Tíminn - 02.04.1970, Blaðsíða 2

Tíminn - 02.04.1970, Blaðsíða 2
f ' Myndin er tekin á frvmsýningunnl. NÝÁRSNÚTTIN SÝND Í FLÚANUM Bbjas-Vorsaibæ, þriðjudag. JÞrjú nágranna ungmennafclög í Flóan'jm, Baldur, Sam'hygð og Vafca, hafa æft sj'ónleiikinn Nýárs- nóttina, eftir InjiriSa Einarsson, aS undanförnu, og var frumsýn- fogin í Þjórsárveri í gærkvöldi. Húsfyllir var á frumsýninguinni og ivtoru undirtektir áhorfenda frábær lega góðar. Leikstrjór'i er Eyvindur ErlondsSon, og sá hann um gorð Jeifctjalda, sviðsetningu og lýs- Prófkjör Sjálfstæðis- manna á Blönduósi EJ—iReyikjavík, þriðjudag. í upphafi þessa mánaðar fór fram prófkjör hjá Sjálfstæðis- mönnum á Blönduósi, og átti að kjósa menn í fimm efstu sætin á fnamboðslista flokksins. Plest atkvæði fengu: 1. Jón ís- berg, 2. Jón Kristinsson, 3. Bald ur Valgeirsson, 4. Einar Þorláks son, 5. Oli AadinegSrd. í síðustu kosningum fékk flokk urinn tvo fulltrúa af fimm í hreppsnefnd, en þeir voru Einar Þorlákgson, svitarstjóri, (sem lenti í 4. sæti í próf'kjörinu) og Einar Á. Evensen, (sem ekki er meðal 5 efstu). ingu. Honum til aðstoðar við leik tjialdsmáði var Jón Kristjánsson, og við leiktjaldamálun Sigríður Kristjánsdótttir. Ljósameistari er Albert Sigurjónsson._ Sön'gstjóm og undirleik annast Ólafur Sigur- jónsson. Hlutverkin í sjónleiknum eru 19 og auk þess huldufólk, álfar og söngfólk. Eins og ikunnugt er fer Nýársnótt Indriða Einarssonar að mestu fram í álfheimum á Nýárs- nótt og sýnir álfatrúna eins og hún var mótuð í þjóðarsálina áður fyrr. Með hlutverk álfakóngsins fer Gunnar Halldórsson, en Arn- dís Erlingsdóttir leikur dóttur hans Mjöll, Sjöfn Halldórsdóttir leikur Áslaugu álfkonu, Ljósbjört og Heiðbláin stallsystur hennar leika þær Anna María Tómaas- dóttir og Halla Aðalsteinsdóttir, Egill Örn Jóhannsson leikur stall- ara konungs, Sigurður Guðmunds- son leikur Reiðar sendimann, Guðni Ágústsson lei'kur Svart þræl, álfakópgsins, og álfasveina leika þeir Ómar Breiðfjörð Jón Krist- jánsson og Pétur Hermannsson. Mannfólkið lei'ka þeir Tryggvi Bjarnason, er leikur Guðmund bónda, Margrét M. Öfjörð leikur Margréti konu hans, Margrét Björnsdóttir leikur Önnu systur hennar, og Jón fósturson þeirra, leikur Róbert Maidsland, Guðrúnu unnustu hans leikur Sigrún Á. Gísladóttir, Sigríður Bjarnadóttir leikur Siggu þjónustustúlku, Krist- inn Helgason leikur Grím fyrrver andi verzlumarmann og Sigurður Björgvinsson leikur Gvend snemm baara. Eins og áður segir voru undir- tektir áhorfenda með afbrigðum góðar á frumisýningu. Heildarsvip ur sýningarinnar var eftirmimni- legur. Hinn rammíslenzki álfa og ævintýrablær vekur ósvi'kna athygli áhorfenda. Leiksviðsbúnaður'og lýs ing álfheimanna var að allra dómi með því bezta sem sézt hefur aust an fjalls. Hefur leikstjóri lagt gífurlegt starf í að skapa þá eft- irminnilegu heildarmynd, sem sýn ingin bauð upp á. Slíkar sýnimgar sem þessi á Nýársnóttinni, er ekki neitt hismi, heldur alvara lífsins, í ógnveldi sínu barátta um líf og dcvuða, hjátrú og hindurvitni, hat- ur, ást. Ég er sannfærður um, að margir Sunnlendingar vilja sjá þetta listaverk Indriða Einarsson- ar í þeim afbragðsbúningi, sem Eyvindur Erlendsson hefur búið það í, að þessu sinni. Meðferð leik endanna á hlutverkunum er að sjálfsögðu misjöfn, mörg hlutverk in eru afbragðsgóð og eftirminni leg. Næsta sýning á leikritinu verð- ur í Þjórsárveri annað (kvöld, mið vikudagskvöld, og síðan verða sýn- ingar é laugardag og sunnudag í Þjórsárveri. A Hvar næst ? f-l J Hvernæst? L DREGIÐ VERÐUR MÁNUDAGINN 6. APRÍL Vinningar gera hvorki mannamun né staSarmun. Gleymið ekki að endurnýja. Síðustu forvöð fyrir hádegi dráttardags. Happdrætti SÍBS 1 FLVIMTUDAGUR 2. aprfl 1970. Ungur Keflvíkingur hlýtur viðurkenningu í Banda- ríkjunum sem vísindamaður Fyrir 10 arum var sagt fra því í íslenzkum dagblöðum, a'5 17 éra piltur af íslenzku foreldri Hlöðver Pálsson, fæddur í Kefilavík og al- ina þar upp fciil 10 ára aldurs, en flutti þá með móður sinni Krist- ínu Gísladóttur, vestur til Banda- ríkjauna, er hún giftist þarlendum marnni, hefðd hlotið verðlaun fyr- ir stjarnfræðilegia ritgerð sem eitt af beztu ví? i nd am amnsef num í Baindadkjunum. Hlöðver tók fyrir þremur árum „mast'ers“ próf í stjörnufræði með frábærum vitnishurði frá Kansas University, en síðustu 3 árin hef- ur haun unnið að stjarnfræðileg- um rannsóknum í sambandi við The University of Michigan í Antn Ar- bor og lauk doktorsprófi þaðan í stjömufræði í desember s, 1. fyrir ritgerð um „The Orgiu and Dyn- amical Evolution of the Sol'ar Sy- stem.“ Nokknu síðar var honum boðið að kymraa niðurstöður raunisókna sinrna á uppruna stjarnanna, á þingi amerískira stjamfræðinga, The Aimerican Astronomical Soc iety, í New York. Samkvæmt frétt um, sem ættfólki hans hér heirna hefur borizt frá honum nýlega, er dr. Hlöðver ráiðinn aðstoðarprófess or váð háskólann í Michigan án kennsluskyildu, þar eð hann vinn Hlöðver Pálsson ur eingöngu fyrst um sinn að út- gáfiu á niðurstöðum rannsókna sinna á undanförmum áruim. Hilöðver Pálsson kallar sig Jack G. Hills, en í bréfum heim til íslands og í heimsókn simnd hingað fyrir 2 árum beitir hann hiinu ís'lenzka nafni. I bréfi til föð ur sínis, Páls S. Pálssouar, hrL, í fehrúar s. 1. geriir dr. Hlöðver ráð fyrir því að sækja alþjóðaþing stjarnfræðiingia „The Internationa! Astromomical Union (I.A.M.) £ Brigihton í Englandi í ágúst n. k. og hafa þá viðdvöl hér heima, eftir því sem móðurbróðir hans, Erlingur Gíslason Eikjuvogi 12, tjáði blaðinu í gær. ------------------------------■; Antigóna í síðasta sinn í kvöld í bvöld, fimmtudagskvöld, verð ur síðasta sýning á AntigkSnu hjá Leikfélagi Reyfcjavikur. Er þetta 25. sýniogin. Á skírdag hafði verið auglýst, að þá væri siðasta sýning á leiknum, eu breytt var til þar siem stór hópur fólks varð frá að hverfa í það sinn. Geysileg að- sókn hetfur verið að þessum leik. Betur má ef duga skal 40. sýning í kvöld, fimmtudaginn 2. aprfl, verður gafnanleikurinn Betur má ef duga skal, eftir Peter Ustinov, sýndur í 40. sinn í Þjóðleikhúsinu. Aðsókn að leiknum hefur verið mijög góð, eins og sýningarfjöld- inn sýnir, enda hefur enginn gam anlei'kur náð þetta háum sýninga- fjölda hjá Þjóðleikhúsinu á síðari árum. Þetta er þriðja leikritið eftir Ustinov, sem sýnt er í Þjóð- leikhúsinu. Leikurinn var frum- sýndur þann 10. október s.l. og hefur gengið síðan við mjög góða aðsókn eins og fyrr segir. Leik- stjóri er Klemenz Jónsson, en að- alhlutverkin eru leikin af Ævari Kvaran, Guðbjörg Þorbjarnardótt- ur og Rúrik HaraldsSyni. Iðnaðarbanki Islands vann „Landsbankabikarinn" í firmakeppni Taflfélags Reykjavíkur 1969 f gær veitti skrifstofustjóri Iðn- aðárbankans, Jón Sigtryggsson, mót fcöku veglegum farandbikar, sem bankinn vann í firmakeppni Tafl- félags Reykjavíkur 1969.. AIls tóku þátt í keppninni, sem var i útsláttarkeppni, rúmlega eitt hundr I að fyrirtæ'ki. í lokakeppninni sigr- aði Jón Friðjónsson fyrir hönd Iðnaðarbanka íslands, hlaut 21 vinning úr 23 skákum. í 2.. sæti varð Björn Þorsteinsson, sem tefldi fyrir Morgunblaðið, með 2014 vinning, en í 3. sæti Ingvar Ás- mundsson, sem keppti fyrir Heild- verzlun Lárusar Ingimarssonar. með 19 vinnluga. Fyrsta útsláttarkeppnin í firma keppni Taflfélags Reykjavíkur 1970 fer frami í maímánuði og hefst skráning í keppnina nú um miðjan apríl.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.