Fréttablaðið - 18.04.2006, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 18.04.2006, Blaðsíða 34
 18. apríl 2006 ÞRIÐJUDAGUR34 �������������������� ����������������������������� ������ ���� ���������� �� ����������� ������ ���� �������� �� ����������� ������ ���� ���������� �� ����������� ������ ���� ���������� �� ����������� ������ ���� �������� �� ����������� ������ ���� ���������� �� ����������� ������ ���� ���������� �� ����������� ������ ���� �������� �� ����������������� ���� ���������� �� ����������� ������ ���� �������� �� ����������� ������ ���� �������� �� ����������� ����� ��� ���� ������� ������� ����� ��� ���� ����� ��� ���� HVAÐ? HVENÆR? HVAR? APRÍL 17 18 19 18 19 20 21 Þriðjudagur ■ ■ SJÓNVARP  17.00 Gillette HM Sportpakkinn á Sýn.  17.35 Meistaradeildin á Sýn. Fréttaþáttur um deildina.  18.30 Meistaradeild Evrópu á Sýn. Bein útsending frá leik AC Milan og Barcelona.  18.35 Enska knattspyrnan á Enska boltanum. Bein útsending frá leik Wigan og Aston Villa. Iceland Express-deild karla 4. leikur SKALLAGRÍMUR - NJARÐVÍK 60-81 Stig Skallagríms: George Byrd 20 (14 fráköst), Pálmi Þór Sævarsson 10, Pétur Már Sigurðsson 9, Jovan Zdravevski 8, Dimitar Karadzovski 5, Axel Kárason 4, Hafþír Ingi Gunnarsson 4. Stig Njarðvíkur: Jeb Ivey 30 (12 af 17 í skotum), Brenton Birmingham 22 (13 fráköst), Friðrik Stefánsson 9 (12 fráköst), Egill Jónasson 9, Guð- mundur Jónsson 6, Halldór Karlsson 3, Kristján Sigurðsson 2. 3. leikur NJARÐVÍK - SKALLAGRÍMUR 107-76 Stig Njarðvíkur: Brenton Birmingham 32, Jeb Ivey 23 (9 stoðs.), Jóhann Árni Ólafsson 15, Frið- rik Stefánsson 11, Egill Jónasson 10 (9 fráköst), Halldór Karlsson 5, Hjörtur Einarsson 4, Kristján Sigurðsson 3, Guðmundur Jónsson 2, Örvar Kristj- ánsson 2. Stig Skallagríms: Jovan Zdravevski 17, George Byrd 16 (10 fráköst), Axel Kárason 11, Heiðar Hansson 10, Dimitar Karadzovski 9, Pétur M. Sigurðsson 8, Pálmi Sævarsson 4, Hörður Unnsteinsson 1. ÚRSLIT GÆRDAGSINS KÖRFUBOLTI Njarðvík hafði mikla yfirburði gegn Skallagrími í þriðju viðureign liðanna í úrslitum Ice- land Express-deildarinnar sem fram fór laugardaginn fyrir páska. Njarðvík sigraði með 31 stigs mun á heimavelli sínum, 107-76. Það var aðeins í upphafi sem gestirnir héldu í við heimamenn en Njarð- víkingar fóru á kostum í öðrum leikhluta og gerðu þar út um leik- inn. Brenton Birmingham átti stór- leik og skoraði 32 stig, þar af átta þriggja stiga körfur, en Jeb Ivey skoraði 23 stig og gaf níu stoð- sendingar. Þá átti Jóhann Árni Ólafsson mjög góða innkomu af bekknum og skoraði 15 stig. - vig Þriðji úrslitaleikurinn: Algjört burst hjá Njarðvík KÖRFUBOLTI Eftir þriggja ára ein- okun Keflavíkur hafa nágrannarn- ir í Njarðvík endurheimt Íslands- meistaratitilinn í körfubolta karla. Þeim grænklæddu héldu engin bönd í fjórðu úrslitaviðureigninni gegn Skallagrími í Borgarnesi í gær en þar staðfestu Njarðvíking- ar endanlega að þeir hafa einfald- lega yfir besta liðinu á Íslandi að ráða. Lokatölur urðu 60-81 og er þrettándi Íslandsmeistaratitill Njarðvíkur, frá því að núverandi deildarfyrirkomulag var tekið í notkun, því orðinn að staðreynd. „Vörnin var yndisleg. Mér er alveg sama hver skorar en það er ljóst að við unnum þetta einvígi á vörninni. Þetta er besti varnar- leikur á Íslandi í dag,“ sagði Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarð- víkur í leikslok. „Það er orðið allt- of langt síðan við unnum titilinn síðast en strákarnir hafa verið að vinna fyrir þessu í allan vetur og eiga þetta skilið,“ bætti Einar Árni við. Miðherjinn Friðrik Stefáns- son var á sama máli og kvaðst gríðarlega stoltur yfir árangrin- um í ár. „Þetta lið á titilinn sann- arlega skilinn,“ sagði Friðrik. Eins og þjálfarinn minntist á spiluðu gestirnir úr Njarðvík gríð- arlega öfluga vörn í leiknum í gær og náðu heimamenn ekki að skora eina einustu körfu utan af velli fyrstu fimm mínútur leiksins. Skallagrími til happs var sóknar- leikur Njarðvíkur ekki að ganga sem skildi en gestirnir náðu þó mest 10 stiga forystu í 1. leikhluta. Að loknum fyrsta leikhluta var staðan 16-23 fyrir Njarðvík en um miðbik annars leikhluta var for- skotið komið niður í tvö stig, 25- 27. Njarðvíkingar náðu síðan góðum leikkafla á síðustu tveimur mínútum fyrri hálfleiks, skoruðu sjö stig í röð og tryggðu sér 11 stiga forystu þegar flautað var til hálfleiks, 29-38. Síðari hálfleikur hófst eins og sá fyrri, það er að segja með skelfilegum varnarleik Skalla- gríms en að sama skapi magnaðri vörn Njarðvíkur. En í þetta sinn gekk sókn Njarðvíkinga eins og smurð vél, þeir skoruðu fyrstu 14 stig hálfleiksins og náðu 23 stiga forystu, 29-52. Þessi leikkafli virk- aði sem kjaftshögg á heimamenn og fyrir vikið molnaði sjálfstraust- ið. Að loknum þriðja leikhluta var staðan orðin 40-64 og var því vitað að heimamenn þyrftu á krafta- verki að halda til að snúa leiknum við. Sú varð ekki raunin og fór Njarðvík því með öruggan sigur af hólmi. Það var fyrst og fremst mögn- uð liðsheild sem skóp sigur Njarð- víkur í gær, rétt eins og í öðrum sigurleikjunum gegn Skallagrími. Vörnin var gríðarlega öflug og áttu leikmenn Skallagríms ekkert svar við grimmd og baráttu and- stæðinganna sinna. Þó verður sér- staklega að minnast á þáttar Brentons Birmingham, en hann hélt uppteknum hætti frá því í þriðja leiknum og spilaði hreint stórkostlega, jafnt í vörn sem sókn. Hann var klárlega mikil- vægasti leikmaður þessarar úrslit- arimmu, tók af skarið þegar á reyndi og sýndi hversu mikill yfir- burðamaður hann er í íslenskum körfubolta þegar hann vill. - vig Vörnin okkar var yndisleg Njarðvíkingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta í gær með mögn- uðum sigri á Skallagrími, 81-60. Njarðvík vann úrslitaeinvígið alls 3-1. EINFALDLEGA LANGBESTIR Fyrirliðarnir Friðrik Stefánsson og Halldór Karlsson sjást hér taka á móti bikarnum glæsilega eftir leikinn í gær. Til hægri sést í Brenton Birmingham, sem valinn var besti leikmaður úrslitakeppninnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI HANDBOLTI Evrópumeistarar Frakka unnu hið svokallaða Bercy- æfingamót sem fram fór í heima- landi þeirra um páskana. Í lokal- eik sínum rúlluðu þeir auðveldlega yfir Þjóðverja 35-25 í París í dag en það voru þeir Stefán Arn- aldssson og Gunnar Viðarsson sem dæmdu leikinn og gerðu það með stakri prýði. Þjóðverjar fór stigalausir í gegn- um þetta mót á meðan heimamenn unnu alla sína leiki. Tékkland hafn- aði í öðru með því að sigra Dan- mörku í lokaleik sínum 39-36 en fjögur lið tóku þátt í mótinu. - egm Æfingamót landsliða: Frakkar unnu á heimavelli JOEL ABATI Spilaði vel í París um helgina.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.