimum. Hróðóliur dvaldi hérlendis 1 19 ár, á Lundi í Lundarreykjadal og í Bæ í Bæjarsveit, en þar mun hann hafa haldið skóla og kennt prestlingum og sett þar eitt fyrsta munklífi (klaustur) á Norðurlönd- um. Sagt er í Landnámu, að þrír munkar hafi orðið eftir á Bæ, er Hróðólfur fór þaðan. Er eins þeirra getið í sambandi við draum, sem hanp dreymdi, um helgi Ás- ólfs einsetumanns Konálssonar, er hér kom út á landnámsöld og bjó á kirkjubólstað á Hólmi á Akra- nesi og var kristinn og írskrar ættar. Virðast munkarnir í Bæ hafa stuðlað að helgi Ásólfs, sem var hinn helgasti maður kallaður, og voru bein hans skrínlögð 1 kirkju heilags Kolumkilla á Innra- Hólmi. Hefur sá atburður verið til styrktar kirkju og kristni í landinu og tengt hinn nýja sið i landinu hinum fyrstu kristnu mönnum hér og hinum gömlu. pöpum, sem hér hafa án efa átt einhvers konar klaustursamfélög, Munklífið í Bæ hefur eflaust verið af Benediktsreglu, því að Hróðólfur varð ábóti í hinu fræga Abingdonkiaustri á Englandi eftlr komu sína þangað að veitingu Ját- varðs konungs, frænda síns, en þar var Benediktsregla haldin og klaustur reist þar fyrst á 7. öld. Hefur Hróðólfur án efa verið þar, TÍM'NN - SUNNUDAGSBLAÐ KLAUSTRAÞÆTTIR VI 724

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.