Morgunblaðið - 28.07.2005, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 28.07.2005, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2005 47 DAGBÓK BIOPAT UDDANNELSEN! Foredrag i august Fredag d. 26 august kl. 17-20 eller Søndag d. 28 august kl. 14-17 Norræna hüsid, Sturlugötu 5, 101 Reykjavik Tilmelding nødvendig!! Pris 1500 Foredrag om Biopati for dig som ønsker at vide mere om naturmedicin, til egen behandling, er terapeut eller vurderer at tage Biopatuddannelsen, som starter i Reykjavik i september 2005. En stor og bred uddannelse indenfor naturmedicin • 36 MDR UDDANNELSE, deltid • 18 MDR FOR DIG DER ER TERAPEUT, deltid • KAN KOMB. MED ARBEJDE • SELVSTUDIUM, KORR.UNDERVISNING • UNDERVISNING AF SPECIALISTER FRA DK, N OG IS • GIR TITLEN BIOPAT • EN PRAKTISK RETTET TERAPEUT-UDDANNELSE Biopati er et unikt analyse- og behandlings- system, grundlagt av Kurt Nielsen i 1980. En række naturmedicinske former er integreret: *Biopatiens principper *Alternativ sygdomslære *Øreakupunktur *Zoneterapi *Meridianlære *Ernæringsterapi *Vitamin- og mineralterapi *Regulations- og phytoterapi (urter) *Homøopati *Symbioseterapi *Immunologi *Irisanalyse *Klientpsykologi *Biopatisk strategi *Vegatest *Praksis m.m. Vi sender info-hæfte til alle interesserede KONTAKT IS: Sigurdis Hauksdóttir - TLF 5540427 Biopatskolen, Pilegårds Vænge 44, DK 2635 Ishøj KONTAKT DK: TLF +46 702879405 FAX +45 43533432 MAIL: Biopatskolen@ishoejby.dk Í KLINK og Bank verður í kvöld haldin raftónlistar- veisla. Þar munu leika þjóð- verjinn Binaer, hinn aust- urríski Frans Pomassl auk Product 8, Auxpan og Rept- ilicus sem leikur í fyrsta skipti opinberlega á Íslandi í 10 ár. Binaer þykir með eft- irsóttari skífuþeyturum Vín- arborgar þessi misserin en Franz Pomassl hefur, að því er greinir í frétta- tilkynningu, vakið mikla athygli með kraftmiklum framkomum og er með stærri nöfnum í raf- tónlistar-bransanum. Tónleikarnir hefjast kl. 21 og er aðgangseyrir kr. 500. Klink og Bank er til húsa að Braut- arholti 1. Franz Pomassl raftónlistarmaður. Rafmagnaðir Vínartónleikar Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofa, bað. Víd- eóstund kl. 13 í dagstofunni, allir vel- komnir. Árskógar 4 | Bað kl. 8–14. Handa- vinna kl. 9–12. Boccia kl. 9.30. Leik- fimi kl. 11. Hjólahópur kl. 13.30. Pútt- völlur kl. 10–16.30. Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, fóta- aðgerð, handavinnustofan er opin án leiðbeinanda. Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og dagblöð, kl. 9–16.45 hárgreiðslu- stofan opin, kl. 11.15–12.15 matur, kl. 14.30–15.30 kaffi. Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall og dagblöðin. Kl. 9 hárgreiðsla. Kl. 10 pútt og boccia. Kl. 12 hádegismatur. Kl. 14 félagsvist. Kl. 15 kaffi. Hvassaleiti 56–58 | Böðun alla daga fyrir hádegi. Hádegisverður. Fé- lagsvist kl. 13.30. Dagblöðin liggja frammi til aflestrar. Hæðargarður 31 | Betri stofa og Listasmiðja opin kl. 9–16. Púttvöll- urinn opinn alla daga. Gönguhópurinn Sniglarnir kl. 10. Sönghópur kl. 13.30. Aðstoð við böðun kl. 9–16. Hádeg- ismatur. Síðdegiskaffi. Skráningu í haustnámskeið lýkur 1. ágúst. Uppl. í síma 568-3132. Síðdegiskaffi fimmtudag 28. júlí. Bára bakar. Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–14 aðstoð v/ böðun. Kl. 9.15–15.30 handavinna. Kl. 11.45–12.45 hádegisverður. Kl. 13–14 leikfimi. Kl. 14.30–15.45 kaffiveit- ingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Handa- vinnustofan opin. Hárgreiðslu- og fótaaðgerðastofur opnar. Frjáls spila- mennska. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Kyrrðar- og fyr- irbænastund í kapellunni kl. 12. Garðasókn | Kyrrðar- og fyrirbæna- stund er hvert fimmtudagskvöld í Ví- dalínskirkju kl. 22. Tekið er við bæn- arefnum hjá prestum og djákna. Boðið upp á kaffi í lok stundarinnar. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Eld- urinn kl. 21 fyrir fólk á öllum aldri. Lof- gjörð, vitnisburðir og kröftug bæn. Allir velkomnir. www.gospel.is. Staður og stund http://www.mbl.is/sos UPPHAFNING klassískra tón- skálda á þjóðlegri tónmennt – einkanlega frá tímum áður en dreifbýliseyrun tóku að mengast iðnarafþreyingu af hljómplötum og útvarpi – mynda kannski feg- urstu dæmi tónsögunnar um frjótt og gefandi jarðsamband milli fag- menntaðrar einstaklingssnilldar og ósjálfráðra sköpunarþarfa al- þýðu. Að sama skapi má kannski segja að þetta farsæla samband meðal akademískra tónskálda og almennings hafi því miður end- anlega rofnað þegar afþreying- ariðnaðurinn leysti síðustu leifar rótgróinnar þjóðlegrar tónsköp- unar af hólmi um miðbik fyrri ald- ar. Béla Bartók er að þessu leyti nánast sérkapítuli, því varla náði nokkur annar 20. aldar tónhöf- undur að tengja fyrrnefndan al- þýðugrunn jafnskáldlega við fram- sæknasta tónmál síns tíma. Enginn furða að Jón okkar Leifs fyndi sér þar hvað nánustu sam- svörun meðal tónskálda næstu kynslóðar á undan sér. Jafnframt var þessum frumkvöðli nútíma- legra þjóðlagarannsókna umhugað um tónlistaruppeldi ungviðisins, eins og sést m.a. af píanólagabálk- unum Mikrokosmos og „Fyrir börn“ – og dæmi þriðjudags- kvöldsins í Sigurjónssafni, 44 dúó- um fyrir tvær fiðlur, sömdum 1930-32 sem æfingar fyrir nem- endur þýzka kennarans Erich Doflein. Nema e.t.v. að einu leyti, þ.e. í tónsmíðum, sem Bartók taldi ókennandi – hafi hann þá ekki með téðum píanóæfingastykkjum jafnframt viljað veita vakandi ung- mennum hvetjandi sýnishorn af skapandi útfærslu, líkt og t.d. Bach með Invensjónum sínum. Í því samhengi eru Fiðludúóin óneitanlega sér á parti, því þessar 44 örstuttu andrúmsmíníatúrur af þjóðdönsum, barnagælum, söng- leikjum, hergöngulögum, ást- arsöngvum og þulustemmum frá Balkanlöndunum skilja þráfald- lega sárþráða frekari útfærslu eft- ir í lausu lofti. Engu líkara en að Bartók hafi í aðra rönd viljað segja: „Og bæti nú við hver sem getur!“ Oft og iðulega varð manni hugs- að til Beethovens, er með árunum brilleraði öðrum fremur í að prjóna sífellt meira við minna, og hvað hann hefði ugglaust getað fengið út úr þessu oft á tíðum ótrúlega merkingarhlaðna frum- efni. Túlkun Hlífar Sigurjónsdóttur og Hjörleifs Valssonar kom mér satt að segja á óvart. Ekki sízt af því að ég hafði til þess að gera ágætan samanburð úr heima- diskótekinu í meðförum Andrásar Kiss og Ferencs Balogh frá 1991. Ef setja ætti puttann á eitthvað eitt, held ég að verði að draga fram hina fínlegu nálgun þeirra félaga á nærri því „upphaflegum“ barokknótum, sem í krafti heið- tærrar tónmyndunar (vitaskuld háðri óaðfinnanlegri inntónun) gerði mun meira fyrir oft djarfa „afstrakta“ raddfærslu Bartóks á alþýðlegu viðfangsefni sínu en tókst hjá fyrrtöldum löndum hans. Því þó svo að eitt og eitt stykki hefði þolað manndrápslegra tempó, og kannski ögn meiri snert af balkanskri villimennsku í hrynskerpu, þá var samt eins og flest kæmist nær sjálfum kjarna tónverkanna en tókst hjá fyr- irmynd minni að heiman. Þetta var músíkölsk spila- mennska fram í fingurgóma. Og ef útkoman á væntanlegri hljóðritun þeirra Hlífar verður af sama karat og heyra mátti umrætt þriðju- dagskvöld, er varla spurning hvor plötuútgáfnanna tveggja lendir framvegis í meira uppáhaldi hjá þessum hlustanda. Hið upphafna jarðsamband Tónlist Sigurjónssafn Bartók: 44 fiðludúó. Hlíf Sigurjónsdóttir og Hjörleifur Valsson fiðlur. Þriðjudaginn 26. júlí kl. 20:30. Kammertónleikar Ríkarður Ö. Pálsson Morgunblaðið/Sverrir Gunnar Gunnarsson og Sigurður Flosason. Í DAG munu Sigurður Flosa- son og Gunnar Gunnarsson leika á hádegistónleikum í Hallgrímskirkju. Munu þeir félagar flytja íslensk ætt- jarðarlög í eigin útsetn- ingum og fær spuninn að ráða ríkjum. Meðal verka á efnis- skránni eru „Land míns föð- ur“ eftir Þórarin Guðmunds- son, „Lofsöngur“ Sveinbjörns Sveinbjörns- sonar og „Hver á sér fegra föðurland“ eftir Emil Thor- oddssen. Einnig verða á efnisskrá íslensk einsöngslög og ís- lensk dægurlög sem hafa fest sig í sessi sem n.k. ætt- jarðarsöngvar. Lögin á tónleikunum voru gefin út á diskinum Drauma- landið sem tilnefndur var til Íslensku tónlistarverð- launanna. Ættjarðarlögin á aðra vegu NÚ STENDUR yfir á Kjarvals- stöðum sýningin Úrval verka frá 20. öld. Um er að ræða sýningu á verkum í eigu Listasafns Íslands og er sýningin í boði Listasafns Reykjavíkur. Á sýningunni gefur að líta, að því er segir í tilkynningu, mörg af lykilverkum íslenskrar lista- sögu enda spannar sýningin nær alla 20. öldina og er svo víðamikil að hún nær yfir alla sali Kjarvals- staða og veröndina úti. Er sýningunni skipt upp í fjög- ur tímabil eftir viðfangsefnum: Náttúran og þjóðsagan, Mann- eskjan, litur, tjáning, Um form og náttúru og loks Raunsæi og veru- leiki. Má á sýningunni finna verk eft- ir brautryðjendur síðrómantíska landslagsmálverksins, nýsköpun expressjónista fjórða áratugarins, abstraktverk fimmta og sjötta áratugarins auk verka Súmmara og þeirra samferðamanna frá sjö- unda áratugnum. Í fréttatilkynningu segir að á sýninguna hafi verk ekki verið valin innan ákveðins tímaramma, heldur ákvarðast val einstakra verka með hliðsjón af þeirri þró- un sem hefur átt sér stað á ferli hvers listamanns. Jón Engilberts: Kvöld í sjávarþorpi, 1937. Úrval 20. aldar verka á sýningu Kjarvalsstaða
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.