Morgunblaðið - 09.02.2005, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 09.02.2005, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2005 7 SJÓSLYSIÐ „ALLAR okkar að- gerðir í dag, gærkvöldi og liðna nótt sneru að áhöfninni og fjöl- skyldum hennar,“ sagði Knútur G. Hauksson, forstjóri Samskipa, í samtali við Morgunblaðið síðdegis í gær. Spurður um verð- mæti farms Jökulfells sagði hann að á þessu stigi málsins hefðu menn minnstar áhyggjur af farminum, sem var 2.100 tonn af stáli. En hvaða áhrif hefur skip- stapið á flutningaáætlun Samskipa? „Það er ljóst að við höfðum næg verkefni fyrir þetta skip, en við munum leysa það þegar að því kemur með öðrum skipum,“ sagði Knútur. Samskip leigðu Jökulfell af K/S Difko Nord en Tesma í Eist- landi sá um tæknilegan rekstur og mönnun skipsins. Tesma hefur höf- uðstöðvar í Kaup- mannahöfn og er sam- starfsfélag skipa- útgerða víða um heim og gerir út meira en 80 skip og hefur meira en 2.100 sjómenn á yf- ir 160 skipum í þjón- ustu sinni. Knútur sagði að þótt skipið hafi verið leigt með áhöfn hefði það engu að síður ver- ið hluti af þjón- ustukerfi Samskipa. Þó að áhöfnin hafi ekki verið starfsmenn Samskipa hafi þeir verið samstarfs- menn. Knútur sagði að skipt hafi verið um áhöfn að hluta á Jökulfelli fyrir þessa ferð. Nýliðar um borð í áhöfn voru reyndir sjómenn og höfðu m.a. siglt á systurskipum Jökulfells. „Sumum höfðum við unnið með, en aðrir voru til þess að gera nýir um borð,“ sagði Knútur. Knútur G. Hauksson, forstjóri Samskipa Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Jökulfellið við Sandgerði á liðnu ári. Skipið var lestað stáli er það fórst. Knútur G. Hauksson Áhöfnin og fjölskyldurnar í fyrirrúmi RANNSÓKNARNEFND sjóslysa bauð í gær aðstoð sína vegna rann- sóknar á sjóslysinu þegar MS Jökul- fell sökk við Færeyjar í fyrrakvöld. Jón Ingólfsson, framkvæmdastjóri nefndarinnar, var í gær í sambandi við rannsóknarnefnd sjóslysa í Eist- landi og fulltrúa sjóslysarannsókna á eynni Mön þar sem skipið er skráð. „Við munum bjóða okkar aðstoð og einnig afla allra upplýsinga fyrir okk- ur,“ segir hann. Jón gerir ráð fyrir að sjópróf fari fram erlendis en ekki sé enn sem komið er vitað hvar þau fari fram eða hvernig formlegri rannsókn á slysinu verði háttað. Ekkert er enn vitað hvað olli því að Jökulfellið sökk. Jón segir ekkert hægt að segja til um það á þessu stigi. Veður virðist þó ekki hafa verið svo slæmt á þessu hafsvæði í fyrrakvöld að það ætti að ógna öryggi skipsins. Jökulfellið var með 2.000 tonn af stáli innanborðs. Jón segir ljóst að þetta sé mjög þungur farmur sem liggi lágt í skipinu en hann tók fram að ekki hefðu borist upplýsingar um hvernig gengið var frá farminum. Fylgjast með og aðstoða við rannsókn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.